Home Podcasts Gervigreindarklúbburinn
Gervigreindarklúbburinn

Gervigreindarklúbburinn

Stefán Atli 36 Episodes Sep 17, 2026

Í hlaðvarpi Gervigreindarklúbbsins rýnum við í áhrif gervigreindar á heiminn, vinnuna og lífið sjálft. Hér mætast forvitni og framtíðarsýn þegar við tölum við sérfræðinga, frumkvöðla og skapandi hugsuði sem eru að móta nýja stafræna öld. Við skoðum hvernig tæknin breytir samfélaginu – ekki með ótta, heldur með áhuga og innsæi. Hvort sem þú vinnur í nýsköpun, menntun, listum eða einfaldlega vilt skilja heiminn sem er að verða til, þá er þetta þinn vettvangur til að vera á undan.

Episodes

49. Frá CCP til Star Wars: Ferill Sigurlínu Ingvarsdóttur
49. Frá CCP til Star Wars: Ferill Sigurlínu Ingvarsdóttur Sep 17, 2026 00:47:58 Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.isHvað þarf til að stýra einu stærsta tölvuleikjaverkefni heims — og hvernig veit fjárfestir hvaða leikjahugmynd á möguleika á að slá í gegn?Sigurlína Ingvarsdóttir hefur starfað við tölvuleikjagerð í tæp tuttugu ár. Hún hóf ferilinn hjá CCP, vann að The Division hjá Ubisoft og stýrði framleiðslu Star Wars Battlefront hjá EA DICE.
48. „Þá er sálin alveg farin“ – Háski um gervigreind í tónlist
48. „Þá er sálin alveg farin“ – Háski um gervigreind í tónlist Sep 10, 2026 00:34:42 Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.isHvað verður um tónlistarmenn þegar gervigreind getur samið, sungið og pródúserað lag á nokkrum sekúndum?Í þessum þætti Gervigreindarklúbbsins sest Darri Tryggvason, betur þekktur sem Háski, niður með Stefáni Atla og ræðir tónlistina, sköpunina, íslenska tónlistarbransann og áhrif gervigreindar á framtíð tónlistar.Háski segir frá
47. Er gervigreind stærsta siðferðilega áskorun samtímans? - Ketill Berg Magnússon
47. Er gervigreind stærsta siðferðilega áskorun samtímans? - Ketill Berg Magnússon Sep 8, 2026 00:36:57 Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.is.Er gervigreind að hjálpa okkur að hugsa betur — eða er hætta á að við hættum smám saman að hugsa sjálf?Gestur þáttarins er Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, heimspekingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Festu. Hann hefur lengi unnið á mörkum siðfræði, mannauðsmála og ábyrgs r
46. Getur gervigreind verið fyndin? – Hugleikur Dagsson
46. Getur gervigreind verið fyndin? – Hugleikur Dagsson Sep 1, 2026 00:46:09 Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.is.Getur gervigreind orðið raunverulega fyndin — eða þarf hún fyrst að skilja sársauka, reynslu og mannlega bresti?Gestur þáttarins er Hugleikur Dagsson, teiknari, rithöfundur og grínisti sem hefur í meira en tvo áratugi fengið Íslendinga til að hlæja, hneykslast og velta því fyrir sér hvort þeir hafi yfirhöfuð mátt hlæja.Í þættin
45. Vandamálið var ekki ég – heldur skólakerfið“ – Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir
45. Vandamálið var ekki ég – heldur skólakerfið“ – Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir Aug 27, 2026 00:50:37 Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og eignaskanni.is.Þátturinn er einnig í boði Akademias.is.Hvað gerist þegar barni er talin trú um að skóli sé ekki fyrir það — en verður síðan afburðanemandi um leið og námsumhverfið breytist?Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir er lesblind, með ADHD og einhverf. Hún fór óhefðbundna leið fram hjá framhaldsskólanum, lauk BA- og MS-gráðum við University of Florida og
44. Björn Berg: „Ég myndi aldrei biðja ChatGPT um álit á peningum“
