
Hlaupalíf Hlaðvarp
Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn “Hlaupalíf”. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem tengist hlaupum; æfingar, markmið, næring, keppnishlaup og almenningshlaup og auðvitað undirbúningur fyrir hlaup. Einnig verður fjallað almennt um líkamsrækt, æfingamagnið, þjálfun með púlsmæli, hlaupastíllinn, mataræði, meiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir og margt fleira!
Episodes

#72 - Í endorfínvímu
Hlaupalíf heldur áfram umfjöllun um Road to Berlin’26. Erum að ljúka þriðju æfingavikunni í Run Less Run Faster prógramminu og förum yfir hvernig það hefur gengið. Eru æfingar á Air Runner too good to be true? Endorfínvíma eftir æfingar er aðeins of góð (og ávanabindandi). Fjölskyldulífið í fríi með þrjú börn. Bubbi, Eminem o.fl.ofl.

#71 Road 2 Berlín! 🫡
Hlaupalíf orðin fimm manna fjölskylda. Ekki lengur maður á mann og við að hefja 12 vikna æfingablokk fyrir Berlínarmaraþonið í sept’ 26! Við förum yfir óhefðbundna nálgun okkar að maraþonundirbúningi og ætlum að leyfa ykkur að fylgjast með næstu misserin. Stay tuned!

#70 Sumardagurinn fyrsti nálgast ☀️🙏
Við gáfum okkur loksins tíma í almennilegt Hlaupalíf deit sem er hægara sagt en gert þessa dagana! Elín Edda er hægt og rólega að komast á steypirinn og orkan ekki jafn mikil, en styttist í sumardaginn fyrsta = settur dagur. Við ræddum komandi verkefni, en Vilhjálmur keppir á Hyroxmóti í CPH um miðjan mars og svo verður það Berlínarmaraþonið 2026 = fertugsáskorun Vilhjálms! Fórum yfir íslensku tæk

#69 Hlaupalíf stefnumót í upphafi árs 🤝🙏
2026: nýtt hlaupalífár og kósýmánuður ársins mættur! :) Við ungbarna-hlaupa-foreldrarnir drógum fram hljóðnemana og fórum yfir hlaupatópíkin þessi misserin. Gamlárshlaupið, Nýárshlaup Ultraform, komand vetrarhlaup og vor-hlaupin auðvitað. Þá dustuðum við rykið af sturluðum hlaupastaðreyndum og að lokum slógum við á þráðinn til Elísu Kristinsdóttur sem átti ótrúlegt hlaupaár, en hún er stödd í miðr

#68 Aðventuþáttur 🎄🧑🎄
Aðventan og nýr þáttur hjá Hlaupalíf. Enda var kominn tími á að við skutuhjúin settumst niður og ræddum hitt og þetta í hlaupalífinu og bara lífinu almennt.Umræðupunktar:* Jólaspenningur. Eflaust meiri hjá foreldrum en börnunum.* Hlaupalífið og hreyfi-rútínan þessi misserin með tvö börn (og þriðja á leiðinni!)* Maraþon-deit-pælingar fyrir haustið 2026.* Valencia maraþonið.* Ástandsskoðun @Sjúkrasp

#67 Hafsteinn Óskarsson segir öldungum að hlaupa hraðar! 🏃🏼♀️➡️
Hafsteinn Óskarsson er hlaupari á heimsmælikvarða sem nældi sér í evrópumeistaratitil í 800m á EM masters utanhúss á dögunum og silfur verðlaun í 800m á heimsmeistaramóti innanhús fyrr á þessu ári! Hann lætur aldurinn alls ekki stöðva sig heldur þvert á móti þá heldur hann áfram að æfa og keppa líkt og hann gerði þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í hlaupunum fyrir um 50 árum síðan. Ef það e

#66 DNF á HM í utanvegahlaupum 🫣
Hvernig er að standa frammi fyrir stórum verkefnum eins og að fjölga mannkyninu og vera með stór markmið í hlaupunum….á sama tíma?Við ræddum þessa stóru lífsins áskorun og hvernig við tókum meðvitaða ákvörðun hvernig við myndum tækla hana með okkar reynslu. Við áttum einnig létt spall um ýmislegt sem hefur verið á döfinni í hlaupaheiminum s.s:Chicago maraþonið og önnur stór maraþon á döfinniSlóg

#65 Hildur hlaupahvíslari
Í þætti vikunnar tökum við fyrir umræðu sem er nauðsynleg og mikilvæg, en nennum ekki alltaf að hugsa of mikið um: hlaupaeymsli, hlaupameiðsli, fyrirbyggjandi aðferðir, hlaupamýtur og allt þar á milli. Til að hjálpa okkur að greina þetta umfjöllunarefni fengum við í settið einn öflugasta sjúkraþjálfara hér á landi, Hildi Kristínu Sveinsdóttur sjúkraþjálfara og framkvæmdastjóra Sjúkrasport, betur þ

