Home Podcasts Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn
Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn

Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn

Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson 63 episodes Latest Jun 7, 2026

Birkir Fjalar og Hörður Ólafsson láta móðinn mása um þungarokk frá ýmsum sjónarhornum.

Episodes

064: SÁTAN 2026 - Dagur 3 yfirferð Jun 12, 2026 01:33:03 Moonstone tattoo studio Reykjavík færir þér... Það er eitthvað svo dásamlegt að hugsa til þess að við styðjum Sátuna. Það er að segja; þegar við félagarnir lesum nótur hvers þáttar og í þeim stendur að Stokkið í eldinn styður Sátuna. Við styðjum hana með stolti og þannig min það áfram vera! Alltént, þá lögðum við upp með nokkur markmið varðandi aðdraganda Sátunnar 2026 og svo, sem okkur þótti mi
063: SÁTAN 2026 - Dagur 2 yfirferð (Sindri Kamban, Móa Hlíf, Haukur Þór, Arnar Eggert o.fl.) Jun 7, 2026 01:08:23 Moonstone tattoo studio Reykjavík færir þér... Í þessum þætti verður allt vitlaust. Það er margt um manninn, það er hangið harkalega og galsinn töluverður enda fólk upp um alla veggi í fíling að tala (hrópa) á hvort annað um það sem máli skiptir; þungarokk, vináttu og sjónvarpsþættina um Hunter og bestu vinkona hans hana DeeDe McCall. Til að aðstoða okkur við að skvera dag tvö Sátunnar 2026 feng
062: SÁTAN 2026 - Dagur 1 yfirferð (Kristján Breytari & Smári Tarfur) Jun 5, 2026 01:12:06 Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Hráir og fínir í nánast lifandi útsendingu frá SÁTUNNI 2026 allt svo hlustendur geti sjálfur tekið púlsin heima í stofu. Hljómgæðin eftir því en samt drullunett hvað sem öllu öðru líður. Kristján Breytari Heiðarsson, af sinni alkunnu snilld, fór yfir tónleika fimmtudagsins. Smári Tarfur tróð inn tríninu og sagði okkur aðeins frá ráðstefnuaugnabliki hvar Haukur Þó
061:Stokkið á rúntinn - LEIÐIN Á SÁTUNA 2026 m. Ingólfi Erni Hallgrímssyni Jun 4, 2026 00:50:53 Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir HVAÐ ATHUGIST: Þátturinn er tekinn upp við nokkuð frumstæðar aðstæður og ber hljómurinn (á köflum) þess glöggt vitni. Samt þrælnett! Stokkið í eldinn bræður eru hér komnir um borð í skrjóðnum hans Ingó-Djóks og leiðin liggur á Sátuna 2026!  Dauðafæri til að Stökkva á rúntinn; spila fyrir hvorn annan nokkur hressandi lög og auðvitað tala um Sátuna.Ingólfur Örn (G
060: STRIGASKÓR NR. 42 - Blót m. Hauki Bragasyni May 31, 2026 03:50:19 Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Ævintýri. Þor. Landamæraleysi. Fífldirfska. Framsækni. Þrekvirki. Leikur. Galdrar. Draumar. Martraðir. Athafnir. Sveppatripp. Hugbreytandi. Þyngdarleysi. Víddir. Ímyndunarafl. Sannfæring. Þjóðlegt. Draugalegt. Ágengt. Heillandi. Þetta er bara brot af þeim orðum sem koma til tals þegar hin ómótstæðilega og undraverða Blót fer á fóninn.  Kópavogs fyrirbærið STRIGA
059: AT THE GATES - The Ghost of a Future Dead + PATRONIAN May 17, 2026 03:02:48 Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Þá er komið að því. Tilhlaupið var langt; rúmar þrjár vikur síðan platan kom út í áþreyfanlegu og Birkir eins nálægt því að vera andlega tilbúinn í verkefnið og hægt var miðað við tímaramma. En samt bara alls ekki! Burðarstólpar öfgaþungarokks á heimsvísu, hjartahljómsveit Birkis og tiltölulega ný máltíð á matseðli Hödda, AT THE GATES kveðja með síðustu plötu si
