Home Podcasts Spor
Spor

Spor

RÚV Hlaðvörp 1 Episodes Oct 7, 2026

Spor er íslenskur hlaðvarpsþáttur þar sem Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og leitar í hversdeginum að sannleikskornum um hver við erum í dag. Í þættinum kynnist hún alls konar fólki og spyr tilvistarspurninga um spor í nútíð, fortíð og framtíð – sporin sem við skiljum eftir okkur og sporin sem heimurinn markar í okkur. Fjallað er um tækni, vísindi, umhverfið, samtímann og söguna. Hlusta má á þáttinn í hlaðvarpi RÚV.

Episodes

Allt sem ég lærði á því að vinna fyrir algóriþmann
Allt sem ég lærði á því að vinna fyrir algóriþmann Oct 7, 2026 55:51 Hvernig er að vinna í gigghagkerfinu, harkhagkerfinu, nú eða úllen dúllen doff hagkerfinu? Hagkerfi þar sem ófyrirsjáanlegur algóriþmi ræður því hver fær verkefni og hver ekki? Getur algóriþmi verið sanngjarn? Hvað getur talist vinna og hvað er bara hangs? Í þættinum kynnumst við veruleika Wolt-sendla á Íslandi, sérstaklega honum Mani sem rúntar með okkur um götur Reykjavíkur, segir okkur frá star
Verði þinn greiðsluvilji
Verði þinn greiðsluvilji Sep 23, 2026 57:14 Hvaða þýðingu hefur það fyrir neytendur og fyrirtæki að verð séu orðin sérsniðin? Hvers eiga unglingar og fólk í viðskiptaferðum að gjalda? Í þættinum skoðum við heim verðlagningar sem er að breytast hratt. Það er ekki lengur eitt verð, það eru mörg verð. Viðmælendur í þættinum: Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum.Valdimar Sigurðsson, prófessor vi
Óreiðan sem gerir okkur brjáluð
Óreiðan sem gerir okkur brjáluð Sep 16, 2026 55:27 Hvers vegna fær sumt fólk kikk út úr því að losa sig við mörg hundruð hluti á einu bretti á meðan aðrir upplifa djúpa vanlíðan við að henda einum hlut?Umsýslan með hlutunum sem við eigum er orðin stór partur af annarri og þriðju vaktinni, markaðsöflin eru búin að kveikja á perunni og það fjölgar í hópi skipuleggjara sem bjóðast til að hjálpa fólki við að ráða fram úr draslinu á heimili sínu.Í þætt
Þegar búslóðin fuðrar upp
Þegar búslóðin fuðrar upp Sep 1, 2026 51:38 Hvers virði eru efnislegir hlutir? Afhjúpar það að missa alla búslóðina á einu bretti eitthvað um þýðinguna sem hlutir hafa fyrir okkur? Nær maður sér af slíku? Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk sem missti stóran hluta veraldlegra eigna sinna í stórbrunanum í Geymslum árið 2018 í þeim tilgangi að skilja betur mannlegt eðli og mikilvægi hlutanna.

Recommended