Home Podcasts Popparasögur
Popparasögur

Popparasögur

Vignir Egill Vigfússon 13 Episodes Sep 15, 2026

Umfjöllun um íslenska tónlist þar sem rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi.

Episodes

#29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa
#29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa Sep 15, 2026 5547 Kristjana Stefánsdóttir er ekki bara ein allra besta söngkona og tónlistarkona landsins. Hún er líka söngkennari, raddþjálfari, tónlistarstjóri, höfundur, dansari og svo mætti lengi telja. Hún hefur starfað með ótrúlega breiðum hópi íslensks tónlistarfólks, komið víða við í leikhúsi og síðustu ár hefur hún meira að segja ferðast um heiminn sem dansari. Hér á eftir ræðir hún um fjölbreyttan feril s
#28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti)
#28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti) Sep 8, 2026 2492 Þá er komið að seinni hluta viðtalsins við Valdimar Guðmundsson, einn allra vinsælasta söngvara þjóðarinnar frá því hann kom fyrst fram á sjónarsviðið með hljómsveitinni Valdimar árið 2010. Í fyrri hlutanum var farið yfir hljómsveitina Valdimar, vinsælustu lögin, tónleikaferðalögin, lætin og allt það sem fylgdi fyrstu árum sveitarinnar. Í þessum hluta skyggnumst við hins vegar meira inn í önnur ve
#27 | Valdimar Guðmundsson og lætin eftir að Yfirgefinn sló í gegn (fyrri hluti)
#27 | Valdimar Guðmundsson og lætin eftir að Yfirgefinn sló í gegn (fyrri hluti) Sep 8, 2026 2979 Valdimar Guðmundsson hefur verið einn vinsælasti söngvari íslenskrar tónlistar undanfarin ár. Hvort sem það er með hljómsveitinni Valdimar, LÓN, Memfismafíunni eða öðrum verkefnum hefur rödd hans verið áberandi í íslensku tónlistarlífi. En ferðalagið að þessum tímapunkti hófst löngu áður en Valdimar varð þekktur sem söngvari. Sem ungur strákur lærði hann á básúnu og síðar tónsmíðar, en það var ekk
#26 | Eyjólfur Kristjánsson og sannleikurinn um Nínu og Álfheiði Björk
#26 | Eyjólfur Kristjánsson og sannleikurinn um Nínu og Álfheiði Björk Sep 1, 2026 3920 Eyjólfur Kristjánsson hefur verið gríðarlega áberandi í íslensku tónlistarlífi í rúm fjörutíu ár. Hann er söngvari, gítarleikari, píanóleikari, laga- og textahöfundur og maðurinn á bak við nokkur af þekktustu lögum íslenskrar poppsögu. Hann steig sín fyrstu skref á sviði sem fjórtán ára strákur í Kerlingarfjöllum, fór síðan í vísnabransann með Hálft í hvoru og varð síðar einn af liðsmönnum Bítlavi
#25 | Birgir Örn Steinarsson og lengsta lyftuferð í heimi með Bubba (seinni hluti)
#25 | Birgir Örn Steinarsson og lengsta lyftuferð í heimi með Bubba (seinni hluti) Aug 25, 2026 3983 Í fyrri hluta viðtalsins við Birgi Örn Steinarsson, BiggaMaus, var farið yfir sögu Maus fyrstu tíu ár sveitarinnar. Biggi hélt þá til London og þar biðu hans ótrúleg ævintýri sem innihéldu alþjóðlega pródúsera og óvænta vináttu við meðlim í The Cure. En þrátt fyrir byrjun sem lofaði góðu náði sólóferillinn ekki þeim hæðum sem Biggi hafði vonað. Platan sem hann varði tveimur árum í að gera floppaði
#24 | Birgir Örn Steinarsson og allt um hljómsveitina Maus (fyrri hluti)
#24 | Birgir Örn Steinarsson og allt um hljómsveitina Maus (fyrri hluti) Aug 18, 2026 4160 Birgir Örn Steinarsson, BiggiMaus, hefur lengi verið hluti af íslensku tónlistarlífi. Hann stofnaði hljómsveitina Maus sem ungur maður og fór með vinum sínum í gegnum Músíktilraunir, plötuútgáfur, tónleika og tilraunir erlendis. Hann fór líka í gegnum tímabil þar sem allt virtist ganga upp og svo önnur þar sem hljómsveitin og ferillinn voru nálægt því að gliðna í sundur. Í þessum fyrri hluta viðta
