
Íslenski Draumurinn
Íslenski Draumurinn er hlaðvarp um fyrirtækjarekstur, fjármál, fjárfestingar og persónulegan þroska. Í þáttunum ræða þeir við íslenska frumkvöðla og viðskiptamenn sem hafa elt drauma sína. Farið er yfir sögur þeirra, velgengni og mistök. Þátturinn hvetur hlustendur til að verða besta útgáfan af sjálfum sér.
Episodes

51. Baksýnisspegillinn og vegvísirinn fram á við
Þátturinn í dag er aðeins öðruvísi. Við lítum í baksýnisspegilinn og drögum saman helstu lærdóma ársins. Við heyrum brot úr mest hlustuðu þáttum ársins og kynnum til leiks markmiðaheftið fyrir 2026.Heftið er hannað til að hjálpa þér að setja skýr markmið, halda fókus og ná alvöru árangri. Ef þú vilt fá heftið sent, sendu okkur línu á Instagram hjá Íslenska draumnum.Gleðilega hátíð og takk kærlega

50. Ingvi Þór Georgsson - Aflamiðlun
Í þessum þætti af Íslenska Draumnum ræðir Sigurður við Ingva Þór Georgsson, mann sem hefur farið óhefðbundna leið í atvinnulífinu og byggt upp ótrúlega fjölbreyttan feril. Í þættinum opnar Ingvi á fyrstu skrefum sínum, ævintýrunum í kringum Aflamiðlun, verkefnunum sem spruttu út frá því og þeirri þrautseigju sem hefur haldið honum áfram, verkefni eftir verkefni: borðspilaútgáfu, Alfreð, Pardus, hl

49. Helga Sigrún Hermannsdóttir - Dottir Skin
Gestur Íslenska Draumsins þessa vikuna er Helga Sigrún Hermannsdóttir, meðstofnandi og yfirmaður vísinda og vöruþróunar hjá Dottir Skin, hefur vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á snyrtivörur, þar sem sameinast djúp þekking á efnafræði, eigin reynsla af húðvandamálum og vilji til að skapa raunverulegar lausnir. Hún hefur alla tíð verið heilluð af húð, innihaldsefnum og þeirri spurningu hvað

48. Árni Jón Pálsson - Alfa Framtak
Í nýjasta þætti af Íslenska Draumnum tekur Sigurður á móti Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtaks, sem deilir einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverðasta og öflugasta framtakssjóð landsins í dag.

47. Íslenski Draumurinn er kominn aftur
Við kynnum til leiks nýjan og stærri draum. Nýtt stúdíó og stærri hugmyndir. Í þessum stutta kynningaþætti tilkynnum við að Íslenski Draumurinn er hafinn á ný eftir stutt hlé. Við heyrum einnig hljóðbrot úr næstu tveimur þáttum, sem þú mátt ekki missa af. Fyrsta hljóðbrotið er úr þættinum með Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtak. Í þættinum deilir hann einlægri og he

46. Hekla Arnardóttir - Crowberry Capital
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins ræðir Sigurður Sindri við Heklu Arnardóttur, meðstofnanda Crowberry Capital, sem hefur átt óvenjulega vegferð úr vélaverkfræði yfir í heim fjárfestinga og frumkvöðlastarfsemi. Hekla hefur starfað við fjárfestingar í nýsköpun í fjölda ára, fjárfest í fjölbreyttum hópi tæknifyrirtækja, og komið að byggingu sprotafyrirtækja sem hafa vaxið út fyrir landsteinana.

