
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Episodes

María Reyndal föstudagsgestur og húsráð frá 1966 í matarspjallinu
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var María Reyndal leikstjóri og handritshöfundur. Annað kvöld verður leikritið Svikasögur frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins en María samdi og leikstýrir verkinu. Við fórum með henni aftur í tímann, þegar höfundurinn og leikstjórinn vöknuðu til lífs hjá henni ungri að árum, unglingsárin á níunda áratugnum, árin í London og margt fleira.
Svo v

Ráðstefnan Töfrar tengslanna og Jónatan um Helga Pé
Við fræddumst í þættinum í dag um ráðstefnuna Töfrar tengslanna, sem fór fram á vegum þekkingarseturs BUGL, Barna- og unglingageðdeildar, fyrr í mánuðinum. Mikilvægi tengsla fyrir vellíðan og þroska barna var yfirskrift ráðstefnunnar. BUGL hafði safnað saman fjölbreyttum erindum og fræðsluefni um líðan, þroska og velferð barna og ungmenna auk þess að ráðfæra sig við ungmennaráð, þar sem notendur þ

Örnefni á Íslandi, Geðveik mamma og vísindaspjallið um heilakrabbamein
Örnefni hafa löngum haft áhrif á afstöðu okkar til landslags og sögu og markviss söfnun þeirr hér á landi hófst snemma á síðustu öld. Surtsey reis úr hafi haustið 1963 en þar gefst einstakt færi á að rannsaka nafngiftir svo að segja frá fyrsta degi. Birna Lárusdóttir íslensku- land- og fornleifafræðingur hélt fyrirlestur á mánudaginn þar sem hún talaði um rannsóknir sínar, bæði á vettvangi í Surts

Matsmannafélag Íslands, nálastungur fyrir hross og gæludýr og veðurspjallið með Einari
Við fræddumst um Matsmannafélag Íslands í dag, en Ragnar Ómarsson formaður þess kom í þáttinn. Fasteignakaup eru stærsta fjárfesting sem flestir Íslendingar ráðast í. Samt eru enn uppi álitaefni um upplýsingagjöf við sölu fasteigna, réttindi kaupenda og seljenda og meðferð byggingargalla. Þarna koma matsmenn til sögunnar og Ragnar sagði okkur frá starfi þeirra og ráðstefnu Matsmannafélagsins sem v

Leikárið í Tjarnarbíói, fréttaauki úr réttum frá 1963 og Rán Tryggvadóttir lesandi vikunnar
Við héldum áfram að fara yfir sviðið, bókstaflega, og forvitnast um það sem er á leiksviðum landsins á nýhöfnum leikvetri. Í dag kom til okkar Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri Tjarnarbíós. Tjarnarbíó hefur verið kallað heimili frjálsu leikhópanna og Snæbjörn sagði okkur frá fjölbreyttri dagskrá vetrarins í þættinum.
Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, til okkar með gullmola af

Eyjólfur Kristjánsson föstudagsgestur og matarminningar um fisk
Föstudagsgesturinn okkar í dag var engin annar en Eyfi, Eyjólfur Kristjánsson. Hann hefur víða komið við í íslensku tónlistarlífi og hefur verið einn af vinsælustu tónlistarmönnum landsins síðustu áratugi. Hann er að gefa út glænýja plötu og við heyrðum tvö lög af henni í þættinum. Eyfi ólst upp í Vogahverfinu, fór snemma að spila á gítar og spilaði snemma á kvöldvökum í Kerlingafjöllum þar sem ís

Þjóðlistahátíðin VAKA og Jónatan Garðars um Magnús Eiríksson
Á sunnudaginn hefst Þjóðlistahátíðin VAKA í menningarhúsum Kópavogs og það er mikil menningarveisla sem þarna mun fara fram, tónlist, þjóðdansar, hagyrðingakvöld, íslenskt handverk, harmónikkuball, námskeið fyrir börn og fullorðna, vinnusmiðjur, rímnafögnuður og margt fleira. Ragnheiður Gröndal og Bára Grímsdóttir komu í þáttinn og sögðu betur frá.
Við héldum svo áfram spjalli um ávaxtaflugur,

Ég kom til að gráta, um Svein Pálsson og skildinginn og vísindaspjall um leðurblökur
Það styttist í jólabókaflóðið, hægt og bítandi fara nýskrifaðar bækur að koma í bókabúðir sem er alltaf tilhlökkunarefni. Nú er komin út glæný bók eftir Þorgrím Þráinsson rithöfund sem heitir Ég kom til að gráta. Bókin fjallar um mann á miðjum aldri sem er í tilvistarkreppu og fer til Ólafsvíkur í leit að sjálfum sér. Hvaða afleiðingar hafa áföll í æsku, brotin sjálfsmynd, brestir í hjónabandi eða

LEB skorar á stjórnmálin, árangursrík starfsmannaviðtöl og vatnslitahátíð á Akureyri
Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa. Þetta er fyrirsögn greinar sem Björn Snæbjörnsson, formaður Landsambands eldri borgara, skrifaði. Hann segir að það sé kominn tími til að stjórnmálamenn hætti að tala um eldri borgara sem einsleitan hóp, því þeir eru fjölmennur og fjölbreyttur hópur þar sem sumir búa við ágæt kjör en aðrir þurfa að snúa hverri krónu og hafa verulegar áhyggjur af því

Leikveturinn í Þjóðleikhúsinu og Laufey Sigurðardóttir lesandi vikunnar
Við héldum áfram yfirferð Mannlega þáttarins yfir það hvað verður á fjölum leikhúsanna á nýhöfnum vetri. Í dag var það Þjóðleikhússtjórinn Magnús Geir Þórðarsson sem fór yfir leikveturinn, þar verða m.a. tvö ný íslensk verk á Stóra sviðinu, Hetjur hafsins, eftir Ragnar Bragason og Rými fyrir ást eftir Tyrfing Tyrfingsson. Fyrsta frumsýning ársins á Stóra sviðinu er hins vegar breska leikritið Högg

