Home Podcasts Einmitt / Menn eins og við
Einmitt / Menn eins og við

Einmitt / Menn eins og við

Einar Bárðarson 100 Episodes Sep 10, 2026

Einmitt eru samtöl á sunnudagsmorgnum þar sem Einar ræðir við áhugaverða einstaklinga úr öllum áttum um smelli og skelli á lífsins svelli.

Episodes

MENN EINS OG VIÐ #24: Ertu að horfa á það viljandi?
MENN EINS OG VIÐ #24: Ertu að horfa á það viljandi? Sep 10, 2026 01:12:11 Er hægt að mæla alvöru miðaldra lífsgæði – og hvað segir það um mann að horfa viljandi á Married at First Sight? Í 24. þætti Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir lista með 15 atriðum sem eiga að skilgreina alvöru lúxus miðaldra mannsins. Þeir skoða listann, sannreyna hann eftir eigin höfði og komast að því að lífsgæðin felast stundum í mun hversdagslegri hlutum en maður hefði haldið. Um leið
MENN EINS OG VIÐ #23 "Með Dolly síðasta daginn"
MENN EINS OG VIÐ #23 "Með Dolly síðasta daginn" Sep 1, 2026 01:04:14 Baldur var staddur í Nashville fyrir algjöra tilviljun daginn sem Dolly Parton féll frá og endaði á því að leggja blóm við stjörnu hennar. Þaðan liggur leiðin í kúrekahatta, strútsleðursstígvél og manninn sem spurði: „Are you from around here?" Einar og Baldur ræða líka opin sambönd, sameiginleg áhugamál hjóna, hárvörur miðaldra karla og róbótasláttuvélina sem enn neitar að vinna vinnuna sína. Sem
MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal
MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal Aug 21, 2026 01:05:12 MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal Einar og Baldur fara yfir allt það mikilvægasta sem skiptir engu máli: hárfund með tugum nýhærðra manna, deilur Baldurs við slátturóbótinn, Einar fór í þjóðbúningamessu, hvort Menningarnótt sé orðin Menningarkvöld og hvernig tveir lofthræddir menn komast upp á Bolafjall. Svo fer Baldur heim í Búðardal, rifjar upp sumrin í sveitinni, fólkið, ættirnar og gömlu
MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta bara fast á?"
MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta bara fast á?" Aug 12, 2026 01:02:00 MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta fast?" Þá er komið að stóra Sólmyrkvaþættinum en í þessum þætti ræða þeir Einar og Baldur nákvæmlega ekkert um sólmyrkvann, enda nóg annað sem þarf að leysa. Til dæmis muninn á pizzu og pinsu, hvers vegna menn fara í hárígræðslu og verða svo hissa þegar hárið heldur áfram að vaxa – og skilja ekkert í því af hverju þeir þurfa þá allt í einu að fara í klippingu. "Er
Menn eins og við #20 – "Verslunarmannahelgarþátturinn"
Menn eins og við #20 – "Verslunarmannahelgarþátturinn" Jul 31, 2026 01:05:44 Menn eins og við #20 – Verslunarmannahelgarþátturinn Þessi þáttur er helgaður Verslunarmannahelginni og sögum af fræknum ferðalögum, vafasömum ákvörðunum og furðuverkum sem verða helst til þegar fólk er komið í frí. Þar er meðal annars sagan af vininum sem vaknaði með tvær konur sér við hlið, mundi ekki neitt en hafði sem betur fer tekið mynd til öryggis, og rútubílstjóranum sem fór í Sálarbol og
Menn eins og við #19 "Baldur splæsir"
Menn eins og við #19 "Baldur splæsir" Jul 24, 2026 01:19:54 Menn eins og við #19 "Baldur splæsir" Í þessum þætti velta Baldur og Einar fyrir sér feimninni við að rukka vini sína og þessari eilífu spurningu um hver borgar hvað. AUR segir „splitta og rukka" og öpp eins og Splitwise, Tricount og Revolut eiga að hafa leyst vandamálið – en rannsóknir sýna að okkur finnst samt merkilega óþægilegt að rukka vini okkar. En gilda sömu lögmál þegar Baldur hoppar regl
