Home Podcasts Sögur úr raunveruleikanum
Sögur úr raunveruleikanum

Sögur úr raunveruleikanum

RÚV Hlaðvörp 12 Episodes Jul 2, 2026

Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.

Episodes

Álögin á Vatnsenda 3.þáttur
Álögin á Vatnsenda 3.þáttur Jul 2, 2026 50:16 Í þessum þætti færum við okkur inn í nútímann og skoðum hvað tvær yngstu kynslóðir Vatnsendaerfingja hafa þurft að glíma við. Því það er eins og það verði sífellt erfiðara að bera ábyrgð á þessu verðmæta landi. Kvaðirnar og málaferlin hafa stundum yfirskyggt kostina við arfinn.Hinn 23 ára gamli Magnús Pétur er nú orðinn þungamiðja í flóknum málaferlum og þarf að stunda búskap í miðri byggð í Kópav
Álögin á Vatnsenda 2.þáttur
Álögin á Vatnsenda 2.þáttur Jun 16, 2026 52:16 Fyrir síðustu aldamót fóru bæði Kópavogur og Reykjavík að ásælast Vatnsendajörðina. Erfingjar jarðarinnar urðu þá óvænt lykilviðsemjendur stjórnmálamanna sem vildu reisa þar fjölmenna byggð. 90 ára gömul erfðaskrá kom hins vegar í veg fyrir að hægt væri að selja jörðina. Gunnar Birgisson, þáverandi bæjarstjóri í Kópavogi, ákvað að höggva á hnútinn með umdeildum samningi við Vatnsendaerfingjan
Álögin á Vatnsenda 1.þáttur
Álögin á Vatnsenda 1.þáttur Jun 16, 2026 38:29 Áratugum saman hefur Hjaltested-ættin tekist á um hver eigi og megi búa á hinni flennistóru Vatnsendajörð sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Hatrammar deilur hafa sprottið upp vegna umdeildrar erfðaskrár sem eigandi jarðarinnar gerði 1938. Erfðaskráin færði útvöldum ómæld auðæfi en lagði líka á þá kvaðir sem verður sífellt erfiðara að framfylgja. Enn í dag ræður 90 ára erfðaskrá för á framtíðar
Hilmar Veigar um Elon Musk og Demis Hassibis
Hilmar Veigar um Elon Musk og Demis Hassibis May 6, 2026 52:01 Þegar Elon Musk skrifaði á samfélagsmiðilinn X að hann ætti í viðræðum við skapara Eve Online um samvinnu að gervigreindartölvuleik, þá óskaði RÚV eftir viðtali við Hilmar Veigar Pétursson, einn stofnenda leiksins. Þegar Hilmar var loks tilbúinn í viðtal kom hann með allt aðra og óvænta sögu. Í þessum þætti segir Hilmar Veigar frá því sem gerðist bak við tjöldin áður en fyrirtækið sem hann st
Kveikur: „Plain“ konur eins og ég
Kveikur: „Plain“ konur eins og ég May 5, 2026 28:09 Í dag heyrum við frásögn konu sem tók þá afdrifaríku en sjálfstæðu ákvörðun að selja aðgang að líkama sínum. Um 20 ár eru liðin. Þó tími hennar í vændi hafi aðeins varað um sex mánaða skeið hefur hann markað líf hennar allar götur síðan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fjölskyldan á Edition-hótelinu
Fjölskyldan á Edition-hótelinu Apr 27, 2026 37:07 Þrítug kona og karlmaður á sextugsaldri fundust látin á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025. Móðir konunnar og eiginkona mannsins sagði lögreglu að fjölskyldan hafi komið til Íslands gagngert til þess að svipta sig lífi.Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og sögu fjölskyldunnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Að deyja í einsemd
Að deyja í einsemd Apr 14, 2026 41:27 Þegar fólk deyr í heimahúsi eða bara einhvers staðar annars staðar en á sjúkrahúsi þá er tæknideild lögreglunnar kölluð á vettvang. Tæknideildin kannar hvort andlátið hafi borið að með náttúrulegum hætti. Einstaka sinnum gerist það að tæknideildin mætir á vettvang þar sem lík hefur legið lengi. Slíkt gerist sem betur fer sjaldan en árið 2025 fannst lögreglumönnum eins og það væri einhver breyting
Krossfest: Föstudagurinn langi
Krossfest: Föstudagurinn langi Apr 3, 2026 51:20 Á föstudaginn langa 2025 ferðaðist Sigyn Blöndal til San Fernando á Filippseyjum. Bærinn er þekktastur fyrir það að á föstudaginn langa ganga hundruðir manna um götur bæjarins í húðstrýkingum en þar hefur einnig Ruben Enaje látið krossfesta sig síðan 1986. Hann er á leiðinni á krossinn í 36. sinn og Sigyn fær tækifæri til að hanga með þeim krossfesta - ekki á krossinum heldur spjölluðu þau saman u
Krossfest: Skírdagur
Krossfest: Skírdagur Apr 2, 2026 49:01 Það kannast flestir Íslendingar við árlegu fréttina á föstudaginn langa um krossfestingar á Filippseyjum. Við horfum og afgreiðum sem galið, sem klikkað - eitthvað sem við myndum aldrei gera. En hvað býr að baki? Hvað gerist þegar við spyrjum af hverju? Hvernig gerist það að karlmenn á Filippseyjum ganga um götur í húðstrýkingum og láta jafnvel krossfesta sig á föstudaginn langa. Sigyn Blönda
Eftir að allt varð svart
Eftir að allt varð svart Mar 22, 2026 44:18 Þrír létust þegar lítil flugvél brotlenti við Sauðahnjúka á Austurlandi sumarið 2023. Um borð í vélinni voru náttúruvísindamennirnir Skarphéðinn Þórisson og Fríða Jóhannesdóttir auk flugmannsins Kristjáns Orra Magnússonar.Í þættinum er athyglinni beint að þeirri einstöku þekkingu á hreindýrum og náttúru sem fórst með flugvélinni. Þóra Tómasdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir ræddu við samferðafólk vís
Vítahringur Margrétar Löf - 2. þáttur
Vítahringur Margrétar Löf - 2. þáttur Mar 2, 2026 47:45 Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar.Í þessum þætti segir hálfbróðir Margrétar Löf frá sinni upplifun af fjölskyldulífinu. Rætt er við lög
Vítahringur Margrétar Löf - 1. þáttur
Vítahringur Margrétar Löf - 1. þáttur Feb 23, 2026 56:26 Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar. Í þáttunum er rætt við Margréti, samferðafólk hennar og verjanda. Umsjón: Þóra TómasdóttirTækni

Recommended