Benedikt Erlingsson föstudagsgestur og matarspjall um hafmeyju og kanínur
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, leikstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Benedikt Erlingsson. Hann er þessa dagana að leika á ný sýninguna sína Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi eftir 10 ára hlé. Við ræddum við hann um ferilinn, ást hans á að segja sögur, stöðu kvikmyndagerðar á Íslandi og margt fleira í skemmtilegu spjalli í þættinum í dag.
Svo tóku

30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans, búningahátíð í Firðinum og Jónatan Garðars um Gunnar Þórðarson
Á laugardaginn fagnar Hótel- og matvælaskólinn í MK 30 ára afmæli sínu. Viðburðurinn er hluti af afmælishaldi skólans og markar mikilvægan áfanga í sögu hans. Með þessu vill forsvarsfólk skólans kynna starfsemi Hótel- og matvælaskólans, efla tengsl við gesti og samstarfsaðila og skapa ánægjulega samverustund fyrir alla aldurshópa. Það verður opið hús og fjölbreytt og fjölskylduvæn dagskrá í boði.

Bangsahátíð í Reykjavík, Haustsöfnun Barnaheilla og vísindaspjallið um áhrif sætuefna
Reykjavík Bear hátíðin fer fram dagana 3.–6. september og sameinar bangsa, vini þeirra og gesti víðsvegar að úr heiminum í fjögurra daga hátíð. Bangsasamfélagið á rætur í menningu samkynhneigðra karla og varð til sem rými fyrir fólk sem fann sig ekki í ríkjandi útlitskröfum. Orðið bangsi hefur gjarnan verið tengt við stórvaxna, skeggjaða eða loðna karlmenn, en samfélagið er mun fjölbreyttara en sú

PingPongParkinson, að huga að öðrum og sjálfum sér og næturfrost í veðurspjallinu
Við fræddumst í dag um heimsmeitaramótið PingpongParkison sem fer fram í Hannover í Þýskalandi í lok september. Hannes Guðrúnarson, borðtennisþjálfari og Vilborg Jónsdóttir, sem keppir fyrir hönd Íslands á mótinu, komu í þáttinn í dag. Borðtennis er, að þeirra sögn, eitt það besta fyrir fólk með parkinson. Parkinson hefur mörg ólík einkenni, eitt það þekktasta er skjálfti í höndum, en við borðtenn

Leikárið í Borgarleikhúsinu, pistill frá Kaupmannahöfn 1949 og Elínborg lesandi vikunnar
Mannlegi þátturinn fór aftur í gang í dag eftir sumarfrí og þátturinn Sumarmál hefur runnið sitt skeið. Eins og undanfarin haust munum við á næstu mánudögum fara í svokallaðan leikhúsrúnt, þar sem við fáum að heyra hvað verður á fjölum leikhúsanna í vetur. Við byrjuðum í dag á því að ræða við Egil Heiðar Anton Pálsson Borgarleikhússtjóra og það sem verður þar á fjölunum í vetur.
Helga Lára Þorste

Gunnar Helgason föstudagsgestur og matarspjall um útimáltíðir
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, rithöfundurinn og leikstjórinn Gunnar Helgason. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar úr Hvassaleytinu í Vogahverfið, hvar hann eyddi öllum stundum í fótbolta eða á skíðum. Hvenær leiklistin kom inn í líf hans og svo bókaskrifin og leikstjórnin, en Gunnar hefur leikstýrt leiksýningum víða um lönd og skrifað um þrjátíu bæku

Svava í Hugarhlýju, Hveragerði 80 ára og Jónatan um Ragga Bjarna
Svava Bjarnadóttir sagði upp vinnunni sinni sem sjúkraliði á geðsviði og opnaði lítinn stað þar sem allt sem viðkemur mannlegri sjálfsrækt er í fyrirrúmi. Hún er sjálf með ýmis námskeið og er nýbúin að kaupa slatta af hengirúmum sem hún notar í hugleiðslur og og stundir fyrir hópa sem vilja slaka á og njóta. Staðurinn er í Hveragerði og við hittum Svövu þar, en hún er andlegur einkaþjálfari, reiki

Með lífið í lúkunum, Listasumar á Akureyri og vísindaspjall um heilann
Við fræddumst um átakið Með lífið í lúkunum hér á eftir. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli þeirri hættu sem fylgir kyrkingartökum, bæði sem hluti af kynlífi eða sem hluti af öðru ofbeldi. Ranghugmynda hefur gætt um slíkt, en rannsóknir leiða í ljós meiri hættu en áður hefur verið talið. Hver einasta sekúnda sem flæði blóð

Jensína Reykvíkingur ársins, Branislav Bédi og veðurspjall um hitabylgju í Evrópu
Reykvíkingur ársins var kynntur á dögunum, hann er valinn út frá tilnefningum, einstaklingar sem hafa með háttsemi sinni eða atferli verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Eftir yfirferð á tilnefningum var tekin ákvörðun um að veita Jensínu Eddu Hermannsdóttur titilinn, en hún er þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi og hefur starfað af heilindum að málefnum

Söngleikir án vettvangs, hreinlæti í Reykjavík frá 1968 og Grétar Halldór lesandi vikunnar
Þór Breiðfjörð tónlistarmaður er nýútskrifaður úr meistaranámi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Meistararitgerðin hans heitir Vinsældir án vettvangs, staða söngleikjalistformsins á Íslandi sem menningarvettvangs. Þór kom í þáttinn og sagði okkur betur frá efni ritgerðarinnar, enda hefur hann heldur betur lifað og hrærst í söngleikjaforminu í gegnum tíðina.
Helga Lára Þorsteinsdótti