45. Sindri Már Finnbogason - TIX
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski Draumurinn ræðir Sigurður Sindri við Sindra Má Finnbogason, stofnanda og frumkvöðulinn á bak við miðasölukerfið Tix. Í þættinum greinir Sindri frá fyrstu kynnum sínum af forritun, uppbyggingu eigin hugbúnaðarfyrirtækis, og þeirri alþjóðlegu útrás sem fylgdi í kjölfarið. Ferill hans spannar þrjá áratugi og ber vott um óvenjulegan sjálflærdóm, seiglu og víðsýni

44. Litið til baka
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins lítum við aftur á þrjá áhrifamikla gesti sem komu í fyrstu þáttunum – hver með sína einstöku sögu, sýn og leið að árangri. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa lagt ótrúlega vinnu í að byggja upp rekstur frá grunni og eru allir ólík dæmi um hvað frumkvöðlastarf getur falið í sér. Hvort sem það er í hótelrekstri, bílaleigum eða fasteignastarfsemi – þá er eitt sem sk

43. Árið 2025 - Fyrri helmingur
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski draumurinn stígur Sigurður Sindri Magnússon skref til baka og fer yfir þrjá eftirminnilega viðmælendur sem hafa komið fram á árinu: Jónas Hagan Guðmundsson, Kristján Inga Mikaelsson og Hjálmar Gíslason. Þátturinn er áminning um breiddina og dýptina í íslensku frumkvöðlaumhverfi – og hversu mikla innblástur er að finna í þeim sem þora að láta til sín taka.

42. Hjálmar Gíslason - GRID
Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn fáum við innsýn í ævintýralegt og lærdómsríkt ferðalag Hjálmars Gíslasonar – eins reynslumesta frumkvöðuls Íslands og stofnanda GRID, sem vinnur að næstu byltingu í töflureiknum. Hjálmar hefur áratugareynslu af því að umbreyta hugmyndum í raunverulegar vörur og fyrirtæki, og í þættinum deilir hann einlæglega sinni sögu – frá því að selja fyrsta tölvuleikin

41. Emin Kadri - Atvinnumaður í hnefaleikum
Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn kynnumst við Emin Kadri, 22 ára atvinnuboxara sem þrátt fyrir ungan aldur er þegar orðinn þekkt nafn í íslenskri íþróttasenu. Emin hefur barist tvo atvinnubardaga – og unnið þá báða – og margir sjá hann sem einn efnilegasta hnefaleikamann Íslands.Lestu meira og skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is

40. Valgerður Hrund Skúladóttir - Sensa
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins hittum við Valgerði Hrund, framkvæmdastjóra Sensa og einn af stofnendum fyrirtækisins. Hún hefur í áratugi verið í fararbroddi íslenskrar upplýsingatækni og lýsir í viðtalinu ótrúlegri vegferð sinni frá Vesturbæ Reykjavíkur til þess að stýra alþjóðlegu tæknifyrirtæki með yfir 160 starfsmenn í 12 löndum.Skráðu þig á póstlistann og lestu meira á islenskidraumurinn.

39. Jónas Karl - Markmiðaþáttur - Ertu á réttri leið?
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins býður Sigurður upp á sérstaka útgáfu sem tengist markmiðasetningu – grunnstoð allra þeirra sem vilja ná árangri, hvort sem er í lífinu eða í viðskiptum.Þátturinn er framhald af fyrsta markmiðaþætti ársins og nú fer Sigurður dýpra í efnið með tilkomu nýs markmiðaheftis sem allir geta nálgast frítt á islenskidraumurinn.is. Í heftinu má finna skýrar spurningar, list

38. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 2
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins heldur samtal Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi áfram. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum.Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumuri

37. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 1
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er fyrsti partur samtals Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum.Skráðu þig á póstlistann á islenskidra

36. Sölvi Tryggvason - Fjölmiðlamaður & rithöfundur
Nýr þáttur af Íslenska draumnum er kominn út og að þessu sinni er gestur Sigurðar enginn annar en fjölmiðlamaðurinn, hlaðvarpsstjórnandinn og rithöfundurinn Sölvi Tryggvason – betur þekktur sem Sölvi Tryggva. Sölvi hefur verið áberandi í íslensku fjölmiðlalífi í yfir tvo áratugi og deilir hér ótrúlegri og fjölbreyttri vegferð sinni.Lestu meira um Sölva og skráðu þig á póstlistann á íslenskidraumur

35. Guðmundur Birkir Pálmason - Kírópraktor & áhrifavaldur
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Guðmund Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró. Guðmundur hefur byggt upp stærstu kírópraktorstofu Íslands, rekið fyrirtæki í Svíþjóð, opnað hárgreiðslustofu og orðið að áhrifavaldi með sitt eigið fatamerki. Í þættinum fer hann yfir ferðalagið sem liggur að baki þessu öllu – ásamt því að ræða sjálfsvinnu, sjálfsrækt og þörfina til að hjá