058: STOKKIÐ Á RÚNTINN - Tæmt úr pokanum og minningasjóður Hafnafjarðar May 12, 2026 01:13:24 Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Drengirnir halda áfram á rúntinum og ílengjast í Hafnafirði. Við ítrekum að hljómgæðin og tja, hljóðstílinn á talinu, er frábrugðin því sem gengur og gerist í þáttunum sem við gerum í hljóðveri vegna þess að við erum vissulega á rúntinum. Við erum á raunrúntinum, krakkar, með þráðlausa hljóðnema og ég veit ekki hvað og hvað.Stokkið á rúntinn er til svo að Stokkið
057: STOKKIÐ Á RÚNTINN - Lífsmark og losað um málbein (Wacken MB, KORN o.fl.) May 9, 2026 01:00:08 Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Eftir að hafa lent undir fyrirséðum árstíðarskaflinum þá eru félagarnir Hörður Ólafs og Birkir Fjalar komnir á rúntinn og hlustendum Þungarokksþáttarins Stokkið í eldinn  er boðið með. Meðal efnis í snörpum þætti eru niðurstöður Wacken Metal Battle á Íslandi 2026, Sátan 2026, önnur ný CONVERGE, GAVIN PORTLAND furðumál, tónleikavenjur Íslendinga, þrass á Akranesi
056: NEUROSIS - An Undying Love for a Burning World m. Birnir Halldórssyni + KVARV Mar 29, 2026 03:18:03 Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Er það að bera í bakkafullan lækinn að fá að baða sig í nýrri NEUROSIS plötu og sérstaklega plötu þá sem við höfðum ekki hugmyndaflug til að trúa að kæmi nokkurn tíman út því NEUROSIS voru sannarlega dauðir? Steindauðir. Dauðir á svo marga vegu að fljótt á litið munum við ekki eftir jafn afgerandi dauða hljómsveitar. Nema hvað...An Undying Love for a Burning Wor
055: STOKKIÐ Á RÚNTINN - 2. hluti (Tæmt úr pokanum) og Wacken Metal Battle Mar 26, 2026 01:09:10 Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Fyrsti Stokkið á rúntinn gekk svona glimrandi vel en vegna tímaskorts þá gátum við bara farið yfir og brugðist við lögunum frá Hödda. Upphaflega áformið var, að á sama rúnt, fengi Höddi að hlusta á þrjú lög frá Birki. Nýverið var unnin bragabót á þessu öllu saman þegar kumpánarnir fóru á annan kærkominn rúnt til að hlusta á og tala um tónlist líkt og tíðkaðist sv
054: STOKKIÐ Á RÚNTINN Mar 21, 2026 00:45:50 Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Hörður sín Ólafsson heldur áfram að vera uppspretta góðra hugmynda. Innblásin af gömlu verkefni Birkis og Andrew Westerhouse, skapara aversionline.com, sem nefndist The Mystery Grab Bag (sjá dæmi eins og þetta og þetta) kom hann á legg pokapælingu sem fram fer inn í bíl á meðan rúntað er um götur Stór-Höfuðborgarsvæðisins. Hörður ber undir Birki þrjú lög sem han
053: SÁTAN 2026 undirmulningur m. Kidda Crowley (Ultra Magnus/Málmsmiðjan/X977) Mar 18, 2026 01:38:33 Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Birkir Fjalar fær loksins að nördast og grallarast með Kidda Crowley sínum (og Hörður Ólafs fær kærkomið frí frá þeim fyrr nefnda) þegar blásið var til Sátufundar vegna ærinnar ástæðu... Jú jú; SÁTAN 2026 er handan við Skessuhornið! Í mannsögulegu samhengi þá er 'etta að bresta á, vinir! Kristinn Reyr og Birkir Fjalar fara í þessum þætti yfir það sem er í vændum

Recommended

Playing