Menn eins og við #18 Á einhver startkappla?
Menn eins og við #18 Á einhver startkappla? Jul 18, 2026 01:14:16 Hvernig kennir maður notkun startkapla í gegnum síma án þess að valda slysi? Baldur reynir það – með misjöfnum árangri. Sláturóbótinn reynir á þolinmæðina og Einar reynir á móti að kenna Baldri hvernig á að velja almennilegt kaffi. Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli. Góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar verða sjaldnast þ
Einmitt special #17 Menn eins og við - Brúnkustigið "Mandarin Flare"
Einmitt special #17 Menn eins og við - Brúnkustigið "Mandarin Flare" Jul 10, 2026 01:22:19 Í nýjasta þætti Menn eins og við taka Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir mikilvægustu spurningar sumarsins. Hvenær verður brúnkan að hinu alræmda Mandarin Flare? Eiga miðaldra karlar að fara í hand- og fótsnyrtingu? Og hvernig gengur 54 ára karlmanni að hætta loksins að naga á sér neglurnar eftir áratuga baráttu? Eins og svo oft áður fara umræðurnar víða, með tilheyrandi vandræðagangi o
Einmitt special #16 Menn eins og við - Karlmennskan og slönguöfund
Einmitt special #16 Menn eins og við - Karlmennskan og slönguöfund Jun 30, 2026 01:08:40 Í þessum þætti fagna Einar og Baldur fyrsta gróðurhúsinu frá BK Hönnun í garði Baldurs – en ný garðslanga stelur senunni og kveikir líklega fyrsta skráða tilfelli garðslönguöfundar á Íslandi. Þeir fara yfir Bergmál, umferðina yfir á Þingvelli, Skinny jeans-sjokkið þegar Just Björn mætti í þeim og af hverju Levi's 501 Loose Fit varð eina rétta svarið. Einnig ber á góma sextugsafmæli Stefáns Hilmars
Einmitt special #15- Menn eins og við -Það verður enginn í skinny jeans á Þingvöllum
Einmitt special #15- Menn eins og við -Það verður enginn í skinny jeans á Þingvöllum Jun 20, 2026 53:55 Í þætti #15 af Menn eins og við velta þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir sér öllum þeim spurningum sem miðaldra menn eru ekkert endilega stoltir af að spyrja upphátt. Bergmál og KALEO á Þingvöllum eru framundan og þeir félagar reyna að komast að því hvað menn eins og þeir eigi eiginlega að vera í, hvort einhver fari enn í skinny jeans, hvað þessir margumtöluðu gullmiðar raunverule
Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu
Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu Jun 12, 2026 01:03:35 Í nýjasta þætti af Menn eins og við fara þeir Baldur Rafn Gylfason og Einar Bárðarson um víðan völl eins og þeim einum er lagið. Báðir misstu þeir af tónleikum Bubba um síðustu helgi og glíma enn við talsvert FOMO vegna þess. Á meðan situr Baldur fastur í framkvæmdum heima hjá sér þar sem garðverktakarnir hafa í raun tekið sumarið hans í gíslingu og hann er farinn að sýna öllum einkennum Stokkhól
Einmitt special #13 - Menn eins og við 13 "Typpi og toppur?"
Einmitt special #13 - Menn eins og við 13 "Typpi og toppur?" Jun 2, 2026 01:03:17 Sumarið er komið og með því gróðurhús, slátturóbótar, veðurvélar, hárígræðslur og endalaus verkefni sem miðaldra menn ætla sér að klára en gera ekki. Baldur og Einar fara um víðan völl í enn einum þættinum af Menn eins og við þar sem tækninýjungar, sumarplön og karlmennskan sjálf fá að fara í gegnum litgreiningu lífsins. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimalei

Recommended