
Sjókastið
Sjókastið er hlaðvarp sem tengir sig við hafið með lifandi hætti, stýrt af Aríel Péturssyni, formanni Sjómannadagsráðs.
Episodes
#28 Anna Kristjánsdóttir - vélstjórinn þjóðþekkti
Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel Pétursson við Önnu Kristjánsdóttur, vélstjóra, sjómann, pistlahöfund og eina þekktustu samfélagsrödd Íslands.Anna segir frá uppvextinum, árunum á sjónum, starfinu sem vélstjóri og fjölskyldulífinu áður en hún steig fram og hóf eitt eftirtektarverðasta persónulega ferðalag sem íslenskt samfélag hefur orðið vitni að.Við ræðum um lífið á sjó, fjölskylduna, inn
#27 Gísli Jóhann Hallsson - yfirhafnsögumaður
Hvað þarf til að taka við stjórninni þegar stærstu skip heims sigla inn á íslenskar hafnir?Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Gísla Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumann Faxaflóahafna, manninn sem hefur það hlutverk að leiða risaskip óhult inn til hafnar.Gísli segir frá leiðinni inn í starfið, ábyrgðinni sem fylgir því að taka ákvarðanir undir mikilli pressu og hvernig það er að stíga um bor
#26 Jón Steinar Árnason - áhættusækni skipstjórinn og frumkvöðullinn
Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Steinar – skipstjóra, útgerðarmann og frumkvöðul sem hefur tekið stóra slagi, unnið mikla sigra en jafnframt tekið dýfur og alltaf lent á fótunum aftur.Hann ólst upp á Seyðisfirði, fór ungur á sjó og mótaðist snemma af hörðum veruleika sjómennskunnar. Leiðin lá á Gullfoss, í stýrimannaskólann og áfram í skipstjórn þar sem ábyrgðin var algjör.En saga
#25 Hörður Kjartansson – húsvörður á daginn, bjargvættur á kvöldin
Hörður Kjartansson er einn af þessum mönnum sem halda samfélaginu gangandi án þess að berja sér á brjóstÍ áratugi starfaði hann sem húsvörður hjá Hrafnistu og Sjómannadagsráði – þar sem hann varð fljótt þekktur sem maðurinn sem vissi allt, gat lagað allt og sagði aldrei nei. Hann náði einstöku sambandi við íbúa hjúkrunarheimilisins og var hvers manns hugljúfi, en á bak við hlýjuna leyndist líka up
#24 Gaui „Smái“ Hafsteinn – stökk í ískaldan sjó til að bjarga flugmanni
Í þessum þætti af Sjókastinu sest Aríel niður með sjómanninum Guðjóni Hafsteini Guðmundssyni, eða Gauja smáa, sem byrjaði aðeins 14 ára gamall til sjós og á að baki nær fjörutíu ára feril á íslenskum togurum.Guðjón segir frá fyrstu ferðinni sem messagutti á Gullfossi, lífinu á síðutogurunum, hvernig menn gátu farið þrisvar á kaf á einni vakt, og þeirri miklu byltingu sem varð þegar skuttogararnir
#23 Frosti Logason - alltaf á móti straumnum
Í þessum þætti ræðir Aríel við Frosta Logason, rokkara, fjölmiðlamann og hlaðvarpsstjórnanda sem hefur orðið ein umdeildasta rödd íslenskrar samfélagsumræðu á síðustu árum.Farið er yfir lífshlaup Frosta; fjölmiðlaferil hans, trúleysið og síðar meir trúrækni, menningardeilur samtímans og sjómennskuna sem Frosti hellti sér út í og togar alltaf í hann.Þetta er opið, persónulegt og krefjandi samtal þa
#22 Sigurður Jökull - talsmaður skemmtiferðaskipa
Skemmtiferðaskipin eru eitt umdeildasta mál íslenskrar ferðaþjónustu. Gullnáma eða ágangur?Í þessum þætti af Sjókastinu ræðum við við Sigurð Jökul, lobbyista skemmtiferðaskipabransans á Íslandi. Við förum yfir stærð greinarinnar, efnahagsleg áhrif, álag á hafnir og samfélög – og spyrjum stóru spurninganna um ábyrgð, umhverfi og siðferði.Hversu miklu skila skemmtiferðaskipin raunverulega til þjóðar