#64 Anna Berglind að loknu HM í utanvegahlaupum 🏃♀️
Ofurhlauparinn Anna Berglind settist niður með Elínu Eddu á svölunum á Candanchu hótelinu með útsýni yfir Pýranafjöllin - þar sem Anna Berglind var einmitt að keppa með íslenska landsliðinu. Þar kom Anna fyrst ísl kvenna í mark á frábærum tíma við krefjandi aðstæður. Við fáum smá innsýn inn í hlaupalífið hjá þessari flottu hlaupakonu sem hefur náð ótrúlegum framförum á undanförnum árum og er í bæt

#63 Hlaupalíf umræður í lok sumars 🤝🙏☀️
Umræður um hitt og þetta:Kynnum til leiks nýjan dagskrárlið: ,,Heitt og kalt”. Eika hornið og umræður um vegginn fræga í MÞ.RM pælingar og umfjöllun eftir keppni. Hversu flottir voru(og eru) HHHC í RM vikunni.Afmælisvikan hjá Hlaupalíf familyOg margt margt fleiraÞátturinn er í boði: Heilsa, Sportvörur og Optical Studio 🙏

#62 Stebbi Páls: ævintýrahlaupari með stór markmið 🤝
Við fengum ævintatýrahlauparann Stefán Páls í settið. Hann kemur úr fimleikum, en byrjaði að hlaupa fyrir einungis nokkrum árum eftir langa baráttu við brjósklos. Stefán hefur tekið ævintýralega miklum framförum á stuttum tíma m.a með nýlegum Íslandsmeistaratitli í 10 km og stórum bætingum í öðrum keppnisgreinum á breiðum grunnni - allt frá 800m upp í ultra hlaup eins og Laugavegshlaupið. Stefán P

#61 Arnar Péturs og Rauðavatn Ultra
Arnar Péturs mætti í settið til HH og ræddi við okkur um næsta markmið: Íslandsmeistaramótið í 100km @Rauðavatn Ultra. Þar fer sömuleiðis fram keppni í 3/6/12 og 24 klst hlaupum. Hversu spennandi?Mjög.Arnar fór yfir undirbúninginn fyrir keppnina, gæðaæfingarnar, framkvæmd hlaupsins, hvata, markmið og margt margt fleira. Ræddum einnig stöðuna í Ármannshlaupinu, Laugaveginn, hlaupalífið og Valencia

#60 Post-Laugavegur 🙏
Húsadalur. Hlaupalíf Hlaðvarp náði í skottið á Elínu Eddu á milli mingla. Fórum inn í tjald með einn Leffe og gerðum upp hlaup hlaupanna: Laugaveginn 2025.*Hvernig var upplifunin af fyrsta hlaupinu?*Sátt með niðurstöðuna?*Hrikalega sterkt hlaup*Flottar aðstæður - mikill hiti.*Ótrúlega góð stemning í Þórsmörk.

#59 Jón Kristófer Sturluson: fimm MÞ bætingar í fimm hlaupum!
Við fengum í settið ofurhlauparann Jón Kristófer Sturluson sem hefur vakið töluverða athygli í hlaupaheiminum m.a með nýlegum bætingum í 5 og 10 km. JKS státar sömuleiðis af mögnuðum maraþonferli sem felur í sér fimm bætingar í jafnmörgum hlaupum, frá 2:58-2:37! Ath fyrsta hlaupið fór fram vorið 2022. Hversu peppandi?Mjög.Við kíkjum undir húddið hjá JKS og könnum hvernig hlaupaferðalagið hefur ver

#58 Laugavegsvikan er hafin!
#58 Laugavegsvikan er hafin! Jæja nokkrir dagar í LAUGAVEGINN, takk.Að því tilefni tókum við í Hlaupalíf smá ,,Laugavegs-trúnó’’ við betri helming H.H. Við förum yfir hvernig ferðalagið hefur gengið fram til þessa, af hverju ákvað Elín Edda að prófa LV, hvaða tímamarkmið er hún með, hvernig metur hún samkeppnina, næringarplan, hlaupabúnaður og plan síðustu dagana fyrir hlaup og hlaupadaginn.Þetta

# 57 Hitaþjálfun frá A-Ö með Sigga TRI
Íþróttagúrúinn Siggi TRI kom til okkar í settið og ræddi við okkur um HOT TOPIC dagsins: HITAÞJÁLFUN. Hver er sagan á bakvið þessi fræði? Hvað er hitaþjálfun? Hvaða áhrif hefur hitaþjálfun á líkamann og hvernig fer maður af stað? Passíf vs. actíf hitaþjálfun? Er þetta fyrir alla? hverjir eru að stunda þetta? Hvernig getur þetta gagnast mér?Strangheiðarlegt spjall við einn öflugasta íþróttamann okk

#56 H-in tvö: hlaup og húðin
Það eru ýmis atriði sem við hlauparar þurfum að huga að í tengslum við hlaupin s.s styrktaræfingar, teygjur, hvíld og góð næring.Ekki má þó gleyma fyrirbyggjandi atriðum tengt stærsta líffærinu okkar: HÚÐINNI.En við hlauparar þurfum sannarlega að huga að atriðum tengt sólarvörnum, sólgleraugum, nuddsárum, rósroða, ofnæmi, sólarexemi og áhrifum hitaþjálfunar á húðina.Þetta eru allt umfjöllunarefni

#55 Hlaupalíf á persónulegu nótunum
.....en einnig á þeim léttu enda við í Hlaupalíf stemningsfólk en fyrst og fremst stemningshlauparar. Sturlaðar hlaupastaðreyndir á sínum stað og almennt gott spjall um hlaupalífið þessa dagana.