Andrea Róbertsdóttir föstudagsgestur, og leikfimi, sítrónur og fótalykt í matarspjallinu
Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Hún var tilnefnd til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísis 2026 en þau verðlaun eru veitt stjórnendum sem hafa skarað framúr á sínu sviði og sýnt framúrskarandi hæfni í starfi. Andrea hefur komið víða við í atvinnulífinu og hefur mjög gaman af lífinu. Hún er þekkt fyrir lífsgleði og jákvæðni

Ofbeldi gegn öldruðum, skaðleg efnaáhrif á líkama og húð og Jónatan um Kristján Kristjánsson
Á mánudaginn var alþjóðadagur vitundarvakningar um ofbeldi gegn öldruðum af því tilefni kom varaformaður Landssambands eldri borgara, Sigurður Ágúst Sigurðsson, í þáttinn í dag. Hlutfall einstaklinga 60 ára og eldri mun aukast um tæp 40% á heimsvísu frá 2019-2030 og ofbeldi gegn öldruðum er vanmetið og getur birst í margvíslegri mynd. Sigurður sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag.
Una

Hugleiðingar um vestræna menningu, Landsmót 50+ og Sigurdís á Heilsuvaktinni
Við rákumst á áhugaverða grein sem Miriam Petra Ómarsdóttir Awad skrifaði í Heimildina undir fyrirsögninni Hugleiðingar um vestræna menningu. Þar veltir hún fyrir sér hvernig hugmyndin um „vestræna menningu“ mótar sýn okkar á annað fólk. En föðurfjölskylda hennar er egypsk og hún hefur í gegnum tíðina lent ítrekað í þeirri stöðu að finna sig knúna til þess að sannfæra viðmælendur sína um að þau væ

Inga Eydal um föður sinn, Þjóðskjalasafnið og Vilhjálmur Pétursson lesandi vikunnar
Við heyrðum í Ingu Eydal í dag, hún var í hljóðstofu fyrir norðan og við ræddum við hana um föður hennar Ingimar Eydal tónlistarmann en þessa dagana er einmitt verið að auglýsa tónleika honum til heiðurs, en hann hefði orðið níræður í haust. Ingimar lék á píanó og var einn vinsælasti hljómsveitarstjóri á Íslandi og fjölhæfur tónlistarmaður. Ingimar var einnig vinsæll kennari og tók virkan þátt í b

Hörður Magnússon föstudagsgestur og köld tómatsúpa í matarspjallinu
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon. Hann er einn þeirra sem lýsir leikjunum á HM sem hófst í gærkvöldi. Hann var sjálfur mikill markaskorari fyrir FH á löngum ferli og spilaði einnig með A landsliðinu. Hann hefur verið íþróttafréttamaður í um það bil þrjátíu ár og lýsir íþróttakappleikjum af mikilli innlifun. Við fórum með honum aftur í tíman

Anna Lára framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Sigurgeir syndir fyrir Pieta og Jónatan um Svavar Gests
Í fréttum í gær, 10.júní, fagnaði framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Anna Lára Steindal, því að íslensk stjórnvöld hafi fullgilt valfrjálsri bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hún segir það hana vera mikla réttarbót. En hvað er þessi bókun og hvað þýðir hún og hverju breytir hún? Anna Lára kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir það af hverju þetta skiptir svona miklu m

Gunnlaugur keppir á US Open, Rjúfum mynstrið og vísindaspjallið
Á mánudagskvöldið kom stórfrétt í íslenskri golfsögu þegar kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér inn þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi. Hann verður fyrstur íslenskra karlkylfinga til að keppa á mótinu og annar Íslendingurinn til að keppa á risamóti karla. Gunnlaugur Árni, sem er einungis tvítugur, er gríðarlegt efni. Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri Golfsambands Ísla

Dánaraðstoð, bók um Kjósasýslu og veðurspjallið með Einari
Samkvæmt nýrri könnu er viðhorf almennings á Íslandi til dánaraðstoðar að tæp 74 prósent eru mjög hlynnt eða fremur hlynnt henni. Lífsvirðing er félag um dánaraðstoð sem var stofnað árið 2017 og hefur að markmiði að stuðla að opinni, upplýstri og yfirvegaðri umræðu um dánaraðstoð við skýr og ströng skilyrði. Ingrid Kuhlman er formaður félagsins og hún sagði okkur meira frá félaginu, niðurstöðum kö

Þurfamenn fá mannréttindi, frá heimsókn forseta Íslands til Noregs 1955 og Andri Fannar lesandi vikunnar
Sería Sögufélags er ný ritröð um Íslandssögu þar sem vandaðar rannsóknir eru settar fram í lifandi frásögn. Bækurnar eru ríkulega myndskreyttar og er hver bók um sig nákvæmlega 100 blaðsíður. Ragnheiður Kristjánsdóttir er ein af fyrstu höfundum í þessum nýjum bókaflokki og hún kom til okkar í dag. Bók Ragnheiðar nefnist Þurfamenn fá mannréttindi, en árið 1927 var gerð breyting á íslenskum fátækral

Hinrik Ólafsson föstudagsgestur og súrmjólk og purusteik í matarspjallinu
Hinrik Ólafsson leikari og leiðsögumaður var föstudagsgesturinn okkar í dag en hann er handritshöfundur og leikstjóri nýrrar íslenskrar heimildarmyndar, Above Iceland, sem verður frumsýnd í Bíó Paradís 10.júní. Í henni er fjallað um eldfjöll, jöklar, þjóðsögur og lífsbaráttu þjóðar. Myndin er sérstök fyrir það leyti að hún er aðallega tekin upp að ofan með drónum. Hinrik Ólafsson útskrifaðist frá

