Home Podcasts Draugar fortíðar
Draugar fortíðar

Draugar fortíðar

Hljóðkirkjan 152 episodes Latest Feb 4, 2026

Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.

Episodes

#271 Vargöld og vinskapur: Douglas Bader og Adolf Galland Feb 4, 2026 10980 Í þessum þætti skoðum við sögu og samband tveggja orrustuflugmanna úr seinni heimsstyrjöld. Þeir voru ólíkir menn en náðu samt einkar vel saman. Þeir voru fyrst og fremst flugmenn. Er verstu manngerðu hamfarir sögunnar dundu yfir Evrópu svöruðu þeir kallinu. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
#267 Röðull GK Jan 7, 2026 2719 Þriðjudaginn 15. jan. 1963 lét togarinn Röðull GK úr höfn frá Reykjavík. Planið var að vera á veiðum í uþb 4 vikur á Mýrargrunni. Um hádegi á fimmtudaginn tilkynntu nokkrir skipverjar um ógleði og máttleysi. Þetta var upphafið að einu skelfilegasta mengunarslysi í sögu íslensks sjávarútvegs. Oft hefur þetta verið kallað „slysið sem gleymdist“. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patre
#264 Maður án heila Oct 8, 2025 6014 Árið 2007 leitaði franskur maður til læknis. Ástæðan var þrálátur verkur í fæti. Læknirinn sendi manninn í ýmsar rannsóknir. Þar á meðal sneiðmynd af heila. Læknirinn fékk seinna hringingu frá röntgendeildinni þar sem hann var beðinn um að koma strax. Myndir af heila mannsins væru einkennilegar, svo ekki sé meira sagt. Lækninn rak í rogastans er hann sá sneiðmynd af höfði mannsins. Svo virtist sem
#261 Lygar og morð: Hinn einkennilegi Stéphane Bourgoin Sep 10, 2025 5779 Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér. Upp úr 1990 fór einn maður að láta að sér kveða í frönsku þjóðlífi og vakti mikla athygli. Hann virtist sérfræðingur um nokkuð sem Frakkar höfðu til þessa gefið lítinn gaum: Raðmorðingjar. Maður þessi var Stéphane Bourgoin. Hann var alveg ómenntaður en virtist hreinlega vita allt um þetta efni. Frakkar voru heillaðir af þessum einkennilega manni sem t
#LD4 Draugar fortíðar ásækja Græna hattinn Sep 3, 2025 7652 Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér. Draugarnir lögðu í hann í upphafi árs 2025 og fóru vítt og breitt um landið. Þann 23. janúar var komið að Græna hattinum. Í það skiptið var uppákoman ekki eingöngu skráð í hljóði, heldur einnig í mynd. Þið getið hlustað á hann eða horft á hann á YouTube hér. Góða skemmtun! Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna
#256 Polybius: Hættulegasti tölvuleikur sögunnar? Aug 6, 2025 5201 Í byrjun níunda áratugar varð vart undarlegrar vænisýki sem breyddist frá úthverfum Bandaríkjanna og var skyndilega á allra vörum. Það var hið svokallaða "Satanic Panic" sem sumir telja undanfara QAnon. Hræðslan beindist öll inn á við. Kenningar flugu um að Dungeons og Dragons hlutverkaspilið væri verkfæri Satans. Tölvuleikir voru að sækja í sig veðrið á þessum tíma og spilasalir spruttu upp. Hræð
#251 Talídómíð: Hryllingur í töfluformi Jul 2, 2025 7186 Seint á sjötta áratug kom ný tafla á markað sem kölluð var kraftaverkalyf. Hún hafði róandi áhrif og sló auk þess á ógleði. Sérstaklega voru barnshafandi konur hvattar til að taka töfluna gegn morgunógleði. Í dag líður langur tími frá því er nýtt lyf er þróað og þar til það er sett á markað. Regluverkið er orðið mun harðara en það var er Talídómíð kom á markað. Það er einmitt að stærstum hluta veg
#247 Josephine Baker: Fyrsta svarta konan sem sigraði heiminn - Fyrri hluti Jun 4, 2025 7493 Josephine Baker er einn áhrifamesti skemmtikraftur sögunnar. Auk þess að bæði hneyksla og hrífa Evrópubúa með sínum söng og dansi tók hún virkan þátt í baráttu gegn alræði og kynþáttaníði. Baker var fædd í Bandaríkjunum en eins og margir svartir íbúar þaðan, vildi hún flýja botnlausan rasismann þar. Hún hafði heyrt um ríki þar sem svartir voru þó álitnar mannverur. Fyrir þetta fólk lágu öll vötn t
#244 Maðurinn í rotþrónni May 14, 2025 6225 Í febrúar árið 1989 var japanska barnaskólakennaranum Yumi Tanaka brátt í brók og þurfti nauðsynlega að komast á klósettið. Á stúdentagörðum þar sem hún bjó voru klósett frekar gamaldags. Í raun aðeins hola í gólfinu sem leiddi út í rotþró fyrir utan húsið. Sér til furðu tekur Tanaka eftir einhverju í salernisholunni. Það er skór af manni. Hún fór út til að athuga hvort hún sæi eitthvað betur. Fyr
#238 Hermaðurinn ódrepandi: Saga Adrian Carton de Wiart Apr 2, 2025 8948 Adrian Carton de Wiart var belgísk-breskur herforingi sem varð algjör goðsögn innan breska hersins. Hann var svo ósérhlífinn að það jaðraði við sturlun. Hann særðist mörgum sinnum og oft alvarlega. Hann tók þátt í fyrri heimsstyrjöldinni, þar sem hann varð fyrir alvarlegum meiðslum, meðal annars misst hann hægri hönd og auga, en hann hélt áfram að berjast þrátt fyrir þessa miklu skerðingar. Þrátt
#234 Biblíusögur Mar 5, 2025 10317 Fyrsti þáttur hvers mánaðar er í opinni dagskrá. Það er því vel við hæfi að sem flest ykkar nái að heyra fagnaðarerindið. Í þessum þætti velur Flosi nokkrar sögur úr einni af hans uppáhaldsbókum: Biblíunni. Gamla textamentið er í sérstöku uppáhaldi. Enda er nóg af alls konar furðulegum og fyndnum sögum sem þar má finna. Vert er samt að benda á að atriði í þættinum geta valdið óhug. Viltu heyra fl
#230 Brjálaði baróninn: Sagan af Roman von Ungern-Sternberg Feb 5, 2025 6511 Komið hefur fyrir að sérvitrir herforingjar hafi klofið sig frá aðalhernum í styrjöldum og umbreyst í stríðsherra með sitt eigið lið og farið sínu fram. Roman von Ungern-Sternberg er einn þessara manna og líklega einn sá einkennilegasti og alræmdasti. Hann fór að sjá sig sem einhverskonar holdgerving mongólska herforingjans Djengis Khan. Hann sauð saman stórundarlega blöndu af rússneskri réttrúnað

Recommended

Playing