#54 Sigurbjörg Eðvarðsdóttir - margfaldur Íslandsmethafi
Við fengum til okkar margfaldan Íslandsmethafa í götuhlaupum, Sigurbjörgu Eðvarðsdóttur kennara og leiðsögukonu en hún á hvorki meira né minna en 11 Íslandsmet í hinum ýmsum aldursflokkum - og er enn að slá slík met, m.a nýlega í 5 km Víðavangshlaupi ÍR. Þá hljóp hún Lissabon maraþonið sl. haust á 3.35 og var fyrst í sínum aldursflokki. Langfyrst. 66 ára gömul. Og sló þar með Íslandsmetið í sínum

#53 Sonja Sif og hlaupalífið
Sonja Sif Jóhannsdóttir íþróttagarpur kom til okkar í settið þar sem við fórum yfir hennar fjölbreyttu aðkomu inn í íþróttaheiminn og ekki síst íþróttabakgrunn. Sonja Sif tók þátt í London maraþoninu sl. helgi, æfir fyrir heilan Iron Man í ágúst, hefur langa og mikla reynslu af þjálfun, er með master í íþrótta og heilsufræðum, kennir við MH og Háskóla Íslands - og hefur fyrst og fremst mikla ástrí

#52 Að loknu EM í götuhlaupum
Evrópumeistaramótið í götuhlaupum fór fram í Brüssel um liðna helgi. Nokkrir af frambærilegustu hlaupurum okkar kepptu fyrir Íslands hönd í 10 km, hálfu og heilu maraþoni. Elín Edda var á meðal keppanda í maraþoni sem við förum rækilega yfir í þættinum sem og allt mulighed tengt mótinu en betri helmingur Hlaupalíf Hlaðvarp tók upptökugræjurnar með sér og átti gott spjall við nokkra keppendur íslen

#51 Laugavegurinn og Elísabet Margeirs
Það eru tæpir þrír mánuðir í STÓRA hlaupið; Laugavegshlaupið 2025 12 júlí nk. Því fannst okkur í Hlaupalíf ekki úr vegi að fara yfir ýmis atriði tengd hlaupinu; hvernig best væri að undirbúa sig næstu vikurnar, dæmi um góðar ,,Laugavegs-æfingar'', umræður um næringu, endurheimt og andlega þáttinn eru allt umfjöllunarefni sem við fórum yfir og meira til með Elísabetu. Það þarf vart að kynna viðmæla

#50 Hlaupasumarið, hlaupalífið og hlaupasamfélagið!
Hlaupavorið og hlaupasumarið handan við hornið og þá hlöðum við fallbyssurnar og skjótum nýjum og brakandi ferskum þætti í loftið. Margt á döfinni; Evrópumeistaramótið í maraþoni hjá Elínu Eddu, nýr dagskrárliður; Hlaupalíf-þjálfunarhornið, hvernig var hlaupaveturinn og síðast en ekki síst; ofurpepp fyrir hlaupasumrinu. Sem verður frábært hlaupasumar.

#49 Sérnámslæknarnir Hilda Hrönn og Arndís Rós um heilsueflandi vinnustaði
Hvað er heilsueflandi vinnustaður og hvernig kann það að hafa áhrif á vinnustaðinn þinn? Við fengum tvo öfluga lækna í settið sem sögðu okkur frá eigin reynslu af því að heilsuefla vinnustaðina sína. Þetta er okkur í Hlaupalíf hjartans mál enda trúum við einlæglega á hreyfingu (eins og hlaup) sem frábært tæki til að efla vellíðan og heilsu í eigin lífi, og ekki síður í vinnunni.

#48 Arnar Péturs um hlaupalífið og Berlínarmaraþonið
Arnar Péturs og Berlínarmaraþonið takk. 3 mín bæting, negatíft splitt og fullkomið hlaup hjá Arnari og fáum því auðvitað ítarlega hlaupasögu í þættinum. Eins og Arnari er vant miðlar hann sömuleiðis úr hlaupa-viskubrunni sínum enda fróðleiksfús með öllu þegar kemur að hlaupum. Þú mátt því ekki missa af þessum þætti. Þátturinn er í boði vaxtalækkunarákvörðun Seðlabanka Íslands.

#47 Bitches I'm back
Skelltum í einn glóðvolgan þátt í tilefni af okkar uppáhalds degi sem Reykjavíkurmaraþonið er! Gerðum upp hlaupasumarið okkar og fórum yfir epískt CRASH hjá Vilhjálmi eftir Fimmvörðuhálsinn, fjölskyldulífið, geggjaða, eldheita endurkomu Elínar Eddu í hlaupasenunni að ógleymdu STÓRA APRÍKÓSUMÁLINU eftir expoið fyrir Rvk maraþonið!

