Home Podcasts Námsvarpið - Mál, læsi og líðan
Námsvarpið - Mál, læsi og líðan

Námsvarpið - Mál, læsi og líðan

Rannsókna- og fræðslustofa um þroska, læsi og líðan - Berglind Axelsdóttir 23 episodes Latest May 29, 2026

Námsvarpið - Mál, læsi og líðan er hlaðvarp sem verkefnastjóri læsis og lestrarkennslu hjá Menntavísinda og Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands stýrir í samstarfi við Rannsókna- og fræðslustofu um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna. Í hlaðvarpinu fær verkefnastjórinn, Berglind Axelsdóttir til sín alls kyns fræðafólk og sérfræðinga og ræðir við það um efni sem tengist máli, læsi og líðan barna og ungmenna. Upptökustjóri er Sveinn Bjarki Tómasson verkefnisstjóri nýsköpunar- og tæknimenntunar.

Episodes

#23 Kennsluleiðbeiningar og nemendahefti með íslenskum námsorðaforða - Auður Pálsdóttir og Ragnar F. Ólafsson May 29, 2026 00:31:01 Við fengum til okkar Dr. Auði Pálsdóttur og Ragnar Friðrik Ólafsson doktorsnema sem hafa ásamt Dr. Sigríði Ólafsdóttur unnið að rannsóknarverkefni sem ber yfirheitið Íslenskur námsorðaforði. Fyrir nokkru síðan hélt íslensk málnefnd málþing um námsorðaforða og læsi þar sem frummælendur voru Dr. Ármann Jakobsson sem fjallaði um hrakandi læsi nemenda á íslensku, Dr. Elín Þöll Þórðardóttir sem fjallað
#22 Tækifæri til náms og líðan - Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir May 18, 2026 00:42:34 Námsvarpið fékk til sín Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur til þess að ræða tækifæri til náms og líðan. Jóhanna Birna segir frá skólagöngu sinni og þeim áskorunum sem hún stóð frammi fyrir. Þrátt fyrir það hefur henni tekist að ná ótrúlegum árangri í námi og starfi. Ítarefni https://www.harts.is/https://www.johannabirnabjartmars.com/https://noredreviews.org/index.php/NJSRE/article/view/6736/11285
#21 Að lesa sér til gagns - Sigríður Ólafsdóttir Mar 25, 2026 00:51:22 Við fengum Dr. Sigríði Ólafsdóttur til þess að koma og ræða um það hvað það þýðir að lesa sér til gagns. Hvað þurfi til þess að skilja lesinn texta og af hverju virðist lesskilningur eflast svo lítið á grunnskólaárunum. Hverju er um að kenna. Er munur á lesskilningi eftir því hvort textinn er á pappír, í síma eða á vef? Af hverju skiptir djúpur lesskilningur svona miklu máli fyrir nám og líf almen
#20 Hvað eru gagnreyndar aðferðir og af hverju/hvernig skipta þær máli - Auður Soffíu Björgvinsdóttir og Margrét Sigmarsdóttir Mar 5, 2026 00:50:03 Undanfarið hefur mikið verið rætt í fjölmiðlum og víðar um líðan og hegðun barna og einnig um lestrarfærni eða skort á henni öllu heldur. Hvað eru við sem samfélag að gera í þessum efnum? Það liggur ekki síður fyrir að spyrja: Hvað erum við sem samfélag að gera rangt? Stundum er sagt að ef við viljum skilja stöðuna, þá er besta leiðin að reyna að breyta henni. Þá er bara spurning hvernig og við ge
#19 Máltaka, málþroski og málfærni - Iris Edda Nowenstein Feb 12, 2026 00:43:47 Námsvarpið fékk til sín Dr. Irisi Eddu Nowenstein lektor á Hugvísindasviði og talmeinafræðing á Landspítalnum. Umræðuefnið var máltaka, málþroski og málfærni í samhengi við aukna ensku í málumhverfi íslenskumælandi barna og fjölgun barna með íslensku sem annað mál. Ítarefni: https://pubs.asha.org/doi/10.1044/2023_JSLHR-23-00117https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/00313831.2024.2322958?casa
#18 Skriftarkennsla og nýtt skriftarefni - Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir Jan 20, 2026 00:26:46 Námsvarpið fékk til sín Sigurlaugu Rún Brynleifsdóttur kennsluráðgjafa hjá Kópavogsbæ til þess að ræða skriftarkennslu og nýtt skriftarefni sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur gefið út. Ítarefni: https://skriftarvefur.mms.is/https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/skrift_handbok/
#17 Heimalestur - Auður Soffíu Björgvinsdóttir Dec 3, 2025 00:41:17 Námsvarpið fékk til sín Dr. Auði Soffíu Björgvinsdóttur til þess að ræða heimalestur en hún hélt fyrirlestur á Menntakviku fyrr í haust um niðurstöður rannsóknar um heimalestur.
#16 Þróun kennsluhátta til eflingar ritunarfærni nemenda - Ásdís Jóhannesdóttir Nov 19, 2025 00:27:48 Ásdís Jóhannesdóttir kennari í Öldutúnsskóla kom til okkar og ræddi þróun kennsluhátta til eflingar ritunarfærni nemenda.  Hún hélt erindi um efnið á Menntakviku í október. Ítarefni: http://hdl.handle.net/1946/45566 https://hdl.handle.net/1946/49959 
#15 Miðja máls og læsis - Dröfn Rafnsdóttir Oct 1, 2025 00:22:16 Námsvarpið fékk til sín Dröfn Rafnsdóttur deildarstjóra Miðju máls og læsis til þess að ræða upphaf deildarinnar, verkefni hennar og framtíð. Miðja máls og læsis var sett á laggirnar hjá Reykjavíkurborg en er núna staðsett hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Meira um deildina má sjá hér inni á þessari krækju: https://mml.reykjavik.is/
#14 Læsi í Hólabrekkuskóla - Sólveig Edda Ingvarsdóttir Aug 13, 2025 00:31:44 Námsvarpið fékk til sín Sólveigu Eddu Ingvarsdóttur sérkennara/verkefnisstjóra í Hólabrekkuskóla og doktorsnema á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða um læsi í Hólabrekkuskóla og hvað þau hafa verið að gera þar.
#13 Viltu vera MEMM - Fríða Bjarney Jónsdóttir Jul 1, 2025 00:32:02 Í þessum þætti ræðum við við Fríðu Bjarneyju Jónsdóttur sem er samhæfingarstjóri MEMM verkefnisins hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu um MEMM verkefnið – eða „Menntun, móttaka og menning“. Þetta er metnaðarfullt þróunarverkefni sem hefur það að markmiði að stuðla að  inngildingu og virkri þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í íslensku samfélagi, koma á samræmdu verklag
#12 Innleiðing vel rannsakaðra aðferða til að efla hegðun og vellíðan barna í samstarfi skóla og foreldra - Margrét Sigmarsdóttir May 30, 2025 00:48:33 Námsvarpið - Mál, læsi og líðan fékk til sín Dr. Margréti Sigmarsdóttur prófessor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands til þess að ræða rannsökuð prógrömm fyrir foreldra og skólakerfið sem stuðla að vellíðan allra barna. Einkum þeirra sem glíma við hegðunar- og tilfinningalegan vanda. Það er ekki nóg að hafa réttu leiðirnar,heldur þarf líka að standa rétt að innleiðingu. Svo þarf að skoða vel ef a

Recommended

Playing