
UltraForm Hlaðvarp
UltraForm er hlaðvarp sem snýr fyrst og fremst að heilsu og hollu líferni. UltraForm er einnig líkamsræktarstöð í Grafarholti í eigu þáttastjórnanda Sigurjóns Ernis og fjölskyldu. Markmið með þáttunum er að auka skilning og þekkingu hlustenda að hinum ýmsu heilsutengdu málefnum og reyna í sameiningu að komast að því hvað Ultraform er í raun og veru er.
Episodes
116 - Ofurfólk í ofuráskorunum - 10 daga hlaup og 10xHyrox
Karlotta Ósk er að fara í sitt stæðsta hlaupa til þessa þar sem hún mun hlaupa í 10 daga samfellt og ætar inní því að reyna að sigla heim 3 Íslandsmetum í sama hlaupinu. Bergur Vilhjálmsson ætlar að gera sér lítið fyrir og tækla tífallt Hyrox og ætlar hann að reyna að klára þá áskorun undir 24 klst. -------------------------------------------------------------------------------- Bergur mun sína
115 - Hlaupadagskráin 2026 með Sigurjóni og Símonu
Sigurjón og Símona fara yfir hlaupadaskránna fyrir hlaupasumarið 2026. -------------------------------------------------------------------------------- Upplísingar um hlaup hér á landi: https://www.hlaupadagskra.is https://netskraning.is/ https://hlaup.is/ ----------------------------------------------------- UltraForm æfingastöð ultraform.is Instagram hjá UltraForm https://www.instagram.com/
114 - Helga Guðmundsdóttir - Á fimmtugsaldri og aldrei betri !!!
Helga er 51 árs í dag og í ótrúlegu líkamlegu formi og virðist bara verða öflugari með aldrinum, Helgar gerði sér lítið fyrir og sigraði Íslandsmeistaramóttið í Crossfit +50 ára 2025 og sigraði þar ekki eingöngu bara mótið heldur líka allar greinarnar/æfingarnar í mótinu. Helga hefur átt farsælan feril í kraftlyftingum og á vígalegar þyngdir í beygju, bekk og togi sem þið heyrið við hlustun á þæt
113 - Katrín Sigrún - Margar af erfiðustu áskorunum í heimi !!!
Katrín Sigrún verður seint þekkt fyrir að fara auðveldustu leiðina í gegnum lífið !! Þrátt fyrir að Katrín hafi komið ansi ílla út úr sínu fyrsta keppnishlaupi sem var eitt af fyrstu 10 km Powerade hlaupunum þá var hún fljót að detta aftur í ævintíragírinn og finna sér hinar ýmsu áskoranir sem Katrín og Sigurjón fara yfir. Allt frá því að hlaupa 55 km Laugarveginn fjórum sinnumn yfir í að hlau
112 - Bergsveinn Ólafsson og lífið í Los Angeles
Bergsveinn snýr aftur í UltraForm hlaðvarpið í þrælgott spjall og fer yfir lífið í Los Angeles. Beggi hélt út í nám og segir okkur frá lífinu úti: Námið, stórt stökk á instagram (330.000 fylgendur), sinni daglegu heilsurútínu, hinum ýmsu áskorununum undanfarið og svo mætti lengi telja. Fljótlega eftir spjallið fór Beggi í eina af sínum stærri áskorunum þar sem hann kleif Mount Kilimanjaro sem s
111 - Ofurparið Lukka Pálsdóttir og Magnús Sefánsson - U-beygja í lífstílnum
Ofurhjónin Lukka Pálsdóttir og Magnús tóku ansi stóra U-beygju í sínum lífsstíl þegar þau ákvaðu að prófa Carnivore mataræði í fyrsta skiptið. Til að gera langa sögu stutta þá byrjaði Magnús aftur að hlaupa (sem hann átti ekki að geta gert) og Lukka komst í sína óskaþyngd (missti 9 kg) og upplifðu þau bæði ótrúlega góða líðan með breytinguni. Mataræðið einkennist fyrst og fremst af kjöti og ma
110 - Kristín Sif - Erfiður missir, útvarpskona, Box, lyftingar, crossfit og macros mataræðið
Kristín Sif er seint þekkt fyrir að slá slöku við í lífinu og starfar í dag sem útvarpskona og aðstoðar fólk með mataræðið samhliða því. Þar sem henni þykir það ekki nóg er hún einnig orðin hlaupahaldari þar sem hún tók við keflinu í Hraunahlaupinu og Mývatnsmaraþoninu fyrir 2026 og ætlar að stækka þau hlaup. Kristín segir okkur frá erfiðum missi sem hún og fjölskylda gekk í gegnum, boxferilin
108. Kristjan Chapman - An awesome Icelandic runner living in Malaysia
Kristjan starded his running career 2022 and has already accomplished great sucess in his races. Kristjan managed to take the best Icelandic time in 100 km road race in Holland in 2022 (same year he starded running) and got third place running 7 hours and 42 minutes in that race wich was 10x10 km loops in crazy heat. Kristjan has then come a long way and won couble of races in Malasia where he
108. Elín Jónsdóttir - Mataræði, næring, hreyfing og margt fleira
Elín Jónsdóttir brennur fyrir heilsu og er sjálf með góða heilsurútínu fyrir sig jafnt sem sína fjöldkyldu sem við snertum vel á í spjallinu. Elín byrjar spjallið á að segja okkur frá 3 mánaða ferðalagi til Kosta Ríka þar sem þau fjölskyldan upplifðu mjög svo ólíkan menningarheim og samfélag en hér á Íslandi. Elín starfar í dag sem verkefnastjóri heilsu- og velferðar hjá Nettó þar sem hún held
107 - Lífstílslæknarnir Kjartan Og Tekla - Partur 2
Lífstílslæknarnir Kjartan og Tekla hafa brennandi áhuga á öllu sem við kemur heilsu og hafa kafað djúpt í tengingu mataræði og efnaskiptaheilsu og vinna í dag við að aðstoða fólk með sína heilsu í gegnum fyrirtækið Sound Health. Í spjallinu fóru þau Kjartan og Tekla yfir helstu efnaskiptasjúkdóma, hvernig þeir koma til, hversvegna þeir eru að aukast hratt og hvað við getum gert til að snúa slí
106 - Lífstílslæknarnir Kjartan og Tekla - Fyrri hluti
Lífstílslæknarnir Kjartan og Tekla hafa brennandi áhuga á öllu sem við kemur heilsu og hafa kafað djúpt í tengingu mataræði og efnaskiptaheilsu og vinna í dag við að aðstoða fólk með sína heilsu í gegnum fyrirtækið Sound Health. Í spjallinu fóru þau Kjartan og Tekla yfir helstu efnaskiptasjúkdóma, hvernig þeir koma til, hversvegna þeir eru að aukast hratt og hvað við getum gert til að snúa slí
105 - Aníta og Þórfríður - Fitnesskeppnir, Slitgitarskóli, Mataræði, Hyrox og Utanvegahlaup
Aníta og Þórfríður hafa verið að keppa í hinum ýmsu fjallahlaupum jafnt sem Hyrox keppnum. Sigurjón fer um víðan völl með dömunum og ræðir meðal annars fitnesskeppnir/tímabil hjá Anítu Rós og lífstílinn kringum það samhliða þjálfun hjá henni og vinsælu bossaprógrammi. Hlaupahópinn Frískir Flóamenn þar sem Þórfríður þjálfar samhliða vinnu í sjúkraþjálfun og slitgigtarskóla. Ásamt fjölda öðrum ske
104 - Jón Dansari og Valtýs Birna - Úr fíkniefnaneyslu og slæmum lífstíl yfir í sannkallað ofurform !!!
