Home Podcasts Aldrei las ég Laxness
Aldrei las ég Laxness

Aldrei las ég Laxness

RÚV Hlaðvörp 4 Episodes Sep 17, 2026

Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð og ræða þær með góðum gestum. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Umsjónarmenn eru Tómas Ævar Ólafsson og Silvía Sif Ólafssdóttir.

Episodes

06: Heimsljós I
06: Heimsljós I Sep 17, 2026 1:07:16 Heimsljós er stórvirki sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940 og skiptast hlutarnir í 1. Ljós heimsins 2. Höll sumarlandssins 3. Hús skáldsins 4. Fegurð himinsins. Heimsljós fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Nafnið Heimsljós er sótt í síðustu ljóðlínur kvæðisins Söknuður eftir Jónas Hallgrímsson: Hnigið er heimsljós,/himi
Aukaþáttur; Salka - ástin og dauðinn
Aukaþáttur; Salka - ástin og dauðinn Sep 17, 2026 45:52 Í þættinum ræðum við fyrsta hluta Sölku Völku og sýninguna Salka; Ástin og dauðinn, við leikkonuna, leikskáldið og leikstjórann Unni Ösp Stefánsdóttur. Sýningin er einleikur á vegum þjóðleikhússins og Landnámsseturs Íslands, byggður á fyrsta bindi skáldsögunnar og hefur vakið umtalsverða athygli undanfarna mánuði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Aukaþáttur; Magnús Jóhann og Laxness safnið / Gunnlaugur Bjarnason og sálmabókasvipur
Aukaþáttur; Magnús Jóhann og Laxness safnið / Gunnlaugur Bjarnason og sálmabókasvipur Sep 17, 2026 42:40 Halla hittir Magnús Jóhann Ragnarsson, tónlistarmann, á vinnustofu sinni og ræðir við hann um veglegt Laxness safn sem hann hefur komið sér upp. Síðan ræðir Tómas við Gunnlaug Bjarnason, söngvara, um vörumerkið Laxness, þá sérstaklega línurnar sem einkenna flestar bókakápur skáldsins og nefnast sálmabókasvipur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Aukaþáttur; Davíð Þór á Gljúfrasteini
Aukaþáttur; Davíð Þór á Gljúfrasteini Sep 17, 2026 50:20 Í þessum sérstaka aukaþætti Aldrei las ég Laxness komum við okkur fyrir í betri stofunni á Gljúfrasteini ásamt tónlistarmanninum Davíð Þór Jónssyni og ræðum um tónlist innan og í kringum verk Halldórs Laxness, sem og; eðli og tengsl ritlistar, tónlistar, hversdagsleikans og tilverunnar. Einnig verður leikið á flygilinn beint upp úr textum Halldórs og snert á sönglögum sem samin hafa verið við kvæð
05: Úngfrúin góða og Húsið
05: Úngfrúin góða og Húsið Jun 19, 2026 51:24 Úngfrúin góða og Húsið er stutt verk sem Halldór Laxness skrifar um efri stétt í þorpinu Eyvík og tilraunum hennar til að stjórna narratífunni um sjálft sig. Sagan er systrasaga, Rannveig er yngri systirin sem sagan hverfist um en Þuríður er sú eldri sem gift er verslunarmanni þorpsins og gerir allt í sínu valdi til að viðhalda heiðri ættar sinnar og húss - en verk hennar koma því miður niðri á lí
04: Salka Valka
04: Salka Valka May 15, 2026 1:41:46 Salka Valka kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932. Sölku skrifaði Halldór Laxness fyrst sem hugmynd að kvikmynd á meðan hann dvaldi í Bandaríkjunum þar sem hann var í viðræðum við framleiðsluöflin í Hollywood um að gera kvikmynd um þessa sterku konu á buxum. Skáldsagan verður síðan til eftir að Halldór snýr aftur heim án kvikmyndasamnings og breytast þá drættir sögunnar umtalsvert en Salka Val
03: Vefarinn mikli frá Kasmír
03: Vefarinn mikli frá Kasmír May 15, 2026 1:17:49 Vefarinn mikli frá Kasmír gaf Halldór Kiljan Laxness út árið 1927 við alls konar undirtektir. Sagan hverfist um unga manninn Stein Elliða sem haldinn er miklu hugarvíli og núrótík og leitar lausna við kvillum sínum í stóru hugmyndakerfum heimsins.Vefarinn mikli frá Kasmír er umdeild bók. Stuttu eftir útgáfu birtust tvær frægir og mjög ósammála dómar um hana í sama tímariti annar rómaði hana með or
02: Undir Helgahnúk
02: Undir Helgahnúk Mar 23, 2026 1:02:21 Undir Helgahnúk kom út árið 1924. Verkið skrifaði Halldór Laxness í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið. Skáldsagan er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar, sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer í framhaldi að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfun
01: Barn náttúrunnar
01: Barn náttúrunnar Feb 20, 2026 53:56 Í þessum þætti ræðum fyrstu skáldsögu Halldórs, Barn náttúrunnar, með góðum gestum, þeim Vilhelm Neto, leikara og Halldóri Guðmundssyni, rithöfundi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Recommended