Home Podcasts Marta María býður heim
Marta María býður heim

Marta María býður heim

Marta María Winkel 13 Episodes Sep 14, 2026

Marta María býður heim er hlaðvarp þar sem þáttastjórnandi tekur á móti áhugaverðu fólki sem hefur markað spor. Hver þáttur býður upp á samtöl við gesti sem deila sögum sínum og reynslu. Þátturinn er á íslensku og er framleiddur á Íslandi.

Episodes

27. Anna Margrét Björnsson: Það þótti ekki fínt að berast á
27. Anna Margrét Björnsson: Það þótti ekki fínt að berast á Sep 14, 2026 01:10:52 Anna Margrét Björnsson, blaðamaður og upplýsingafulltrúi í Franska sendiráðinu, hefur lengi haft sterkan og persónulegan fatastíl. Svartur hefur alltaf verið í uppáhaldi, ásamt eyeliner og stöku hlébarðamunstri. Langafi hennar var Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, og í þættinum ræðum við meðal annars hvort það hafi haft einhver áhrif á uppvöxt hennar - eða alls engin. Faðir Önnu Marg
26. Kristín Agnarsdóttir: Allar góðu ákvarðanirnar
26. Kristín Agnarsdóttir: Allar góðu ákvarðanirnar Sep 7, 2026 01:55:44 Kristín Agnarsdóttir grafískur hönnuður býr í Lundúnum. Hún er á kafi inni í framtíðartækni og notaði tæknina til að eignast tvo drengi. Svo notaði hún gervigreindina til þess að skilja við barnsföður sinn. Þegar Kristín sagði föður sínum að hún væri að fara að mæta í þennan þátt þá hló hann upphátt og sagði: „Ætlar þú að ræða allar góðu ákvarðanirnar sem þú hefur tekið á lífsleiðinni" og spurði s
25. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson: Ég er í ástarsambandi með sjálfum mér
25. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson: Ég er í ástarsambandi með sjálfum mér Aug 31, 2026 01:28:12 Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður er félagslegur einfari sem líður best með sjálfum sér. Hann er einn af þessum mönnum sem tekið er eftir og fer alltaf sínar leiðir hvort sem það er í klæðaburði, lífsstíl eða vinnu. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, gaddavírs peysur, fyrirsætuferilinn, Reykholtsmálið og ástina. Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind og Blue Lagoon 
24. Sigurlín Ívarsdóttir: Útrásar árin ógnuðu fjölskyldulífinu
24. Sigurlín Ívarsdóttir: Útrásar árin ógnuðu fjölskyldulífinu Aug 24, 2026 02:12:12 Sigurlín Ívarsdóttir prestur og fjölskylduráðgjafi hefur átt litríka tilveru. Hún var prestur í Bresku biskupakirkjunni í Lundúnum á árunum fyrir hrun þegar eiginmaður hennar starfaði hjá Kaupþingi. Hún segir að útrásárárin hafi einkennst af sukki og ógnað hennar fjölskyldulífi. Í þættinum ræðir Marta María við Sigurlín um lífshlaup hennar, áfallavinnu, tísku og hvað það skipti miklu máli að horfa
23. Hrund Gunnsteinsdóttir: Ég er mjög æst í þetta líf
23. Hrund Gunnsteinsdóttir: Ég er mjög æst í þetta líf Aug 17, 2026 01:29:09 Hrund Gunnsteinsdóttir höfundur InnSæi sagði upp draumastarfinu því hún var ekki að finna sig. Hún segist hafa farið allt of hratt upp metorðastigann sem leiddi til þess að heilsan brást. Við tók uppbyggingarferli sem varð að Prisma-námi sem sló í gegn. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, taugakerfið, InnSæi og hvernig það var að finna ástina í örmum Alfreðs Gíslasonar.   Þátturinn er í
22. Inga Dóra Guðmundsdóttir: Er með plan B ef allt fer á versta veg á Grænlandi
22. Inga Dóra Guðmundsdóttir: Er með plan B ef allt fer á versta veg á Grænlandi Aug 10, 2026 01:44:55 Inga Dóra Guð­munds­dótt­ir framkvæmdastjóri hjá Air Greenland er hálf íslensk og hálf grænlensk. Hún fæddist á Íslandi en var á 13 ári þegar fjölskyldan flutti til Grænlands. Hún segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Qaqortoq og það hafi tekið tíma að aðlagast. Inga Dóra er ekkert blávatn og hefur gengt mörgum áhrifastöðum og tekið virkan þátt í pólitík. Hún var um tíma framkvæmd