Jón og Birna eru sannkallað ofurpar og æfa hlaup, styrktarþjálfun og Hyrox af miklu kappi þessa dagana. Jón og Birna fara um víðan völl og ræða allt frá æsku og uppeldi yfir í skólagöngu, fíkniefnaneyslu, dansin (hjá Jóni), þeirra kynni og lífstílinn þeirra í dag. Á stuttum tíma hafa þau bygggt upp ótrúlegan aga og uppskorið mikin árangur á sviði heilsu og segja hlustendum frá sinni vegferð í
103 - Eyþór Bender - Ultrahlaup út um allan heim
Eyþór Bender er íslenskur frumkvöðull, leiðtogi á sviði nýsköpunar og hinn mesti utanvegahlaupari. Hann starfaði í rúman áratug hjá Össuri / Emblu, þar sem hann var framkvæmdastjóri Ameríku deildarinnar en flutti síðan til Silicon Valley (Kísildal) þar sem hann kom að rekstri og stofnun fyrirtækja á sviði göngu vélmenna og þrívíddartækni. Núna ferðast hann um heiminn ásamt því að hjálpa sprotafyri
102 - Daníel Snær Eyþórsson - Ótrúlegur árangur á stuttum tíma
Daniel Snær Eyþórsson hefur bætt sig gífurlega í hlaupunum frá því hann byrjaði sinn hlaupaferill í 10 km Hólmsheiðarhlaupinu árið 2022. Daniel æfir með FH í dag undir handleiðslu Sigga P og á 16:14 í 5 km og 34:29 í 10 km. Sigurjón og Daníel ræða Hlaupin, þróun Sportvara þar sem Daníel vinnur (Sigurjón vann einnig), föðurhlutverkið sem er handan við hornið, slæm meiðsli í fótboltanum sem urðu
101 - Karlotta Ósk - 100 km göngutúrar og margra daga ultrahlaup
Karlotta Ósk er án efa einn af okkar öflugustu ultrakonum í dag. Í sumar gerði hún sér lítið fyrir og tók þátt í tveim hlaupum sem náðu bæði yfir 500 km takk fyrir. Siurjón kynntist Karlottu í fyrirtækjaþjálfun Arion banka þar sem hann heyrði fyrst af ofurlöngum gönutúrum hennar (100 km) sem hægt og rólega færðust yfir í ein mest krefjandi ultrahlaup í heimi. ----------------------------------
100 - 12 daga ganga hjá Berg og 12 daga fasta hjá Mjöll
Bergur gerði sér lítið fyrir og gekk með 170 kg sleða frá Akureyri til Reykjavíkur og fór seint auðveldustu leiðina þar á milli landshluta. Þar sem það var ekki nóg þá ákvað hann í miðri 12 daga göngu að hlaupa 55 km Laugavegshlaupið frá Landmannalaugum yfir í Húsadal. Mjöll Barkar tók einnig 12 daga áskorun meðan Bergur gekk með sleðann og fastaði í heila 12 daga sem varð hið mesta ævintýri.
099 - Gunnar Atli og Sonja Sif - Hreyfing til hámarks heilsu
Gunnar Atli og Sonja Sif eru hin mestu ofurhjón og hafa lagt mikið kapp á hreyfingu allt sitt líf. Þau hafa sigrast á hinum ýmsu áskorunum og þrátt fyrir góðan/langan tíma í fjöbreyttri hreyfingu þá eru þau rétt að byrja (enda bæði á besta aldri til að toppa sig þessa dagana). Í spjallinu fórum allt frá æsku og uppeldi yfir í keppnir, æfingar, meiðsli, endurheimt, næringu, hugarfar og margt fle
098 - Kerlingafjöll Ultra og spjallað við hlaupa Elítuna
Eftir utanvegahlaupið Kerlingafjöll Ultra náðum við nokkrum af öflugustu karla jafnt sem kvenna hlaupurum í stutt spjall þar sem við fórum bæði yfir hlaupið í Kerlingafjölunum jafnt sem næstu keppnir, æfingar og margt fleira. Við náðum spjalli við Stefán, Grétar og Þorstein Roy karla meginn og Andreu Kolbeinsdóttir og Elísu Kristinsdóttir kvenna meginn. --------------------------------------
097 - Mari Järsk hlaupadrottning - Þú getur allt sem þú vilt !!