Lögin hans Bubba, hjóluðu 3.500 km. og Jónatan um Stefán Jónsson í Lúdó
Gunnlaugur Jónsson og Þór Freysson komu til okkar í dag, en þeir hafa verið að gera nýju heimildarþættina um Bubba Morthens, Lögin hans Bubba, þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Á laugardaginn er komið að sjötugsafmælinu sjálfu, en þriðji og síðasti þátturinn verður í sjónvarpinu á föstudagskvöldi. Í þáttunum er rætt við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem

Gervigreind í kennslu með Námfús, histamínóþol kvenna á miðjum aldri og vísindaspjallið með Eddu
Það er fátt sem hefur verið rætt meira um undanfarin tvö ár en gervigreind og spurningarnar eru óteljandi, margt afskaplega spennandi og einni margt sem vekur ugg. En við kynntum okkur í dag hvernig gervigreindin getur virkað í skólum, bæði fyrir kennara og nemendur. Námfús er íslensk lausn fyrir leikskóla og grunnskóla sem er notuð bæði á Íslandi og Þýskalandi og unnið er að því að aðlaga lausnin

Leikhópurinn Lotta tuttugu ára og Guðbrandur Árni á Heilsuvaktinni
Leikhópurinn Lotta heldur upp á tuttugu ára afmælið í ár og sýning hópsins í sumar er Litaland sem segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig. Anna Bergljót Thorarensen er höfundur verksins og jafnframt stofandi leikhópsins. Hún kom í þáttinn í dag ásamt

Einverfa og kulnun kvenna, skjöl Jónasar frá Hriflu og Úlfar lesandi vikunnar
Á undanförnum árum hefur umræða um einhverfu kvenna aukist en þær fá oft ekki greiningu fyrr seint á ævinni. Í áratugi var einhverfa skilgreind út frá drengjum og stúlkur féllu utan rammans og fullorðnar konur enn frekar. Þegar greiningin kemur, oft á þrítugs- eða fertugsaldri og stundum eftir fimmtugt, lýsa margar konur henni eins og þar hafi þeim loksins verið gefin hin rétta skýring á eigin líf

Sigtryggur Baldursson föstudagsgestu og espadrillur og sniglar í matarspjallinu
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var trymbillinn og tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson. Hann hefur verið í fjölda hljómsveita, Þeym, Kukl, Sykurmolarnir, svo er það auðvitað hliðarsjálf hans Bogomil Font, sem sungið hefur sig inn í íslensku þjóðarsálina, bæði með Milljónamæringunum og Greiningardeildinni. En með síðastnefndu sveitinni var hann að senda frá sér glænýtt lag af gl

Gefum íslensku séns, vatnsvernd og Jónatan um Hallbjörgu Bjarnadóttur
Við forvitnuðumst í dag um verkefnið Gefum íslensku séns sem sett var af stað við Háskólasetur Vestfjarða en hefur nú verið stofnað sem formlegt félag sem ætlað er að ná til landsins alls. Markmiðið er að hvetja íslenska móðurmálshafa til að vera þolinmóði, umburðarlyndir og einnig hvetjandi við þau sem eru að læra málið. Við fengum Eirík Rögnvaldsson, prófessor emeritus og Elizu Reid, rithöfund,

Herferð Amnesty á Íslandi, steraleikarnir og vísindaspjall með Eddu
Við kynntum okkur nýja herferð Íslandsdeildar Amnesty International sem kallst Mannúðin mun sigra - Virðum réttindi fólks á flótta. Markmið hennar er að mæta ótta og rangfærslum með staðreyndum, mannlegum sögum og samtali sem byggir á samkennd og mannréttindum. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildarinnar, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá herferðinni.
Við kynntum okkur svo umd

Gullmoli frá 1946, veðurspjall um hita og hret og Birna lesandi vikunnar
Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kom til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var það efni úr útvarpsþættinum Um daginn og veginn frá árinu 1946 þar sem Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður fjallar um nýafstaðnar kosningar í Reykjavík, þáttöku, framkvæmd talninga og áróðusaðferðir, með áherslu á nauðsyn siðfágaðrar kosningabaráttu.
Svo var það veðurspjallið með Einari S

Helgi Björns og Ragga Gísla föstudagsgestir og matarspjall um vorilm og fleira
Það voru tveir föstudagsgestir í dag, Helgi Björnsson og Ragnhildur Gísladóttir, en þau sameina krafta sína á tónleikum sem þau kalla Helgi & Ragga syngja og spjalla. Búið er að setja á þrenna tónleika, til að byrja með, þar sem þau munu flytja mörg af þeim lögum sem Íslendingar þekkja með þeim og hafa tekið ástfóstri við, auk þess að rifja upp eftirminnileg augnablik úr litríkri vegferð þeirra í

Dáleiðslufélag Íslands 25 ára, Skólakór Öldutúns 60 ára og Jónatan um Gunnar Ormslev
Hannes Björnsson sálfræðingur kom til okkar í dag. Hann hefur starfað sem sálfræðingur frá 2009 en var áður sóknarprestur á Vestfjörðum og prestur Íslendinga í Noregi. Hann vinnur mikið í greiningu og klínískri meðferð þunglyndis, kvíða, áfalla og ADHD fullorðinna. Hannes er einnig formaður Dáleiðslufélags Íslands, sem á 25 ára afmæli þessa dagana og hann sagði okkur frá félaginu, ráðstefnu sem fe

Ljósmyndir af hversdagsleikanum, íslenski refurinn og vísindaspjall með Eddu
Á morgun verður opnuð ljósmyndasýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum, ljósmyndir eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttur. Þórdís hefur myndað fólk, sem flest er henni náið eða vel kunnugt, yfir löng tímabil. Myndirnar segja sögur af ólíku fólki sem hún hefur fylgt eftir og velur stundir úr hversdeginum, lítil augnablik sem segja stærri sögu. Þórdís kom í þáttinn í dag og