34. Karel Ólafsson - PreppUp, Preppbarinn & Lamb Street Food
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Karel Ólafsson, frumkvöðulinn á bak við PreppUp, Preppbarinn og Lamb Street Food. Karel hefur fetað óvenjulega leið inn í veitingarekstur en með hugrekki, áræðni og sterka framtíðarsýn hefur hann skapað holla og sjálfbæra veitingamenningu á Íslandi.Skráðu þig á póstlistann og lestu meira á islenskidraumurinn.is

33. Guðjón Már Guðjónsson - OZ
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við einn af mest áhrifamestu frumkvöðlum Íslands, Guðjón Má Guðjónsson. Guðjón hefur verið á fullu í nýsköpunarheiminum síðan hann var aðeins 14 ára gamall og hefur á ferli sínum stofnað og byggt upp mörg af stærstu tæknifyrirtækjum landsins. Hann hefur unnið á fjölbreyttum sviðum – allt frá fjarskiptum yfir í gervigreind og útvarpslausnir fyrir íþ

32. Ivan Svan Corvasce - Kokteilaskólinn, Reykjavík Cocktails, Spritz & Heimabarinn
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Ivan Svan Corvasce, stofnanda Kokteilaskólans, RVK Cocktails, Vínskólans og eiganda Spritz Venue. Ivan hefur á síðustu árum byggt upp öflugt fyrirtæki í kringum kokteilamenningu á Íslandi og hefur með elju og ástríðu breytt því hvernig fræðsla, þjónusta og upplifun tengd kokteilum er háttað hér á landi. Hann er einnig höfundur bókarinnar Heimab

31. Georg Lúðvíksson - Meniga, Dimon & Spesía
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er gesturinn Georg Lúðvíksson, raðfrumkvöðull, fjárfestir og fjármálasérfræðingur. Georg er best þekktur fyrir að vera stofnandi Meniga, en hefur einnig byggt upp fyrirtæki eins og UpDown og Dimon, ásamt því að sitja í stjórnum stórfyrirtækja eins og Icelandair og lífeyrissjóða.Við förum meðal annars yfir hvernig hann komst í Harvard, hvernig hann nálgast fjármál

30. Linda Pétursdóttir - LMLP
Í nýjasta þætti Íslenska Draumurinn er engin önnur en Linda Pétursdóttir, betur þekkt sem Linda Pé, gestur þáttarins. Linda vakti fyrst athygli þegar hún vann titilinn Miss World árið 1988, en í þættinum fer hún yfir hvernig það breytti lífi hennar og opnaði dyr að tækifærum um allan heim.Linda segir frá uppruna sínum, hvernig hún endaði í fegurðarsamkeppni og hvernig það leiddi hana í óvænta átt

29. Davíð Örn Símonarson - Smitten
Í nýjasta þætti Íslenski draumurinn er gesturinn Davíð Örn Símonarson, frumkvöðull og framkvæmdastjóri stefnumótaappsins Smitten. Davíð er einn af fremstu frumkvöðlum landsins og hefur unnið að snjallforritum í um 12 ár. Í þættinum fer hann yfir feril sinn, áskoranirnar sem hann hefur staðið frammi fyrir og hvernig hann hefur byggt sig upp í gegnum ótrúleg verkefni.Lestu meira um Davíð og skráðu þ

28. Jón Óli Ómarsson - Go Car Rental
Í nýjasta þætti Íslenski draumurinn segir Jón Óli Ómarsson, stofnandi og eigandi Go Car Rental, frá því hvernig hann byggði upp eitt stærsta bílaleigufyrirtæki landsins frá grunni. Saga Jóns er frábært dæmi um hvernig dugnaður, útsjónarsemi og vilji til að læra á öllum sviðum rekstrar geta leitt til stórkostlegs árangurs.

