
Útvarp Bændablaðið
Hér ætlum við að halda úti upplýstri og spennandi umræðu um landbúnað. Nýr þáttur aðra hverja viku, þá viku sem Bændablaðið kemur ekki út, þar sem víða verður komið við í spjalli við bændur og sérfræðinga, stjórnmálafólk, neytendur og ýmsa aðra sem hafa innsýn í íslenskan landbúnað.
Episodes
Útvarp Bændablaðið kynningarstikla
Hér ætlum við að halda úti upplýstri og spennandi umræðu um landbúnað. Nýr þáttur aðra hverja viku, þá viku sem Bændablaðið kemur ekki út, þar sem víða verður komið við í spjalli við bændur og sérfræðinga, stjórnmálafólk, neytendur og ýmsa aðra sem hafa innsýn í íslenskan landbúnað.
1.þáttur Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.
Rætt við Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra um hæstaréttardóm um breytingar á búvörulögum, nýja búvörusamninga, stöðuna í landbúnaðinum og ætlun ráðherra í málaflokknum.
2.þáttur Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra.
Rætt við Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra, um landbúnaðarstefnu, afurðastöðvamál, skjól af EES-samningnum, tolla á innfluttar landbúnaðarvörur, búvörusamninga og aðild að ESB.
3.þáttur Erna Bjarndóttir, hagfræðingur MS og Margrét Gísladóttir framkvæmdastjóri SAFL.
Gestir þáttarins að þessu sinni eru tveir, Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Mjólkursamsölunnar, og Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri SAFL, Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.
4.þáttur Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb.
Gestur þáttarins að þessu sinni er Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb sem er markaðsstofa sem vinnur að því að auka virði sauðfjárafurða með markaðssetningu þeirra erlendis og til erlendra ferðamanna.
5.þáttur Gyða Pétursdóttir, verkefnastjóri TerraForming Life og Sigurður Trausti Karvelsson, verkefnastjóri First Water.
Gestir þáttarins að þessu sinni eru tveir, þau Gyða Pétursdóttir, verkefnisstjóri TerraForming Life hjá Bændasamtökum Íslands, og Sigurður Trausti Karvelsson sem er verkefnastjóri hjá First Water og fer með yfirumsjón verkefnisins Terraforming LIFE.
6.þáttur Rafn Bergsson, Erna Bjarnadóttir og Jóhannes Hr. Símonarson.
Rætt um drög að frumvarpi atvinnuvegaráðherra um breytingu á búvörulögum, einkum hvað varðar mjókurvinnslu. Frumvarpið er kynnt sem tilraun til að styrkja stöðu frumframleiðenda en margir innan greinarinnar óttast að breytingarnar kunni í reynd að veikja stöðu íslenskra kúabænda og gera starfssemi á mjólkurmarkaði enn erfiðari, bæði fyrir framleiðendur og vinnslu. Gestir þáttarins að þess
7.þáttur Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Gestur þáttarins að þessu sinni er Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands. Rætt er við hann um frumvarpsdrög atvinnuvegaráðherra um breytingar á búvörulögum og stöðu búvörusamninga.
8.þáttur Ragnheiður Björk Halldórsdóttir umhverfis- og sjálfbærnisérfræðingur.
Gestur þáttarins er Ragnheiður Björk Halldórsdóttir, sjálfstæður ráðgjafi á sviði sjálfbærni með fyrirtækið sporin.is. Rætt um sjálfbærni og umhverfismál, nákvæmnisbúskap og loftslagsmál.
9.þáttur Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra.
Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra er gestur þáttarins í dag. Rætt er um stöðu íslensks landbúnaðar í dag og þróun hans síðustu áratugi. Pólitíkin kemur einnig við sögu.
10.þáttur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra.
Gestur þáttarins að þessu sinni er Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsráðherra. Umræðuefnin eru orkumál og loftslagsmál en einnig verður komið inn á umhverfismál.
11.þáttur Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og Steinþór Logi Arnarsson, formaður samtaka ungra bænda.
Gestir þáttarins eru tveir, Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og formaður Samtaka ungra bænda, Steinþór Logi Arnarsson.
12. þáttur Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar og Torfi Jóhannesson, ráðgjafi hjá Nordic Insights.
Í tólfta þætti Útvarps Bændablaðsins er rætt við Björgu Evu Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra Landverndar, og Torfa Jóhannesson, ráðgjafa hjá Nordic Insights og höfund skýrslu um neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu.
13.þáttur Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar og Halldór Runólfsson, fyrrverandi yfirdýralæknir.
Í fyrri hluta þáttarins er rætt um landrækt á Íslandi, stöðu hennar og framtíð, en í seinni hlutanum er umfjöllunarefnið innflutningur lifandi dýra og samningsmarkmið sem um slíkan innflutning þyrfti hugsanlega að setja í mögulegum viðræðum um inngöngu í Evrópusambandið.
14.þáttur Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskinsgrænmetis og Stefán Bragi Birgisson, sauðfjárbóndi á Galtastöðum Ytri
Rætt er við tvo unga bændur sem hafa verið í uppbyggingu í sinni búgrein og að vissu leyti farið sínar eigin leiðir, Höllu Sif Svansdóttur Hölludóttur, garðyrkjubónda og eiganda Sólskins grænmeti, og Stefán Braga Birgisson, sauðfjárbónda á Galtastöðum Ytri í Hróarstungu á Austurlandi.
15. þáttur Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands.
Í þessum þætti ætlum við að ræða um Sláturfélag Suðurlands sem er samvinnufélag í eigu bænda og hefur þann tilgang samkvæmt samþykktum félagsins að að annast slátrun, úrvinnslu og sölu á framleiðslu félagsmanna. Félagið flytur einnig inn vörur og stundar aðra verslun eftir því sem það styrkir sölu á framleiðslu félagsins. Við ætlum að forvitnast um starfsemi félagsins, eignarhald þess, af
16.þáttur Guðmundur Vernharðsson
Í þættinum er rætt við Guðmund Vernharðsson hjá Gróðrarstöðinni Mörk í Reykjavík en nú eru komnar fram hugmyndir um að hún víki fyrir uppbyggingu á aðstöðu fyrir knattspyrnufélagið Víking í Fossvogsdalnum. Við fáum að heyra um sögu og rekstur Markar sem hefur verið í Fossvogsdalnum frá því hún var stofnuð árið 1967 og samskiptunum við Reykjavíkurborg um flutning starfsseminnar.
17. þáttur Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands og blómabóndi á Espiflöt.
Gestur þáttarins er Axel Sæland blómabóndi á Espiflöt í Reykholti. Rætt er um Gróðrarstöðina Mörk í Reykjavík en ef ákvörðun Reykjavíkurborgar gengur eftir þarf Mörk að víkja af lóð sinni í Fossvogsdalnum fyrir frekari uppbyggingu á vegum knattspyrnufélagsins Víkings. Við ætlum einnig að skoða mögulega ranga tollflokkun á innfluttum sumarblómum sem kemur innflytjendum hjá því að greiða st
18. þáttur Ásdís Hlökk Theodórsdóttir og Ingvi Stefánsson
Rætt er um nýja skýrslu um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi. Meginefni hennar fjallar um það hvernig tryggja megi sjálfbæra nýtingu landbúnaðarlands, fæðuöryggi og byggð í dreifbýli. Í skýrslunni koma fram forvitnilegar niðurstöður um eignarhald á landbúnaðarlandi en þar segir meðal annars að mikill hluti lögbýla er ekki í virkri landbúnaðarnotkun. Í seinni hluta þáttar snúum við o











