Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.
Episodes

20. nóv - Breytist eitthvað með Pochettino og Valsari fór á vitlausan flugvöll
Mauricio Pochettino stýrir Man. Utd í fyrsta sinn um helgina og fær alvöru verkefni er Man. Utd sækir Liverpool heim. Valur tapaði naumlega á Egilsstöðum í Bónus deild karla í gær og hjálpaði ekki til að liðið var án Jelani Simmons sem fór á Keflavíkurflugvöll er hann átti að fljúga austur.

19. nóv - Þreyttir körfuboltamenn eftir GTA nótt og ömurleg mynd um Madden
Tölvuleikurinn GTA kom út í nótt og eflaust margir íþróttamenn sem vöktu lengi að spila. Það mun örugglega hafa einhver áhrif á þeirra leik. Til að mynda í Bónus deild karla í kvöld þar sem stórleikurinn er á milli Álftaness og Grindavíkur. Svo ræðum við aðeins um áhugaverða mynd um John Madden sem kom út í gær.

18. nóv - Jói Berg lætur KSÍ heyra það og vandræði á ÍR í körfunni
Jóhann Berg Guðmundsson sparaði ekki stóru orðin í garð KSÍ í gær og lét menn heyra það. Kvennalandsliðið í körfubolta náði sögulegum sigri, Heimir Hallgríms lifir af sem þjálfari Írlands og Herra ÍR yfirgefur uppeldisfélagið í körfunni.

17. nóv - Ósammála um Víkingaklappið, Arnar fær einkunn og starfsöryggi Heimis
Karlalandsliðið í fótbolta lauk keppni í Þjóðadeild karla þennan veturinn með góðum 3-0 sigri í gær þar sem goðsögn var kvödd.
Þeir Henry Birgir, Stefán Árni og Valur Páll gerðu Þjóðadeildina upp sem og leik gærkvöldsins. Aðstaða blaðamanna í frostinu var til umræðu og frammistaða Arnars Gunnlaugssonar í starfi.
Starfsöryggi Heimis Hallgrímssonar bar einnig á góma sem og töluvert fleira.
Þáttinn m

16. nóv - Í minningu Guðjóns Þórðarsonar og Aron Einar jafnar metið í kvöld
Ísland spilar við Lúxemborg í Þjóðadeildinni í kvöld. Guðjóns Þórðarsonar verður minnst fyrir leik og Besta sætið rifjar upp magnaðan feril Guðjóns. Aron Einar Gunnarsson mun svo örugglega koma við sögu í kvöld og jafna landsleikjametið í sínum síðasta landsleik. Svo má ekki gleyma U21 sem ætlar að komast á stórmót í kvöld.

9. nóv - Væll í Stjörnumönnum og Man. Utd í fallsæti
Staðan í ensku úrvalsdeildinni er afar áhugaverð er deildin fer aftur í landsleikjafrí. Man. Utd mun sitja í fallsæti næstu daga á meðan Man. City er í frjálsu falli. Stjörnumenn kvarta yfir að fá ekki að æfa í hádeginu en fá enga vorkunn í Besta sætinu. Handboltalandsliðið fær hrós og NFL-hornið er á sínum stað.

Jökull Elísabetarson: Spennandi starf í Kópavogi og Halldór Árna þarf að hafa sig hægan
Jökull Elísabetarson tók í dag við sem þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta. Jökull þekkir vel til í Kópavogi en hann var leikmaður liðsins sem vann fyrstu titla í sögu þess og varð bikarmeistari 2009 og Íslandsmeistari 2010. Hann þjálfaði þá annan flokk hjá liðinu og hóf sinn þjálfaraferil hjá venslafélaginu Augnabliki.
Jökull hefur stýrt Stjörnunni undanfarin ár en var sagt upp á miðju nýli

6. nóv - Jökull í Blika, Tufa í KA og KR með læti í körfunni
Tíðindi á þjálfaramarkaði í dag. Jökull Elísabetarson tekinn við Blikum og Srdjan Tufegdzic tekur við KA væntanlega í næstu viku. KR vann stórslaginn á Álftanesi í gær og slökkti í ofpeppinu í garð Álftnesinga.

5. nóv - Ronaldo kveður og getur KR unnið Álftanes?
Cristiano Ronaldo tilkynnti í dag að hann hefði leikið sinn síðasta landsleik. Ótrúlegur 23 ára landsliðsferill hjá honum. KR sækir Álftanes heim í kvöld en bæði lið eru með fullt hús. Eitthvað þarf undan að láta.

4. nóv - Skyldusigur í kvöld hjá strákunum okkar og áhugaverð ummæli hjá Arnari Gunnlaugs
Landslið eru í brennidepli í dag. Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu eiga heimaleik í kvöld og svo var Arnar Gunnlaugsson að kynna hópinn hjá fórboltalandsliðinu. Man. Utd vann fótboltaleik og Meistaradeildin rúllar áfram í kvöld.

3. nóv - Áhugaverð ummæli Teits krufin og vinnur Man. Utd loksins leik?
Teitur Örlygsson var með áhugaverða yfirlýsingu um lið Álftaness í körfuboltanum fyrir helgi. Álit sem hefur skapað mikla umræðu og umtal. Besta sætið hellir sér í umræðuna. Svo fer Meistaradeildin aftur á fullt í kvöld og pressan er á Man. Utd.

Hólmar Örn Eyjólfsson: Vandræði Vals, bankahrun í West Ham og pabbi sem þjálfari
Hólmar Örn Eyjólfsson, fráfarandi fyrirliði Vals í fótbolta, hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna eftir langan feril. Hólmar hóf ferilinn hjá HK hér á landi en fór ungur til West Ham á Englandi. Hann átti sín bestu ár í Rosenborg fyrir smá brölt í Ísrael og Búlgaríu áður en hann sneri aftur til Rosenborgar fyrir heimför.
Hann var um tíma leikjahæsti U21 árs landsliðsmaður Íslands og var fyrirliði