Ofurhlauparinn Karlotta, bókin Hamingja og Olga Hörn á Heilsuvaktinni
Við töluðum í dag við Karlottu Ósk Óskarsdóttur sem hefur verið kölluð ofurhlaupari og það er ekki fjarri sanni. Hún lætur sér ekki nægja til dæmis bara venjulegt maraþonhlaup, heldur hljóp hún 75 kílómetra að meðaltali á dag, tíu daga í röð, eða samtals 750 kílómetra í Búlgaríu í síðustu viku. Hún hefur slegið sjö Íslandsmet á síðustu níu mánuðum, þar af þrjú í Búlgaríu og það hlaup var lengsta v

Crohns og sáraristilbólga, efni af Þjóðskjalasafni og Pétur Már lesandi vikunnar
Alþjóðlegur vitundardagur tileinkaður bólgusjúkdómum í meltingarvegi er á morgun 19.maí. Talið er að yfir 10 milljónir, þar af um 3,4 milljónir í Evrópu, séu annaðhvort með Crohns-sjúkdóm eða sáraristilbólgu, oft nefnda IBD. Á Íslandi hefur tíðnin aukist mikið frá 1950 og nýgengi sáraristilbólgu á Íslandi er u.þ.b. 22 á hverja 100.000 íbúa sem er með því hæsta í heiminum. Í ár vekja samtökin athy

Daði Freyr föstudagsgestur og matarspjallið um sænskar kjötbollur
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Daði Freyr Pétursson tónlistarmaður. Þjóðin kynntist honum fyrst í Söngvakeppninni og svo fór hann auðvitað fyrir Íslands hönd í Eurovision keppnina og hefur síðan samið og framleitt tónlist undir eigin nafni og farið í tónleikaferðir víða um heim. Hann er nýfluttur aftur til landsins eftir að hafa búið í ellefu ár erlendis, en fjölskyldan býr nú

Ungt fólk og umhverfismálin, vísindaspjallið um tónlist og hreyfingu og Jónatan um Magnús Ingimarsson
Við forvitnuðumst í dag um Uppskeruhátíð í verkefninu Umhverfisfréttafólk sem var á vegum Landverndar og Grænfánans, en hún fór fram í lok apríl. Á hverju ári berast fjölmörg vönduð og fjölbreytt verkefni í keppnina frá skólum víðsvegar á landinu. Í ár voru það m.a. rapplög, spil, myndbönd, hlaðvarp, fréttaskýringar, smásögur, dagatal, ljóð, listaverk, tímarit vöruhönnun og ljósmyndir. Við fengum

Aldin samtökin og kórinn, leikhús í bíó og veðurspjallið með Einari
Við kynntumst aðeins starfi Aldin, samtaka eldri aðgerðarsinna gegn lofslagsvá í þættinum í dag. Sólveig Baldursdóttir og Halldór Reynisson eru félagar í Aldin og þau komu til okkar og sögðu frá tilurð samtakanna, starfinu, samnefndum kór og þýðingu hans í þeirra starfi. Í lokin fengum við svo að heyra upptöku af kóræfingu.
National Theatre Live er framtak Breska Þjóðleikhússins þar sem marga

Systkinin í Blood Harmony, um Húsmæðraskólann frá 1948 og Friðrik lesandi vikunnar
Blood Harmony er samstarfsverkefni systkinanna Arnar, Aspar og Bjarkar Eldjárn sem hófst snemma árs 2021 þegar heimsfaraldurinn skall á og þau voru flutt í heimahagana fyrir norðan. Þau umbreyttu kjallaranum á æskuheimilinu Tjörn í upptökustúdíó og hófu að taka upp lög. Nú, fimm árum síðar er loksins komið að því að fagna útgáfu plötunnar sem kemur út á vínyl þau halda upp á með útgáfutónleikum á

Eva Ruza föstudagsgestur og húsráð og brauð í ofni í matarspjallinu
Eva Ruža Miljević er föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Eva er þekkt útvarpskona, sjónvarpskona, skemmtikraftur, stjörnufréttakona hjá K100, velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna á Íslandi og áhrifavaldur. Og ef allt þetta er ekki nóg þá er hún líka í veitingabransanum, en hú rekur ásamt eiginmannisínum Svarta kaffi. Við ferðuðumt með Evu aftur í tímann, til Króatíu, en faðir hennar er þaða

Undirskriftarlisti gegn brottfararstöð, hæglætisstefna í leikskólum og Jónatan um Önnu Vilhjálms
Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfarastöð hefur hlotið gagnrýni, meðal annars vegna heimildar til að vista þar börn. Umboðsmaður barna segir frumvarpið vera andstætt Barnasáttmálanum og brjóta gegn réttindum barna. Yfir tvö þúsund manns hafa skrifað nöfn sín á undirskriftarlista á Ísland.is til að mótmæla þessu frumvarpi. Í gær bárust fréttir af breytingartillögu á frumvarpinu og mátti skilja á f

Inngilding ungmenna með fötlun, hjólreiðar með Maríu og vísindaspjall um kaffi og þarmaflóruna
Snæfríður Þóra Egilsson, iðjuþjálfi og prófessor í fötlunarfræðum við HÍ hefur um árabil rannsakað líf, þáttöku og aðstæður barna með fötlun. Hún hefur skoðað áskoranir sem börn og ungmenni með fötlun þurfa að ganga í gegnum, hverjar áskoranirnar eru og hún hefur lagt áherslu á og hefur lagt út af rannsóknum sem hafa beinst að börnunum og ungmennunum sjálfum, þar sem hlustað er á þeirra skoðanir o