#46 Enn á hlaupum!
Jæja, nýr vorþáttur af Hlaupalíf Hlaðvarp. Í tilefni hækkandi sólar, forsetakosninga og fæðingarorlofs ákváðum við að rífa fram mækana og spjalla aðeins um hlaupalífið í dag og margt margt fleira. Gleðilegt (hlaupa)sumar! :)

#45 Helen Ólafsdóttir
Helen Ólafsdóttir hefur náð mjög góðum árangri á sviði langhlaupa og í þríþraut og er ein af þessum fyrirmyndum sem hefur náð mjög langt þrátt fyrir að hafa byrjað “seint” ef svo má að orði komast. Það geislar af henni þessi þolíþróttaljómi sem þekkist svo vel á íþróttafólki. Hún hefur fært sig yfir í þríþraut sökum meiðsla og á stuttum tíma náð mjög miklum árangri. Helen segir okkur frá sínu hlau

#44 Búi Steinn Kárason
Jæja loksins erum við í Hlaupalíf búin að dusta rykið af hlaðvarpsgræjunum og þá var enginn betri til að mæta í settið en hlaupakóngurinn Búi Steinn Kárason. Búi er vel kunnugur í hlaupasamfélaginu enda tekið þátt í hinum ýmsum stórhlaupum. Við höfum séð hann keppa í hlaupum sem spanna allt frá 3000m upp í 161 km og oftar en ekki sigrað þessi hlaup og verið á frábærum tímum. En hver er Búi,

#43 Lífið er allskonar, en það er alltaf hlaupalíf
Hlaupalíf og hlaupalífið er aftur mætt með flúnkunýjan þátt!

#42 Hlaupafrumkvöðullinn Helga Árnadóttir um hlaupalífið á Höfn!
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf brugðum við aðeins út af vananum og heimsóttum höfuðborgina á suðausturlandi: Höfn í Hornafirði. Við hittum þar fyrir Helgu Árnadóttur, hlaupafrumkvöðul og hlaupaþjálfara, sem sagði okkur frá Hlaupalífinu á Höfn og skyggðumst aðeins betur inn í heim hlaupara á landsyggðinni og margt margt fleira!

#41 Hlaupalífið í dag
Langþráður NÝR þáttur hjá okkur í Hlaupalíf. Vorið er komið, engar appelsínugular viðvaranir, hlaupasumarið að hefjast og allir hlauparar (og aðrir) peppaðir eftir því. Í þessum þætti förum aðeins yfir hlaupalífið okkar í dag, áskoranir í persónulega lífinu undanfarin misseri og spáum aðeins í hlaupasumrinu, hvað eru skemmtilegustu hlaupabrautirnar o.m.fl. TAKK fyrir að hlusta! :)

#40 Afsakið hlé
Afsakið hlé og þáttur númer 40 - TAKK. Eins og svo margir aðrir jarðarbúar þá þurftum við að slá lífinu á frest þegar við smituðumst af Covid-19. Stutt spjall okkar á milli í Hlaupalíf um lífið í einangrun, að horfa á björtu hliðarnar og að sjálfsögðu hlaupalífið eftir einangrun.

#39 Arnar Pétursson: Uppbygging æfingatímabilsins
Nú er keppnistímabilinu að ljúka hjá mörgun hlaupurum og nýtt tímabil að hefjast. Hvernig er best að byggja hlaupatímabilið upp með réttum hætti fyrir næstu hlaup sem við erum að stefna að? Og AF HVERJU er þetta svona mikilvægt?
Allt þetta og auðvitað miklu meira til (svo gaman að tala um hlaup, er það ekki?) í þessu úber góða spjalli við hlaupafrömuðinn Arnar Pétursson. ENJ

#38 Sigmar Guðmundsson: hvernig hlaupin geta hjálpað í batanum við fíknisjúkdóm
Í 38# þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við fjölmiðlamanninn, frambjóðandann en fyrst og fremst HLAUPARANN Sigmar Guðmundsson til okkar í settið. Við í Hlaupalíf höfum alltaf haft áhuga á að heyra hvernig fólk vinnur úr alcoholisma eða öðrum fíknisjúkdómi með hlaupum og hvernig þau geta stuðlað að breyttum lífsstíl með einum eða öðrum hætti. Slíkt hefur svo sannarlega hefur gerst hjá Sigmari sem

#37 Andrea Kolbeins um sub-5 í Laugaveginum og hlaupalífið!
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp (#37) fengum við enga aðra en Laugavegs-sigurvegarann Andreu Kolbeindóttur í settið og fórum yfir mál málanna: hvernig hleypur maður Laugaveginn á 4:55 og brýtur þar með múr múranna; 5 klst-múrinn! Þrátt fyrir ungan aldur á Andrea nú þegar magnaðan hlaupaferil í ýmsum vegalengdum allt frá brautarhlaupum að últra hlaupum, sem gerir hana að þeirri einstöku hlaup