#21 Kári Stefánsson - Óþægilega heiðarleigi vísindamaðurinn
Kári Stefánsson í Sjókastinu – kjaftshögg, húmor og kaldur sannleikurÍ þessum þætti fáum við Kára Stefánsson í eitt beittasta og skemmtilegasta viðtal sem við höfum tekið í Sjókastinu. Við förum vítt og breitt og stingum á ýmis kýli en alltaf með húmorinn og heiðarleikann í forgrunni.Við ræðum meðal annars:af hverju Kári „býður fólki reglulega upp á kjaftshögg“ í umræðunniskoðanir hans á sjávarút
#20 Reynir Traustason - umdeildi blaðamaðurinn af sjónum
Krassandi viðtal við Reyni Traustason í Sjókastinu.Reynir er sjómaður að upplagi sem fór inn í blaðamennsku af fullum þunga og hefur lifað lífi sem minnir fremur á skáldsögu en ferilskrá.Í viðtalinu ræðum við meðal annars:þegar hann smyglaði amfetamíni frá Amsterdamhótanir og átök vegna blaðamennskureynslu hans af lífsbjörg á sjórithöfundastörf og lífsviðhorfhvernig sjómennska mótar karakter og dó
#19 Hanna Katrín atvinnuvegaráðherra
Í þessum þætti tekur Aríel á móti Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Við ræðum persónulega reynslu hennar og förum svo beint í stærstu hitamál sjávarútvegsins:• hækkun veiðigjalda og áhrif þeirra á smærri fyrirtæki• hvort auknar álögur dragi úr fullvinnslu og störfum á Íslandi• fiskeldi – þjóðhagslegur ávinningur strax eða í fjarlægri framtíð?Beinskeyttur og upplýsandi þáttur fyrir þá
#18 Þór Sigfússon - Guðfaðir Sjávarklasans
Þór Sigfússon hefur gegnt lykilhlutverkum í íslensku viðskiptalífi allt frá því að stýra Verzlunarráði og Sjóvá yfir í að stofna og leiða Íslenska sjávarklasann.Í þessum þætti ræðum við líf hans og leiðir, hugmyndina um „100% nýtingu“ sjávarauðlinda og hvernig samstarf, tengslanet og nýsköpun geta umbreytt heilli atvinnugrein.Við förum líka inn í manneskjuna sjálfa. Hvað drífur hann áfram og hvaða
#17 Jón Frímann Eiríksson - skipstjórinn kornungi
Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Frímann Eiríksson, skipstjóra sem hóf feril sinn ungur og hefur alla tíð lifað og andað fyrir sjómennsku. Jón Frímann segir frá fyrstu árum sínum á sjó, ábyrgðinni sem fylgir því að stýra skipi og þeirri sýn sem hann hefur mótað á lífið og tilveruna úti á hafi.Þeir ræða einnig um hvernig breyttir umhverfisþættir hafa áhrif á lífríki sjávar — og hver
#16 Vilhjálmur Birgisson - Baráttumaður af Skaganum
Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel Pétursson við Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness.Vilhjálmur hefur lengi verið einn skýrasti og beinskeyttasti talsmaður launafólks á Íslandi — maður sem hikar ekki við að segja hlutina eins og þeir eru.Í þættinum fer Aríel með Vilhjálmi yfir lífshlaup hans, baráttu fyrir réttlæti á vinnumarkaði og hvernig up
#15 Pétur Jakob Pétursson - svissneski vasahnífur sjávarútvegsins
Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Pétur Jakob Pétursson, fyrrum sjómann og margfróðan sjávarútvegsfræðing sem ólst upp í Grímsey og á að baki langa reynslu á sjó og í sjávarútvegi. Við förum yfir æskuárin á eyjunni, störf hans hjá Samherja og hvernig hann sér íslenskan sjávarútveg í samanburði við erlendan. Einnig ræðum við sóknarfæri í veiðum, vinnslu og tækni, viðkvæm mál eins og auðl