Mari þarf ekki mikið að kynna til leiks fyrir hlustendum… Mari byrjaði að keppa í utanvegahlaupum hér á landi 2019 (Esjumaraþonið var hennar fyrsta hlaup) með mjög góðum árangri og færði sig svo fljótlega í Bakgarðshlaup þar sem hún náði fljótt árangri sem fáir hér á landi geta leikið eftir. Mari hefur lengst farið farið 57 hringi í Bakgarðshlaupum sem telur 382 km, hátt í 3 heila sólahringa á
096. Teitur Arason - Hálfur Járnkarl, lyftingar, fitness, mataræði og fl.
Teitur hefur unnið, lifað og hrærst í líkamsræktarbransanum í mörg ár og starfar í dag sem einkaþjálfari hjá World Class. Teiti þykir gaman að skora á sjálfan sig og gerði sér lítið fyrir og keppti í hálfum járnkarli núna fyrir stuttu sem hann kláraði með stæl. Hálfur Iron man = 1.9 km sund - 90 km hjól og 21,1 km hlaup. Sigurjón og Teitur snerta á ansi mörgum þáttum tengt heilsu í góðu spja
095 - Sigurjón Sigurbjörnsson - Aldur er bara tala - Íslandsmethafi í 100 km götuhlaupi
Sigurjón Sigurbjörnsson byrjaði sinn hlaupaferil 42 ára gamall og hefur farið kringum 30 maraþon og þar af rúmmlega helming af þeim undir 3 klst. Sigurjón hefur einnig þrisvar keppt í 100 km götuhlaupi og er Íslandsmetahafi þar eftir að hann hljóp 100 km hér heima árið 2009 á 7 klst og 59 min sem er meðalpace uppá 4:48 min. Sigurjón og Sigurjón fara um víðan völl í spjallinu og snerta á hans
094 - Örvar Steingrímsson Ultrahlaupari
Örvar Steingrímsson er með reyndari hlaupurum hér á landi og hefur keppt fyrir hönd Íslands í heimsmeistaramótum í utanvegahlaupum og náð virkilega flottum árangri í hinum ýmsu keppnum. Sigurjón og Örvar fara um víðan völl og ræða upphafið á hlaupunum hjá Örvari og ræða undirbúning og ýmsar æfingar sem hann, Guðni Páll og fleiri tóku til að undirbúa sig fyrir hinar ýmsar áskoranir. Örvar ræð
093 - María Krista (Kristaketo) - Mataræði og heilsa
María Krista eða Kristaketo eins og hún er betur þekkt á Instagram hefur fylgt ketónísku og lágkolvetna mataræði til lengri tíma með góðum árangri og bættri líðan andlega jafnt sem líkamlega og er þessa dagana að prófa sig áfram með carnivore mataræði. Sigurjón og Kristín fóru um víðan völl í næringuni og snertu á ýmsum atriðum tengt næringu og heilsu. María er dugleg að deila uppskriftum og
092 - Ævintýramaðurinn Guðmundur Freyr Jónsson
Ævintýramaðurinn Guðmundur Freyr Jónsson kíkti í gott spjall þar sem hann fór yfir hina ýmsu fjallgöngur og ævintýri sem hann og hans félagar hafa farið í gegnum yfir undanfarin ár. Guðmundur er hinn mesti fjallagarpur og hefur samhliða fjallabrölti lag kapp á utanvegahlaup jafnt sem styrktarþjálfun í UltraForm. Sigurjón og Gummi fara um víðan völl og snerta á ýmsum þáttum sem fólk ætti að h
091 - Ofurparið Rakel María og Guðmundur Lúther - Ultrahlaup, heimsreisur, skotbardagar og margt fleira !!
Rakel og Gummi eru seint að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur !! Milli þess sem þau sigrast á hverju Ultrahlaupinu á fætur öðru þá ferðast þau um heiminn á framandi staði og skoða mismunandi menningarheima út um allan heim. Sigurjón fer yfir vinnu, æfingar, hlaupin, ferðalögin og meira til með þeim Rakeli og Gumma. Þessir ultra hlauparar kunna bæði að þjást og njóta sem eru jú tveir m
090 - Blue Trail Tenerife - Fyrir, yfir og eftir hlaup
í Hlaðvarpsþætti 90 komum við til ykkar frá Tenerife þar sem fjölmargir Íslendingar kepptu í fjallahlaupinu Bluetrail þar sem keppt er í 24 km, 47 km, 73 km og 110 km með mismikilli hækkun. Í hlaðvarpinu spjölluðum við við keppendur fyrir hlaupið, Sigurjón fór yfir stöðuna á hlaupurunum yfir hlaupið sjálft (á/gegnum drykkjarstöðvum) og svo heyrðum við loks í keppendum eftir áskorunina og spurðu
089 - Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir - Ein hraustasta kona landsins !!!
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir og Sigurjón kynnast í Boot Camp og keppa svo í einstaklings, para og líðakeppni í þrekmótaröðinni í allnokkur ár. Arnfríður gerði sér lítið fyrir og sigraði þrekmótaröðina í kvenna flokki 2015 og hlaut þar titilinn hraustasta kona landsins. Líkt og Sigurjón þá kemur Arnfríður Gígja úr sveitinni þar sem lífið snérist mikið um hreyfingu samhliða því að sinna helst
088 - Martha Lind - Best í sportinu, aukakílóin, vinamissir, mikil veikindi og UltraForm
Martha Lind var alltaf öflug í hreyfinu á yngri árum og í raun svo öflug að hún æfði fullmargar íþróttir samtímis þar til hún var vinsamlegast beðin um að velja sér færri greinar til að æfa :P Líkt og gengur og gerist þá dróg hægt og rólega úr hreyfingu þegar Martha færðist yfir á fullorðinsárin og fyrir rest var lítil hreyfing samhliða ekki svo góðu mataræði og aukakílóin fóru að læðast á h
087 - Jóhanna = Ofurmóðirin sem var allt í öllu þar til líkaminn sagði stopp !!!
