Home Podcasts Heimskviður
Heimskviður

Heimskviður

RÚV 257 Episodes Aug 1, 2026

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Episodes

Sumar-Heimskviður - Dýrin stór og smá
Sumar-Heimskviður - Dýrin stór og smá Aug 1, 2026 0:41:13 Þá eru það dýrin stór og smá sem verða í aðalhlutverki hjá okkur í dag. Við fjölluðum um pöndupólitík fyrr á árinu, en það má eiginlega segja að pöndur séu krúttlegustu diplómatarnir. Talið er að pöndur í heiminum séu nú um 2.700. Þar af lifa nærri 2.000 villtar í Kína. Kínverjar hafa í áratugi stundað pöndupólitík, ef ríki vilji fá til sín pöndur þurfi þau að vera í góðum samskiptum við yfirvöld
Sumar-Heimskviður - Sjónvarp
Sumar-Heimskviður - Sjónvarp Jul 25, 2026 0:53:10 Við ætlum að huga að sjónvarpinu í dag, þegar við höldum áfram að rifja upp brot frá liðnum Heimskviðuvetri. Við byrjum á einum vinsælustu og kannski óvæntustu þáttum ársins, Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra framleiðsla á sjónvarpsþáttunum sex borgaði sig svo um munar. Aðalleikararnir tveir eru orðnir stórstjörnur, annar þeirra var gestgjafi í Saturday Night Live síðar í mánuðunum. Þeir voru með
Sumar-Heimskviður - Íþróttir
Sumar-Heimskviður - Íþróttir Jul 18, 2026 0:44:37 Sumarið hefur líklega farið í áhorf á heimsmeistaramótið í fótbolta hjá mörgum og því fannst okkur við hæfi að helga þennan þátt íþróttum. Úrslitaleikurinn er á morgun og þá er hægt að stytta sér stundir með því til dæmis að velta því fyrir sér af hverju Kínverjar eru ekki betri í fótbolta en raun ber vitni. Það er áhugavert að fjögur af fimm fjölmennustu ríkjum heims taka ekki þátt í HM, Indland
Sumar-Heimskviður - Saga Palomu
Sumar-Heimskviður - Saga Palomu Jul 11, 2026 0:47:01 Við höldum áfram með Sumar-Heimskviðurnar og rifjum upp mál frá liðnum vetri og þátturinn í dag er helgaður einu máli. Það er saga Palomu, sem við getum nú líklega ekki kallað annað en harmsögu. Paloma Shemirani, frá suðausturhluta Bretlands, var aðeins 23 ára þegar hún lést úr eitilfrumukrabbameini í fyrrasumar. Þegar hún greindist sjö mánuðum áður, voru taldar 80% líkur á að hún næði fullum bata
Sumar-Heimskviður - Breskur aðall
Sumar-Heimskviður - Breskur aðall Jul 4, 2026 0:47:08 Við höldum áfram að rifja upp valin brot frá liðnum vetri og nú er komið að þeim sem fæðast með silfurskeið í munninum. Þó sum þeirra hafi þurft að skila henni. Það er allavega raunin með fyrra umfjöllunarefnið okkar í dag, manninn sem áður var kallaður Andrés prins, en nú Andrew Mountbatten Windsor eftir að hann var sviptur öllum sínum tiltlum og meðfæddri meðgjöf í lífinu. Anna Lilja Þórisdóttir
Sumar-Heimskviður - Fréttaljósmyndir og framtíð fjölmiðla
Sumar-Heimskviður - Fréttaljósmyndir og framtíð fjölmiðla Jun 27, 2026 0:42:54 World Press Photo fögnuðu 70 ára afmæli í fyrra og samtökin fóru í naflaskoðun í tilefni tímamótana. Við ræddum við Joumana El Zein Khoury, framkvæmdastjóra World Press Photo, fyrr í vetur. Við rifjum upp eftirminnilegustu fréttaljósmyndir sögunnar. Myndir sem breyttu heiminum. Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi
Sumar-Heimskviður - Afmælisþátturinn
Sumar-Heimskviður - Afmælisþátturinn Jun 20, 2026 0:46:50 Við sendum út Heimskviðuþátt númer 250 í mars og héldum upp á það með því að segja örsögur utan úr heimi. Í tilefni dagsins sögðum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en grófum upp hluti sem færri þekkja. Svo kynntumst við fleirum sem ekki eru eins vel þekktir, en ættu kannski að vera það. Við fjölluðum um hundakallinn Lars Lökke Rasmussen, badmintonmeistarann Jens Frederik Nielsen, áhrifavald
Sumar-Heimskviður - Netið
Sumar-Heimskviður - Netið Jun 13, 2026 0:39:28 Umfjallanir dagsins tengjast allar netinu sem við notum allan daginn og oft allt og mikið. Við notum það mikið, @ merkið gamla góða. Við hömrum það inn oft á dag en þekkjum kannski ekki öll söguna. Það var sýningargripur á nýlistasafninu í New York þegar við fjölluðum um það í október í fyrra. Það sem kannski færri vita er að merkið sjálft á sér nokkur þúsund ára sögu og hefur þar af leiðandi ekk
Sumar-Heimskviður - Tækni
Sumar-Heimskviður - Tækni Jun 6, 2026 0:41:24 Hálfleiðara þekkja fæstir en þeir eru engu að síður í lífi okkar allra, nauðsynlegir í öllum helsta tæknibúnaði samtímans. Stærsti hluti þeirra er framleiddur í Taívan. Hvernig tókst Taívan að verða svona framarlega í framleiðslu á þessari tækninauðsyn? Og hvað þýðir þetta fyrir öryggi landsins? Eru meiri líkur á innrás vegna þessarar dýrmætu tæknikunnáttu? Eða virkar hún sem skjöldur? Dagný Huld
260 - Hraðstefnumót í Heimskviðum
260 - Hraðstefnumót í Heimskviðum May 30, 2026 0:57:27 Þetta er síðasti þátturinn fyrir sumarfrí og hann verður af því tilefni með óhefðbundnu sniði. Við ætlum að kynnast fjölda einstaklinga sem eru eða hafa verið áberandi í heimsmálunum og kynnast þeim betur. Þarna eru meðal annars stjórnmálamenn, sjónvarpslæknar, áhrifavaldar, tónlistarmenn og ferfætlingar svo eitthvað sé nefnt.
259 - Afganistan og óumflýjanlegur samruni í Hollywood
259 - Afganistan og óumflýjanlegur samruni í Hollywood May 23, 2026 0:43:41 Það styttist í þau tímamót að fimm ár verði liðin frá því að Afganistan féll í hendur talibana. Reglulega hafa borist fréttir af síversnandi aðstæðum Afgana, sér í lagi stúlkna og kvenna. En hvernig er staðan í Afganistan, nú þegar talibana hafa verið við völd í tæp fimm ár ílandinu? Við kynnum okkur það í þættinum og heyrum líka af samruna tveggja af stærstu kvikmyndaverunum í Hollywood. Eftir up
258 - Styr um Starmer, fjölþáttaógnir og þjóðvegur 66
258 - Styr um Starmer, fjölþáttaógnir og þjóðvegur 66 May 16, 2026 0:45:49 Það er kjördagur og Heimskviður fjalla um samgöngumál, húsnæðismál og þjóðfélagsumræðuna, reyndar með sínu nefi. Allra augu eru á Downingstræti 10 þessa dagana. Þetta hefur verið erfið vika hjá Keir Starmer forsætisráðherra Breta, og margir sem spá því að hann verði ekki langlífur í embætti. Ég ætla aðeins að skoða hvers vegna hann er svona óvinsæll og hvað taki við. Kjördagur í dag og annar d

Recommended