Málþing um læsi og námsorðaforða, Minecraft tónlist í Hjallakirkju og Anna María á Heilsuvaktinni
Á morgun verður haldið málþing um læsi og námsorðaforða, að frumkvæði Íslenskrar málnefndar, þar sem farið verður yfir stöðu mála í íslenskukennslu. Þar verða flutt erindi þar sem meðal annars verður skoðað hrakandi læsi nemenda, staða barna með íslensku sem annað mál og hvernig sé gagnlegt að styðja kennara í þessum flóknu verkefnum og hvers konar verkefni virka. Doktor Sigríður Ólafsdóttir, dóse

Leikskólamál: Ekki bara pláss, heimildir.is og Sigurlín Bjarney lesandi vikunnar
Við sögðum í dag frá málþingi sem fór fram fyrir nokkru þar sem leikskólamál voru rædd og yfirskriftin var: Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi. Málþingið var hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og byggir á fagmennsku, þekkingu og skýrum gildum um réttindi barna, leik og vellíðan. Á sama tíma hefur umræða í samfélaginu í auknu

kynferðisofbeldi í samböndum ungmenna, Hrafnhildur Reykjalín um gildi og lokakafli mannlegra samskipta
Undanfarna viku hefur staðið yfir vitundarvakningin ÉG LOFA á vegum Barnaheilla. Markmiðið var að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gegn börnum með því að miðla upplýsingum og fræðslu. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnisstýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum kom í þáttinn í dag og sagði okkur aeðins frá þessu átaki og einnig frá ungmennaþingum sem haldin voru á sex stö

Hildur Björk í Glerárkirkju, systkinaofbeldi og vísindaspjall með Eddu
Við heimsóttum Glerárkirkju í dag og ræddum við séra Hildi Björk Hörpudóttur og hún sagði okkur frá starfinu innan kirkjunnar en hún lítur á kirkjuna sem samfélagstorg og vill að hún sé opin fyrir alla. Úlfatíminn er tími fyrir fjölskyldur sem geta komið einu sinni í mánuði og leikið sér saman seinni partinn og borðað saman og þetta hefur mælst vel fyrir. Foreldrar eru líka með í fermingarfræðslun

Jazzþorpið í Garðabæ, Sindri Sparkle og regnbogafánar og veðurspjallið með Einari
Í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar stendur Jazzþorpið á Garðatorgi í 4 daga. Ómar Guðjónsson er listrænn stjórnandi dagskrárinnar sem verður óvenju vegleg í tilefni afmælisins og gestir geta látið fara vel um sig og jafnvel keypt húsgögn og vörur sem flutt hafa verið á Garðatorgið frá Góða hirðinum. Ómar Guðjónsson og Ólöf Breiðfjörð fyrsti menningarfulltrúi Garðabæjar komu í þáttinn og sögðu okk

Fimmta hvert barn, gullmolinn af safninu frá 1947 og Guðrún Helga lesandi vikunnar
Við fræddumst um verkefnið Fimmta hvert barn sem UNICEF hefur verið að vinna með yfir 800 börnum á Íslandi. Það er myndlistarsýning í Hörpu sem varpar ljósi á þá hrikalegu staðreynd að fimmta hvert barn í heiminum býr við afleiðingar stríðs og átaka. Sýningin stendur til 3.maí og þær Sigyn Blöndal kynningarstjóri og Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF komu til okkar í dag og sögðu okkur

Haukur Holm föstudagsgestur og matarspjall um snittubrauð
Haukur Holm fréttamaður, öllu heldur fyrrverandi fréttamaður, hefur yfir 40 ára reynslu á þeim vettvangi en er nú hættur, nýorðin sjötugur. Haukur vann lengst af á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar en þar áður meðal annars á Alþýðublaðinu, Vikublaðinu Reykjavík og nú síðast hér á fréttastofu RÚV. Við fórum auðvitað aftur í tímann með Hauki, á æskuslóðirnar og upphaf fréttamannaferilsins, til dæm

Ónæmisgallar, upprifjun í mannlegum samskiptum og býflugur í vísindaspjallinu
Þessa vikuna er vitunarvakning hjá Lind, félagi fólks með ónæmisgalla. En markmið félagsins er að stuðla að öflugum forvörnum, greiningu og meðferð meðfæddra ónæmisgalla. Hrefna Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á ónæmisdeild Landspítalans kom í hljóðver og Guðrún Jóna Hreggviðsdóttir var á línunni frá Ítalíu, en sonur hennar fæddist með ónæmisgalla. Hún deildi með okkur þeirra sögu og Hrefna fræddi

Græn samskipti, Græna gangan og Auður Bjarnadóttir á heilsuvaktinni
Græn, gul og rauð samskipti og samspil við taugakerfið er nokkuð sem við skoðuðum í þættinum í dag. Hvernig streita hefur áhrif á öll samskipti og hvernig við skynjum okkur sjálf og aðra ólíkt eftir því hvort við erum í jafnvægi eða í streitu. Gyða Dröfn Tryggvadóttir kom í þáttinn, en hún er með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig l

Karlakór Reykjavíkur 100 ára, af heimsókn konungs 1907 og Henning Emil lesandi vikunnar
Það er mikil tónlistarveisla framundan hjá Karlakór Reykjavíkur sem fagnar 100 ára afmæli í ár. Frá árinu 1926 hefur kraftur og fallegur samhljómur einkennt kórinn og í tilefni afmælisins verður heil tónleikaröð í Langholtskirkju þar sem kynslóðabilið verður brúað með aðstoð vinakóra úr íslenska og færeyska karlakórssamfélaginu og stórvirki gömlu meistarana verða flutt auk léttari sönglaga. Stjórn

