Home Podcasts Íþróttanæring með Nutreleat
Íþróttanæring með Nutreleat

Íþróttanæring með Nutreleat

Lilja & Arnar - Sport Nutritionists, M.Sc. 17 Episodes Sep 14, 2026

Hlaðvarp þar sem farið er yfir hin ýmsu málefni í tengslum við íþróttanæringu, íþróttir og þjálfun.

Episodes

24. Tímabilaskipt næring fyrir íþróttafólk
24. Tímabilaskipt næring fyrir íþróttafólk Sep 14, 2026 00:52:32 Í þessum þætti fjöllum við um tímabilaskiptar áherslur í næringu fyrir íþróttafólk, í hverju þær raunverulega felast, hversu breytilegir æfingadagar geta verið með tilliti til orku- og orkuefnaþarfar og hvaða praktísku atriði þarf að hafa í huga.Við förum yfir hvernig hvíldardagar, miðlungserfiðir dagar og erfiðir æfingadagar kalla á ólíka nálgun í næringu, og hvernig hægt er að skipuleggja næring
23. Anton Sveinn McKee, fjórfaldur Ólympíufari í sundi
23. Anton Sveinn McKee, fjórfaldur Ólympíufari í sundi Aug 31, 2026 01:19:32 Í þessum þætti fáum við til okkar hann Anton Svein McKee, fyrrverandi landsliðsmann Íslands í sundi og fjórfaldan Ólympíufara. Anton ræðir af einlægni um sundferilinn, sem spannaði yfir áratug á heimsmælikvarða, og flutninginn til Bandaríkjanna þar sem hann hóf nám og æfingar við Alabama-háskóla árið 2013.Hann segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu úti, þeim áskorunum og tækifærum sem fylgd
22. Heilaskaði í íþróttum & næringartengdar áherslur
22. Heilaskaði í íþróttum & næringartengdar áherslur Aug 17, 2026 00:55:47 Í þessum þætti fjöllum við um heilaskaða í íþróttum, viðfangsefni sem á sannarlega erindi við allt íþróttafólk, foreldra og þjálfara óháð aldri og getustigi.Við förum yfir hvaða áhrif heilaskaði hefur á heilann og starfsemi hans, og hvaða áhrif þessar breytingar geta haft á næringartengdar áherslur í fræðilegu samhengi. Við skoðum einnig hvar þekkingu skortir enn í dag og hvað þarf að rannsaka bet
21. Þegar aginn verður að þráhyggju: Átraskanir í íþróttum
21. Þegar aginn verður að þráhyggju: Átraskanir í íþróttum Aug 3, 2026 00:58:39 Í þessum þætti fjöllum við um átraskanir í íþróttum, efni sem stendur okkur sérstaklega nærri, þar sem Lilja glímdi sjálf við raskaðar fæðuvenjur og óheilbrigt samband við mat á sínum dansferli og er þátturinn því á persónulegri nótunum en oft áður.Við förum yfir hvort ástæðurnar á bakvið átröskun hjá íþróttafólki séu í eðli sínu ólíkar þeim sem liggja að baki átröskunum hjá almenningi. Við förum
20. Kolvetnaneysla & beinheilsa, rannsóknar deep-dive
20. Kolvetnaneysla & beinheilsa, rannsóknar deep-dive Jul 20, 2026 01:02:12 Við tölum oft um kolvetni eingöngu út frá orku og afköstum; eldsneytið sem heldur okkur gangandi á erfiðu eða löngu æfingunum. En það er hlið á kolvetnaneyslu sem fær sjaldnar athygli - tengslin við beinheilsu. Og þar leynist ýmislegt sem kemur á óvart.Í þessum þætti förum við á dýpið í rannsókn sem skoðar akkúrat þetta: Beineyðingu og beinmyndun, markera sem tengjast þessum þáttum og hvað þetta þ
19. Birna Kristín Kristjánsdóttir, landsliðskona í frjálsum: Áskoranir, sigrar & allt þar á milli
19. Birna Kristín Kristjánsdóttir, landsliðskona í frjálsum: Áskoranir, sigrar & allt þar á milli Jul 6, 2026 00:59:54 Í þessum þætti fáum við til okkar Birnu Kristínu Kristjánsdóttur, landsliðskonu í frjálsum íþróttum. Birna ræðir af einlægni um óheilbrigt samband við mat og líkamsímynd, ásamt öðrum áskorunum sem hún hefur mætt á ferlinum.Hún segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu á Ítalíu og sigrinum á Smáþjóðaleikunum, sem hún vann aðeins 22 ára gömul. Þá deilir hún því hvernig henni tókst að færa hugarf
