Home Podcasts My way morðin
My way morðin

My way morðin

RÚV Hlaðvörp 3 episodes Latest May 29, 2025

Á árunum 2002-2012 voru framin alla vega 12 morð á Filippseyjum sem tengjast söng á laginu My Way í karaoke. Í þessum þríleik er kannað hvað gæti valdið því að menn voru myrtir fyrir að syngja sama lagið. Fjallað er um samfélagsstrúktúr, menningu, sögu Filippseyja og áhrif karaoke. Viðmælendur eru m.a. sérfræðingar úr ýmsum áttum.

Episodes

1. þáttur May 29, 2025 39:39 Í þessum fyrsta þætti ætlum við að fara langt aftur í tímann sem og rýna aðeins inn á við. Við skoðum hina mennsku rödd og áhrifin sem söngurinn hefur á tilfinningar okkar en einnig hvers vegna söngur er svona stór hluti af lífinu á Filippseyjum. Við heyrum af því hvernig ást Filippseyinga á söng hefur þróast frá landnámi til dagsins í dag og hvaða áhrif Spánverjar og Bandaríkjamenn hafa haft á sj
2. þáttur May 29, 2025 40:42 Í miðjukaflanum ætlum við að setja karókíið í fyrsta sæti og heyra ýmsar reynslusögur frá viðmælendum okkar sem eru sérfræðingar að syngja í, keppa í og að stjórna karókískemmtunum. Við skoðum karókídrauminn, þessa þrá að vera uppgötvuð sem stórstjörnur á karókíbar og hvað það getur gert fyrir okkur að fá listaverk annara að láni í 3 mínútur. Af hverju er karókíið svona gríðarlega vinsælt á F
3. þáttur May 29, 2025 40:39 Í lokaþættinum kynnum við okkur hugtakið karaoke-rage eða karókí-ofsa sem er svo sannarlega ekki einskorðaður við Filippseyjar. Við rýnum í lagið sjálft og textann og reynum að átta okkur á því hvort og þá hvað það er við þetta lag og þennan texta sem gæti leyst úr læðingi ofsafengin viðbrögð áhorfenda þegar lagið er sungið á karókíbar á Filippseyjum. Liggur bölvun á laginu? Hefði texti David&nbsp

Recommended

Playing