Sigurjón og Jóhanna kynnast í íþróttafræði á Laugarvatni og deila saman miklum áhuga á hreyfingu og heilsu. Líkt og gengur og gerist þá skildu leiðir eftir námið og lífið tók við hjá bæði Sigurjóni og Jóhönnu. Jóhanna Marín var hinn sannkallaða ofurmóðir sem var með allt á hreinu, alla bolta á lofti og sló hvergi slöku við. Hún var í námi, í vinnu, hreyfði sig alla daga, borðaði öllu jafna holl
086 - Heilsu Erla - Gefumst ekki upp þó á móti blási
Erlu Guðmundsdóttur þarf vart að kynna fyrir mörgum þar sem hún hefur hjálpað fjölmörgum að bæta heilsu sína með hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum, með heilsumarkþjálfun í Sjúkrasport, og heilsumolum á Instagram, svo að nokkur dæmi séu nefnd. Erla leitar stöðugt leiða til þess að bæta eigin heilsu og heilsurútínu og eftir smá burnout tengt mörgum þáttum lífsins tók hún heilsuna ennþá fastari töku
085 - Melkorka Kvaran - Íþróttafræðingur, næringafræðingur og hjúkrunarfræðingur sem fræðir okkur um heilsu
Melkorka Árný Kvaran hefur unnið við hreyfingu og lífstíl meira og minna allt sitt líf og klárað nám í íþróttafræði, næringafræði og hjúkrunarfræði og hefur því mikla þekkingu á mörgu sem viðkemur heilsu. Sigurjón og Melkorka fara um víðan völl og ræða hennar nám, vinnu, hreyfingu og alveg yfir í hryðjuverkaáras í maraþonhlaupi sem breytti hennar fókus á hreyfingu og yfir í starf hennar í dag se
084 - Helgi og Hlynur - Úr erfiðum aðstæðum/stað yfir í frábært stand !!!
Helgi Halldórsson og Hlynur Þór Þorleifsson hafa báðir áhugaverða sögur að segja frá sinni heilusvegferð. Þeir voru báðir komnir á frekar slæman stað sem rekja má til margra þátta en það er óhætt að segja að þeir sneru alveg við blaðinu og komu sér í ótrúlega gott stand líkamlega jafnt sem andlega á stuttum tíma með réttum áherslum. Þeir eru svo sannarlega komnir í mikið UltraForm í dag og sig
083 - Fyrirtækjarekstur, álagið, stressið, hindranir, frelsið og allt ferðalag UltraForm til þessa
Sigurjón og Símona ræða hér fyrirtækjarekstur UltraForm alveg frá því að Sigurjón byrjaði með hópaþjálun í bílskúrnum yfir í hóptímastöð sem varð til þessa að Sigurjón og Símona fóru fljótt í fulla vinnu fyrir UltraForm, þau ræða allt sem getur fylgt því að reka fyrirtæki, stress, hindranir, stór verkefni, stóru og glitlu sigranir, skipulagið, fjölskyldulífið og margt fleira. Hér deilum við einn
082 - Garpur Ingasons - Fjallaklifur, fjallahlaup og bak við tjöldin hjá okkar UltraFólki
Garp þarf ekki mikið að kynna fyrir þeim sem fylgjast með flestum Ultra áskorunum hér á landi, ef hann er ekki bak við myndavélina eða að taka viðtöl við fólk þá er hann sjálfur mættur á startlínuna. Garpur er einnig mikill fjallagarpur þegar kemur að því að klífa hinn ótrúlegustu fjöll og tinda og Sigurjón og Garpur fara yfir víðan völl í skemmtilegu spjalli. --------------------------------
081 - Siggi Deluxe - Deluxe Iceland, fyrirtækjarekstur og heilsa
Sigurður Sindri Magnússon hefur svo sannarlega látið draum sinn rætast í fyrirtækjarekstri og með mikilli vinnu hefur hann stofnað Deluxe Iceland þar sem hann og hans fyrirtæki þjónustar kröfuharða viðskiptavini sem vilja upplifa það besta á Íslandi. Sigurður er einnig með fókus á heilsuna og passar vel uppá að huga að líkamlegri jafnt sem andlegri heilsu samhliða sínu fyrirtækjarekstri og gerði
080 - Daði Erlingsson - Meðal bestu í enduro/þolakstri, lendir í slysi á hjólinu sem breytti öllu !!!
Daði hefur undanfarin ár verið meðal bestu keppenda í enduro/þolakstri hér á landi en lenti í mjög slæmu slysi á hjólinu ekki alls fyrir löngu og hefur verið að ná sér tilbaka eftir það atvik. Daði deilir með okkur góðum minningum úr æsku, uppeldi, skólagöngu, hjólasportinu, námi í Grikklandi og loks slysinu og bataferlinu eftir slys sem er búið að vera ótrúlega krefjandi verkefni. Sigurjón o
079 - Sveinn Atli - Boot Camp, Spartan Race, ólympískar lyftingar, hlaup og meira til
Sveinn Atli og Sigurjón fara langt aftur og hafa tekist á við hinar ýmsu áskoranir saman. Sveinn Atli hefur þjálfað Boot Camp í mörg ár, æft og þjálfað ólympískar lyftingar, tekið þátt í hinum ýmsu Spartan keppnum og loks tekist á við hin ýmsu ultrahlaup. Sveinn var að skipta um starfsvettvang eftir mörg ár í Boot Camp í Sporthúsinu og þjálfar núna í Elite þjálfun samhliða hlaupafjarþjálfuninn
078 - Tímamót hjá UltraForm og farið yfir komandi keppnir og hlaupasumarið
Sigurjón og Símona fara yfir flutninga UltraForm í Gylfaflöt 10, Grafarvog þar sem planið er að hafa mjög flotta stöð með stærri og flottari sal, saunu, köldum pottum og fleiru. Þau skutuhjúin fara einnig yfir komandi hlaup hjá UltraForm sem eru 5 og 10 km hlaup á braut, Akrafjall Ultra, Hólmsheiðarhlaupið og Rauðavatn Ultra. Þau fara svo að lokum yfir hlaupasumarið jafnt sem þeirra heilsurútí
077 - Vilborg Arna - Ótrúlegar áskoranir út um allan heim
Vilborg Arna Gissurardóttir er sennilega ein mesta Ultra manneskja sem UltraForm hefur fengið í hlaðvarpið. Flestir þekkja til Vilborgar fyrir ótrúlegar áskoranir og þrekraunir á borð við Suðurpóllsgönguna (The South Poll), Tindana Sjö (Seven Summits) og margar aðrar ótrúlegar áskoranir. Vilborg býr núna í Sloveníu en þar náði Sigurjón henni einmitt í spjall þar sem hún var nýbúin að klára 50 k
076 - Freyr Hákonarson - Blackout !!!