18. Aukið æfingaálag & breyttar áherslur - er næringin að sitja á hakanum?
18. Aukið æfingaálag & breyttar áherslur - er næringin að sitja á hakanum? Jun 22, 2026 00:54:52 Sumarið er loksins komið og með því hellist hreyfigleðin yfirmarga sem ætla heldur betur að rífa sig í gang. En þótt margt sé jákvætt við það er líka að ýmsu að huga í þessu samhengi.Í þessum þætti förum yfir algengustu mistökin sem fólk gerirþegar fólk fer úr því að æfa lítið (eða jafnvel kyrrsetu) og yfir í meira æfingaálag: vanmeta eigið form, elta þá bestu, leita skyndilausna í fæðubótarefnum,
17. Peptíð: Kraftaverk eða markaðshype?
17. Peptíð: Kraftaverk eða markaðshype? Jun 8, 2026 00:47:50 Peptíð eru úti um allt þessa dagana, í snyrtivörum, fæðubótarefnum og á samfélagsmiðlum þar sem þau eru sögð gera ýmislegt - allt frá því að byggja upp vöðva og að því að snúa við öldrun. En hvað eru peptíð í raun og veru, og standast loforðin?Í þessum þætti köfum við ofan í hvað peptíð eru, hvernig þau virka í líkamanum og hvort þau séu örugg til inntöku. Við skoðum þau líka sérstaklega í samheng
16. Hvað gerðist? Síðustu mánuðir, hlaðvarpslægð & appróun
16. Hvað gerðist? Síðustu mánuðir, hlaðvarpslægð & appróun May 25, 2026 00:45:51 Í þessum þætti förum við yfir af hverju við höfum ekki gefið út hlaðvarpsþátt í að verða ár, hvað við erum búin að vera að gera og hvað er framundan í þessari hlaðvarpsseríu. Einnig förum við aðeins yfir appþróun sem er búin að vera í gangi síðustu árin, erfiðleika sem hafa komið upp í ferlinu og eiginleika sem verða til staðar í appinu. Ef þú vilt skrá þig á póstlistann til að vera fyrst/ur til a
15. Gæði rannsókna & pseudoscience
15. Gæði rannsókna & pseudoscience Jun 30, 2025 01:09:04 Í þessum þætti tökum við fyrir gæði rannsókna og pseudoscience. Eins komum við inná mýtur sem hafa orðið til útfrá rangri túlkun á rannsóknum. Við vonum að hann hjálpi þér að öðlast betra vísinda- og næringarlæsi, ásamt því að átta þig betur hvaða upplýsingar um (íþrótta)næringu eru traustvekjandi og hvers konar upplýsingar ber að varast.Hér eru hlekkir á hlutina sem við ræddum í þættinum:Instagra
14. Doping áhættur í íþróttum & leiðir til að minnka líkur á þeim
14. Doping áhættur í íþróttum & leiðir til að minnka líkur á þeim May 12, 2025 00:52:08 Í þessum þætti tökum við fyrir doping áhættur í íþróttum, hvað þær fela í sér og hvaða afleiðingar þær geta haft. Þá ætlum við einnig að fara yfir hvernig hægt sé að minnka líkur á því að fremja slík brot. Við vekjum athygli á því að eftir smá bið erum við loksins búin að opna aftur fyrir skráningar á grunnnámskeiðið okkar ‘Leggðu grunninn að þinni íþróttanæringu’. Næsti hópur fer af stað 11. Júní
13. Algeng & dýrkeypt næringartengd mistök sem við sjáum íþróttafólk gera
13. Algeng & dýrkeypt næringartengd mistök sem við sjáum íþróttafólk gera Apr 3, 2025 00:51:15 Í þessum þætti tökum við fyrir algeng mistök sem við sjáum íþróttafólk gera og hvaða afleiðingar þau geta haft í för með sér. Við fengum líka álit frá sérfræðingum erlendis varðandi mistök sem þau sjá oft í sinni vinnu.Við erum því miður búin að loka fyrir skráningar í einstaklingsmiðaða íþróttanæringarráðgjöf fram til júní og mögulega fram til næsta hausts. EN fyrir þau sem vilja byrja

Recommended