27. Valgeir Magnússon - Pipar/TBWA
Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn ræðir Valgeir Magnússon, betur þekktur sem Valli Sport, við Sigurð um feril sinn sem frumkvöðull og auglýsingamaður. Valgeir hefur verið í auglýsingabransanum í yfir 30 ár og er einn stofnenda og eigenda auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, sem í dag hefur um 100 starfsmenn og starfstöðvar í Reykjavík, Osló, Kaupmannahöfn og Helsinki.Í þættinum er farið í gegnu

26. Arnar Freyr Magnússon - Wodbúð & REIN
Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn segir Arnar Freyr Magnússon, eigandi Wodbúðar og REIN, frá því hvernig hann hóf feril sinn sem frumkvöðull og byggði upp fyrirtæki frá grunni með takmörkuðum fjármunum en mikilli vinnusemi. Þátturinn gefur innsýn í hvernig hugmynd varð að raunveruleika og hvernig Arnar hefur tekist á við áskoranir á leiðinni.Lestu meira um Arnar og þáttinn í heild sinni hé

25. Kristján Berg Ásgeirsson - Fiskikóngurinn & Heitirpottar.is
Í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Íslenski draumurinn segir Kristján Berg Ásgeirsson, oft kallaður Fiskikóngurinn eða Konungur heitu pottanna, frá ótrúlegri vegferð sinni í viðskiptalífinu. Frá því að byrja ungur að bera út dagblöð, til þess að stofna sína fyrstu fiskbúð 18 ára gamall og verða síðar alþjóðlegur dealer of the year hjá Arctic Spa, hefur Kristján sannað að hörð vinna og þrautseigja s

24. Svavar Jóhannsson - Fitness Sport
Í þessum þætti af Íslenska draumnum er viðmælandinn Svavar Jóhannsson stofnandi og eigandi Fitness Sport. Fitness Sport selur fæðubótarefni og er líka heildsala sem dreifir vörum í helstu búðir. Svavar stofnaði Fitness Sport árið 1998 og til að byrja með var hann með lagerinn í bílskúrnum hjá ömmu sinni. Í þættinum fer hann vel yfir fyrstu skrefin á ferlinum og hvernig bransinn hefur þróast síðust

23. Jónas Hagan - Global Blue, WISE, Varða Capital, Adira, Nespresso & Dalur Luxury
Í þessum þætti af Íslenska draumnum er viðmælandinn Jónas Hagan Guðmundsson einn farsælasti frumkvöðull og fjárfestir Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem Jónas kemur fram í hlaðvarpi og deilir einstökum sögum af viðskiptaferlinum ásamt því að segja frá sínum fyrstu skrefum sem frumkvöðull á unga aldri.Þátturinn er hlaðinn af innsýn í viðskiptalíf og innblæstri fyrir frumkvöðla. Jónas er fyrirmynd

Markmiðaþáttur
Þetta er sérstök útgáfa af Íslenska Draumnum þar sem við förum yfir markmiðasetningu. Smelltu á hlekkinn hér, sæktu þér markmiðaheftið og settu þér markmið fyrir 2025. Markmiðaheftið er aðgengilegt á islenskidraumurinn.is og við munum fara yfir það í frekari smáatriðum í öðrum þætti.

22. Beggi Ólafs - fyrrum fótboltamaður, rithöfundur og áhrifavaldur
Bergsveinn Ólafsson eða Beggi Ólafs eins og hann er betur þekktur er fyrrum fótboltamaður, rithöfundur og áhrifavaldur sem hefur nú lagt land undir fót og flutt til Los Angeles þar sem hann stundar doktorsnám. Beggi hefur haldið um 100 fyrirlestra með góðum árangri fyrir rúmlega 7000 manns. Hann hefur unnið með nokkrum af öflugustu fyrirtækjum á Íslandi og þjálfað verulega árangursríka einstakling

21. Elísabet Metta - Maika'i
Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir stofnaði fyrirtækið Maika'i eftir að hafa fundið açaí skálar á ferðalagi um Bali. Þau byrjuðu heima í eldhúsi en í dag eru þau með nokkrar staðsetningar og 15 starfsmenn. Í þættinum fáum við að heyra hvernig þetta allt byrjaði og hvert þau eru að stefna. Skráðu þig á póstlistann okkar & á islenskidraumurinn.is.