Vigdís Hafliðadóttir föstudagsgestur og matarspjall um salat og sólskin
Vigdís Hafliðadóttir söngkona, leikkona, grínisti, handritshöfundur og ýmislegt fleira var föstudagsgesturinn okkar. Hún nam heimspeki við Háskóla Íslands og hefur t.d. leikið í kvikmyndinni Ljósvíkingar, áramótaskaupum og nú síðast í þáttunum Tuttugu og eitthvað, en hún er einnig einn höfunda, en fyrsti þátturinn verður sýndur á RÚV í kvöld. Hún hefur einnig notið mikilla vinsælda sem kynnir skem

Minningarsteinninn Eilífð, enn um höfnunarótta og Hrólfur Sæmundsson
Við fræddumst um svokallaðan minningarstein í þættinum, en fjórir ungir menn tóku þátt í frumkvöðlakeppni þar sem þeirra vara var minningarsteinninn Eilífð. Á hverjum og einum steini er QR kóði sem leiðir inn á vefsíðu þar hægt verður að sjá myndir og myndbönd af þeim sem hefur fallið frá. Baldur Orrason Gröndal og Jóel Þeyr Kárason komu í þáttinn og útskýrðu betur fyrir okkur hvernig þetta virkar

Stóri plokkdagurinn, Björgvin Valdimars sjötugur og vísindaspjallið með Eddu
Stóri plokkdagurinn verður haldinn um allt land sunnudaginn 26. apríl. Dagurinn er orðinn fastur liður á vorin en hann var fyrst árið 2018. Tilgangurinn er að hvetja almenning, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög til að taka höndum saman og hreinsa nærumhverfið draga úr rusli í náttúrunni og vekja athygli á því að litlar aðgerðir margra geta skilað miklum árangri. Björn Skúlason forsetamaki mu

Endurunninn textíll og veður- og farfuglaspjall
Nokkrar konur eru að koma á fót fyrstu textílendurvinnslustöð á Íslandi þar sem þær tæta niður textílúrgang og búa til nýjan textíl úr honum. Á HönnunarMars munu þær sýna fyrstu hljóðdempandi veggpanela sem eru unnir úr textílúrgangi og framleiddir hér á landi. Sigríður Tryggvadóttir textíllistakona kom í þáttinn og með henni kom Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Flöff, sem er fyrirtæk

Að kunna að hlaupa hægt, hlustunarvenjur frá 1947 og Júlíus lesandi vikunnar
Arnar Péturs er þrautreyndur landsliðshlaupari og hlaupaþjálfari. Hann hefur 73 sinnum orðið Íslandsmeistari og sigrað Laugaveginn tvisvar. Hann á einnig Íslandsmetið í 100 km hlaupi. Arnar skrifaði Hlaupabókina sem inniheldur þekkingu sem hann hefur aflað sér með því að æfa með bestu hlaupurum og þjálfurum í heiminum. Arnar kom í þáttinn í dag, en hann segir að allt sé hægt ef maður kann að fara

Hannes Óli föstudagsgestur og portúgalskt matarspjall
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hannes Óli Ágústsson. Frá því hann útskrifaðis frá Listaháskóla Íslands árið 2009 hefur hann leikið mikinn fjölda hlutverka á sviði og fyrir framan kvikmyndavélar, til dæmis í fjölmörgum áramótaskaupum og svo nú síðast í gamanþáttaröðinni Hæst sem er sýnd hjá Sjónvarpi Símans, en hann er einn handritshöfunda auk þess að leika annað aðal

Formlegur og óformlegur stuðningur mikilvægur, Barnadjass og enn um höfnunarótta
Við fræddumst í dag um rannsókn sem Þóra Katrín Erlendsdóttir, meistaranemi við í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri vann. En tilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun ungmenna af stuðningi í kjölfar sjálfsvígs vinar. Þátttakendur voru einstaklingar sem höfðu misst vin í sjálfsvígi. Þóra Katrín var hjá okkur í dag og sagði okkur frá rannsókninni og niðurstöðunum, þar sem til dæmis

Hjóla 3500 km. á 34 dögum, Bústaðabúar og vísindaspjallið
Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson eru á leið í afar krefjandi hjólreiðaferð þar sem þeir munu hjóla um 3.500 km um vesturströnd Bandaríkjanna á 37 dögum. Markmið ferðarinnar er að vekja athygli á Parkinsonsjúkdómnum og undirstrika mikilvægi líkamlegrar hreyfingar í baráttunni við sjúkdóminn, en Einar er sjálfur með Parkinson. Þeir komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá þessu ferðala

Gömlu eyjalögin, trefjar á Heilsuvaktinni og Kári lesandi vikunnar
Leifur Geir Hafsteinsson, forsprakki alþýðutónlistarhópsins Vinir og vandamenn og dóttursonur Oddgeirs Kristjánssonar, kíkti í heimsókn til okkar í dag en hópurinn vinnur að gerð hljómplötu þar sem finna má áður óútgefin eða sjaldheyrð gömul Eyjalög. Leifur sagði okkur frá hljómplötunni og lögunum og við heyrðum tvö laganna, þar á meðal Setjumst að sumbli en það er fyrsta Þjóðhátíðarlagið, frá ári

Helgi Björns og Ísafjörður, Guðmundur Pétursson og blúshátíð og Edda Olgudóttir
Páskahelgin er á næsta leyti og margir sem verða á faraldsfæti. Sumir fara í sumarbústað, aðrir til útlanda og svo eru margir sem fara vestur Ísafjörð, þar sem fram fer skíðavika og auðvitað tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður. Við töluðum við skíðagarp, frá Ísafirði sem margoft hefur troðið upp á þessari ágætu hátíð fyrir vestan - þó hann hafi sig hægan núna um páskana. Helgi Björnsson tónlista

