Home Podcasts Heimsglugginn
Heimsglugginn

Heimsglugginn

RÚV 107 Episodes Sep 17, 2026

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni í þessum hlaðvarpsþætti frá RÚV.

Episodes

Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð
Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð Sep 17, 2026 0:23:32 Það var ýmislegt á dagskrá Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1 í dag. Fyrstu ráðherrar Norður-Írlands, Skotlands og Wales, sem öll hafa sjálfstæði á dagskránni, hittust í Cardiff og samþykktu að „tími Westminster væri senn á enda“. Þá ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson um nýja skýrslu um öfugþróun lýðræðis, kosningar í Rússlandi og Serbíu og stjórnmálast
Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta
Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta Sep 10, 2026 0:22:26 Í Heimsglugga vikunnar var rætt um refsiaðgerðir tólf vestrænna ríkja vegna fyrirætlana um enn auknar byggðir Ísraelsmanna á herteknu palestínsku landi. Þá var rætt um feðgana Harald og Hákon Noregskonunga og þátttöku konungborinna í þjóðmálaumræðu og í lokin var talað um hörkuspennandi kosningabaráttu í Svíþjóð.
Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál
Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál Sep 3, 2026 0:22:32 Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson fóru víða í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Þau ræddu árásir Rússa í Leipzig og fleiri aðgerðir þeirra og möguleg viðbrögð Vesturlanda. Þá ræddu þau mótmæli danskra bænda gegn nýjum lögum sem takmarka áburðarnotkun vegna áhrifa sem köfnunarefni í áburðinum hefur á lífríki hafsins. Sjórinn við strendur Danmerkur e
„Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“
„Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“ Aug 27, 2026 0:32:00 Baldur Þórhallsson prófessor og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræddu breytt öryggisumhverfi frá sjónarhóli smáríkja í Heimsglugganum. Baldur líkir Bandaríkjaforseta við mann sem beitir fjölskyldu sína ofbeldi. Á föstudag verður fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins: Nýjar ógnir, nýjar áherslur: Smáríki o
Hótanir Bandaríkjaforseta og kosningabarátta í Svíþjóð
Hótanir Bandaríkjaforseta og kosningabarátta í Svíþjóð Aug 20, 2026 0:22:20 Bandaríkjaforseti hefur í þessari viku hótað að gera árásir á bandamenn í Óman, fyrirskipað að dregið skuli úr hlut Bandaríkjanna í heræfingum í Suður-Kóreu og kallað einhvern harðsvíraðasta einræðisherra veraldarinnar vin sinn. Þetta bætist ofan á misheppnaða stefnu í Mið-Austurlöndum, árásargjarna tollastefnu, fjandskap við bandamenn, hótanir um yfirtöku Grænlands og allt annað. Trump kvaðst við
Farage tekst á við ruslatunnu
Farage tekst á við ruslatunnu Aug 13, 2026 0:23:22 Aukakosningar eru í Clacton-kjördæminu á Englandi í dag þar sem kosið er til breska þingsins. Efnt var til kosninganna þar sem Nigel Farage leiðtogi Reform, Umbótaflokksins, sagði af sér þingmennsku. Hann býður sig aftur fram en enginn stóru flokkanna býður sig fram því þeir telja afsögn og framboð Farage sýndarmennsku. Því hefur helsti keppinauturinn verið Count Binface, Fötufés greifi. Hann kemu
„Slær frá sér eins og blindur risi“ – Árásir Rússa á Úkraínu og bresk stjórnmál
„Slær frá sér eins og blindur risi“ – Árásir Rússa á Úkraínu og bresk stjórnmál Jul 2, 2026 0:23:28 „Slær frá sér eins og blindur risi,“ sagði Bogi Ágústsson um Vladimír Pútín og árásir Rússa á Úkraínu í hefndarskyni fyrir árásir Úkraínumanna á olíuiðnað Rússa. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu líka við Boga um bresk stjórnmál. Keir Starmer lætur senn af embætti forsætisráðherra og allar líkur eru á að Andy Burnham taki við. Starmer þótti óvenjuröggsamur í fyrirspurnar
„Fylgjendur Trumps eins og sértrúarsöfnuður“
„Fylgjendur Trumps eins og sértrúarsöfnuður“ Jun 25, 2026 0:22:35 Bandarísk stjórnmál voru á dagskrá Heimsgluggans. Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu stöðu og horfur vestra. Sigríður Rut stundaði framhaldsnám í lögfræði í Bandaríkjunum og fylgist afar vel með stjórnmálum þar í landi. Þau ræddu meðal annars deilur innan Repúblikanaflokksins, afleiðingar Íransstríðsins, kosningarnar í nóvember, mögulega vin
„Óheppilegt að vopnahlé sé kennt við Versali“
„Óheppilegt að vopnahlé sé kennt við Versali“ Jun 18, 2026 0:22:57 Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þeir ræddu meðal annars nýlokinn leiðtogafund G7-ríkjanna í Evian í Frakklandi. Þar var eindregnum stuðningi lýst við Úkraínumenn í vörn þeirra gegn innrásarher Rússa. Erlingur telur óheppilegt ef vopnahléssamkomulag Bandaríkjanna og Írans verður kennt við Versali í ljósi þess að friða
„Ég elska verðbólgu…“
„Ég elska verðbólgu…“ Jun 11, 2026 0:23:26 Donald Trump er í klípu, hvorki gengur né rekur í tilraunum hans til að gera varanlegt vopnahlé eða friðarsamning við Írana. Árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran hafa haft í för með sér efnahagsörðugleika um víða veröld. Trump viðhafði afar sérstök ummæli er hann sagðist elska verðbólgu sem er bein afleiðing af hækkun olíuverðs. Þetta var til umræðu í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni
Reiði vegna morðs í Bretlandi og ný stjórn í Danmörku
Reiði vegna morðs í Bretlandi og ný stjórn í Danmörku Jun 4, 2026 0:21:26 Mikil reiði og deilur eru í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu á vettvangi hnífstunguárásar þar sem helsærður ungur námsmaður var handtekinn. Lögreglan trúði yfirlýsingum morðingjans, sem sagðist hafa orðið fyrir kynþáttaníði, og handtók og handjárnaði helsærða námsmanninn sem lést á staðnum. Mette Frederiksen hefur myndað nýja mið-vinstri stjórn í Danmörku. Stjórnin hefur lofað miklum útgjöldum
Bismarck, fjárdráttur í Skotlandi, kosningabarátta í Svíþjóð, Íran og Bandaríkin
Bismarck, fjárdráttur í Skotlandi, kosningabarátta í Svíþjóð, Íran og Bandaríkin May 28, 2026 0:23:24 Í Heimsglugganum heyrðum við í Burkard von Müllenheim-Rechberg sem var hæst settur þeirra sjóliðsforingja sem komust lífs af er orrustuskipinu Bismarck var sökkt 1941. Hann var fyrsti ræðismaður Vestur-Þýskalands á Íslandi eftir stríðið. Peter Murrell, fyrrverandi framkvæmdastjóri Skoska þjóðarflokksins, og eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra Skotlands, hefur viðurkennt fjárdrátt upp á 1

Recommended