20. Eyþór Aron Wöhler - HúbbaBúbba
Eyþór Aron Wöhler er rithöfundur, fótboltamaður, TikTok stjarna og tónlistarmaður. Hann hefur verið að gera góða hluti í tónlistinni nýlega með hljómsveitinni sinni HúbbaBúbba sem hefur nú skotist fram á sjónarsviðið og verið mjög áberandi á TikTok. Skráðu þig á póstlistann okkar & á islenskidraumurinn.is.

19. Leifur Dam Leifsson - GG Sport
Leifur Damm Leifsson er stofnandi og eigandi GG Sport sem er ein af vinsælustu útivistarvöruverslunum á Íslandi. Leifur hefur ástríðu fyrir heilbrigðu líferni og útivist. GG Sport var stofnað árið 2004 og byrjaði sem lítið fyrirtæki með áherslu á að veita björgunarsveitamönnum hágæða búnað og þjónustu. Í gegnum árin hefur GG Sport vaxið og þróast og orðið eitt af leiðandi fyrirtækjum á Íslandi í s

18. Knútur Rafn Ármann - Friðheimar
Knútur Rafn Ármann er eigandi Friðheima sem er eitt af þekktasta gróðurhús og ferðamannastaður á Íslandi. Knútur ásamt Helenu konunni sinni stofnaði Friðheima árið 1995 og hefur síðan þá unnið markvisst að því að þróa og bæta framleiðsluferla, þar sem það hefur einkum verið áhersla á gróðurhúsaræktun tómata með nýtísku tækni og vistvænum aðferðum. Fyrirtækið er sérstaklega þekkt fyrir að nýta jarð

17. Sigurjón Ernir - Ultra Form
Sigurjón Ernir Sturluson er stofnandi Ultra Form. Ásamt því er hann íþróttafræðingur, þjálfari og einn fremsti hlaupari landsins.Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is.

16. Daníel Pétursson - Wake Up Reykjavik & Gorilla Vöruhús
Daníel Pétursson er stofnandi Wake Up Reykjavík & Gorilla Vöruhús.Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is.

15. Sindri Snær Jensson - Húrra Reykjavik, Auto Skemmtistaður, Flatey Pizza & Yuzu
Sindri Snær er meðal annars eigandi Húrra Reykjavik, Auto Skemmtistaður, Flatey Pizza & Yuzu. Hefur verið í tísku í yfir 20 ár og byggt upp nokkur stórveldi frá grunni. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is.

14. María Lena Heiðarsdóttir Olsen - M Fitness
María Lena er eigandi M Fitness sem er vinsælt íþróttavörumerki á Íslandi. Hún stofnaði fyrirtækið árið 2016 og var á þeim tíma einkaþjálfari og einstæðmóðir á Egilsstöðum. Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið mikið og í dag rekur hún þrjár búðir, Reykjavik, Akureyri og á Egilstöðum. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is.

13. Ásgeir Kolbeinsson - Austur Skemmtistaður, Pünk & Orkugreining.is
Ásgeir Kolbeinsson er fjölmiðlamaður og þekktastur fyrir að vera fyrrum eigandi eins vinsælasta skemmtistað landsins Austur ásamt því að hafa stofnað og rekið veitingastaðinn Pünk. Ásgeir er í dag framkvæmdastjóri Self Invest sem heldur úti orkugreiningu.is sem aðstoðar fólk við það að finna sjálfan sig í gegnum stjörnuspeki. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is.