#14 Guðrún Hafsteinsdóttir - Formaður Sjálfstæðisflokksins
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, sest niður í Sjókastinu. Við ræðum persónulega hlið hennar sem sjómannsfrú, fjölskylduna, reynsluna úr atvinnulífinu og starfið í ráðherrastól. En við förum líka í stóru pólitísku málin: klofinn flokk, landamærin, veiðigjöldin, brennivín í búðir og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn getur endurheimt tiltrú almennings
#13 Guðmundur Helgi Þórarinsson - formaður VM
Í þessum þætti af Sjókastinu sest Aríel niður með Guðmundi Helga Þórarinssyni, einum af röddum sjómanna á Íslandi undanfarna áratugi. Við ræðum æskuár hans og fyrstu skref á sjó, baráttuna í kjaramálum, gagnsæi í verðlagningu, auðlindarentumál og lífeyrisréttindi sjómanna.Guðmundur Helgi fer líka yfir helstu áfanga í félagsmálum, áskoranir sem sjómenn hafa staðið frammi fyrir, og framtíð íslensks
#12 Valdimar Víðisson - sjómaður sem varð bæjarstjóri
Í þessum þætti af Sjókastinu hittum við Valdimar Víðisson, bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Hann segir frá uppvexti sínum á Vestfjörðum, árum sínum á sjó og hvernig leiðin lá þaðan í kennslu, skólastjórn og pólitík. Við ræðum áherslur hans í bæjarstjórn, sýn hans á framtíð Hafnarfjarðar og gagnrýna umræðu um íslenska menntakerfið.Kynntu þér manninn á bak við titilinn – sjómaðurinn, skólastjórinn og bæja
#11 Kjartan Páll - strandveiðibaráttumaður og háskóladoktor
Í þessum þætti hittum við Kjartan Pál Sveinsson, formann Félags strandveiðimanna, og föru yfir það hvað strandveiðar eru í raun: lífsviðurværi, táknræn barátta fyrir réttlátari dreifingu auðlindarinnar – eða kerfi óhagkvæm leið til að afla þjóðarbúinu tekna.Við kynnumst Kjartani sem er doktor í félagsfræði, flakkaði heimshorna á milli og lenti í fangelsi í Egyptalandi. Við skyggnumst í hugmyndafræ
#10 Markús Alexandersson - níræður skipstjóri í fullu fjöri
Markús Alexandersson hóf sjómannsferil sinn í Noregi aðeins 18 ára gamall og sigldi meðal annars á olíuskipum milli Asíu og Miðausturlanda á tímum Kóreustríðsins. Í þessum þætti segir hann frá ævintýrum sínum á úthöfunum, lífinu um borð og kraftmikilli ævi á sjó og landi.
#9 Georg Lárusson - forstjóri Landhelgisgæslunnar
Í þessum þætti ræðum við við Georg Kr. Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar. Við kynnumst Georgi á persónulegu nótunum, ræðum við hann um hvort fókus Gæslunnar eigi að vera á leit og björgun eða þá varnarmál. Við heyrum um fjaðrafok í kringum hugmyndir um sölu á flugvél Gæslunnar, olíukaup skipanna í Færeyjum, samspil ríkis og varnarstefnu, gagnrýni á utanríkisstefnu Íslands og framtíð landsins
#8 Eiríkur Ingi Jóhannsson - sjómaðurinn sem fór í forsetaframboð
Eiríkur lifði fjóra tíma í ísköldum sjó eftir að Hallgrímur SI-77 sökk undan ströndum Noregs þar sem þrír fórust. Hann hjólaði einn fimm sinnum kringum Íslands og seinna meir hringinn um Írland – og bauð sig svo fram til forseta Íslands.Í þessum þætti af Sjókastinu sest Eiríkur Ingi Jóhannsson við borðið og segir frá ævintýrum sínum, lífsháska, þögninni eftir storminn og hvers vegna hann ákvað að
#7 Jón Bjarnason - Ráðherrann sem forðaði Íslandi frá inngöngu í ESB?
