Home Podcasts Heimili og skóli
Heimili og skóli

Heimili og skóli

Heimili og skóli 26 Episodes Aug 27, 2025

Á þessari rás eru hlaðvarpsþættir Heimilis og skóla. Meðal þátta er Það þarf þorp, Netöryggi á nýjum tímum og Siggi og Sigga Dögg nöldra um netið.

Episodes

Það þarf þorp - Samfélagsleg viðmið um snjalltækjanotkun
Það þarf þorp - Samfélagsleg viðmið um snjalltækjanotkun Aug 27, 2025 00:47:54 Kristín Ólöf Grétarsdóttir og Anna Laufey Stefánsdóttir mættu til okkar og tóku spjall um símafrí í skólum, tölvuleiki og viðmið og gildi sem við sem samfélag þurfum að koma okkur saman um þegar kemur að bæði börnum og okkur sjálfum.
Það þarf þorp - Kjarabarátta kennara
Það þarf þorp - Kjarabarátta kennara Dec 12, 2024 01:07:40 Magnús Þór formaður Kennarasambands Íslands mætti í spjall og fór yfir stöðuna í kjarabaráttu kennara.
Það þarf þorp - Okkar heimur
Það þarf þorp - Okkar heimur Jun 19, 2024 00:39:42 Í þessum þætti er rætt við Sigríði Gísladóttur og Þórunni Eddu Sigurjónsdóttur um Okkar heim. Okkar heimur er stuðningsúrræði fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda. Úrræðið var sett á laggirnar vegna skorts á stuðning og fræðslu fyrir börn í þessari stöðu á Íslandi.   Sigríður og Þórunn Edda ræða um starfsemina, stöðuna á Íslandi í málaflokknum og ýmislegt fleira.  
Það þarf þorp - Forvarnir og áhættuhegðun
Það þarf þorp - Forvarnir og áhættuhegðun Jun 6, 2024 00:46:09 Spjall við Kára Sigurðsson, verkefnastjóra forvarna hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkur. Við spjöllum um áhættuhegðun barna og unglinga. Einnig ræðum við um forvarnir og gefum foreldrum og forsjáraðilum verkfæri til nýta með sínum börnum.
Það þarf þorp - Skóli í skýjunum
Það þarf þorp - Skóli í skýjunum May 24, 2024 00:54:49 Spjall við Esther Ösp Valdimarsdóttir skólastjóra og tengilið farsældar í Ásgarðsskóla - skóla í skýjunum. Ásgarðsskóli er ekki hefðbundinn skóli en aðsóknin er mikil. Skólinn er búinn að stækka hratt á þeim þremur árum sem hann hefur starfað og er að stimpla sig inn sem frábær viðbót við skólakerfið okkar.
Einhverfa og áskoranir
Einhverfa og áskoranir Apr 24, 2024 00:47:43 Hvaða áskoranir þurfa einhverf börn að kljást við í skólanum? Hvað er að vera skynseginn? Hvað er skynvænn skóli? Er foreldrakulnun algeng? Er skóli án aðgreiningar að virka? Hvert er markmið menntunar? Þær Sara Rós Kristinsdóttir og Linda Björk Oddsdóttir settust niður með okkur og ræddu þær áskoranir sem einhverf börn kljást við í skólakerfinu. Þáttur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara!
Það þarf þorp: Börnin eru besti mælikvarðinn
Það þarf þorp: Börnin eru besti mælikvarðinn Dec 8, 2022 00:34:36 Þorvar Hafsteinsson, formaður Heimilis og skóla, ræðir um mikilvægi foreldrastarfs. 
Það þarf þorp: Helga Margrét Guðmundsdóttir
Það þarf þorp: Helga Margrét Guðmundsdóttir Dec 8, 2022 01:03:10 Í tilefni 30 ára afmælis Heimilis og skóla fengum við Helgu Margréti Guðmundsdóttur, fyrrverandi formann Heimilis og skóla, til að segja okkur frá ferlinum í foreldrastarfi. 
Aðeins um: BeReal
Aðeins um: BeReal Oct 21, 2022 00:19:05 Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um samfélagsmiðilinn BeReal. Hvers konar miðill er BeReal? Afhverju er hann svona vinsæll hjá ungu fólki? Hvað er jákvætt við hann og hvað ber að varast? Í þættinum er einnig rætt um hvað sé gott að ræða við börn og ungmenni þegar kemur að því að vera á BeReal.
Aðeins um: Misskilning á netinu
Aðeins um: Misskilning á netinu Sep 19, 2022 00:19:13 Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um misskilning á netinu. Hvers vegna á misskilningur á netinu sér stað? Hvernig birtist hann? Hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir misskilning í stafrænum samskiptum? Í þættinum er einnig rætt um lyndistákn og þá misjöfnu merkingu sem fólk leggur í þau.
Aðeins um: Tiktok
Aðeins um: Tiktok Sep 1, 2022 00:21:34 Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um samfélagsmiðilinn Tiktok, hvernig hann virkar, hvað ber að varast, hvað er jákvætt við miðilinn og hvernig foreldrar geta hjálpað börnum sínum að nota TikTok á öruggan hátt. 
Netöryggi á nýjum tímum 5: Réttindi barna og netið
Netöryggi á nýjum tímum 5: Réttindi barna og netið Apr 12, 2022 00:40:30 Eyrún Eva Haraldsdóttir, sérfræðingur hjá SAFT, ræðir við Pétur Hjörvar Þorkelsson, sérfræðing í innleiðingu Barnasáttmálans hjá UNICEF, um réttindi barna og síbreytilegan stafrænan heim.

Recommended