Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli.
Episodes

Erna og ástirnar tvær - seinni hluti
Óvænt bónorð leiðir litlu stúlkuna frá Ísafirði í ævintýri sem hún hefði aldrei getað ímyndað sér. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Erna og ástirnar tvær - fyrri hluti
Í stjörnuspárbókinni stóð að Erna Geirdal ætti eftir að eignast tvo eiginmenn. En það stóð ekkert um að hún myndi giftast þeim þrisvar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þórbergur, Sigurður og jafnhendingin
Sigurður upplifði dýpsta dal síns þjálfaraferils þegar Þórbergur féll í yfirlið í miðri lyftu á stórmóti. Gætu þeir aftur náð hæstu hæðum aðeins fjórum vikum síðar? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Sólveig, Svandís og bruninn í boltanum
Bruninn var hægur þegar Sólveig og Svandís kynntust í landsliðinu í körfuknattleik, gætu þær falið blossann þegar hann loksins kviknaði? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Ragnar og Ripleyarnar
Í dag ætlum við að heyra sögu af nafni. En þetta er líka ástarsaga konu og manns, sem leiðir til ástar á barni, og inn í þetta allt blandast heimsfræg leikkona! Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Rapparinn sem missti orðin sín
Á dögunum kom hin goðsagnakennda hip-hop sveit Subterranean saman á ný eftir áratuga hlé. Fyrir nokkrum árum mátti þó litlu muna, að einn meðlimur sveitarinnar ætti ekki afturkvæmt á tónlistarsviðið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Reynir og tvíburarnir
Reynir hitti dætur sínar í fyrsta skipti í Leifsstöð, en voru þær einu sinni systur? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hreindís, Hulda og tilhlaupið
Hulda og Hreindís voru bestu vinkonur en þær langaði báðar að vera meira. Það var hinsvegar svolítið sem flæktist fyrir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Björn Orri og fótboltadraumurinn
Það virtist skrifað í stjörnurnar að hann yrði atvinnumaður í knattspyrnu. Þegar boltinn fór að rúlla, tók hann þó aðra stefnu en búist var við. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Unnur og ástarbréfin
Þegar Unnur lést erfði tengdadóttir hennar eldheit ástarbréf frá dönskum herramanni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Fanney og feðrunin
Fanney hélt að hún væri með krabbamein en það reyndist sem betur fer rangt. Hún var ólétt! En hver var pabbinn? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Valentínusarþáttur: #Regnus
Regn ætlaði aldrei að fara í fjarsamband. Helst ætlaði hán hreint ekki að byrja með sís-karlmanni aftur. En svo birtist Færeyingur á Twitter. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.