Bragðlaukaþjálfun og matvendni, Sinfóníuhljómsveit Íslands og veðurspjall
Við töluðum um matvendni í Mannlega þættinum - aðallega matvendni hjá börnum, orsakir hennar og hvað er til ráða. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði hefur undanafarið rannsakað þetta ásamt hópi vísindamanna í rannsókn þar sem áhersla er lögð á fæðuval, matvendni og líðan, bæði hjá börnum og foreldrum. Og stór hluti af þessari rannsókn er það sem er kallað ‘bragðlaukaþjálfun’ - hve

Meindýraeyðir, Þjóðskjalasafnið og lesandi vikunnar
Það vilja fáir fá meindýr inná heimili sitt og gera allt til að koma í veg fyrir það. Við ræddum við teymisstjóra meindýravarna hjá Dýraþjónustu Reykjavíkur, hann heitir Ólafur Ingi Heiðarsson og hann segir til dæmis að það sé mikil aukning á veggjalúsatilfellum í borginni og að rotturnar séu gáfaðar.
Og við kíktum í heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands og hittum skjalavörðinn Kjartan J. Richter

Agnar Jón Egilsson föstudagsgestur, Matarspjall með Sigurlaugu Margréti
Það er föstudagur og gul viðvörun í gangi víða. Við látum það ekki á okkur fá og fögnum föstudagsgesti dagsins og sá er dósent við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands. Hann er einnig leikstjóri og höfundur, hann stofnaði Leynileikhúsið á sínum tíma og er, eins og vinir hans segja, alltaf önnum kafinn náungi. Núna í vetur leikstýrði hann leikritinu Mömmó sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Við töluðum

Hugarafl, Guðríður Helgadóttir og garðurinn,Mannlegu Samskiptin
Og þótt veðrið sé með versta móti og viðvaranir eins appelsínugular og þær verða, þá erum við í Mannlega þættinum farin að huga að vorinu sem er rétt handan við hornið. Það er nefnilega kominn tími til að byrja undirbúning fyrir garðyrkjustörf vorsins. Nú er til dæmis gráupplagt að byrja að sá fyrir alls kyns matjurtum og jafnvel sumarblómum. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur hugsar um fátt

Dýr í sögum, Músík í Mývatnssveit og Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur
Við fræddumst um sögur um dýr, íslenskar dýrasögur og hvernig er skrifað um dýr í þeim. Rithöfundurinn Gunnar Theodór Eggertsson beindi sjónum sínum að þessu efni í fyrirlestri á Borgarbókasafninu fyrr í vikunni, þar sem hann sagði frá ríkri sagnahefð Íslendinga um dýr og setti þær í alþjóðlegt samhengi, bæði í tengslum við bókmenntahefðir og einnig dýravernd. Gunnar Theodór kom í þáttinn.
Ske

Áfall, hvað svo? Ný bók eftir Dr.Sigrúnu Sigurðardóttur og Heilsuvaktin
Hver eru helstu einkenni áfalla, hverjar eru afleiðingar og hver eru úrræði út frá fræðum og reynslu. Út er komin bókin Áfall, hvað svo? eftir Dr. Sigrúnu Sigurðardóttur, prófessor við háskólann á Akureyri, og fjallar um áföll, afleiðingar þeirra og úrræði. Bókin byggir á fræðilegum grunni og eigin reynslu höfundar og í henni kynnir Sigrún leiðir til bata. Hver eru helstu einkenni áfalla, hverjar

Nýjar fjármögnunarleiðir í íbúðakaupum, frásögn Sigurður frá 1947 og Auður lesandi vikunnar
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna kom í þáttinn í dag og við skoðuðum með honum nýtilkomnar leiðir sem eru í boði í íbúðarkaupum þar sem til dæmis byggingafyrirtæki, verktakar eða fjármálaþjónustur bjóða fólki upp á að leggja t.d. einungis fram 10% af kaupverði, seljandinn, eða annar aðili, leggja til allt að 20% og svo eru þá 70% húsnæðislán. Neytendasamtökin segja að þessir samningar sé

Ísleifur B. Þórhallsson föstudagsgestur og súpur í matarspjallinu
Ísleifur B. Þórhallsson tónleikahaldari er heldur betur búin að vera mikið í fjölmiðlum undanfarið en hann hélt utan um tvenna stórtónleika Laufeyjar um síðustu helgi fyrir hönd Senu. Ísi í Senu, eins og hann er oftast kallaður, hefur hefur ýmislegt reynt í tónleikahaldi hér á Íslandi undanfarna áratugi en hann byrjaði ungur að spá í kvikmyndir, tónlist og viðburðahald. Hann var föstudagsgestur í

Tannvernd og munnheilsa, samverustundir með gamlar sorgir og meðvirkni og barnauppeldi
Tannverndarvikan 2026 er einmitt þessa vikuna, Góð munnheilsa alla ævi er yfirskrift vikunnar í ár. Þó munnheilsa sé auðvitað mikilvæg á öllum stigum lífsins þá er í ár lögð sérstök áhersla á börn og ungmenni og áhrif nikótíns og koffíns á tennur og munnheilsu. Íris Þórsdóttir, tannlæknir í Vestmannaeyjum og nefndarmaður í Fræðslunefnd Tannlæknafélags Íslands kom í þáttinn í dag og sagði betur frá

Alþýðutónlistarhátíð, fordómar gagnvar fólki með fíkn og áhrif ABS hljóða á kvíða
Reykjavík Folk Festival snýr aftur næstkomandi helgi í Iðnó. Hátíðin er sett upp að alþjóðlegri fyrirmynd þar sem spilagleðin er í forgrunni og órafmögnuð hljóðfæri eru í aðalhlutverki. Fyrsta hátíðin fór fram árið 2010. Forsvarsmaður, hugmyndasmiður, helsti hönnuður og fyrsti framkvæmdastjóri Reykjavik Folk Festival var Ólafur Þórðarson, ástsæli tónlistarmaðurinn í Ríó Tríó og fleiri hljómsveitum











