Hefnendurnir is a podcast by Hefnendurnir. The show appears to be in Icelandic. No further details about topics or format are provided.
Episodes

243: Í sendingarþjónustu hans hátignar
Hefnendurnir halda fókus eins og Britney heldur á barni í þessum mjög svo einbeitta umræðuþætti um myndasöguleturstærð, James Bat versus Bondman, hráefni DC smoothie-sins og kvikmyndaferil Steve Miners.

242: DC fríkar út
Hulli og Ævar tala um ögrun barnsföðursins, Edgy álfahandrit og unglinganjósnara áður en þeir óttast um framtíð DCU.

241: Earl Grey Hot To Go
Hetjurnar okkar undirbúa sig undir hátíð myrkursins, viðurkenna vanþekkingu sína á Bláu Bjöllunni, pirra sig á pirruðum fuglum, kynnast kanadískum kempum og kveðja kaptein okkar allra.

240: Sisyfuss og svei
Strákarnir tendra luktirnar í kirkjugarðinum og spangóla fram spooky spælingar um búninga, spá fyrir IRL glæpaöldu á meðan geimerar stela digital bílum, minnast rússnesks siglingafræðings og telja upp hvern hryllinginn á fætur öðrum.

239: Guli fíllinn í herberginu
Símtal til Svartálfalands, annar hluti! Hefnendurnir heillast af nýjasta afkomenda Jar Jar Binks, ranghvolfa augum yfir fljúgandi typpaleysis-uppbót Musks, gleðjast mismikið yfir gleebooti, hlakka til SodenBatmans og segja bless í bili við grænu luktirnar.

238: John, Paul, George og Thingo
Hefnendurnir skauta á hálum svartálfa-ís, bera sama goðafræði Snorra og Stan Lee, gleðjast yfir yfirvofandi endurkomu Doktorsins, tuða yfir fyrstu persónu Indjána-Jóns, bera sama popp-fernu og ofurhetju-fjarka og fyllast kvíða yfir kross-brenglaðri myndasögumynd.

237: Stolni svanurinn
Hefnendurnir smjatta á hugverkahnupli Aronovskys, spila sjónvarpsþáttaspil, spá í spjótin sem beinast að Colberti, furða sig á földum söngleikjum og sigla enn dýpra inn í spoooooky season

236: Tinni versus Ástríkur Part VI: Jason Lives
Hefnendurnir hringjast milli landa og ræða tengsl Georgs Washington og Michael Myers, flótta Finchers frá flixinu, hæga hesta og áframhaldandi baráttu Tinna við Ástrík.

235: Stóri Gollum
Hefnendurnir flækja fyrir sér innkomu Bullseye, hneykslast á greddu Rómeó og Júlíu, verða vonsviknir yfir geimveruhönnun Birds, flissa að gollum-stærðar-misskilningi Jansons og fatta að Rock og Stifler hafa verið tvisvar saman í mynd.

234: Horfa á hluti
Hefnendurnir horfa á hluti og tala um hlutina sem þeir horfðu í þessum sérstaka "horfa á hluti" þætti.

233: Geim Spond
Hulli og Ævar ræða gleymda Curry fjölskyldu, Ghost Rider teikningar, Star Trek potta, japanska tölvuleiki, blandaðar hnetur og duglega froska.

232: Heilagar kýr
Hefnendurnir ræða um sveiflur Shyamalans, litlausann Potter, kínverskar kýr, gallann við fullkomnar myndir og Peter Pan prump Spielbergs.