#36 Allt sem þú þarft að vita um Baldvin Þór Magnússon
Hver er Baldvin Þór Magnússon? Jú, ekki nema þrefaldur Íslandsmethafi og einn allra besti hlaupari okkar Íslendinga. Við í Hlaupalíf tókum strangheiðarlegt viðtal við þennan unga og efnilega hlaupara sem hefur vakið talsverða athygli í hlaupaheiminum. Baldvin er hægt og rólega byrjaður að slá nokkur Íslandsmet í hlaupum og er jafnframt að gera stórgóða hluti með háskólaliðinu sínu í Bandaríkjunum,

#35 Ragnheiður um 100 mílurnar
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við Ragnheiði Sveinbjörnsdóttur í settið en hún sigraði 100 mílna hlaupið í Hengil-Ultra í byrjun júní sl. Hvernig er að keppa í 161 km hlaupi, hvernig æfir maður sig fyrir svona langt hlaup og hvernig var að takast á við afar krefjandi aðstæður sem komu upp í hlaupinu? Allt þetta og meira til förum við yfir með Ragnheiði sem segir okkur frá þessari ofur þrekrau

#34 Hlaupum af okkur sorgina
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fórum við eilítið inn á við. Það er ýmislegt búið að gerast í lífi okkar og ákveðið sorgarferli frá seinasta þætti sem við förum yfir og ræðum hvernig hlaup og önnur hreyfing hefur hjálpað okkur við eftirköst sorgarinnar. Ræðum ekki bara hlaup, heldur einnig aðra þætti tengda hreyfingu. Förum einnig yfir ákveðna tilraun sem við höfum verið að prófa sem tengist atlögu V

# 33 Guðbjörg Jóna: leiðin að Ólympíudraumnum, frjálsíþróttir á Íslandi og afreksíþróttalífið
Í þætti dagsins fengum við hina kornungu hlaupastjörnu Guðbjörgu Jónu, sem er einn efnilegasti frjálsíþróttamaður okkar Íslendinga í dag. Það vita það kannski ekki allir, en Guðbjörg er ekki bara margfaldur íslandsmethafi og boðberi frjálsíþróttarinnar hér á landi, heldur líka heimsmethafi. Komum nánar að því í viðtalinu! Hún hefur einnig verið áberandi í fjölmiðlum að undanförnu og stendur f

#32 Prófessor Erlingur Jóhannsson um ofþjálfun
Nýjasti þáttur Hlaupalíf Hlaðvarp #32 er tileinkaður ofþjálfun. Af hverju ofþjálfun? Jú við höfum heyrt af því að hlauparar hafa í gegnum tíðina lent í einkennum vegna æfinga sem gætu bent til ofþjálfunar. Til að ræða þetta atriði betur og fá nánari útskýringar á viðfangsefninu fengum við til okkar í settið Erling Jóhannsson prófessor í íþrótta- og heilsufræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

#31 Guðrún Sóley Gestsdóttir: Stemningshlaupari í vegan spjalli!
Í þætti dagsins sem tileinkaður er VEGANÚAR fengum við sjálfskipaða veganklappstýru Íslands, enga aðra en Guðrúnu Sóleyju Gestsdóttur, fjölmiðladrottningu. Við fórum yfir víðan völl, hlaupaferil og hlaupalífsviðhorf Guðrúnar, vegan og plant based umræður og tengslin þar við hlaup. Fyrst og fremst djúpt og einlægt, en í senn bráðskemmtillegt viðtal við hressa og skemmtilega mannesk

#30 Stefán Bragi Bjarnason: ,,Vonum það BESTA en undirbúum okkur fyrir það VERSTA''!
Í 30. þætti af Hlaupalíf fjöllum við um hlaup að vetri til og öryggi. Sífellt fleiri og fleiri vilja hlaupa allan ársins hring, sem er að sjálfsögðu hið besta mál ef vari er hafður á. Slysin gera ekki boð á undan sér og hægt er að bjarga mannslífum með fyrirbyggjandi aðgerðum. Það koma reglulega fréttir af björgunaraðgerðum og margir hafa farist í hlíðum Esjunnar þrátt fyrir mikla reyn

#29 Martha Ernstsdóttir DROTTNINGARVIÐTAL!
Gestur þáttarins er stór. Mjög stór, en samt pínulítil. Þetta er engin önnur en fremsta afrekskona Íslendinga í hlaupum, Martha Ernstsdóttir ofurhlaupari. Við förum meðal annars yfir viðburðaríkan feril Mörthu, Ólympíuleikana 2000 í Sidney, fjölmörgu Íslandsmetin hennar en fyrst og fremst fáum við að kynnast persónunni sem hún hefur að geyma og fallegu lífsviðhorfi hennar. Þetta er alveg sannkalla

*28 Torfi Leifs....maðurinn á bakvið HLAUP.IS
Það kannast eflaust flestir við heimasíðuna www.hlaup.is. Þar getur fólk flett upp hlaupadagskrá, myndum, pistlum og almennum fróðleik o.fl. o.fl. Nýverið var ný síða sett á laggirnar - virkilega flott framtak - og okkur langaði aðeins að forvitnast um Torfa Leifsson, sem er svona “pabbi” hlaup.is. Hvað er það sem drífur Torfa áfram og fær hann til að halda áfram að vinna alla þessa vinnu fyrir ok

