Home Podcasts Félagsráðgjafahlaðvarpið
Félagsráðgjafahlaðvarpið

Félagsráðgjafahlaðvarpið

Félagsráðgjafafélagið 3 Episodes Jul 29, 2026

Hlaðvarp Félagsráðgjafafélags Íslands er vettvangur fyrir samtal, þekkingu og innsýn í heim félagsráðgjafar. Þar er fjallað um málefni sem snerta daglegt starf félagsráðgjafa, þróun fagsins, nýjar rannsóknir, samfélagsbreytingar og áskoranir í velferðarþjónustu. Í þáttunum heyrum við raddir fagfólks, skjólstæðinga og sérfræðinga sem varpa ljósi á fjölbreytt hlutverk félagsráðgjafa og mikilvægi þeirra í samfélaginu. Hlaðvarpið tengir saman fagið, miðlar reynslu og styrkir umræðu um velferð, réttindi og mannlega reisn.

Episodes

Þáttur #8 - Ásta Kristín Guðmundsdóttir og Friðrik Arnbjörnsson
Þáttur #8 - Ásta Kristín Guðmundsdóttir og Friðrik Arnbjörnsson Jul 29, 2026 00:35:18 Í dag ætlum við sjónum okkar að einu af mikilvægustu verkefnum samfélagsins og það er að vernda börn og skapa þeim öryggi.Til okkar eru komin þau Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi, og Friðrik Arnbjörnsson frá samtökunum B.A.C.A (Bikers Against Child Abuse).
Þáttur #7 - Regína Ásvaldsdóttir
Þáttur #7 - Regína Ásvaldsdóttir Jul 23, 2026 00:48:19 Í þessum þætti ætlum við að ræða hvernig menntun í félagsráðgjöf getur orðið sterkur grunnur að leiðtogahlutverki og stjórnun.Gestur minn í dag er Regína Ásvaldsdóttir félagsráðgjafi sem hefur gegnt fjölmörgum stjórnunarstörfum.Í nýlegu viðtali í Tímariti félagsráðgjafa segir hún að félagsráðgjöf hafi mótað sig sem leiðtoga.
Þáttur #6 - Valgerður Halldórsdóttir
Þáttur #6 - Valgerður Halldórsdóttir Jul 15, 2026 00:53:27 Í þessum þætti ætlum við að beina sjónum að veruleika sem að margir þekkja en of fáir tala nægilega skýrt um.Líf barna sem alast upp á tveimur heimilum, oft með stjúpforeldrum á báðum stöðum og flækjustigi sem getur fylgt því, bætanlegu lífi og innan kerfa sem eiga að styðja þau.Þótt þessi fjölskyldumynstur séu orðin algeng bendir ný umræða til þess að við séum enn ekki að ná utan um upplifun barn
Þáttur #5 - Sólveig Sigurðardóttir
Þáttur #5 - Sólveig Sigurðardóttir Jul 1, 2026 00:53:47 Í þessum þætti fáum við til okkar Sólveigu Sigurðardóttur, félagsráðgjafa með meistaragráðu, deildarstjóra farsældarþjónustu barna hjá Akraneskaupstað, lektor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og faglegan handleiðara.Sólveig hefur áratuga reynslu af barnavernd, þróun samþættrar þjónustu og þverfaglegu samstarfi.Hún hefur sérstaklega lagt áherslu á tengslamiðaðar vinnuaðferðir og hvernig fél
Þáttur #4 - Guðrún Marínósdóttir
Þáttur #4 - Guðrún Marínósdóttir Jun 19, 2026 00:39:39 Í þessum þætti fáum við til okkar einstaklega áhugaverðan gest, hana Guðrúnu Marínósdóttur, sem sameinar á einstakan hátt heim félagsráðgjafar, leiklistar, og myndlistar.Guðrún er félagsráðgjafi, leikkona og myndlistarkona og í ár málar hún forsíðumyndina á tímariti félagsráðgjafa 2026.Við ætlum að ræða um lífið, listina, félagsráðgjöfina og tengslin þar á milli og hvað það er sem myndlist getur s
Þáttur #3 - Hervör Alma Árnadóttir
Þáttur #3 - Hervör Alma Árnadóttir Jun 10, 2026 00:43:14 Í þessum þætti ætlum við að ræða félagsráðgjafanám við Háskóla Íslands, þróun þess og framtíð.Hvernig eru félagsráðgjafar menntaðir fyrir sífellt flóknari verkefni í samfélaginu? Hvers vegna eru starfsréttindi nú bundin við meistaragráðu?Hvaða hæfni þarf félagsráðgjafi framtíðarinnar að búa yfir og hvernig tryggjum við að námið haldist í takt við þarfir samfélagsins?Gestur minn er Hervör Alma Árna
Þáttur #2 - Páll Ólafsson
Þáttur #2 - Páll Ólafsson May 27, 2026 00:57:30 Í dag ætlum við að fara beint í eina stærstu umbreytingu sem er að eiga sér stað í þjónustu við börn og fjölskyldur á Íslandi.Við ætlum að tala um farsældarlögin og hvað gerist þegar þau eru ekki bara orð á blaði heldur lifandi verkfæri í daglegu starfi.Við ætlum einnig að kafa dýpra í "signs of safety", nálgun sem snýr að því hvernig við hugsum um ábyrgð samtala og lausna.Spurningin er
Þáttur #1 - Steinunn Bergmann
Þáttur #1 - Steinunn Bergmann May 13, 2026 00:43:31 Velkomin í Félagsráðgjafahlaðvarpið. Það eru ákveðin tímamót í miðlun og sýnileika hjá okkur, því með því að hefja hlaðvarp í hljóði og mynd þá erum við farin á nýjan vettvang.Við viljum opna lifandi samtöl um fagið, fólkið, áskoranirnar og framtíðina.Við erum líka að opna alveg nýja leið í fjölmiðlun félagsins með því að dýpka viðtölin í tímaritinu okkar og gefa lesendum kost á að skanna inn QR k

Recommended