Home Podcasts Meðal fólks
Meðal fólks

Meðal fólks

RÚV Hlaðvörp 15 Episodes Jun 19, 2026

Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt. Í þættinum er rætt við ólíka einstaklinga um líf þeirra og reynslu.

Episodes

Fyrir fótboltaleik
Fyrir fótboltaleik Jun 19, 2026 51:27 Hvað þarf til að halda stærsta fótboltaleik sumarsins? Við mætum á Víkingsvöll og verjum tíma með sjálfboðaliðum Víkings á meðan þeir undirbúa toppslag við erkifjendurna í Knattspyrnufélagi Reykjavíkur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Bjór
Bjór Jun 12, 2026 57:47 Einhvern tímann á síðasta áratug varð breyting á því hvernig við drekkum bjór. Handverksbrugghús opnuðu um land allt sem brugguðu flókna, krefjandi, stundum skrítna bjóra. Svo varð önnur breyting.Hvað gerðist?Í dag heimsækjum við handverksbrugghús og ræðum við bruggmeistara og bjórsagnfræðing og köfum ofan í bjór- og drykkjumenningu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tilraunastöðin
Tilraunastöðin Jun 5, 2026 56:35 Sumarexem, sýklalyfjaónæmi, smitsjúkdómar í fiskeldum. Í dag heimsækjum við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og kynnum okkur rannsóknirnar sem fara þar fram. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Veiruheimur
Veiruheimur May 29, 2026 52:49 „Þetta er veiruheimur sem við búum í, ekki öfugt,“ segir Zarko Urosevic, náttúrufræðingur sem starfar við veirurannsóknir á Landspítala. Í dag fræðumst við um veirur og komumst að því hvort veirur geti verið góðar, hvaða áhrif Covid hafði á veirurannsóknir og hvort við séum tilbúin undir næsta veirufaraldur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Allra meina bót
Allra meina bót May 22, 2026 55:13 Ættu læknar að skrifa upp á list til að lækna sjúkdóma? Erum við ekki að horfa nógu lengi á hlutina í kringum okkur? Þetta er spurningar sem fyrstu útskriftarnemar af námsbrautinni Listir og velferð við Listaháskóla Íslands varpa fram í sínum lokaverkefnum. Í maí eru haldnir fjölmargir viðburðir þar sem útskrifarnemar verja og kynna lokaverkefnin sín, og við mætum á einn þeirra til að læra meira u
Þar sem sólin skín ekki
Þar sem sólin skín ekki May 9, 2026 56:07 Dagsbirta er mikilvæg. Engu að síður byggjum við stundum rými þar sem hana skortir. Í dag heimsækjum við Hlíðarendahverfið í Reykjavík ásamt Páli Jakobi Líndal og ræðum við Önnu Sigríði Jóhannsdóttur, arkíktekt og sérfræðing í dagsbirtu í byggðu umhverfi Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Labbið
Labbið May 4, 2026 54:51 Hvernig lyktar E.coli? Hvernig finnur þú ávaxtaflugumeyjar? Hvers vegna hvílir leynd yfir starfsemi músarannsóknarstofa? Í dag fylgjum við Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, í gegnum þrjár mismunandi rannsóknarstofur þar sem rannsóknir eru gerðar á lífverum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Kokteilar og barmenning
Kokteilar og barmenning Apr 24, 2026 58:28 Í dag köfum við dýpra ofan íslenska barmenningu og rekjum sögu handverkskokteilgerðar í Reykjavík til fyrsta barþjónsins á Slippbarnum. Við ræðum við Teit Riddermann Schiöth, forseta barþjónaklúbbs Íslands, Leó Snæfeld, íslandsmeistara í kokteilgerð, og Ásgeir Má Björnsson, kokteilbarþjón. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Íslandsmeistaramót barþjóna
Íslandsmeistaramót barþjóna Apr 17, 2026 56:35 Á hverju ári eru haldnar fjölmargar barþjónakeppnir, þar sem barþjónar búa til upprunalegan kokteil, hella upp á og framreiða hann eftir öllum kúnstarinnar reglum. Stærsta keppni ársins hér á landi er Íslandsmeistaramót barþjóna, sem haldin er á Reykjavík Cocktail Week að vori. Björg Elva Friðfinnsdóttir, barþjónn á Geira Smart, er meðal keppenda í ár og við fylgjum henni eftir á meðan hún undirbý
Arkítektúrkennararnir
Arkítektúrkennararnir Apr 10, 2026 53:44 Við erum ennþá í arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands. Í síðasta þætti vörðum tíma með nemendum. Í dag heyrum við í kennurunum. Hvernig takast kennarar í eina arkítektúrskóla landsins á við ábyrgðina að kenna arkítektum framtíðinnar að hugsa um arkítektúr. Eru tengsl milli akademíunnar og raunheimsins? Er LHÍ búbbla?Viðmælendur eru:Auður AtladóttirElísabet Auður GuðnadóttirÞuríður Guðrún Pétursdót
Arkítektúrnemarnir
Arkítektúrnemarnir Mar 27, 2026 56:04 Er byggða umhverfið okkar ljótt? Hvernig lætur það okkur líða? Hvers vegna virðist fólk svona ósátt með nýbyggingar? Til að svara þessum spurningum leitum við á stað þar sem fólk hugsar mikið og gagnrýnið um arkítektúr: Arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands.Við verjum deginum með fimm fimmta árs nemum í arkítektúr sem eru að keppast við að klára meistaraverkefnið sitt. Við ræðum við Evu Lind Elíasd
Dragfjölskyldutengsl
Dragfjölskyldutengsl Mar 20, 2026 56:56 Í þættinum verjum við tíma með dragdrottningunum Lolu von Heart og Chardonnay Bublée á meðan þær undirbúa dragsýninguna House of Heart á skemmtistaðnum Kiki, fræðumst um þetta áhugaverða listform og kynnumst dragsenunni í Reykjavík. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Recommended