Home Podcasts Búbblur & Bjór
Búbblur & Bjór

Búbblur & Bjór

Búbblur & Bjór 123 Episodes Sep 13, 2026

Birkir, Davíð og Þröstur hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði mætir við og við þegar það er ekki fótbolti í sjónvarpinu til þess að leggja málefnum misvel lið, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall. Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!

Episodes

Ömurlegar framhaldsmyndir
Ömurlegar framhaldsmyndir Sep 13, 2026 3913 Birkir og Davíð standa vaktina í þessum þætti á meðan Þröstur smíðar sér bústað. Þeir ræða um hvað sumar framhaldsmyndir eru gjörsamlega ömurlegar, eins og til dæmis Jaws 3D, Matrix 4 og Home Alone 3.
Óútskýranlegir atburðir
Óútskýranlegir atburðir Sep 6, 2026 3227 Birkir og Davíð eru í banastuði í þessum þætti og það var ansi mikið hlegið, enda elska þeir ekkert meira en kjánalegar hörmungar annarra! Þeir fara hér yfir óútskýranlega hluti, eins og Bermúda þríhyrninginn, spontaneous human combustion eða á íslenskunni, sjálfskviknun, og margt margt fleira!
Thriftshopping
Thriftshopping Aug 30, 2026 3189 Strákarnir eru mættir, þeir Birkir, Davíð og Þröstur á þessum frábæra degi og ræða hvað er hægt að græða á því að fara í góða hirðirinn eða thrift shopping. Það er ekki mikið hægt að græða á því hér á Íslandi en úti í hinum stóra heimi er hægt að græða milljónir eins og ein í Bandaríkjunum sem keypti skál á nokkra dollara og seldi skálina aftur á yfir milljón dollara!
Samsæriskenningar #2
Samsæriskenningar #2 Aug 23, 2026 4277 Þríeykið er sameinað eftir sólarlandaferðina hans Þrastar, þá er ekkert annað að gera en að setja upp álhattana og komast að hinum raunverulega sannleika þarna úti! Strákarnir fara yfir helling af samsæriskenningum, eins og The Matrix (ekki beinlínis bíómyndin en samt), Charlie Kirk pælingar, Flat Earth snilldina og svo kemst smá hiti í leikinn þegar Birkir spyr strákana út í ESB kosningar!
Leikjaþáttur #2
Leikjaþáttur #2 Aug 16, 2026 4317 Birkir og Davíð fá Krissu aftur í heimsókn af því að Þröstur er enn að tana suður með sjó. Í þessum þætti fara þau í nokkra leiki, hvort myndirðu frekar, are you smarter than a 5th grader og Krissa kannar hvor þekkir hvorn betur af strákunum.
Morðingjar
Morðingjar Aug 9, 2026 4362 Birkir og Davíð fengu Krissu í heimsókn á meðan Þröstur er á Spáni að sóla á sér rassinn, þau ætla að fara yfir fullt af morðum og morðingjum í þessum þætti, þátturinn er jafn heillandi og hann er ógeðslegur...er heillandi rétt orð yfir þetta?....Birkir fer rækilega yfir kvenkyns morðingja enda algjör kvennabósi, og Davíð og Krissa fara yfir smáatriðin í nokkrum skuggalegum morðum, þorir þú að hlu
Útihátíðir
Útihátíðir Aug 2, 2026 2940 Skytturnar þrjár eru mættar til þess að tala um bestu útihátíðir á Íslandi og erlendis, eins og til dæmis Þjóðhátíð í Eyjum, Ein með öllu, Woodstock fyrri og seinni og fleira
Er 80´s vanmetinn áratugur?
Er 80´s vanmetinn áratugur? Jul 26, 2026 2505 Birkir leggur áhugaverða pælingu undir hjá Davíð og svo fara strákarnir að kafa djúpt ofan í 80´s og kanna hvað kom gott út úr þeim áratug, var þetta vanmetinn áratugur eða ekki? Þú kemst að því í þessum þætti!
I am Batman
I am Batman Jul 19, 2026 3177 Spliff, donk og gengja eru mættir til þess að tala um Batman. Hver er besta Batman myndin? Hver er besti Batman, hver er besti Bruce Wayne, er Batman cool? Hér eru alls ekki allir sammála!
Fríið er búið hjá Birki
Fríið er búið hjá Birki Jul 12, 2026 2749 Strákarnir eru mættir til leiks eftir að Birkir fór í svaðalegu Ítalíuferðina sína. Í þessum þætti mætir Davíð of seint, Birkir fer yfir smá ferðasögu, og svo fara þeir yfir allt sem Birkir missti af í heiminum á meðan hann sat næstum rænulaus á sundlaugarbakka í ítölsku sveitinni í 40 stiga hita með búbbluglas í hönd. Umdeildustu bíómynd heimsins í dag, hvalveiðaævintýrin og fleira.
Horrible Deaths
Horrible Deaths Jul 5, 2026 2421 Davíð og Birkir renna bobsleða dagsins af stað og þeir fara yfir hræðileg dauðsföll, drungalegur þáttur en þeim er nokk sama og gera grín af nokkrum framliðnum....öllu er nú hægt að hlægja að.
Íslenskir grínþættir
Íslenskir grínþættir Jun 28, 2026 2634 Birkir og Þröstur stýra bátnum í dag, Þröstur kemst að því hvað Birkir á mikið af skópörum...sem er súr niðurstaða. Svo fara þeir yfir íslenska grínþætti, hver af þeim er bestur? Heilsubælið, Fóstbræður, Steindinn okkar, Næturvaktin eða eitthvað allt annað?

Recommended