#27 Íris Anna um hlaup og BARNEIGNIR
Í upphafi þáttar förum við yfir helstu atriði í hlaupavikunni sem leið o.fl. :D en aðalumræðu efni þáttarins er svo barneignir og hlaup. Við förum yfir nokkur grunnatriði í tenglsum við barneignir og hlaup og hvert maður getur leitað með almenn ráð bæði hvað varðar hreyfingu á meðgöngunni sjálfri og eftir barnsburð. Ræðum við Írisi Önnu Skúladóttur sem hefur gengið með fjögur börn á seinustu átta

#26 Umfjöllun um langvarandi meiðsli
Hlaupalíf hefur loksins skriðið úr sumardvalanum! Í þessum þætti fjallar Vilhjálmur Þór um sína eigin baráttu við langvinn meiðsli sem komu vegna hlaupa. Í þættinum rekjum við meiðslasöguna og hvernig hann fer (vonandi) með rétt hugarfar og langtímasýn í gegnum hæðir og lægðir sem fylgja langtímameiðslum. Fyrr á þessu ári tók hann ákvörðun sem reynist flestum hlaupurum erfið; að leggja alveg niður

#25 Guðni Páll Pálsson um LAUGAVEGINN
Í nýbökuðum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við landsliðs- og ofurhlauparann Guðna Pál Pálsson í settið sem ræddi við okkur um mál málanna þessa dagana: LAUGAVEGINN. Hvernig er best að undirbúa sig, hvaða búnaður hentar og hentar ekki. Næring, endurheimt, algeng mistök og andlegi þátturinn eru svo allt málefni sem við fórum yfir með Guðna sem hlaupið hefur Laugaveginn 4x og fyrir Íslands h

#24 Guðlaug Edda: Einn fremsti þríþrautarkeppandi okkar Íslendinga
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við þríþrautardrottninguna Guðlaugu Eddu til okkar í bráðskemmtilegt viðtal. Guðlaug er einn fremsti þríþrautariðkandi okkar Íslendinga og var (og er) afar nálægt því að komast á Ólympíuleikana 2021 í Tokyo. Guðlaug leggur gríðarlegan metnað og vinnu í íþróttina og uppsker eftir því. Það var virkilega gaman að taka viðtal við Guðlaugu, sjálfstraustið geisl

#23 Fjöll á höfuðborgarsvæðinu!
Í GLÆnýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fórum við heldur betur á stúfana og rannsökuðum hvaða fjöll og tinda eru heppileg fyrir okkur hlaupara að hlaupa á höfuðborgarsvæðinu. Það er fátt betra en að láta hugann reika í fjallahlaupi og/eða fjallagöngu og njóta sín í náttúrunni og vildum við kanna hvaða leiðir væru þar í boði. Þá er það umtalað að slíkar fjallaæfingar eru þrælöflugar , sérstaklega fy

#22 Uppáhalds hjá Hlaupalíf!
Í þætti dagsins tókum við hjá Hlaupalíf gott spjall hvort við annað til að dreifa huganum á þessum tímum. Hvernig höfum við notað allan þann tíma sem hefur losnað í hjá okkur að undanförnu og hvaða áskoranir við höfum þurft að takast á við? Við fórum einnig yfir ýmislegt í okkar uppáhaldi til að auka á almenna GLEÐI OG GLEÐIHORMÓNA og til að koms með TILLÖGU að einhverju skemmtilegu til að l

#21 Dr. Erla Björnsdóttir um SVEFN og íþróttir!
#21. Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp tókum við spjall við svefnsérfræðinginn Dr. Erlu Björnsdóttur sem ræddi við okkur um svefn í tengslum við íþróttir. Ansi margir punktar sem við hlauparar og fólk bara almennt geta tekið til sín. Oft eru þetta hlutir sem við eigum að vita og erum fljót að gleyma, en um LEIÐ og maður fær að heyra það frá Erlu þá vill maður svo sannarlega taka þessa punkta t

# 20 Stóra hlaupinu aflýst/frestað - HVAÐ SVO?
Í nýjasta þætti fórum við í Hlaupalíf aðeins yfir stöðuna hjá okkur hlaupurum í þessu blessaða ástandi sem er í gangi. Búið að fresta eða aflýsa flestum hlaupakeppnum næstu vikurnar, margir í sóttkví eða eingangrun og enn fleiri að velta fyrir sér hvað hægt er að gera keppnislega og æfingalega séð næstu misserin til að halda sér í toppformi og hamra inn góðu bætingahlaupi síðar á árinu!