Freyr Hákonarson og Sigurjón hafa brallað margt saman þegar kemur að hinum ýmsu áskorunum, þrekmótaröðin, Heimsmeistaramót í Spartan keppni og margt fleira. Þeir félagar ræða aga, æfingar, næringu, lífið og tilveruna. Freyr byrjaði fyrir stuttu með nýja tíma í Reebok Fitness sem kallast Blackout og hafa hlotið áhuga margra en þar er ekkert gefið eftir og agi og harka haft í fyrrirúmi. --------
075 - Egill Trausti Ómarsson - Vöðvaðasti ultrahlaupari landsins ?
Egill Trausti er seint þekktur fyrir að velja sér minnstu áskoranirnar í lífinu og tekur allt sem hann gerir alla leið. Egill kemur úr fótboltanum, fór yfir í frjálsar og svo yfir í Crossfit eftir stutt stopp í frjálsum. Hann tók svo góða U-beygju og er í dag komin í kaf í hlaupin samhliða styrktarþjálfun og hefur keppt ansi mikið þrátt fyrir aðeins tæplega tvö ár í hlaupunum. Egill og Sigurjón f
074 - Ultra konurnar Hafdís Guðrún og Elísa Kristinsdóttir
Hafdís og Elísa eru miklir æfingafélagar og eru seint þekktar fyrir að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Þær hafa tæklað ótrúlegar æfingar jafnt sem áskoranir saman í sumar og þar má nefna 11 Esjuferðir sem var styrktarverkefni hjá þeim vinkonum og nokkura daga æfingaferð erlendis þar sem þær hlupu daglega krefjandi leiðir með mikilli hækkun og báru allan búnað á bakinu. Ekki nóg með að þ
073 - Jákastið: Sigurjón og Kristján spjalla um ýmis heilsutengd málefni
Sigurjón kíkti í spjall til Kristjáns sem heldur úti Jákastið hlaðvarpið og þeir félagar áttu gott spjall þar sem Sigurjón fer yfir fjölmarga þætti sem snúa að hreyfingu, mataræði, endurheimt, föstu, blóðsykri og fleiri þáttum sem snúa að heilsu. Nú þegar sumarið er langt komið og margir fara í sína hefðbundnu rútínu getur verið gott að huga að atriðum sem geta ýtt undir bætta heilsu. --------
072 - Lukka Pálsdóttir - Tilraunir í mataræði til bættrar heilsu og heilsa heilt yfir
Lukka kom í frábært spjall í hlaðvarpsþætti 11 í UltraForm hlaðvarpinu (legg til að fólk hlusti á þann þátt fyrst) og snýr núna aftur eftir ansi vígalega tilraun í mataræði sem bæði dróst mikið á langinn og hafði ansi mikil áhrif á Líf Lukku bæði andlega jafnt sem líkamlega. Sigurjón og Lukka kafa djúpt í mataræðið og áhrif þess á andlega jafnt sem líkamlega þætti hjá Lukku og snerta einnig á ál
071 - Arnar Sigurðsson - Ferðast um heiminn og skorað á sjálfan sig
Arnar er ekki þekktur fyrir að velja einföldustu leiðina í lífinu og hefur gaman af krefjandi áskorunum og hefur sem dæmi tæklað: 7x7 róður, Concept Iron Man, farið í gegnum eina erfiðustu Spartan Race Ultra keppni sem fyrirfinnst og margt fleira. Arnar hefur búið með sinni fjölskyldu víða í heiminum og við förum yfir mismunandi menningarheima og upplifun Arnars á þeim. Arnar býr í Belgíu í da
070 - Anna Berglind Pálmadóttir - Ótrúleg endurkoma eftir slæmt slys á Esjuni
Anna Berglind Pálmadóttir hefur lengi verið í fremri röð hlaupara hér á landi og sínt sig og sannað á brautinni jafnt sem í utanvegahlaupum. Sigurjón og Anna fara um víðan völl í spjallinu og fara yfir hennar íþróttaferil sem byrjaði í þolfimi í ræktinni, færðist yfir í Crossfit og keppti svo í 5 km hlaupi sér til gamans þar sem hún rúllaði undir 20 min líkt og ekkert væri sjálfsagðara. Anna l
069 - Sólveig Kristín - Búlemía, þunglindi, sjálfsvígshugsanir, lipidimía - Bætt heilsa til sigurs
Sólveig Kristín hefur heldur betur áhugaverða sögu að segja. Bulemía, þunglindi, sjálfsvíshugsanir, slæm meltingarvandamál og libidimía eru allt vandamál sem getur verið mjög erfitt bæði að greina, fá aðstoð við og hvað þá sigrast á. Með bættum lífstíl og mjög sterku hugarfari náði Sólveig að sigrast nánast alveg á sínum heilsufarskvillum og er komin á órtúlega góðan stað í dag. Sólveig segir
068 - Heimsmeistaramótið í Hyrox og Hengill Ultra 2024
Hlaðvarpsþáttur 68 er tekin upp í Frakklandi í þetta skiptið og það daginn eftir heimsmeistaramótið í HYROX 2024. Við ræddum við Íslenska keppendur á heimsmseistaramótinu Kristjönu sem hafnaði í 2 sæti í sínum aldursflokk (Kíkiði endilega á þátt 20 með henni), Jóhönnu Júlíu sem var 7 í sínum aldursflott og síðast en ekki síst Ástu og Árdísi sem urðu heimsmeistarar í paraflokk kvk 60-69 ára rúmum
067 - Kristján Svanur - Reglulega út fyrir þægindaramann og þvílíkar bætingar í götuhlaupum
Kristján Svanur verður seint þekktur fyrir að fara bara einföldustu leiðina í lífinu !!! Kristján er ófeimin við að prófa sig áfram og flutti ekki alls fyrir löngu til Barcelona með lítið sem ekkert langtímaplan en dass af jákvæðni og gott hugarfar. Kristján er búin að koma sér vel fyrir úti og var ekki lengi að finna sér góða stúlku og æfir þar hlaup af kappi, Hann hefur stórbætt sína tíma í he
066 - Bakgarðshetjurnar þrjár og Íslandsmetið - Mari, Elísa og Andri
Mari, Elísa og Andri rúlluðu up nýju Íslandsmeti í Bakgarðskeppni í Öskjuhlíðini núna 4. maí 2024 þegar þau hlupu saman yfir 50 hringi í Bakgarðskeppninni (335 km). Þau voru seint södd eftir það það og Andri kláraði 52 hringi og Elísa 56 og var 63 mín með hring 57 sem gerði það að verkum að Mari satt uppi sem sigurvegari með 57 hringi eða 382 km. Sigurjón náði þeim öllum í spjall og fór yfir æfi
065 - Bergur Vilhjálmsson - 100 km með prowler og lífið hjá Berg - Hluti 2/2