44. Björn Berg: „Ég myndi aldrei biðja ChatGPT um álit á peningum“ Aug 25, 2026 00:48:08 Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og eignaskanni.isSamstarfsaðili þáttarins er Akademias.is.Er raunverulega hægt að fjárfesta sig til auðs — eða verður fólk ríkt með því að losa sig við skuldir?Björn Berg Gunnarsson, sjálfstæður fjármálaráðgjafi, fyrirlesari og höfundur bókarinnar Peningar, sest í stólinn og ræðir fjármálalegt svigrúm, algengustu mistökin með peninga og hvers vegna sálfræðin
43. Helgi Hrafn – Er gervigreindin farin að hugsa fyrir okkur?
43. Helgi Hrafn – Er gervigreindin farin að hugsa fyrir okkur? Aug 20, 2026 00:57:07 Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og Akademias.isEr gervigreindin að hjálpa okkur að hugsa — eða er hún smám saman farin að hugsa fyrir okkur?Helgi Hrafn Gunnarsson, forritari og fyrrverandi þingmaður Pírata, mætir í Gervigreindarklúbbinn og ræðir af hreinskilni um gervigreind, gagnrýna hugsun, persónuvernd og framtíð samfélagsins.Í þættinum ræðum við meðal annars:Af hverju He
42. Goonhunter breytti grófu netáreiti í milljónasöfnun - Rósa Björk GoonHunter
42. Goonhunter breytti grófu netáreiti í milljónasöfnun - Rósa Björk GoonHunter Aug 18, 2026 00:47:27 Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og eignaskanni.isHvað gerist þegar gervigreind getur búið til fullkominn klón af þér — og látið hann vinna meðan þú sefur?Rósa Björk, betur þekkt sem Goonhunter, mætir í einlægt og skemmtilegt spjall. Hún segir frá því hvernig hún byrjaði að streyma tölvuleikjum, hvernig Goonhunter varð til og góðgerðarstreymunum sem hún hefur haldið fyrir Píeta.Rósa ræðir ei
41. KK: „Þegar hjartað talar þá heyrir hjartað“ - Gervigreind og tónlist 5
41. KK: „Þegar hjartað talar þá heyrir hjartað“ - Gervigreind og tónlist 5 Aug 11, 2026 00:45:48 Getur gervigreind búið til tónlist sem kemur frá hjartanu?Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum sest KK niður með Stefáni Atla í einlægt og skemmtilegt samtal um tónlist, sköpun, tæknibyltingar og gervigreind.Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og eignaskanni.isKK rifjar meðal annars upp árin þegar hann ferðaðist um Evrópu með fjölskyldunni og spilaði á götum úti, segir ótrúlegu söguna á bak
40. Gervigreind og stjórnmál 4 - Jónas Már
40. Gervigreind og stjórnmál 4 - Jónas Már Jul 7, 2026 00:36:10 Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is og Eignaskanni.isHvar á gervigreind heima í sveitarfélögum — og hvar eigum við að draga mörkin?Í þessum þætti ræðum við við Jónas Má Torfason um AI í opinberri þjónustu, lýðræðislega ábyrgð, gagnavinnslu og ákvarðanatöku. Getur gervigreind hjálpað bæjarfélögum að vinna betur úr gögnum, greina þjónustuþörf og undirbúa betri ákvarðanir — eða er hætta á að við f
39. Gervigreind og bókhald 2 - Erla hjá Bella Books
39. Gervigreind og bókhald 2 - Erla hjá Bella Books Jun 30, 2026 00:23:05 Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.isÍ þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum fær Stefán Atli í heimsókn Erlu Símonardóttur, stofnanda Bella Books AI, sem er að þróa gervigreindarlausn sem sjálfvirknivæðir bókhald fyrir eldri bókhaldskerfi.Erla segir frá rúmlega 20 ára reynslu sinni úr bókhaldi og fjármálastjórnun, meðal annars hjá Deloitte, sem rekstraraðili eigin bókhaldsstofu og sem fjármálastj
38. Gervigreind og langtímahugsun - Hlöðver hjá APRÓ
38. Gervigreind og langtímahugsun - Hlöðver hjá APRÓ Jun 23, 2026 00:23:11 Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.isÍ þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum ræðir Stefán við Hlöðver, framkvæmdastjóra hjá APRÓ, um stöðu gervigreindar á Íslandi, raunverulegt virði tækninnar og hvers vegna fyrirtæki þurfa að hugsa stærra en bara að nota AI til að skrifa tölvupósta eða taka saman texta.Hlöðver segir frá því hvernig APRÓ er að byggja upp nútímalegt upplýsingatæknifyrirtæki með áh

Recommended