Í þessum þætti af Sjókastinu ræðir Aríel við Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra – og manninn sem að eigin sögn, og að mati margra, forðaði Íslandi frá því að ganga í Evrópusambandið.Jón rifjar upp hvernig hann leiddi baráttuna fyrir yfirráðum Íslendinga yfir makríl í eigin lögsögu og segir frá því hvernig þessi ákvörðun, ásamt hans eigin röggsemi, hafi orðið vendipunkt
#6 Guðmundur Kristjánsson í Brimi - útgerðarmaðurinn sem syndir á móti straumnum
Í þessum þætti af Sjókastinu hittum við Guðmund Kristjánsson, útgerðarmann og forstjóra Brims. Guðmundur ræðir æskuárin á Rifi, hvernig hann fetaði sín fyrstu skref í íslenskum sjávarútvegi og hvernig hann byggði upp eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins.Við komumst að því hvernig ungi og hlýðni drengurinn frá Rifi breyttist í stórútgerðarmann með sterkar skoðanir og skarpa sýn á framtíð gre
#5 Haukur Hólm - Fréttamaðurinn sem hefur migið í saltan sjó
Í þessum þætti af Sjókastinu hittum við Hauk Hólm, fréttamann sem á ævintýralegt lífshlaup að baki. Haukur hefur lengi verið þekktur fyrir beinskeyttan fréttaflutning og skarpa sýn á íslenskt samfélag en í dag skyggnumst við inn í persónulegri hliðar hans.Við ræðum um líf hans á sjó, bæði í æsku þegar hann réri sem unglingspiltur og síðar þegar hann sigldi skútum á fullorðinsárum. Haukur deilir me
#4 Ágúst Halldórsson - kolólöglegt kajakævintýri óheflaða Eyjamannsins
Í þessum hressilega "skemmtiþætti" ræðir Aríel við Ágúst Halldórsson vélstjóra, fjölskyldumann og hrekkjalóm úr Vestmannaeyjum. Við förum yfir lífið og tilveruna í Eyjum, uppátækin sem Ágúst hefur dundað sér við í gegnum tíðina og ævintýri sem margir myndu hugsa sig tvisvar um áður en þeir létu verða af – eins og þegar hann reri algjörlega óvart á kajak út í Surtsey. Það var mikið hlegið
#3 Árni Sverrisson - Óhræddur forystumaður sjómanna
Í þessum þætti af Sjókastinu ræðum við við Árna Sverrisson, formann Félags skipstjórnarmanna.Við förum yfir:Baráttu sjómanna fyrir betri kjörumMuninn á lífinu á nýjustu togurum og skipum fortíðarHlutverk hvalveiða í íslenskum sjávarútvegiKosti og galla fiskveiðistjórnunarkerfisinsLifandi, opinskátt og fræðandi samtal um fortíð, nútíð og framtíð sjómennsku á Íslandi.Njótið og gerist áskrifendur til
#2 Svandís Svavarsdóttir - Kvenskörungur með stórt hjarta
Í þessum einlæga og opinskáa þætti af Sjókasti ræðir Aríel við Svandísi Svavarsdóttur, fyrrverandi matvælaráðherra með meiru. Hún segir okkur frá sínu lífshlaupi – allt frá uppvexti og mótandi æskuárum til baráttu við persónuleg áföll og álagsmikil ár í pólitík.Við ræðum pólitíska ólgusjóinn, ákvarðanir sem kosta og reynsluna af því að vera í eldlínunni. Sjávarútvegurinn, umhverfismál, heilbrigðis
#1 Kristján Loftsson - Umdeildur, einbeittur en mannlegur?
Í þessum þætti af Sjókasti ræðir Aríel við Kristján Loftsson, forstjóra Hvals hf., um ævi hans og störf, hvalveiðar, togstreitu við stjórnvöld og fjölmiðla, framtíð sjávarútvegsins og hvað knýr hann áfram eftir áratugi í eldlínunni. Hver er maðurinn á bak við fyrirsagnirnar?











