Í Undralandi Ólafssona er allt morandi í kanínuholum. Aron og Arnar reyna að tipla á tánum í kringum þær en eiga það til annað slagið að falla ofan í þær með tilheyrandi pælingum og vitleysu. Í Undralandi eru þó ekki einungis kanínuholur heldur líka fullt af glensi og meðþví!
Episodes

Aron sér drauga vol.2
Já vitleysan heldur áfram. Aron sér drauga og nú í annað sinn er það gert að sérstöku umræðuefni. Aroni áskotnaðist EMF-mæli og draugaútvarp í í liðinni viku og endaði í myrkum kjallara Aðventukirkjunnar með eldrauðan mæli. Hlustun er sögu ríkari í þætti dagsins. Verið góð hvort við annað. Samstarfsaðilar þáttarins eru:Teya: https://www.teya.com/is/Serrano: https://serrano.is/Happatreyjur: https:/

Framtíðin er framhjáhald
https://undra.land/"Framtíðin er framhjáld" kann að stinga ykkur í augun, kæru hlustendur en framtíðin gæti heldur betur ráðist af einu framhjáhaldi. Forstjóri stærsta fyrirtækis heims féll í slíkan pitt þegar hann féll fyrir kínverskum njósnara sem gæti hæglega endað með heimsstyrjöld, að mati okkar. Líklega hefur eitt framhjáhald aldrei vegið þyngra, a.m.k. ekki frá dögum Troju. Í þætt

Pressure is a privilege
Það er margt á dagskránni þennan sunnudaginn hjá Ólafssonum, kæru vinir. Það er eiginlega ekki fræðilegur möguleiki að hægt sé að telja það upp hér. Þið verðið bara að hlusta - og hlustið vel. Við elskum ykkur öll.

Komum Neó heim!
Þáttur dagsins er af óundirbúnu tagi, enda leiddi könnunin góða í ljós að þið saknið slíkra þátta. Þessir þættir hafa tilhneygingu til þess að fara um víðan völl og þar ætti þessi þáttur ekki að gefa neitt ekkert eftir. Svo er stór tilkynning handan við hornið! Munið það bara að vera góð hvort við annað og munið einnig það kæru hlustendur, að við elskum ykkur öll.Samstarfsaðilar þáttarins eru:Teya

Við erum öll á leiðinni á bætur
Já kæru Undralendingar nær og fjær. Spotify bannaði okkur að nota Kiss From a Rose, en tæplega 400 ykkar svöruðu könnuninni sem bætir það upp. Umræðuefni dagsins eru borgaralaun (UBI) og eins og venjulega fóru Ólafssynir um víðan völl, allt frá samsæriskenningum um Covid yfir í mennska heila í sullkeri og tvo bræður á Ísafirði sem urðu milljónamæringar á því að lána skúrana sína. Spá þáttarins: bo

Ungur að eilífu
Já kæru Undralendingar, þá er komið að þriðja þætti seinni hálfleiks hjá okkur Ólafssonum. Í þætti dagsins förum við um víðan völl, allt frá eilífu lífi og Teslu sem keyrir á hvolfi yfir í þunglynd dýr og dauða internetsins. 56 mínútur af heilavíkkun kæru vinir. Verið góð hvort við annað!Samstarfsaðilar þáttarins eru:Teya: https://www.teya.com/is/Serrano: https://serrano.is/Happatreyjur: https://h

Margt leynist í regnskóginum
Já kæru Undralendingar. Í þætti dagsins fylgjast Ólafssynir með svaðilför Ash Dykes, sem lagður er af stað niður Kongó á uppblásnum kajak, og fara yfir allt sem gæti mögulega drepið hann sem er mjög margt. Svo eru pælingar um frumbyggja og glataða þekkingu og hvort Aron sé í alvörunni handlaginn. Einnig kemur í ljós að einhver braust inn í bíl og stal engu nema Undralandspeysunni. Verið góð hvort

WE ARE SO BACK
Kæru vinir. Ólafssynir eru mættir til leiks á ný eftir rúmlega eins árs pásu, nú með látum, í hljóði og mynd! Samstarfsaðilar þáttarins eru:Teya: https://www.teya.com/is/Serrano: https://serrano.is/Happatreyjur: https://happatreyjur.is/

Jólaspecial (ft. Steindi Jr., Stjörnu-Sævar & Teboðið)
Kæru Undralendingar! Við Ólafssynir ákváðum að snúa aftur í tilefni jólanna þó svo að innihaldið sé nú ekkert sérstaklega jólalegt! Við fengum frábæra gesti með okkur í lið og úr varð 2 og hálfur tími af Undralandi. Góða hlustun og gleðileg jól!

Ólafssynir kveðja (í bili)
Þá er komið að kveðjustund í bili kæru vinir. Ólafssynir þakka fyrir sig. Verið góð við hvort annað og munið að við elskum ykkur öll.

Ólafssynir í næstsíðasta sinn (í bili)
Já kæru vinir. Þið lásuð rétt. Ólafssynir eru á leið í smá frí. Í þessum þætti hleypum við ykkur inn á filterslausan fund um framhaldið þar sem Ólafsdóttir úr Teboðinu kemur einnig við sögu. Segið ykkar skoðun í textaboxi á Instagram því við gætum þurft á ykkar hjálp að halda. Við elskum ykkur öll með tölu.

Margt leynist í loftinu
Hér fáiði sunnudagsþáttinn sem þið hafið svo lengi beðið eftir. Þemað liggur í loftinu, hvort sem það er tengt hræðslu eða geimskipi. Verið góð hvort við annað og munið; Við elskum ykkur öll.











