Home Podcasts Meginlandið
Meginlandið

Meginlandið

Evrópuhreyfingin 12 Episodes Aug 23, 2026

Meginlandið er hlaðvarp Evrópuhreyfingarinnar í stjórn Helgu Völu Helgadóttur og Páls Rafnar Þorsteinssonar. Þau bjóða til sín góðum gestum til að ræða það sem er efst á baugi í Evrópumálum, heima og að heiman.

Episodes

Meginlandið XXII: Vextir og verðlag mun lækka
Meginlandið XXII: Vextir og verðlag mun lækka Aug 23, 2026 01:11:00 Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown háskóla, er gestur Meginlandsins að þessu sinni. Hann fer rækilega yfir hávaxtastefnuna sem rekin er á Íslandi og segir að vextir og verðlag munu lækka á Íslandi við inngöngu í ESB. Aðildin mun skapa jákvæðari væntingar og hagfelldari skilyrði fyrir stjórnvöld til að uppfylla skilyrði um upptöku evru, sem mun með tímanum bæta kjör íslenskra heimil
Meginlandið XXI: Hvar stendur Ísland efnahagslega?
Meginlandið XXI: Hvar stendur Ísland efnahagslega? Aug 16, 2026 01:08:51 Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóri Vísbendingar, svarar spurningum Meginlandsins um efnahagslega stöðu Íslands og hvernig hægt sé að segja á sama tíma að við séum eitt ríkasta land heims og allir hafi það svo gott en jafnframt að hér sé allt í kaldakolum.
Meginlandið XX: Sterkari landsbyggð innan ESB
Meginlandið XX: Sterkari landsbyggð innan ESB Aug 13, 2026 0:55:06 Meginlandið í dag fjallar um byggðamál, atvinnumál í dreifðum byggðum, styrkjakerfi og landbúnað. Þau Páll Rafnar og Helga Vala fengu til sín þær Önnu Margréti Guðjónsdóttur, framkvæmdastjóra Evris ráðgjafar sem annast samninga um styrki íslenskra fyrirtækja og stofnana hjá Evrópusambandinu og starfaði áður á skrifstofu sambands sveitarfélaga í Brussel, og Ástu Magnúsdóttur, fv. ráðuneytisstjóra o
Meginlandið XIX: Hafa smáríki rödd innan ESB?
Meginlandið XIX: Hafa smáríki rödd innan ESB? Aug 6, 2026 0:49.49 Meginlandið fjallar að þessu sinni um stöðu smáríkja innan ESB. Dr. Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur, hefur rannsakað stöðu smáríkja og veit manna best hvernig þeim vegnar innan Evrópusambandsins. Hann segir að Ísland hefði ótvírætt rödd innan sambandsins.
Meginlandið XVIII: Umhverfismál í ESB
Meginlandið XVIII: Umhverfismál í ESB Jul 26, 2026 0:56:24 Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindarétti við Háskóla Íslands, er gestur Meginlandsins að þessu sinni. Hún fræðir hlustendur um stöðu umhverfismála innan ESB en sambandið hefur verið leiðandi í umhverfisvernd á heimsvísu.
Meginlandið XVII: BREXIT
Meginlandið XVII: BREXIT Jul 19, 2026 0:48:58 Hvað varð til þess að meirihluti Breta kaus með útgöngu úr ESB og hvernig vegnar landinu eftir hana? Kristján Guy Burgess alþjóðatjórnmálafræðingur er gestur Meginlandsins að þessu sinni og fjallar um eitt afdrifaríkasta augnablik í sögu ESB - þegar Bretar gengu út úr sambandinu.
Meginlandið XVI: Réttindi neytenda
Meginlandið XVI: Réttindi neytenda Jul 12, 2026 0:52:12 Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, er gestur Meginlandsins þessa vikuna. Stór hluti af íslenskri neytendalöggjöf er kominn frá ESB og vandséð að réttindi neytenda væru varin ef ekki væri fyrir þátttöku Íslands í EES samstarfinu. Breki fer rækilega yfir þetta í þættinum.
Meginlandið XV: Sjálfstæði Íslandinga með Guðna Th. Jóhannessyni
Meginlandið XV: Sjálfstæði Íslandinga með Guðna Th. Jóhannessyni Jul 5, 2026 0:49:02 Hr. Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti lýðveldisins er gestur Meginlandsins að þessu sinni. Sjálfstæðið og fullveldið eru helstu umræðuefni þáttarins en Guðni fer rækilega yfir sögu þjóðarinnar þegar kemur að þeim málum, í samhengi við þorskastríðin, Kalda stríðið og þátttöku Íslands í stofnunum á alþjóðavettvangi.
Meginlandið XIV: Sjávarútvegurinn
Meginlandið XIV: Sjávarútvegurinn Jun 28, 2026 1:05:17 Að þessu sinni siglum við út á fiskimiðin í kringum landið. Gestur þáttarins er Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur og sjómaður, með sérþekkingu á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.
Meginlandið XIII: Efnahagsmálin
Meginlandið XIII: Efnahagsmálin Jun 7, 2026 1:01:52 Meginlandið að þessu sinni er helgað efnahagsmálum og er gestur þáttarins, Guðrún Johnsen, hagfræðingur og prófessor í fjármálum. Við förum yfir nýja skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, sem unnin var af erlendum sérfræðingum, við spyrjum Guðrúnu út í kosti og galla óstöðugs gjaldmiðils, áhrif krónunnar á stöðu heimila og lítilla og meðalstórra fyrirtækja og síðast en ekki síst spyrjum
Meginlandið XII: Að kíkja í pakkann
Meginlandið XII: Að kíkja í pakkann May 31, 2026 1:02:50 Gestur þáttarins er Dr. Margrét Einarsdóttir prófessor og sérfræðingur í Evrópurétti við Háskólann í Reykjavík. Í þættinum ræða þær Helga Vala saman um það hvernig mögulegur samningur Íslands við Evrópusambandið gæti litið út.
Meginlandið XI: Evrópudagurinn
Meginlandið XI: Evrópudagurinn May 10, 2026 01:01:50 Það var á þessum degi árið 1950 sem Robert Schuman, þáverandi utanríkisráðherra Frakklands lýsti yfir fyrirhugaðri stofnun Kola- og stálbanalags, sem miðaði að því að samhæfa kola- og stáliðnað í sex Evrópuríkjum. Og þar með hófst sú vegferð sem síðan átti eftir að verða að Evrópusambandinu. Við tölum gjarnan um að þessi vefgerð sé drifin áfram af ákveðinni hugsjón – Evrópuhugsjónni. En til þess

Recommended