#19 Birna Varðar um átraskanir, næringu og önnur tengd málefni
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengið við í hús frumkvöðulinn, næringaspekúlantinn og hlauparann Birnu Varðar. Birna er með BS gráðu í næringafræði og MS í þjálffræðivísindum (hversu töff gráða?) og sagði okkur frá mikilvægi næringar fyrir heilsu og árangur í íþróttum og sérstaklega í hlaupum, en Birna hefur sjálf lent í alvarlegum fylgikvillum fyrir nokkrum árum tengt þessu sem við föru

#18 Hlynur Andrésson: Afrekshlaupari og margfaldur Íslandsmethafi
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp tókum við viðtal við hinn margfalda Íslandsmethafa og afrekshlaupara Hlyn Andrésson. Hlynur spjallaði við okkur um hlaupaferilinn, afreksmannalífið, öll þessu frábæru Íslandsmet sem Hlynur hefur verið að setja undanfarin misseri en hann setti meðal annars Íslandsmet í 10 km götuhlaupi í mars 2019 er hann hljóp á 29:49 mín og bætti þar með 36 ára gamalt h

# 17 Áramótaannáll Hlaupalíf Hlaðvarp 2019!
Í áramótaannál hjá okkur í Hlaupalíf Hlaðvarp förum við yfir hlaupaárið 2019, hvað stóð upp úr innanlands og erlendis. Förum yfir ýmsa flokka eins og Laugaveg ársins, dugnað og skandal ársins sem og óvæntasta innlenda og erlenda atvik ársins OG MARGT MARGT FLEIRA. Þökkum ykkur kæru hlustendur svo KÆRLEGA fyrir árið sem er að líða og hlökkum til nýs hlaupaárs!

# 16 Hlaupabókarýni hjá Hlaupalíf Hlaðvarp með Arnari Péturssyni
Í glænýjum þætti bregðum við aðeins út af vananum og dettum í bókagírinn og rennum yfir nokkrar spennandi hlaupabækur sem eru á boðstólnum. Af því tilefni fengum við rithöfundinn Arnar Pétursson til að segja okkur frá Hlaupabókinni sem hann er að gefa út og förum einnig yfir uppáhalds hlaupabækurnar hans Arnars. Þar sem það eru nú einnig að koma áramót spurðum við Arnar út í hlaupaárið 2019 og hva

# 15 Sævar Skaptason: Á sjötugsaldri og hlaupandi um allar trissur.....!
Sævar Skaptason 61 árs gamall framkvæmdastjóri ferðaþjónustu Bænda og útivistargarpur er viðmælandi þáttarins! Í þættinum segir hann okkur ýmsar skemmtilegar sögur en hann hefur greinilega upplifað ýmislegt á hlaupaferðum sínum í gegnum árin. Einnig segir hann leyndardóminn við því að halda sér í topp formi á sjötugsaldri. Fróðlegt viðtal sem bætir enn einu púsluspilinu við hlaupasögu okkar

# 14 Maraþon - svo mikið meira en bara að hlaupa
# 14
Í splunkunýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp verður þáttastjórnandinn Elín Edda að viðmælanda í stórmerkilegu viðtali eftir heimkomuna frá Frankfurt maraþoninu þar sem Elín hljóp sitt annað maraþon á 2:44;48 klst og bætti þar með tímann sinn um rúmar 4 mín. Í sínum maraþon undirbúningi hefur Elín Edda verið með fjölmargar undirbúningspælingar sem hún miðlar frá sér í viðtalinu sem vi

# 13 Rannveig Oddsdóttir: Um OCC í Ölpunum og önnur AFREK
Í #13 þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp birtum við STÓRskemmtilegt viðtal við reynsluboltann Rannveigu Oddsdóttur sem hefur afrekað fjölmargt á sínum hlaupaferli, bæði á götunni og í utanvegahlaupum og er hún til að mynda nýkomin heim frá frönsku Ölpunum með 3 sætið í farteskinu frá OCC hlaupinu sem er eitt þekktasta utanvegahlaupið í dag. Við í Hlaupalíf höfum einmitt prófað að hlaupa á þessu svæði og

#12 Mun hið ómögulega gerast? Sub2 maraþon framundan - Vignir Már Lýðsson
Eins og margir vita þá ætlar maraþon- og ofurhlauparinn Eliud Kipchoge að reyna hið ómögulega; hlaupa heilt maraþon á undir 2 klst í Austurríki í okt. (ca 21 km/klst á brettinu!). Hreint út sagt sturlað, ekki satt? Til þess að fara yfir þessa tilraun og heyra aðeins sögu Kipchoge sem hægt er að læra mikið af, fengum við til okkar í settið Vigni Má Lýðsson sem er allra manna fróðastur u

# 11 Kári Steinn um maraþonhlaup
Ólympíufarinn og Íslandsmethafinn í heilu og hálfu maraþon Kári Steinn Karlsson kíkti til okkar í settið þar sem við fórum yfir hlaup hlaupanna: MARAÞON! Í síðari hluta viðtalsins fórum við svo yfir hlaupaferilinn hjá Kára sem er auðvitað afar áhugaverður og er virkilega gaman að heyra þennan ofurhlaupara segja frá sínum hlaupa afrekum sem eru magnaðir.

