Home Podcasts Glæpir í gömlum húsum
Glæpir í gömlum húsum

Glæpir í gömlum húsum

RÚV Hlaðvörp 4 episodes Latest Jun 28, 2025

Í þáttaröðinni Glæpir í gömlum húsum eru gömul íslensk hús endurvakin í gegnum merkilega sögu þeirra og fólksins sem í þeim bjó. Húsin eiga það sameiginlegt að í þeim hefur eitthvað saknæmt átt sér stað og ekkert þeirra stendur enn í sinni upprunalegu mynd eða staðsetningu. Umsjón: Adda Steina Ísfeld og Saga Sigurðardóttir.

Episodes

Dillonshús Jun 28, 2025 35:53 Dillonshús í Reykjavík er eina húsið í þáttaröðinni sem stendur enn, þó ekki sé á sama stað og þegar það var byggt. Fyrsti íbúinn var Sire Ottesen sem átti merkilega ævi og var oftar en ekki á milli tannana á Reykvíkingum á sínum tíma. Löngu seinna flytur önnur kona, Hulda Karen Larsen í húsið ásamt fjölskyldu sinni sem þurfti að berjast mikið fyrir sér og sínum áður en allt fór á versta veg og hú
Svalbarð „Vofa Sólborgar” Jun 21, 2025 39:35 Sólborg Jónsdóttir liggur með barni sínu í Svalbarðskirkjugarði í Þistilfirði. Einar Benediktsson gegndi hlutverki sýslumanns í Sólborgarmálinu og er sagður hafa tekið andlát Sólborgar mjög nærri sér og trúði því líkt og margir að vofa Sólborgar fylgdi honum á milli bæja og sveita sem varð til þess að henni var gefið viðurnefnið draugurinn í Höfða. Viðmælandi : Aðalbjörg Jónasdóttir.Tónlist: Mary
Svalbarð „Sólborgarmálið” Jun 14, 2025 42:36 Sólborg Jónsdóttir starfaði sem vinnukona á bænum Svalbarð í Þistilfirði um tíma eða allt þar til hún dó í sínum eigin réttarhöldum í gestastofunni á bænum. Enn í dag rúmri öld síðar er fólk enn ósammála um hvernig dauða Sólborgar bar að garði og hverju sé um að kenna að svo fór sem fór.Viðmælendur: Daníel Hansen, Aðalbjörg Jónasdóttir og Aldís Gunnarsdóttir.Tónlist: Mary Lattimore, Gyða
Þórarinsstaðir „Blóðskömm og dulsmál” Jun 7, 2025 45:56 Halldóra Jónsdóttir bjó við mikla einangrun á Þórarinsstöðum í Seyðisfirði ásamt föður sínum og systkinum. Lífið sem hún þekkti breyttist þó snögglega í kjölfar þess að fjórir menn frá sýslumannsembættinu gerðu sér ferð að bænum vegna gruns um glæpsamlegt athæfi. Halldóra fékk á endanum dauðadóm og henni drekkt líkt og fjölmörgum konum hér á öldum áður.Viðmælandi : Kristín Amalía AtladóttirTónlist

Recommended

Playing