Sigurjón náði Bergi í annað spjall eftir 100 km prowler gönguna þar sem þeir fóru yfir áskorunina ásamt því að kafa vel í lífstíl og vinnu (slökkvilisstarf) hjá Bergi. Óhætt er að segja að Bergur sé afar agaður í mataræði jafnt sem æfingum og mættu margir taka sér hans viðhorf til heilsu jafnt sem lífsins til fyrirmyndar. --------------------------------------------------------------------------
064 - Andrea Kolbeinsdóttir - Okkar allra öflugasta utanvega jafnt sem götuhlaupakona
Andrea Kolbeinsdóttir kom í spjall daginn eftir að hún varð Íslandsmeistari í 5 km götuhlaupi í Víðavangshlaupi ÍR á tímanum 16:38 min. En þessa má til gamans geta að hún er íslandsmeistari í 5-10-21,1 og 42,2 km í dag. Andrea er einnig öflugasta fjallahlaupakona okkar Íslendinga og hefur náð alveg mögnuðum árangri hér heima í helstu utanvegahlaupum jafnt sem erlendis. Sigurjón og Andrea fara um
063 - Bergur Vilhjálmsson - 100 km með Prowler - Hluti 1/2
Bergur Vilhjálmsson ræðst heldur betur ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Bergur ætlar að draga 110 kg prowler með auka þyngd og í þyngingarvesti frá UltraForm á Akranesi til UltraForm í Grafarholti og telur sú vegalengd litla 100 km. Bergur styrkir Píeta samtökin um leið og hann tæklar þessa ótrúlegu áskorun --------------------------------------------------------------------------------
062 - Þorbergur Ingi - Okkar öflugasti fjallahlaupari
Þorbergur hefur lengi verið þekktur sem einn af okkar allra öflugustu fjallahlaupurum hér á landi. Þorbergur er sem dæmi eini maðurinn sem hefur hlaupið Laugavegshlaupið undir 4 klst, hefur sex sinnum keppt í heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum og hefur tekist á við hinar ýmsu ultra áskoranir sem hann og Sigurjón snerta á. Þorbergur og Eva eru með hlaupaafjarþjálfun samhliða annari vinnu sem k
061 - Inga Næringarþerapisti - Finnum og lögum rót vandans
Inga Kristjánsdóttir (oft kölluð Inga næringarþerapisti) starfar í dag við að aðstoða fólk við sitt mataræði og lífstíl heilt yfir. Inga lærði Næringarþerapistann í þriggja ára námi í Kaupmannahöfn í Danmörku þar sem áherslan er að laga rót vandans í stað þess að setja plástur á sárið líkt og við eigum ansi oft til að gera með margt í dag. Inga og Sigurjón fara um víðan völl í skemmtilegu spjall
060 - Stefán Pálmason - Tannlæknir og sérfræðingur í munnlyflækningum
Stefán Pálmason er tannlæknir og sérfræðingur í munnlyflækningum. Stefán rekur í dag stofuna Tanntorg með eiginkonu sinni og er einn eigenda tannlæknavaktarinnar. Stefán hefur verið nokkuð áberandi í fréttum/fjölmiðlum þegar kemur að tannheilsu og tóbaksnotkun þar sem hann talar um skaða munntóbaks á tennur og tannhold. Sigurjón og Stefán snertu á ansi mörgum þáttum þegar kemur að tannheilsu, al
059 - Davíð Rúnar - Boxið, Utanvegahlaup, Spartan keppni og margt fleira !!
Davíð Rúnar er í dag yfirþjálfari landsliðsins í boxi og eins yfirþjálfari box Akademíunar hjá World Class. Sigurjón og Davíð kynntust gegnum hlaupin þegar Davíð hljóp heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoni 2018 og svo fóru þeir félagar saman yfir í utanvegahlaupin og urðu fljótt hinir mestu þjáningabræður. Sigurjón og Davíð fara yfir víðan völl og snerta á mörgu í þessu góða spjalli. ----------
058 - Magni Grétarsson hjá Primal - 42,2 km Götumaraþon á tánum !!!
Hvernig haldiði að það sé að skokka 42,2 km götumaraþon á tánum ??? Magni Grétarsson var gripin í spjall hjá Sigurjóni í lok 4 daga föstu. Magni er í dag að ljúka 5 ára háskólanámi og starfar hjá Primal Iceland samhliða námi. Magni fer yfir æfingar og þjálfun hjá Primal og hvernig hans hugmyndafræði í æfingum og þjálfun hefur breyst yfir árin. Kuldi, fasta, liðleiki, hreyfigeta og alveg yfir í a
057 - Silja Úlfarsdóttir - Hlaupadrottning Íslands
Silja Úlfarsdóttir hefur lengi verið kölluð hlaupadrottning Íslands, Silja var sigursæl á hlaupabrautinni og situr enþá í dag á einu Íslandsmeti. Sigurjón og Silja fara yfir hlaupaferilinn, slæma ofþjálfun sem endaði ferilinn, mikið og erfitt fráfall fyrrum eiginmans, slæmt fótbrot sem átti að útiloka öll hlaup í komandi framtíð, vinnu og klefann sem er verkefni tengt okkar öflugasta íþróttafólk
056 - Búi Steinn Kárasson - Hlaupaferillinn, geggjaðar bætingar og meira til
Búi Steinn Steinn Kárasson og Sigurjón hefja herjað ófáar orrustur saman í utanvegahlaupunum og snerta á nokkrum vel völdum ævintýrum í spjallinu. Búi hefur átt ótrúlega gott ár með bætingu í öllum vegalengdum á götu 5 km, 10 km, 21,1 km og 42,2 km og jafnframt hlaupið 3.000m á braut undir 9 min (8:59 min) sem er ansi góður tími. Búi hefur einnig ekki slegið slöku við í fjallahlaupunum. Búi og S
055 - Baldvin Þór Magnússon - Okkar allra öflugasti hlaupari í dag
Baldvin Þór Magnússon er án efa okkar allra öflugasti hlaupari í dag. Baldvin heldur úti bestu tíma á árinu 2023 í 800m - 1.500m - 3.000m - 5.000m og 10.000m og á Íslandsmet í flestum vegalengdum !!! Sigurjon og Baldvin fara yfir víðan völl í spjallinu, allt frá uppeldi og æsku yfir í æfingar, endurheimt, næringu og meira til. --------------------------------------------------------------------
054 - Hreinn Heiðar - Efni í mann ársins !!
