Home Podcasts Besta platan
Besta platan

Besta platan

Hljóðkirkjan 280 Episodes Jul 31, 2026

Umræða um bestu plötu hljómsveitar og tónlistarfólks. Nýtt meistaraverk í hverri viku.

Episodes

#0290 The Doors – Strange Days
#0290 The Doors – Strange Days Jul 31, 2026 7360 Fáar rokksveitir í sögunni hafa verið jafn áhrifaríkar, dýrkaðar og umdeildar og The Doors. Þar hélt Jim Morrison nokkur um hljóðnema og lak kynþokkinn af hverri sellu hans og það strítt. Besta plata sveitarinnar er plata tvö, Strange Days, og er það doktorinn sem fer fram með það val og er það ekki nema sæmilega umdeilt.
#0288 Ariana Grande – Dangerous Woman
#0288 Ariana Grande – Dangerous Woman Jul 17, 2026 4223 Gleymið Adele, Sam Smith og Rihönnu. Þegar kemur að hreinræktuðum sönghæfileikum eru þessar poppstjörnur eins og kófdrukknir, trallandi fjósamenn á sveitaballi í samanburði við Ariönu Grande. Nei, þeir eru ekki margir poppararnir sem skáka henni á söngsviðinu. En hvernig er músíkin?
#0286 Van Halen – Van Halen
#0286 Van Halen – Van Halen Jul 3, 2026 5698 Van Halen gerði út frá Kálfatjörníu og er ein algerasta rokksveit sögunnar. Það er allt þarna mætti segja, hæðir, lægðir, partístand, vitleysisgangur, linnulaus ranaímokstur og svo að sjálfsögðu trukkandi rokk og ról sem á fáa sína líka …
#0284 Avril Lavigne – Let Go
#0284 Avril Lavigne – Let Go Jun 19, 2026 5052 Popppönkprinsessan Avril Lavigne toppaði sig tónlistarlega strax á fyrstu breiðskífunni, Let Go (2002). Áhrif hennar sem poppmenningaríkons eru mikil og farið verður í saumana á því öllu saman í brimafullum þætti…
#0282 Nýdönsk – Himnasending
#0282 Nýdönsk – Himnasending Jun 5, 2026 5053 Popptónlist 9. áratugarins var af mörgum talin yfirborðskennd, einnota og vélræn. Það var því sannkölluð „himnasending“ að fá Nýdönsk fram á sjónarsviðið undir lok eitísins. Tónlistin var vönduð, listræn og leitandi. Grípandi án þess að vera eitthvað blöðrupopp. Fullorðna fólkið var mætt í partíið.
#0280 Faith No More – Angel Dust
#0280 Faith No More – Angel Dust May 22, 2026 5398 Ein merkasta jaðarþungarokkssveit allra tíma, Faith No More, er á borði Bestu plötunnar þessa vikuna. Sitt sýnist hverjum um uppsöfnuð afrek hennar og voru umræðurnar fróðlegar svo ekki sé meira sagt!
#0278 Angine de Poitrine – Vol. II
#0278 Angine de Poitrine – Vol. II May 8, 2026 4478 Doppóttu míkrótónal-gosarnir í Angine de Poitrine voru óþekkt stærð í upphafi árs. Rúmum mánuði síðar voru þeir á allra vörum — og hæpið stendur enn yfir. En er eitthvað í þessu? Taktu þátt í umræðunni á Besta platan - Umræðuhópur. Styddu við Bestu plötuna, komdu í áskrift á Patreon og fáðu tvöfalt fleiri þætti.
#0277 Frímínútur – Björgvin Halldórsson (1951 - 2026)
#0277 Frímínútur – Björgvin Halldórsson (1951 - 2026) May 1, 2026 3060 Í þessum þætti heiðrum við minningu hins eina sanna Björgvins Halldórssonar sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði þann 9. apríl síðastliðinn. Blessuð sé minning þessa risa íslenskrar dægurtónlistar.
#0276 Nick Drake – Pink Moon
#0276 Nick Drake – Pink Moon Apr 24, 2026 4315 Nick Drake lést langt fyrir aldur fram, hafandi ekki hugmynd um þau áhrif sem stuttur tónlistarferill hans myndi hafa á fjölmargar kynslóðir á eftir honum. Þriðja og síðasta platan hans, Pink Moon frá 1972, er sú besta. Athugið að í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins á 1
#0275 Killing Joke – Night Time
#0275 Killing Joke – Night Time Apr 17, 2026 5087   Killing Joke er ein ógurlegasta síðpönksveit sögunnar, algerlega einstök mætti segja, og áhrifarík fyrir allan peninginn. Að velja hina poppuðu „Night Time“ sem bestu plötuna mun strjúka einhverjum öfugt en gefum BP-liðum færi á að útskýra sitt mál (doktornum aðallega).
#0274 Frímínútur – Tónleikatryllingur
#0274 Frímínútur – Tónleikatryllingur Apr 3, 2026 3573 Það er hægt að hjakka endalaust í einhverjum plötum, en að þessu sinni ákváðu þáttastjórnendur að rifja upp bestu tónleika sem þeir hafa sótt. Þrír topp-5 listar og ekkert rugl. Gleðilega páska!
#0273 Lenny Kravitz – Mama Said
#0273 Lenny Kravitz – Mama Said Mar 27, 2026 4418 Lenny Kravitz er ekki bara tónlistarmaður, hann er einslags fyrirbæri, menningarlegt skurðgoð, rokkið holdið klætt og bætið endilega við lýsingum eftir smekk. Hann toppaði hljóðversplötulega séð á annarri plötu sinni, Mama Said, en það má sosum deila um það val og það er nákvæmlega það sem við erum að fara að gera.

Recommended