Home Podcasts Austurland hlaðvarp
Austurland hlaðvarp

Austurland hlaðvarp

Austurbrú 33 episodes Latest Jan 17, 2024

Hlaðvarp á vegum Austurbrúar þar sem fjallað er um ýmis málefni tengd austfirsku samfélagi og verkefnum stofnunarinnar.

Episodes

33 – Skógarafurðir Jan 17, 2024 38:33 Í þessum þætti er rætt við Bjarka Jónsson, frumkvöðul og skógarbónda í Fljótsdal. Hann er annar eigenda Skógarafurða ehf. sem er úrvinnslustöð fyrir skógarafurðir. Í þættinum fræðumst við um fyrirtækið, tilurð þess, framtíðarsýnina og hvernig hafi gengið að koma sér á markað en fyrirtækið fékk myndarlegan styrk úr Uppbyggingarsjóði til markaðssetningar fyrir áramót.Umsjón hefur Jón... Read more &
31 – Skriðuklaustur og heilsársferðaþjónusta í Mjóafirði Nov 29, 2023 45:07 Skriðklaustur í Fljótsdal hlaut nýverið nýsköpunarviðurkenningu Samtaka ferðaþjónustunnar en síðustu ár hafa forstöðumenn Skriðuklausturs unnið að stafrænni þróun t.d. með leikjavæðingu safnsins. Við heyrum í Skúla Birni Gunnarssyni, forstöðumanni Gunnarsstofnunar, og ræðum við hann um starfsemina. Í Mjóafirði er verið að byggja upp heilsársferðaþjónustu undir einkunnarorðunum friðsæld og fegurð.
30 – Matarmót 2022 Oct 25, 2022 0:00 Matarmót Matarauðs Austurlands 2022 var haldið föstudaginn 21. október í Hótel Valaskjálf. Þar voru haldnar málstofur auk þess sem matvælaframleiðendur á Austurlandi kynntu framleiðslu sína og buðu upp á smakk. Í þættinum er rætt við sýnendur, gesti, fyrirlesara og skipuleggjendur en fram koma: Bryndís Fiona Ford, skólastjóri Hallormsstaðaskóla; Þórhildur María Jónsdóttir, verkefnastjóri vörusmiðj
29 – Austurbrú 10 ára – menningarstarf á Austurlandi Sep 22, 2022 0:00 Austurbrú hélt upp á sitt fyrsta stórafmæli í vor eftir viðburðaríkan áratug. Frá stofnun hefur stofnunin unnið að fjölmörgum verkefnum á sviði markaðssetningar, atvinnuþróunar, fræðslu og síðast en ekki síst menningar. Fáir þekkja menningarstarfsemi á Austurlandi jafn vel og Signý Ormarsdóttir, yfirverkefnasstjóri hjá Austurbrú. Um árabil var hún framkvæmdastjóri Menningarráðs Austurlands, þegar
28 – Námsferð til Svíþjóðar Sep 12, 2022 0:00 Dagana fimmta til áttunda september fóru nokkrir starfsmenn Austurbrúar í námsferð til Svíþjóðar til að kynna sér náms- og starfsráðgjöf fyrir innflytjendur. Í þættinum er sagt frá ferðinni, tilurð hennar og tilgangi. Rætt er við sænska náms- og starfsráðgjafann Daniel Hailemariam, íslenskukennarann Berglindi Einarsdóttur og ráðgjafana Þorbjörgu Ólöfu Jónsdóttur og Hrönn Grímsdóttur. Umsjón með þæ
27 – Sterkur Stöðvarfjörður Aug 29, 2022 0:00 Stöðvarfjörður hefur alla burði til að eflast sem ferðamannastaður og menningar- og nýsköpunarbær. Hægt er að styrkja byggðina með því að nýta tækifæri á sem flestum sviðum og byggja á því sem þegar er til staðar. Leggja ætti áherslu á góða aðstöðu til útivistar og fjölskyldusamveru og mikilvægt er að auka framboð á íbúðarhúsnæði. Þetta... Read more »
26 – Austurbrú tíu ára Jun 8, 2022 0:00 Austurbrú hélt upp á sitt fyrsta stórafmæli nú í vor eftir viðburðarík tíu ár. Í tilefni afmælisins var boðið til hátíðardagskrár í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði þar sem m.a. voru haldin nokkur erindi. Öll tengdust þau með einum eða öðrum hætti Svæðisskipulagi Austurlands 2022-2044. Stefán Bogi Sveinsson, skáld og sveitarstjórnarfulltrúi, talaði um sjálfsmynd Austfirðinga. Páll... Read
25 – Dyrfjallahlaup Jan 11, 2022 37:56 Í fyrsta þætti ársins fjöllum við um Dyrfjallahlaupið sem fram fer þann 9. júlí næstkomandi og verður efalítið einn af hápunktum ferðasumarsins á Austurlandi árið 2022. Þetta er utanvegahlaup sem nýtur vaxandi vinsælda enda hlaupið um einstaklega stórbrotið og fjölbreytt landslag. Viðmælandi þáttarins er Olgeir Pétursson, hlaupastjóri. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
24 – Fólk hugsar stærra Dec 10, 2021 27:11 Matarmenningin á Austurlandi er svo sannarlega bæði fjölbreytt og spennandi þessi misserin. Albert Eiríksson hefur verið á ferð á flugi fyrir austan og prófað girnilega rétti sem lesa má um á heimasíðunni hans alberteldar.is. Hann er ánægður með austfirskt matreiðslu- og veitingafólk og finnst það hugsa sífellt stærra. Jón Knútur Ásmundsson ræddi við Albert og... Read more »
23 – Uppbygging á Seyðisfirði Dec 3, 2021 22:58 Atvinnulífið á Seyðisfirði stóð frammi fyrir fordæmalausum og fjölþættum vanda í kjölfar hamfaranna í desember 2020 og í framhaldinu fór af stað verkefni innan Austurbrúar sem kallast Uppbygging á Seyðisfirði og í þess nafni hefur verið veitt ýmis konar ráðgjöf síðustu mánuði auk þess sem hvatasjóður var settur á laggirnar. Honum er m.a. ætlað að... Read more »
22 – Menningarverðlaun SSA Nov 25, 2021 13:58 Guðmundur R. Gíslason, tónlistarmaður frá Neskaupstað, hlaut menningarverðlaun Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) sem tilkynnt var um á haustþingi sambandsins er haldið var 19. nóvember. Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum á Austurlandi fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar. Í þættinum ræðir Guðmundur um þýðingu verðlaunanna, mikilvægi opinbers stuðni
21 – Svæðisskipulag Austurlands Nov 24, 2021 26:11 Föstudaginn 19. nóvember fór fram haustþing Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Á því voru mættir til leiks hópur kjörinna fulltrúa hjá sveitarfélögunum á Austurlandi og á þinginu bar hæst umræða um svonefnt svæðisskipulag á Austurlandi sem unnið hefur verið að síðustu misseri. Í þættinum ræðir Stefán Bogi Sveinsson, formaður svæðisskipulagsnefndar Austurbrúar, um tilgang vinnunnar og markmið...

Recommended

Playing