Hreinn Heiðar er heldur betur efni í mann ársins eftir að hafa komið dreng til bjargar sem féll í djúpa sprungu hjá Þingvöllum og kom svo seinna að félaga sínum í erfiðum aðstæðum uppá jökli eftir að félaginn lenti í slæmu vélsleðaslysi og hafði brotið 8 rifbein og sprengt milta. Sigurjón og Hreinn fara einnig yfir lífið í sveitinni móts við borginni og rifja upp gamla góða tíma. --------------
053 - Snorri Einarsson - Fremsti skíðagöngumaður okkar Íslendinga
Snorri Einarsson hefur til lengri tíma verið okkar allra öflugasti skíðagöngumaður og hefur meðal annars keppt á ólympíuleikunum í tvígang. Sigurjón og Snorri fara yfir lífið og æfingar í Noregi, háskólastyrk til Bandaríkjana og æfingar, keppnir og lífið í skíðagönguheiminum. ---------------------------------------------------------------------------------------------- - Snorri á instagram:
052 - Svali á Tenerife - Lífið á Tene, hlaupin, taugaáfall og margt fleira
Svali og fjölskylda tóku ansi stóra ákvörðun fyrir nokkrum árum þegar þau ákveða að selja allt sem þau eiga á Íslandi og flytja til Tenerife. Svali og Sigurjón fara yfir kynni þeirra í ansi skrautlegu Laugavegshlaupi 2011 og kafa svolítið í hlaupin, taugaáfall og margt fleira. Svali rekur í dag ferðaþjónustufyrirtækið Tenerife ferðir ásamt öflugu teymi og bjóðða þau uppá hinar ýmsu ferðir á ey
051 - Sund með þeim Eyleifi landsliðsþjálfara og Antoni McKee sundkappa
Núna í nóvember er landsátak í sundi hér á landi og við spjölluðum í því tilefni við Eyleif Jóhansson sem er fremstur hér á landi í þjálfun í sundi og er yfirmaður landsliðsmála í sundi hér á landi ásamt því að tala við okkar öflugasta sundmann í dag. Anton Sveinn Mckee er okkar allra öflugasti sundmaður í dag og er á leiðina á sína fjórðu ólympíuleika. Við förum yfir allt frá æfingar, félagslí
050 - Tímamótaþáttur í hlaðvarpinu með Sigurjóni og Símonu - Farið yfir ýmis fjallahlaup, stöðumat og skemmtilegar uppákomur í keppnum
Þáttur 50 þar sem Sigurjón og Símona kynn nýtt fjallahlaup á Akranesi, fara yfir ýmis fjallahlaup hér á landi sem þau hafa bæði keppt í, fara í yfir skemmtileg atvik í mismunandi hlaupum, taka um bugun í hlaupunum og renna yfir stöðumat UltraForm jafnt sem hópatíma í stöðvunum í Grafarholti jafnt sem Akranesi. -------------------------------------------------------------------------------- Instag
049 - Ingvar Ómarsson - Einn af okkar allra öflugustu hjólurum
Ingvar Ómarsson er vel þekktur innan hjólageirans og hefur verið okkar öflugasti maðurinn í sportinu undanfarin ár. Ingvar og Sigurjón fara yfir upphafið hjá Ingvari í hjólinu og hvernig hann fór frá BMX hjólinu yfir í fremstu röð á stuttum tíma. Þeir félagar snertu á alvarlagu hjólaslysi sem hefði auðveldlega geta endað ferilinn jafnt sem hans líf, æfingar og æfingaráætlun, rosslegt keppnis
048 - Ingunn Guðbrandsdóttir - Mikilvægi styrktarþjálfunar og próteinríkrar fæðu fyrir konur
Sigurjón og Ingunn fara yfir miklar áherslubreytingar á lífstíll Ingunar og mikilvægi fyrir þeim breytingum. Ingunn talar fyrir mikilvægi styrktarþjálfunar fyrir konur jafnt sem, áherslu á próteinríkt fæði til að byggja upp vöðvamassa og bæta heilsu almennt. Ingunn Guðbrandsdóttir er sjálfstætt starfandi jógakennari og heilsuþjálfari í dag. Hún er með BA gráðu í sálfræði, MA gráðu í mannauðsstj
047 - Einar Carl hjá Primal Iceland - Hreyfiflæði, styrkur, liðleiki, öndun og fleira til að hámarka heilsu
Einar Carl Axelsson rekur í dag Primal Iceland ásamt eiginkonu sinni Írisi Huld Guðmundsdóttir sem staðsett er í Faxafeni 12 í Reykjavík. Einar Carl Axelsson er fyrrverandi landsliðsmaður í taekwondo sem skipti um takt í lífinu eftir að hann hryggbrotnað á fimm stöðum í skíðaslysi í frönsku ölpunum með lítið um svör varðandi sinn íþróttaferill jafnt sem lífsgæði komandi ár. Einar kíkti
046 - Unnar Helgasson Osteopati og heilsugúru - Hvernig björgum við heilsu landsmanna ?
