Home Podcasts Seinni níu
Seinni níu

Seinni níu

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson 115 Episodes Sep 14, 2026

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson.

Episodes

#129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun
#129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun Sep 14, 2026 00:59:36 Við fengum til okkar frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Haukur Dór Kjartansson, félagi í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík, settist niður með okkur og sagði frá því hvernig það er að leika golf samhliða því að vera með MS-sjúkdóminn.Haukur Dór vekur gjarnan athygli fyrir gott viðmót, jákvæðni og brosmildi, en þessir eiginleikar hafa hjálpað honum að takast á við ýmsar hindranir í lífinu, þar á með
#128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari
#128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari Sep 7, 2026 01:19:47 Við fengum knattspyrnumanninn Aron Jóhannsson í stórskemmtilegt spjall. Hann stundar golfíþróttina af miklu kappi og lék á dögunum Korpúlfsstaðavöll á 7 höggum undir pari. Ótrúleg spilamennska.Frábær þáttur en þar kemur meðal annars í ljós að Aron er alltaf hræddur þegar stigið er inn á flatirnar.
#127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi
#127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi Aug 31, 2026 01:02:52 Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, kom í skemmtilegt spjall til okkar í Seinni níu. Jón Guðni er fínn kylfingur með um 16 í forgjöf. Hann er félagi í Golfklúbbnum Oddi og nokkuð duglegur að spila.Í þættinum segir Jón okkur frá því þegar hann fór holu í höggi með þriðja höggi sínu af teig og var í þokkabót einn þegar atvikið átti sér stað. Einnig segir Jón okkur frá því þegar hann varð f
#126 - Viggó er með 11-tré í pokanum til að stöðva forgjafarhækkun
#126 - Viggó er með 11-tré í pokanum til að stöðva forgjafarhækkun Aug 24, 2026 01:16:51 Við fengum hinn stórskemmtilega Viggó Harald Viggósson til okkar í Seinni níu. Viggó er góður kylfingur en ekki síst hefur hann verið frumkvöðull á sviði golfherma á Íslandi. Í þættinum ræðum við þá þróun sem hefur átt sér stað á því sviði. Viggó segir okkur frá því hvernig hann fór af stað með opnun golfhermastaðar og þeim mistökum sem hann gerði í upphafi.Viggó er kominn með 11-tré í golfpokann
#125 - Gauti þjálfar marga af bestu kylfingum landsins
#125 - Gauti þjálfar marga af bestu kylfingum landsins Aug 17, 2026 01:16:04 Við fengum til okkar Gauta Grétarsson í gott spjall á dögunum. Gauti er einn fremsti sjúkraþjálfari landsins og þjálfar marga af bestu kylfingum landsins. Gauti er þrautreyndur íþróttaþjálfari og þjálfaði handbolta á árum áður. Sú reynsla nýtist vel við þjálfun á líkamlegum og andlegum þætti í golfi.Í þættinu ræðir Gauti við okkur hvernig hann undirbjó Íslandsmeistarann Dagbjart Sigurbrandsson fyr
#124 - Gísli Hall er formaður fjölmennasta golfklúbbs í heimi
#124 - Gísli Hall er formaður fjölmennasta golfklúbbs í heimi Aug 11, 2026 01:10:29 Við fengum Gísla Guðna Hall, lögmann og formann Golfklúbbs Reykjavíkur. Við í Seinni níu höldum því fram að GR sé fjölmennasti golfklúbbur í heimi en í klúbbnum eru nú um 3500 félagsmenn.Í þættinum ræðum við um nýafstaðið Íslandsmót sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli. Mótið heppnaðist með eindæmum vel. Gísli fór aðeins yfir mótið og hvaða þýðingu það hefur fyrir klúbbinn að halda Íslandsmót.Við ver
#123 - Rúrik tvívegis misst af rástíma með Figo
#123 - Rúrik tvívegis misst af rástíma með Figo Aug 3, 2026 01:38:32 Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason kom í heimsókn en hann hóf að leika golf fyrir rúmum þremur árum og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni.Rúrik er með 8,7 í forgjöf og leikur aðallega golf í Madríd, þar sem hann er nú búsettur. Hann er í sama golfklúbbi og þekktir knattspyrnumenn á borð við Luís Figo og Raúl og hefur tví
#122 - Séra Hjálmar þrisvar farið holu í höggi á sömu holu
#122 - Séra Hjálmar þrisvar farið holu í höggi á sömu holu Jul 27, 2026 01:02:57 Við fengum séra Hjálmar Jónsson í gott spjall í Seinni níu. Hann hefur leikið golf í rúm 20 ár og er með rétt tæplega 20 í forgjöf. Hjálmar er auðvitað prestur og við veltum því fyrir okkur hvort það hjálpi að vera með Guð í liði á golfvellinum.Í sumar náði Hjálmar þeim ótrúlega áfanga að fara í þriðja sinn holu í höggi á 8. braut á Urriðavelli. Sú umræða fór auðvitað ekkert fyrir brjóstið á Loga.
#121 - Hulda Clara á yfir 200 metra ás
#121 - Hulda Clara á yfir 200 metra ás Jul 20, 2026 01:04:51 Það var líf og fjör hjá okkur í Seinni níu að loknu Opna breska. Við tókum létta umræðu um það en fengum líka frábæran gest því Hulda Clara Gestdóttir kom í heimsókn til okkar.Hulda Clara er atvinnukona í golfi og vann sinn fyrsta sigur sem atvinnumaður í síðasta mánuði. Hún leikur á LET Access mótaröðinni sem er næststerkasta atvinnumannamótaröð kvenna í Evrópu. Hún hefur jafnframt tvívegis orðið
#120 - Höddi Magg gaf golfsettið sitt
#120 - Höddi Magg gaf golfsettið sitt Jul 13, 2026 01:11:55 Hörður Magnússon kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hann er einn harðasti aðdáandi Phil Mickelson á landinu, en Bandaríkjamaðurinn hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið. Við fórum vel yfir stöðuna og fengum kraftröðun yfir bestu sigra Mickelson á ferlinum.Höddi Magg byrjaði að spila golf um þrítugt og spilar lítið um þessar mundir. Raunar svo lítið að hann gaf syni sínum golfsettið sitt fyrir
#119 - Hrafnkell Freyr er með ólöglegan dræver
#119 - Hrafnkell Freyr er með ólöglegan dræver Jul 6, 2026 01:03:34 Við fengum til okkar þekktasta málara landsins í Seinni níu. Hrafnkell Freyr Ágústsson, betur þekktur sem Keli í Dr. Football, mætti í þáttinn en hann byrjaði í golfi seint síðasta sumar. Eftir að hafa slegið gott golfhögg í mannskaðaveðri þá féll Keli algjörlega fyrir íþróttinni.Hrafnkell er að bíða eftir að fá nýjan dræver frá Takomo en dræverinn sem hann keypti fyrr á þessu ári reyndist vera ól
#118 - Fannar í Hipsumhaps lærði yfir sig á Youtube
#118 - Fannar í Hipsumhaps lærði yfir sig á Youtube Jun 29, 2026 01:06:59 Sumarið er í blóma og gestur Seinni níu að þessu sinni er tónlistamaður sem við vissum hreinlega ekki að stundaði golf. Fannar Ingi Friðþjófsson, forsprakki Hipsumhaps. Fannar er einmitt að gefa út nýja plötu um þessar mundir.Við ræðum aðeins um tónlistina en aðallega um golf. Fannar ólst upp á Álftanesi og við ræðum aðeins um golfvöllinn á Álftanesi og einnig Opna álftneska mótið sem Fannar stend

Recommended