Mjólkurhúsið er podcast þar sem gestir deila sögum sínum af verkefnum, upphafi, áskorunum og því sem gerir ferðalagið þess virði. Samtöl á milli verka.
Episodes

#32 - Berglind og Sævar
Í þættinum í dag eru gestir mínir Berglind og Sævar.
Þau hafa í rúm tuttugu ár byggt upp ferðaþjónustu á Eskifirði, með Mjóeyri og Randulfssjóhús sem stóran hluta af sameiginlegu lífsstarfi. Ég heimsótti þau og við ræddum hvernig fyrstu hugmyndirnar urðu að daglegu lífi, þar sem fjölskylda, heimili og rekstur fléttast saman.
Leiðin hefur ekki alltaf verið greið. Við tölum um að halda áfram þegar á

#31 - Herdís Gunnarsdóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Herdís Magna Gunnarsdóttir.
Herdís ólst upp á Egilsstaðabúinu. Eftir skóla gat hún komið við hjá afa sínum í fjósinu og svo gengið á æfingu eins og aðrir krakkar í bænum. Sextán ára fór hún norður í Menntaskólann á Akureyri og langaði að sjá meira af heiminum. Á þeim tíma var langt frá því sjálfgefið að hún ætti eftir að koma heim og taka við búinu.
Mig langaði að h

#30 - Ragnar Sigurðsson
Í þættinum í dag er gestur minn Ragnar Sigurðsson.
Ragnar flutti austur fyrir um 15 árum og hefur síðan komið víða við í atvinnulífi og samfélagsmálum á Austurlandi. Leiðin hefur legið í gegnum blaðamennsku, veitingarekstur, fyrirtækjarekstur og stjórnmál, en í gegnum allt þetta hefur áhuginn á samfélaginu og framtíð þess verið áberandi.
Við förum yfir hvernig það er að koma inn í nýtt samfélag, t

#29 - Þorbjörg Ásbjörnsdóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Þorbjörg Ásbjörnsdóttir, betur þekkt sem Obba.
Leiðin austur tók á sig óvænta mynd hjá Obbu og fjölskyldu hennar. Síðan þá hefur lífið snúist um búskap, fjölskyldu og ýmis verkefni sem hafa smám saman þróast í eitthvað meira. Obba hefur farið sínar eigin leiðir og ekki alltaf vitað fyrirfram hvert þær myndu liggja.
Í samtalinu kynnumst við líka persónulegri hlið á l

#28 – Einar Birgir Kristjánsson
Í þættinum í dag er gestur minn Einar Birgir Kristjánsson.
Einar kom austur til að prófa eitt ár á togara. Það ár varð að áratugum og leiðin lá úr sjómennsku yfir í fyrirtækjarekstur þar sem fátt hefur verið alveg fyrirsjáanlegt.
Tandraberg hefur tekið á sig ýmsar myndir í gegnum tíðina. Sum verkefni gengu upp, önnur ekki og stundum þurfti einfaldlega að finna eitthvað nýtt að gera. Í dag snýst st

#27 - Hlynur Bragason
Í þættinum í dag er gestur minn Hlynur Bragason.
Hlynur, sem margir þekkja sem Hlyn Sæta, hóf skólaakstur fyrir Fellahrepp haustið 1990. Þá var hann 24 ára með eina Mitsubishi Rosa-rútu og hafði varla hugmynd um hvað þetta eina verkefni ætti eftir að verða stór hluti af lífi hans.
Síðan hefur margt breyst. Rúturnar urðu fleiri, verkefnin stærri og reksturinn teygði sig meðal annars til Reykjavíkur

#26 - Sigurður Aðalsteinsson
Í þættinum í dag er gestur minn Sigurður Aðalsteinsson, eða Siggi, sem margir þekkja sem Veiðimeistarann.
Siggi ólst upp á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal þar sem landið og náttúran voru ekki eitthvað sem maður fór sérstaklega út að skoða — þau voru einfaldlega hluti af hversdeginum. Sú reynsla fylgdi honum síðar inn í hreindýraveiðarnar, þar sem hann var meðal þeirra sem fóru snemma af stað í leiðsögn þ

#25 - Hildur Bergsdóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Hildur Bergsdóttir.
Hildur er félagsráðgjafi að mennt en leiðin hennar í vinnu með fólki hefur sjaldnast haldið sig innan eins ákveðins ramma. Íþróttastarf, félagsráðgjöf, ungmennastarf, alþjóðleg verkefni og útivist hafa smám saman runnið saman — og með tímanum varð náttúran sjálf hluti af því hvernig hún vinnur með fólki.
Í samtalinu komum við meðal annars inn á h

#24 - Jódís Skúladóttir
Í þættinum í dag er gestur minn Jódís Skúladóttir.
Jódís segist hafa gengið með guðfræðinámið í maganum frá því hún var ung kona, en leiðin þangað varð allt önnur en hún hafði kannski séð fyrir sér. Í samtalinu förum við frá trú, kirkju og samfélagi yfir í sögu þar sem ábyrgðin kom mjög snemma og lífið krafðist þess að hún yrði fullorðin áður en hún var í raun tilbúin til þess.
Þetta er meðal anna

#23 - Ásgrímur Ingi
Í þættinum í dag er gestur minn Ásgrímur Ingi.
Ingi hefur farið ýmsar leiðir í gegnum lífið, sumar skipulagðar og aðrar sem urðu einfaldlega til vegna þess að hann sagði já þegar eitthvað áhugavert kom upp. Í samtalinu birtist aftur og aftur þessi vilji til að prófa sig áfram, taka sjálfan sig ekki of hátíðlega og treysta fólkinu í kringum sig.
Það leiðir okkur frá skólaárunum og litlum samfélögum

#22 - Viðar Örn Hafsteinsson
Í þættinum í dag er gestur minn Viðar Hafsteinsson.
Við byrjum samtalið á íþróttahúsinu á Egilsstöðum, fólkinu sem þar er og því sem fær mann til að halda áfram að gefa tíma sinn í sama verkefnið ár eftir ár.
Við ræðum meðal annars:
– hvernig íþróttaáhuginn og þrjóskan fylgdu Viðari frá unga aldri
– hvernig hann neitaði fyrst að taka við meistaraflokki Hattar
– tengslin milli yngri flokka og meist

#21 - Þór Þorfinnsson
Í þættinum í dag er gestur minn Þór Þorfinnsson.
Þór kom austur á Hallormsstað árið 1984, upphaflega aðeins til skamms tíma. En dvölin lengdist, staðurinn varð að heimili og starfið að ævistarfi.
Í samtalinu lítum við bæði til baka og aðeins fram á við — yfir áratugi þar sem skógurinn hefur vaxið, viðhorf til skógræktar breyst og ákvarðanir sem teknar voru fyrir löngu eru fyrst núna orðnar sýnileg