Unnar Helgasson starfar sem Osteopati og styrkar og þrekþjálfi. Hann rekur Osteóklíníkina í Álftamýri 1-5 í Reykjavík þar sem hann aðstoðar fólk með að vinda ofan af ýmsum stoðkerfisvandamálum og um leið hámarka sína heilsu með Osteópatíu sem innifelur meðal annars nudd, teygjur, hnykkingar, höfuðbeina og spjaldshryggstækni og gefur líka ráðleggingar með æfingar til þess að auka gæði meðferðarinna
045 - Jakobína Jónsdóttir - Frá mikilli þolþjálfun yfir í Crossfit, ólympískar og mikla styrktarþjálfun
Jakobína Jónsdóttir rekur í dag ásamt manninum sínum Grétari Alí æfingastöðina Grandi 101 sem staðsett er á Fiskislóð 49-51. Jakobína er vel þekkt hér á landi í Crossfit geiranum og hefur æft og þjálfað Crossfit frá 2009 og hefur oftar en einu sinni keppt í heimsleikunum í Crossfit í líðakeppni. Sigurjón og Jakobína fara yfir Íþróttaferilinn hjá Jakobínu allt frá þolþjálfun þar sem hugmyndin var
044 - Ívar Orri Ómarsson - Hin ýmsu heilsutengdu málefni og áhugaverð sykursýkissaga
Ívar Orri Ómarsson er mikill áhugamaður um heilsu og baráttumaður þess að borða hrein og óuninn matvæli frá nátturunni líkt og við eigum að gera. Ívar og Sigurjón snerta á mörgum þáttum í spjallinu sem flest allt snertir okkar heilsu andlega jafnt sem líkamlega. Ívar segir frá vægast sagt áhugaverðri sögu af sykursýki eitt sem hann greindist skyndilega með en fékk svo seinna nýja greiningu á að
043 - Birgir þjálfari - Lífvarðarnámskeið, Navy seals, snjalltæki, þjálfun, næring og svo margt fleira
Arnaldur Birgir Konráðsson verður seint þekktur fyrir að lifa inn í þægindarammanum. Birgir hefur ögrað sjálfum sér á ýmsa vegu sem hefur veit honum ótrúlegan skilning á eigin getu jafnt sem andlegum og líkamlegum takmörkunum. Birgir og Sigurjón fara um víðan völl í spjallinu og ræða þróun á okkar heilsu og einnig hinar ýmsu áskoranir sem þeir félagar hafa tekist á við. Þeir ræða heilsu landans o
042 - Gunnar Örn - Áskorunin 75 Hard, agi, mataræði og heilsa heilt yfir
Gunnar Örn er góður vinur Sigurjóns þáttastjórnenda og var fyrsti þjálfari UltraForm í Grafarholtinu. Gunnar hefur gert ýmsar tilraunir á sjálfum sér og tók ekki alls fyrir löngu áskorun sem nefninst 75 hard sem sníst um að halda ákveðinni rútínu í 75 daga. Gunnar hefur þurft berjast við aukakíló og einnig kljást aðeins við fíkniefnavandamál sem hann vann sig út úr með heilsurækt og bættu líferni
041 - Snorri Björnsson - Einn af okkar bestu ultrahlaupurum og ótrúlegar bætingar á stuttum tíma
Snorri Björnsson er í dag heldur betur búin að stimpla sig inní hlaupaheiminn hér á Íslandi með ótrúlegum árangri í hlaupum núna undanfarið og hefur átt ótrúleg góð hlaup núna undanfarið með þvílíkri neglu í heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum í Austurríki. Sigurjón og Snorri fara yfir keppnir, æfingar og svo margt fleira. Snorri er einnig ansi góður á myndavélina og vinnur við það í dag samhl
040 - Einar Sigurjónsson - Hreyfing, þríþraut, hita,- og kuldaþjálfun og meira til
Einar Sigurjónsson er sannkallaður hafsjór af fróðleik, Sigurjón og Einar fara yfir víðan völl í spjallinu og taka fyrir mörg heilsutengd málefni og kafa aðeins í fræðina bak við virkni líkamans. Einar fer júpt í missmunandi æfingarzone (þjálfunarstig), mjólkursýruþröskuld, langa og stutta vöðvaþræði og margt, margt fleira. Einar er giftur og á tvö börn, hann útskrifaðist sem sjúkraþjálfari árið
039 - Reynslusögur frá Karl Hrannari og Guðrúnu Ágústu
Sigurjón spjallar við Karl Hrannar sem æfir í UltraForm á Akranesi og hefur losnað við langvinna magaverki/truflanir sem ágerðust hægt og rólega frá 2013. Eftir að hafa gengið milli lækna og annara sérfræðinga prófaði hann Ketó sem gerði heilmikið og loks Carnivore sem leysti allt heila vandamálið og hjálpaði Karli að bæta á sig 10 kg af vöðvum á aðeins 11 mánuðum. Guðrún Ágústa var lengi leytand
038 - Konur og Carnivore - Reynslusaga frá Mjöll Barkar
Í þessum þætti fer Sigurjón aðeins yfir eigin reynslu á Carnivore, les upp reynslusögu frá stúlku í hlaupafjaþjálfun UltraForm sem tók 10 daga á carnivore og loks deilir Mjöll Barkar Barkardóttir sinni lífsstílssögu undanfarin ár og ýmsum tilraunum í sinni næringu og lífsstíl. Mjöll er í þjálfarateymi UltraForm á Akranesi og er UltraForm ótrúlega þakklát fyrir að hafa hana í þjálfarateyminu. S
037 - Reynslusögur frá Sigga Bjössa og Sigmundi Einari
Það er alltaf gaman að heyra góðar reynslusögur frá fólki sem er að bæta sinn lífsstíl og gera breytingar í átt að bætri heilsu. Í þætti 37 spjallar Sigurjón við Sigga Bjössa og Sigmund Einar um ansi vígalega heilsufarsbreytingu sem erfitt er að leika eftir. Þáttastjórnandi Sigurjón Ernir hefur sjálfur nokkrum sinnum tekið 2-3 vikur á samskonar mataræði og strákarnir tækluðu og var þeim innan hand