12. Friðrik Pálsson - Hotel Rangá
Friðrik Pálsson er eigandi Hótel Rangá, sem er eitt þekktasta lúxushótel á Íslandi. Hann keypti hótelið árið 2003 og hefur síðan þá unnið að því að byggja það upp sem áfangastað fyrir bæði innlenda og erlenda ferðamenn. Friðrik er með ástríðu fyrir gestrisni og þjónustu, og undir hans stjórn hefur Hótel Rangá náð alþjóðlegri viðurkenningu fyrir framúrskarandi gæði, sérstaklega í tengslum við norðu

11. Eyþór Jónsson - Framleiðandi, tökumaður og eigandi Fasteignafélagsins Lúðvík
Eyþór Jónsson byrjaði að taka upp og klippa myndbönd þegar hann var 14 ára gamall og hefur síðan þá unnið sem sjálfstætt starfandi framleiðandi og tökumaður. Hann hefur hjálpað fyrirtækjum að ná árangri með skapandi markaðsefni, stofnaði fasteignafélagið Lúðvík og opnaði nýlega verslunina Train í Keflavík. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is.

10. Birgir Haraldsson - Norðurflug
Birgir Haraldson er framkvæmdastjóri og einn af eigendum Nordurflugs sem er stærsta þyrluþjónusta landsins.

9. Haukur Skúlason - Indó
Haukur Skúlason er framkvæmdastjóri og einn af stofnendum Indó sem er fyrsti íslenski sparisjóðurinn sem hefur verið stofnaður frá 1991.

8. Sigurður Svansson - Sahara Auglýsingastofa
Sigurður Svansson er einn af eigendum og stofnandi Auglýsingastofunar Sahara.

7. Þorsteinn Ingi Einarsson - Steinabón og Garður Apartments
Þorsteinn Ingi Einarsson er eigandi og stofnandi Steinabón og Garður Apartments. Í viðtalinu fórum við um víðan völl og ræddum meðal annars um fjárfestingar í fasteignum.

6. Guðmundur Óli Sigurjónsson - Matarkompaní og Eldabuskan
Guðmundur Óli Sigurjónsson er eigandi Matarkompaní, Eldabuskunar og einn af stofnendum Prepp up og Prepp barsins.

5. Nökkvi Fjalar - Swipe
Þáttur síðan 2020Nökkvi Fjalar Orrason er stofnandi Áttunar og Swipe. Við settumst niður með Nökkva á skrifstofu Swipe og ræddum við hann um þær áskornanir sem hann hefur þurft að takast við og framtíðar plön hans í rekstrinum.

4. Magnús Sverrir Þorsteinsson - Blue Car Rental
Þáttur síðan 2019Magnús Sverrir Þorsteinsson er stofnandi og eigandi Bílaleigurnar Blue Car Rental. Magnús eða Maggi í Blue eins og hann er stundum kallaður fór af stað með aðeins 5 bíla árið 2010 en síðan þá hefur bílaleigan vaxið gríðarlega og telur bílaflotinn yfir 2 þúsund bíla í dag, sem gerir Blue Car Rental eina af stærstu bílaleigum landsins.Við settumst niður með Magnúsi á skrifstofu Blue

3. Einar Ingi Kristjánsson - Alpha Gym
Þáttur síðan 2019 Einar Kristjánsson er eigandi og stofnandi Alpha Gym í Keflavik. Við förum vel yfir hvernig þetta byrjaði allt saman og hvað varð til þess að hann ákvað að stofna sitt eigið fyrirtæki.

2. Steinþór Jónsson - Hótel Keflavik og Diamond Suites
Þáttur síðan 2019 Steinþór Jónsson er eigandi Hótel Keflavik og Diamond Suites. Hótel Keflavik er eitt elsta hótel landsins og Diamond Suites er fyrsta 5 stjörnu hótelið á Íslandi. Við tökum nokkur skref til baka og förum yfir hans viðskiptaferli frá því hann byrjaði í hótelbransanum og þangað sem hann er kominn núna.

1. Sigmar Vilhjálmsson - Íslenski Draumurinn
Þáttur síðan 2019Sigmar Vilhjálmsson er gestur fyrsta þáttar af Íslenska Draumnum sem fór í loftið 2019. Í þáttunum er tekið viðtal við Íslenska frumkvöðla, viðskiptamenn og farið yfir þeirra viðskiptaferil þar sem hlustendum er gefin betri innsýn inn í heim þeirra sem hafa stofnað og rekið sín eigin fyrirtæki á Íslandi. Þættirnir eru gefnir út á allar helstu streymisveitur.Margir þekkja Sigmar Vi











