
Þetta Reddast
Tvær bugaðar, þreyttar mæður á besta aldri sem ákváðu, í augnabliki af ofmati á eigin getu, að byrja podcast. Hugarfarið þeirra hefur alltaf verið að þetta reddist… einhvern veginn. Þær hlæja, kvarta, deila og lifa af – og vonandi hlæja hlustendur með þeim… eða að þeim.
Episodes
Fæddar til að ferðast saman
Smá ferðalag hjá okkur vinkonum um memory lane. Við fórum yfir ferðalögin sem við höfum farið í saman gegnum árin OG fórum yfir fyrirhugaða ferð sem er bara handan við hornið! Mögulega smá yfirspenntar en hey! það má og ég meina ef undirbúningurinn var svona geggjaður þá er nú varla að ferðin klikki!
Horror, hafmeyjur og húsdýr
Það ætti ekki að koma ykkur á óvart að við vinkonurnar fórum um víðan völl í upptökum vikunnar. Þyngdaraflið kom til tals, hafmeyjur, barnauppeldi og húsdýr.Mikið hlegið og við skemmtum okkur konunglega! Ef þið hafið gaman af þá megið þig endilega slást í hópinn á Instagram síðu okkar.
Táknmál, dúfur og nuddari frá helvíti
Þessi þáttur var ansi strembin í fæðingu og má í raun segja að þetta hafi endað með keisara. En þetta hafðist á endanum og skemmtum við okkur konunglega!Við fórum yfir víðan völl. Eins og alltaf þá reynum við að finna húmorinn í áskorunum lífsins. Vonum þið njótið og ef þið viljið koma athugasemdum áleiðis þá erum við komnar með Instagram síðu - Thettareddastpodcast.
Andlit á glugga, félagar í skógi og murder mystery?
Smá rannsóknarvinna hjá okkur stöllum! Hvað í ósköpunum erum við að lesa og syngja fyrir börnin okkar? Við ritrýndum þekktar sögur og kvæði sem við höfum flest lesið og sungið. Eftir að hafa rýnt í textana þá ætlum við mögulega að endurskoða hvað verður framvegis fyrir valinu!
Málsháttamálið mikla, klikkhaus í pontu og klósettpappírsskortur!
Málsháttarmálinu miklu er nú formlega lokið. Að sjálfsögðu gekk það ekki alveg þrautarlaust fyrir sig. Við ræddum nokkrar fréttir úr liðinni viku og tímann sem klósettpappír var orðinn söluhæsta varan á Íslandi.
Hebreska og húllumhæ
Enn og aftur er lagt af stað með plan en eins og okkur er lagið þá fórum við lengri leiðina. Samtalið fór frá Jerúsalem yfir til Góu og enduðum á mannanafnanefnd.
Sjálfsmildi, páskaeggjaskandall og málshættir
Eins og vanalega þá fórum við um víðan völl. Byrjuðum á alvarlegri nótum sem endaði í skandal tengt páskunum og svo misstum við mögulega aðeins þráðinn!
Inga Sæland, Núvitund og Jarðafarasálmar
Inga Sæland, Núvitund og Jarðafarasálmar
Barnaland, Pamela Anderson og Gulli Helga.
Umræðuefni þáttarins fór um víðan völl. Við ræddum um Barnaland og samfélagsmiðla, misjafnan árangur okkar af googli og af hverju við ákváðum að byrja með podcast.











