Home Podcasts Tengivagninn
Tengivagninn

Tengivagninn

RÚV 84 Episodes Aug 13, 2026

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar. Þættirnir taka á ýmsum menningarviðburðum, listum og skemmtunum sem eiga sér stað á Íslandi. Hver þáttur kynnir áhugaverða viðburði og viðtöl við þátttakendur. Markmiðið er að halda hlustendum upplýstum um menningarlífið yfir sumartímann.

Episodes

Heyrðu mig, Jose Luis er Andervel, Anaxagóras og íslenskan
Heyrðu mig, Jose Luis er Andervel, Anaxagóras og íslenskan Aug 13, 2026 1:24:12 Við byrjum þáttinn á sagnfræðilegum fróðleik í boði Illuga Jökulssonar, sem segir okkur frá Anaxagórasi, fæddum 500 fyrir Krist, sem bjó til kenningar um meðal annars, sólmyrkva. Svo er rætt við tónlistarmanninn Andervel. Nýlega kom út platan Ironclad and Palm trees. Bárujárn og pálmatré. Þetta er fyrsta plata tónlistarmannsins en titillinn er annars vegar vísun í bárujárnið sem klæðir húsin í R
Almyrkvi í beinni á Echolalia
Almyrkvi í beinni á Echolalia Aug 12, 2026 1:48:31 Við verjum aðdraganda almyrkvans í hópi tónleikagesta á Echolalia, reivi og listahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Sólmyrkvahátíðin er skipulögð af Björk og er samstarf við Listasafn Íslands, en þar stendur uppi sýning á verkum hennar með sama nafni, og Smekkleysu, sem fagnar 40 ára afmæli á árinu. Sólmyrkvinn var ekki sjáanlegur frá Víðistaðatúni, en við upplifum myrkrið, stystu nótt lífs ok
Örn Karlsson og Villistrákarnir, hinsegin kvikmyndir, bókameðmæli úr Grafarvogi
Örn Karlsson og Villistrákarnir, hinsegin kvikmyndir, bókameðmæli úr Grafarvogi Aug 11, 2026 1:16:55 Í tilefni nýafstaðinna Hinsegin daga og Pride, verður hinseginleikinn þráður í þætti dagsins. Við erum með hugann við bókmenntir og kvikmyndir. Við hefjum þáttinn á viðtali sem Kristján Guðjónsson tók við Örn Karlsson, myndlistamann og þýðanda. Þýðing Arnar á bókinni Villistrákar eftir William S. Burroughs kom nýverið út, en hún var áratugi í bígerð. Bókin segir frá dulrænum skæruher hömlulausra
Evrópa, yfirnáttúrulegir staðir, nýlendusaga í myndlist
Evrópa, yfirnáttúrulegir staðir, nýlendusaga í myndlist Aug 6, 2026 1:45:07 Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, ræðir við okkur um Evrópu. Hvað er Evrópa? Hvenær varð hún til? Hvaða jarðvegur var til staðar fyrir stofnun Evrópusambandsins? Þó forn Grikkir hafi fyrstir gefið þessu landfræðilega og menningarlega afmarkaða svæði fyrstir nafn þá skoðum við söguna sem er nær okkur í tíma í leit að svörum. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir flytur pistil um tengsl Írla
Europe 2031,  tomi g og feminísk þýðing á Ódysseifskviðu
Europe 2031, tomi g og feminísk þýðing á Ódysseifskviðu Aug 5, 2026 1:43:48 Europe 2031 er skálduð sviðsmynd um framtíð Evrópu ef álfan breytir ekki um stefnu í gervigreindarmálum. Framtíðarsýn höfunda er svört. Evrópa verður vanmáttugur eftirbátur Bandaríkjanna og Kína og Evrópubúar ófærir um að verja gildi sín og viðhalda hinu evrópska velferðarkerfi. En er eitthvað til í þessari framtíðarsýn? Við ræðum málin við Halldóru Mogensen, sem á sæti í vísindanefnd Evrópusamban
Heimsókn til Maó og kattarins Kókos, Hinsegin dagar, Skálda, lestur
