Home Podcasts Bíddu Bara
Bíddu Bara

Bíddu Bara

Bíddu bara 28 Episodes Sep 15, 2026

Mömmuhópurinn þinn í eyrunum 🎧. Hlaðvarpið fjallar um lífið, foreldrahlutverkið og allt þar á milli með hlýju og húmor.

Episodes

Valgerður - stjúptengsl
Valgerður - stjúptengsl Sep 15, 2026 01:22:36 Í þessum ættir fengum við hana Valgerði Halldórsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa og konuna á bak við stjuptengsl.is til okkar. Við ræddum allt það sem getur reynst flókið í stjúpfjölskyldum og foreldrasamvinnu. Hvernig er að sameina fjölskyldur? Hvað gerist þegar upp koma árekstrar og ólíkar væntingar? Og hvernig getum við byggt upp góð tengsl innan fjölskyldunnar?Valgerður hefur bæði persónu
Áslaug - Lífið er kynlíf ❤️
Áslaug - Lífið er kynlíf ❤️ Sep 8, 2026 01:17:49 Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur kom til okkar og ræddi kynlíf og sambönd fólks á barneignaraldri. Það getur verið krefjandi fyrir sambandið að ganga í gegnum meðgöngu, fæðingu og fyrstu árin með ung börn, þegar tími og orka fara oft í annað en sambandið sjálft.
Sara Scime - bleyjulaust uppeldi og koppaþjálfun 👶🚽
Sara Scime - bleyjulaust uppeldi og koppaþjálfun 👶🚽 Sep 1, 2026 01:20:59 Fengum til okkar Söru Anítu Scime, betur þekkta sem Koppagelluna á TikTok! Sara byrjaði að venja strákana sína tvo á kopp aðeins nokkurra vikna gamla og segir okkur frá bleyjulausu uppeldi, eða "elimination communication", sem getur sparað manni ansi margar bleyjur og bleyjuskipti!Mjög áhugavert spjall þar sem Sara gefur góð ráð fyrir börn á öllum aldri. Það er nefnilega aldrei of seint að byrja ✨
Sara Davíðsdóttir - erfið meðganga og hreiðurgerð í flutningum ✈️🏡
Sara Davíðsdóttir - erfið meðganga og hreiðurgerð í flutningum ✈️🏡 Aug 25, 2026 01:36:34 Fengum til okkar Söru Davíðsdóttur, einkaþjálfara, flugfreyju og mömmu💛 Sara segir frá afar krefjandi meðgöngu þar sem hún glímdi við mikla ógleði og upplifði að meðgangan færi ekki alveg eins og hún hafði séð fyrir sér.Við ræðum líka flutningana hennar frá Barein til Íslands og hvernig það reyndist mun flóknara en hún bjóst við að flytja tvo hunda með sér heim 🐶🐶
Helena Guðrún – missir á meðgöngu og Gleym Mér Ei 🕊️
Helena Guðrún – missir á meðgöngu og Gleym Mér Ei 🕊️ Aug 18, 2026 01:43:52 Helena Guðrún deilir með okkur persónulegri og áhrifamikilli sögu sinni af missi á 15. viku meðgöngu, sorginni sem fylgdi í kjölfarið og lífinu eftir slíka reynslu.Helena situr í stjórn styrktarfélagsins Gleym Mér Ei, sem styður við foreldra og fjölskyldur sem missa á meðgöngu eða í og eftir fæðingu. Í þættinum ræðum við um sorgarferlið, mikilvægi stuðnings og hvernig félagið vinnur að því að litl
Þórhildur Þorkels - Tæland í fæðingarorlofinu 🏝️
Þórhildur Þorkels - Tæland í fæðingarorlofinu 🏝️ Aug 11, 2026 01:22:04 Við fengum Þórhildi Þorkels til okkar í spjall en hún fór með fjölskyldunni sinni til Taílands í fæðingarorlofinu. Hún fer yfir hvernig það var að ferðast með lítið barn, undirbúninginn og allt það sem við kemur svona ferðalagi. Þórhildur deilir fullt af gagnlegum ráðum og reynslu fyrir þá sem dreyma um að skella sér í svipað ævintýri, hvort sem það er í fæðingarorlofi eða á öðrum tímapunkti í líf
Orðablik
Orðablik Aug 4, 2026 01:03:54 Fengum Ásdísi og Hjördísi, stofnendur Orðabliks, í spjall um málþroska barna. Hjördís er talmeinafræðingur og Ásdís er með bs í sálfræði. Þær segja okkur frá Orðabliki, deila gagnlegum ráðum til að styðja við góðan málþroska barna og ræða hvernig við getum nýtt daglegar stundir til að efla málþroskann. Við förum einnig yfir skjátíma, þær áskoranir sem foreldrar standa frammi fyrir í dag og hvernig
Hlutir sem eru peningana virði💰
Hlutir sem eru peningana virði💰 Jul 28, 2026 01:03:18 Í þessum þætti förum við yfir það sem okkur finnst raunverulega vera peningana virði, bæði fyrir börnin og okkur sjálfar 💸👶
Mýtur
Mýtur Jul 21, 2026 00:53:07 Förum yfir mýtur sem við höfum heyrt í gegnum tíðina um meðgöngu, börn og uppeldi. Er virkilega hægt að sjá kyn barnsins á lögun bumbunnar? er satt að börn fái hita þegar þau taka tennur?
Þriðji þriðjungur meðgöngu
Þriðji þriðjungur meðgöngu Jul 14, 2026 00:49:12 Lokum þessari seríu með lokakafla meðgöngunnar – þriðja þriðjungi🤰✨Margir myndu segja að þetta sé mest krefjandi tímabilið. Maginn er orðinn stór, svefninn oft stopull, orkustigið sveiflukennt og biðin eftir litla krílinu getur verið löng. Á sama tíma er spennan að ná hámarki og undirbúningurinn fyrir fæðingu og nýtt hlutverk í fullum gangi.
Annar þriðjungur meðgöngu
Annar þriðjungur meðgöngu Jul 7, 2026 00:50:16 Annar þáttur af þremur í seríunni okkar um meðgönguna. Í þessum þætti förum við yfir annan þriðjung meðgöngunnar, tímabil sem oft er kallað „hveitibrauðsdagarnir“. Við ræðum hvað einkennir þessa mánuði, breytingarnar sem eiga sér stað og deilum okkar eigin reynslu á leiðinni💛
Fyrsti þriðjungur meðgöngu
Fyrsti þriðjungur meðgöngu Jun 30, 2026 00:56:22 Í þessum þætti förum við yfir fyrsta þriðjung meðgöngunnar, frá því augnabliki sem maður fær já á prófi yfir í fyrstu vikurnar af ógleði, þreytu og alls konar tilfinningum.

Recommended