
Run and Gun with Mate Dalmay
Run&Gun 40 episodes Nov 19, 2026
Umræðuþáttur í umsjón Mate Dalmay um íslenskan körfubolta þar sem slegið er á létta strengi en farið í dýptina.
Episodes

Run and Gun 26/27 (Þáttur 12 - Enginn Tommi, ekkert tuð, Steinar og Manni klukkan 21:30!)
Þráðbeinni klukkan 21:30 svo slökkviliðsmaðurinn komist í sett. Fullt af breytingum sem verður farið yfir, spáð í umerðina sem framundan er áður en efstu deildar liðin fara í landsliðsverkefni og pásu.

Run and Gun 26/27 (Þáttur 11 - Hitað upp fyrir 6.umferð með the Real GB)
Gunnar Birgisson mætti loksins eftir rúmlega ár af ósvöruðum símtölum og fór yfir deildina með okkar af sínu mikilli dýpt og þekkingu.
Það var hent í Power Rank í BÆJARINZ BEZTU og BÓNUZ og Spurt og svarað slengt framan í GB og Tomma.

Run and Gun 26/27 (Þáttur 10 - Hitað upp fyrir 5.umferð)
.

Run and Gun 26/27 (Þáttur 9 - Power Rank og MVP ladder með Slæma í heimsókn)
Stútfullur þáttur í dag með Steinar Arons loksins mættann.
Tommi henti í MVP ladder bæði í Fyrstu og Úrvalsdeild, Steinar Power Rankaði efstu tværi deildir, nokkur stór mál voru rædd og að sjálfsögðu næsta umferð rædd.

Run and Gun 26/27 (Þáttur 8 - Hitum upp fyrir 3. umferð og æsum okkur eftir bikar)
Þétt dagskrá eftir viðburðarríka bikarhelgi. Manni Vill mætir og rýnir í nýja sign Tindastóls, vandamál Grindvíkinga, það verða "Heitar tökur" og miklu meira.

Run and Gun 26/27 (Þáttur 7 - Hitum upp fyrir 2. umferð)
Í upphafi þáttar eru 90 sek hljóðlaus. Við hvetjum alla til að fara í Fitness Sport og kaupa sér Test Surge Testabooster.
Gunnar Bjartur fór með þáttastjórnendum yfir bestu Íslensku Big3 deildarinnar, hnoðað var í You Go Airport lista eftir eina umferð.
Við að sjálfsögðu skoðuðum næstu umferð og fundum lausnir fyrir Tindastól á meiðslum Drungilas og vöntun Kane fyrir Grindavík.

Run and Gun 26/27 (Þáttur 6 Stóri Upphitunarþátturinn fyrir efstu deild)
Menn skiluðu inn lokaspám fyrir deildina og rýndu í vonbrigði og allskonar fyrir tímabilið sem hefst á morgun.
Þjálfari Íslandsmeistara Grindavíkur, Jóhann Ólafsson, var á línunni og skoðaði voru að sjálfsögðu allir leikirnir í fyrstu umferð.

Run and Gun 26/27 (Þáttur 5 Stóri 1. deildar þátturinn)
Geir Helagson kom til okkar og fór yfir 1. deildina.
Ein umferð er búin og hægt að "overreacta" af alvöru.

Run and Gun 26/27 (Þáttur 4 Tindastóll, Höttur og Sindri)
Biðjumst afsökunar á hversu seint þátturinn kemur inn en hér er hann.
Landsbyggðin tekin fyrir í þætti kvöldsins. Gestur í Run and Gun studio er Sauðkræklingurinn Halli Karfa.
Rætt er við Arnar Guðjónsson þjálfara Tindastóls og rýnt í liðin fyrir komandi tímabil.

Run and Gun 26/27 (Þáttur 3 Reykjavík)
Steinar Arons kíkir í Run and Gun og rýnir í liðin fjögur sem eru á Reykjavíkursvæðinu. Valur, ÍR, bikarmeistara KR og Ármenningar sem kláruðu The Great Escape í fyrra.

Run and Gun 26/27 (Þáttur 2 Suðurnes)
Manni Vill mætti og var farið yfir Keflavík, Njarðvík og Íslandsmeistarana í Grindavík. Rætt var við Rúnar Ingar og Daníel Guðna þjálfara Njarðvíkur og Keflvíkinga en spjallið við Jóhann Ólafsson þjálfara Grindavíkur fáum við í næstu viku í þriðja þætti!

Run and Gun 26/27 (Þáttur 1 Stjarnan og Álftanes)
Fyrsti þáttur tímabilsins. Hitað verður upp öll miðvikudagskvöld í beinni útsendingu þar til Bónus deildin hefst í október. Í kvöld verður rýnt í tvö af sterkustu liðum deildarinnar, Álftanes og Stjörnuna.
Við heyrum í þjálfurum beggja liða og ræðum málin með Gunnari Bjarti og Slæma í settinu.











