
Morðin á Illugastöðum
Sagan af Natani og Agnesi, Friðriki og Sigríði. Aðfararnótt 14. mars árið 1828 voru Natan Ketilsson og maður sem kallaður var Fjárdráps-Pétur, myrtir á hroðalegan hátt á Illugastöðum á Vatnsnesi. Frásagnir og vangaveltur um morðin hafa lifað með þjóðinni í nærri tvö hundruð ár og enn er fjallað um þau. Agnes Magnúsdóttir, Friðrik Sigurðsson og Sigríður Guðmundsdóttir voru dæmd til dauða fyrir morðin. Í þáttunum er leitað skýringa á því af hverju þau ákváðu að drepa Natan og Pétur, og athugað hvort hægt sé að leita skýringa í réttarfari, tíðaranda og aðstæðum fólks á þessum tíma.
Episodes
4. þáttur: Dómar, aftökur og uppgröftur á beinum
Í fjórða þætti um morðin á Illugastöðum er sagt frá dómunum yfir þeim Agnesi, Friðriki og Sigríði. Við fylgjum Agnesi og Friðriki á aftökustaðinn og heyrum samtímafrásögn af því hvernig fullnustu dómanna var háttað. Þá höldum við áfram að reyna að komast til botns í af hverju þremenningarnir ákváðu að myrða Natan. Í lokin er sagt frá hvernig bein Agnesar og Friðriks fundust fyrir tilstilli miðils.
3. þáttur Skelfingarnóttin 1828
Í þriðja þætti um morðin á Illugastöðum er greint frá atburðum næturinnar 14. mars árið 1828 þegar Agnes, Friðrik og Sigríður létu til skarar skríða og myrtu Natan Ketilsson og Fjárdráps-Pétur. Einnig heyrum við um álit fólks fyrr og nú á sýslumanninum Birni Blöndal og veltum fyrir okkur ásetningi þremenninganna auk þess að kynnast þeim nánar og þeim aðstæðum sem þeir bjuggu við. Hosted on Acast.
2. þáttur Myrða eða ekki myrða
Í 2. þætti er haldið áfram að rekja aðdragandann að morðunum, velt fyrir rannsókn Björns Blöndals sýslumanns, rætt um ástand og lífsviðurværi fólks í byrjun 19. aldar og sagt frá Vatnsenda-Rósu. Þá er haldið áfram að segja frá samfélaginu í byrjun 19. aldar og af ráðagjörðum þremenninganna Agnesar, Friðriks og Sigríðar. Einnig er sagt frá Vatnsenda-Rósu, spáð í persónuleika Natans, rætt um dómsker
1. þáttur Ráðabrugg um morð
Í fyrsta þætti er rekinn aðdraganda málsins, rætt um vistarbandið, sagt frá greinum sem skrifaðar hafa verið nýlega um morðin, svipast um á vettvangi og fleira. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.