#23 | Birgir Nielsen og trommurnar sem tóku hann alla leið á toppinn
#23 | Birgir Nielsen og trommurnar sem tóku hann alla leið á toppinn Aug 11, 2026 5730 Trommuleikarinn Birgir Nielsen hefur átt langan og viðburðaríkan feril. Hljómsveitirnar hans eru til dæmis fjölmargar og má þar nefna Vini Vors og Blóma, Sælgætisgerðina, Land og syni, Klaufana og nú síðast Gosana frá Vestmannaeyjum. Hér á eftir fer Birgir yfir ferilinn, allt frá því að hann byrjaði að spila á trommur í Breiðholtinu, yfir í velgengnina með Vinum vors og blóma, óvænta innkomu í Lan
#22 | Einar Bárðarson og pælingar með verslunarmannahelgina 2026
#22 | Einar Bárðarson og pælingar með verslunarmannahelgina 2026 Jul 28, 2026 3257 Nú er verslunarmannahelgin 2026 framundan og er vel hægt að færa rök fyrir því að sjaldan eða aldrei hafi verið jafn mikið í boði fyrir fólk sem vill njóta íslenskrar tónlistar þessa helgi. Sem fyrr eru fastir liðir á sínum stað, eins og Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, en nú virðist meira hafa verið lagt í aðrar hátíðir, sérstaklega hvað varðar tónlistardagskrá, og er Ein með öllu á Akureyri besta dæm
#21 | Ágúst Þór Brynjarsson og undirbúningurinn fyrir Brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum
#21 | Ágúst Þór Brynjarsson og undirbúningurinn fyrir Brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum Jul 21, 2026 4524 Einn maður, einn gítar og þúsundir radda sem sameinast á Brekkunni á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Á yfirborðinu virðist Brekkusöngurinn einfaldur en á bak við þessa einu klukkustund á sviðinu liggja margir mánuðir af undirbúningi, greiningu og vinnu. Fyrir Ágúst Þór Brynjarsson, sem mun stýra sínum fyrsta Brekkusöng á Þjóðhátíð í sumar, er þetta ekki aðeins stærsta svið sem íslenskur tónlistarmaður
#20 | Stuðlabandið og leiðin sem enginn sá fyrir
#20 | Stuðlabandið og leiðin sem enginn sá fyrir Jul 14, 2026 3031 Flestar hljómsveitir verða vinsælar eftir að lag frá þeim slær í gegn í útvarpi eða á streymisveitum. En Stuðlabandið fór aðra leið. Í stað þess að byggja ferilinn á útvarpsspilun og vinsælum lögum hefur hljómsveitin skapað sér sterkt orðspor sem ein allra besta sveitaballahljómsveit landsins. Frá fyrstu æfingum í bílskúr í Ölfusi, þar sem unga stráka dreymdi um það að verða eins og Skítamórall, S
#19 | Bræðslan 2026 og endurkoma goðsagnakenndra hljómsveita
#19 | Bræðslan 2026 og endurkoma goðsagnakenndra hljómsveita Jul 7, 2026 3280 Tónlistarhátíðin Bræðslan hefur verið haldin á Borgarfirði eystri síðan árið 2005 og fagnaði 20 ára afmæli á síðasta ári. Í dag er þetta orðin ein stærsta tónlistarhátíð landsins og jafnframt sú sem er erfiðast að fá miða á því aðeins eru tæplega eitt þúsund slíkir seldir á hverja hátíð. Á hátíðinni í ár, sem verður haldin laugardaginn 25. júlí, munu koma fram Ásgeir, Raven, Skandall, Greifarnir,
#18 | Einar Björnsson og 40 ára ferðalag um íslenskan tónlistarbransa, frá sveitaböllum til Kótelettunnar
#18 | Einar Björnsson og 40 ára ferðalag um íslenskan tónlistarbransa, frá sveitaböllum til Kótelettunnar Jun 30, 2026 3677 Einar Björnsson hefur verið viðloðinn íslenskt tónlistarlíf í næstum 40 ár og óhætt að segja að hann hafi unnið með flestu, ef ekki öllu, vinsælasta tónlistarfólki landsins á þessum tíma. Hann var aðeins 17 ára gamall þegar Björgvin Halldórsson heitinn gaf honum tækifæri sem hljóðmaður og þar með var leið hans í lífinu ákveðin. Síðan þá hefur hann stýrt hljóði fyrir flestar af stærstu hljómsveitum

Recommended