Heimsókn til Maó og kattarins Kókos, Hinsegin dagar, Skálda, lestur Aug 4, 2026 1:47:15 Maó Alheimsdóttir, skáld, leiðsögumaður, tungumálakennari og kattaeigandi, tekur á móti okkur og kynnir okkur fyrir kettinum sínum Kókos. Kókos er lítil og sæt læða, sem kann best við sig uppi á skáp. Stundum kíkir hún út í garð og leikur sér þar. Hún á sér nokkuð dramatíska upprunasögu, en hefur það ansi gott í dag. Við fáum pistil frá Arndísi Þórarinsdóttur, að þessu sinni er hún að velta fyri
Megas jarðsunginn, írsk list og Meðan borgin blánar
Megas jarðsunginn, írsk list og Meðan borgin blánar Jul 30, 2026 1:28:10 Í dag, 30. júlí, er Magnús Þór Jónsson, jarðsunginn. Að því tilefni ætlum við að minnast hans. Við ræðum við Diddu skáldkonu um Megas, lífið og dauðann. Við ræðum við Jakub Stachowiak um nýja ljóðabók sem kom út hjá Forlaginu í síðustu viku og heitir Meðan borgin blánar. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, listfræðingur, sýningarstjóri og pistlahöfundur fjallar um samband írskrar og íslenskar listar.
Skriða á Patreksfirði, Barn í skólabíl á Flateyri
Skriða á Patreksfirði, Barn í skólabíl á Flateyri Jul 29, 2026 1:25:24 Pétur heimsækir Birtu Ósmann prentsmiðjuna og bókaútgáfuna Skriðu á Patreksfirði. Lóa ræðir við Harald Jónsson, myndlistarmann, um verkið Barn, sem var fyrst innsetning í leikskólanum Tjarnarborg í Reykjavík en hefur nú öðlast nýtt líf í gömlum skólabíl á Flateyri.
Hundalabb með Spessa, Bóksala Stúdenta og tíminn
Hundalabb með Spessa, Bóksala Stúdenta og tíminn Jul 28, 2026 1:18:22 Lóa hittir ljósmyndarann Spessa og hundinn Múskat í Laugardal. Pétur spjallar við bóksala um glæpasögur, rómantasíur og sumarlestur í Bóksölu Stúdenta. Arndís Þórarinsdóttir flytur pistil um tímann.
Ódysseifskviða, bútasaumsteppi í Hrísey, bókumbók og menningartengsl Írlands og Íslands
Ódysseifskviða, bútasaumsteppi í Hrísey, bókumbók og menningartengsl Írlands og Íslands Jul 23, 2026 1:28:44 Í þætti dagsins förum við til Hríseyjar og ræðum við Dröfn Teitsdóttur, sem var að setja upp sýningu á bútasaumsteppum með myndum af fuglum. Við heimsækjum bókaverslunina Bókumbók í miðborg Reykjavíkur. Kolbeinn Rastrick rýnir í stórmynd Christophers Nolan, Ódysseifskviðu. Við heimsækjum bókabúðina Bókumbók í miðbæ Reykjavíkur og flytjum pistil eftir Þórhildi Tinnu Sigurðardóttur um menningartengs
Þýðandinn Larissa Kyzer, Hómer og hexameter, á rúntinum með borgarstjóra
Þýðandinn Larissa Kyzer, Hómer og hexameter, á rúntinum með borgarstjóra Jul 22, 2026 1:19:15 Larissa Kyzer er bandarískur bókmenntafræðingur og þýðandi úr íslensku yfir á ensku. Hún hefur þýtt fjölda íslenskra skáldsagna, sem margar hverjar hafa hlotið góðar viðtökur, þar má nefna Merkingu eftir Fríðu Ísberg og Elínu, ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur. Við hringjum til Brooklyn og ræðum þýðingarvinnuna, hvers vegna hún kemur til Íslands, og erindi íslenskra bókmennta við hinn enskumæla
Kómedíuleikhúsið, hvaða lag fær þig til að dansa? Og Steven Spielberg
Kómedíuleikhúsið, hvaða lag fær þig til að dansa? Og Steven Spielberg Jul 21, 2026 1:17:32 Elfar Logi Hannesson, leikari, rekur Kómedíuleikhúsið í Haukadal, ásamt Marsibil G. Kristjánsdóttur, listakonu, en þau eru einnig hjón. Elfar og Pétur Magnússon ræða leikhúsið, Act Alone, dýrfirskar draugasögur og nýlega endurvakið félag vestfirskra listamanna. En sá félagsskapur fer stækkandi. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndafræðingur og gagnrýnandi, rekur upphafið að ferli Stevens Spielberg, en

Recommended