# 10 Pétur í Boss; í BESTA formi lífs síns - Pétur Ívarsson
Við erum búin að vera ótrúlega spennt að birta næsta þátt en hinn margreyndi maraþonhlaupari og verslunarstjóri Pétur Ívarsson settist niður með okkur í vikunni. Við fórum meðal annars yfir hlaupaferilinn, reynsluna hans frá Reykjavíkurmaraþoninu en þar náði Pétur flottri bætingu. Förum einnig yfir frægu jakkafatamaraþonin, ennþá frægari hlaupahúðflúrin og hvað hlauparar þurfa að gera til að

#9 Hlaup og andleg áföll - Gréta Rut Bjarnadóttir
Í 9. þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við í settið Grétu Rut Bjarnadóttir ung-langhlaupara og tannlæknanema sem sagði okkur frá reynslu sinni sem hún og maki hennar lentu í síðastliðið haust og hvernig hún tók á því með hlaupunum. Virkilega áhugaverður og hreinskilinn viðmælandi sem hefur sögu að segja sem snertir okkur öll, enda lendum við öll í skakkaföllum í lífinu sem við tökum á með m

#8 Í fantaformi á besta aldri - Trausti Jarl Valdimarsson
Trausti Jarl Járnkarl Valdimarsson læknir, langhlaupari og þríþrautarkeppandi, nýkominn heim frá Spáni þar sem hann keppti í Járnkarlinum, sem er ekki frásögu færandi nema að hann er rétt rúmlega sextugur og eflaust í besta formi lífs síns. Trausti sem byrjaði að æfa langhlaup um þrítugt er í dag margreyndur langhlaupari, hefur m.a hlaupið undir 3 klst í maraþoni, sigrað Tíbetmaraþonið 2008,

#7 VEL nærðir hlauparar - Elísabet Margeirsdóttir
Í 7. þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við næringafræðinginn og ofurlanghlauparann Elísabetu Margeirsdóttur í sófann þar sem við fórum yfir mál málanna: NÆRINGU. Umræðuefnið sem allir hafa áhuga á og allir vilja skilja (grimmt rím) en eiga kannski erfitt með að ná utan um. Við vonum að hlustendur verði a.m.k einhverju nær um næringu eftir þennan þátt!

#6 Hleypur með landsliði og bjargar mannslífum - Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
#6 SplunkuNÝR þáttur kominn í loftið, en viðmælandi þáttarins var fyrirmyndin, ofurhlauparinn og hjartalæknarinn Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir sem er nýkomin frá HM í utanvegahlaupum í Portúgal. Við ræddum um landsliðsferilinn, lækna- og fjölskyldulífið, næstu markmið hjá Þórdísi og margt margt fleira.

#5 Í hverju á ég að keppa í sumar?
Veistu ekki í hvaða hlaupi þú átt að KEPPA í? Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp ,,Í hverju á ég að keppa í sumar’’ förum við yfir hlaupasumarið í götu-, utanvegahlaupum o.fl. Við förum yfir hvaða hlaup hafa verið vinsælust, hvaða hlaup eru líkleg til bætinga og margt margt margt fleira. Einnig birtum við nokkur viðtöl sem við tókum við nokkra hlaupara eftir Hvítasunnuhlaup Hauka. ENJOY!

#4 Er ég meiddur eða er ég aumingi? Arnar Pétursson
Í fjórða þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við langhlauparann, þjálfarann og rithöfundinn Arnar Pétursson í settið og fórum yfir það umræðuefni sem allir hlauparar (og aðrir íþróttamenn) hræðast hvað mest: Meiðsli og hvernig við komum í veg fyrir þau og hvaða viðvörunarbjöllur þurfum við að vera meðvituð um til að koma í veg fyrir meiðsli. Virkilega áhugavert umræðuefni sem allir íþróttamen

#3 Hugarheimur atvinnuhlaupara frá USA - Sage Canaday
Í splunkunýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp hittum við Sage Canaday bandarískan atvinnuhlaupari sem er hvað þekktastur fyrir að halda úti vinsælli hlaupasíðu á youtube sem margir Íslendingar þekkja til, (sjá link að neðan). Sage er þó einnig gríðarlega öflugur hlaupari sem hefur sigrað fjölmörg alþjóðleg utanvegahlaup og hefur keppt í maraþoni á bandaríska úrtökumóti fyrir Ólympíuleikana.
Ef

#2 Bætingar á fimmtugsaldri - Þórólfur Ingi
Í fyrsta þættinum af Hlaupalíf Hlaðvarp hittum við hlaupasnillinginn Þórólf Inga Þórsson sem hefur verið að brillera á öllum hlaupavígstöðvunum hérna heima undanfarin misseri. Ótrúlega áhugaverður viðmælandi, meðal annars farið yfir markmiðasetningar, andlegar pælingar, bætingar á aldursflokkametum og heilbrigðan lífsstíl. Njótið!

#1 Kynningarþáttur: Af litlum neista verður mikill eldur
Nú er komið að því sem allir hafa verið að bíða eftir. Glænýr Hlaðvarpsþáttur, "Hlaupalíf Hlaðvarp", hefur litið dagsins ljós! Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór. Við erum bæði langhlauparar og höfum mikla ástríðu fyrir hlaupum. Þessi fyrsti þáttur er almenn kynning á okkur og við hverju þið megið búast af þáttunum okkar. Við munum gefa út þætti tvisvar mánaðarlega og tölum um allt milli himins