21. Valgerður Halldórsdóttir: Stórt hús getur ekki bjargað ástarsamböndum
21. Valgerður Halldórsdóttir: Stórt hús getur ekki bjargað ástarsamböndum Aug 3, 2026 01:16:55 Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi er sérfræðingur í stjúptengslum. Hún fór að hafa áhuga á stjúptengslum þegar hún varð sjálf stjúpmóðir. Hún segir að það þýði ekki neitt að kaupa hús og setja alla undir sama þak og halda að allt muni ganga eins og í sögu. Fólk verði að kynnast og það þýði ekkert að halda bara matarboð. Fólk þurfi að kynnast maður á mann. Tilfinningin að tilhe
20. Vilborg Guðnadóttir: Drifkraftur lífsins er að sjá aðra vaxa
20. Vilborg Guðnadóttir: Drifkraftur lífsins er að sjá aðra vaxa Jul 27, 2026 01:38:56 Vilborg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur var send í fóstur þegar hún var eins og hálfs árs því móður hennar fékk berkla. Hún flutti ekki aftur heim fyrr en hún var á sjöunda ári en þá var landslagið breytt. Hún byrjaði að safna sér fyrir íbúð þegar hún var 9 ára því hún upplifði að það væri engu að treysta. Þetta hafði mótandi áhrif og hefur Vilborg haft það að ævistarfi að hjálpa fjölskyldum í v
19. Kamilla Einarsdóttir: Ég get fyrirgefið allt ef fólk er fyndið
19. Kamilla Einarsdóttir: Ég get fyrirgefið allt ef fólk er fyndið Jul 20, 2026 01:46:22 Rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir skrópaði sig úr út menntaskóla og fór að vinna á Vegas. Þegar hún var tvítug var hún búin að eignast tvö börn og voru blankheit slík að hún át vorrúllur í öll mál. Þegar Kamilla var þrítug bættist þriðja dóttirin í hópinn. Kamilla er einhleyp og sér ekki fyrir sér að fara í samband því umönnunarþörf hennar sé við frostmark. Í þættinum ræðir Kamilla lífshlaup sit
18. Ragna Árnadóttir: Sækir alltaf í erfiðustu verkefnin
18. Ragna Árnadóttir: Sækir alltaf í erfiðustu verkefnin Jul 13, 2026 01:38:30 Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets er þrjóskukind með góðan fatastíl. Hún er lögfræðingur og stjórnsýslunörd sem hefur verið óhrædd við að taka afdrifaríkar ákvarðanir. Hún var dómsmálaráðherra í bankahruninu og upplifði mikinn ótta þegar mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan heimili hennar. Í þættinum ræðir Ragna um ástina sem hún fann á Tunglinu þegar hún hitti manninn sinn, sumarbústaðaeldhú
17. Hildur Gunnlaugsdóttir: Fann ástina á Tinder og sló í gegn sem áhrifavaldur um fertugt
17. Hildur Gunnlaugsdóttir: Fann ástina á Tinder og sló í gegn sem áhrifavaldur um fertugt Jul 6, 2026 01:46:15 Hildur Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri ASK arkitekta er praktískt í hugsun. Fyrir áratug fann hún ástina á Tinder þegar Hreiðar Leví Guðmundsson handboltastjarna súperlækaði hana. Í dag búa þau ásamt börnunum í fallegu raðhúsi í Hvassaleitinu. Hildur varð óvænt áhrifavaldur þegar hún ákvað að deila framkvæmdum á húsinu á Instagram. Hún er þessi fyndna og jákvæða týpa sem lætur fátt stoppa sig.  Þ
16. Sigurjón Sighvatsson: Ég hef aldrei verið númer eitt
16. Sigurjón Sighvatsson: Ég hef aldrei verið númer eitt Jun 29, 2026 02:04:24 Sigurjón Sighvatsson er einn fárra Íslendinga sem á að baki glæstan feril í Hollywood. Hann sló í gegn með Wild at Heart (1990) en hann var búinn að slá í gegn hérlendis þegar hann fór út í nám. Hann var í vinsælum hljómsveitum og lærði bókmenntafræði. Hann er einn af þeim sem er alltaf til í að taka aukahring til að ná meiri árangri. Við ræðum æskuna og hvernig það hafi verið að alast upp hjá ein

Recommended