Nýtt og ferskt hlaðvarp þar sem spjallað er um allt á milli himins og jarðar. Meðal annars er rætt um skólalífið og ýmislegt sem tengist því. Þáttarstjórnandinn Helgi Bjarna leiðir samtalið á afslappaðan hátt. Hlaðvarpið hentar þeim sem vilja hlusta á létt og skemmtileg samtöl.
Episodes

#13 - MK & MS
Aðalmál vikunnar er auðvitað samstarf (og beef) MK og MS og strákarnir vara ítarlega ofan í það. Reglulegir liðir á sínum stað og strákarnir henda í símaat sem fer út um þúfur. Njótið, við minnum á Jólaspecialinn...

#12 - Bingó og jólaþema
Strákarnir hemntu í hefðbundinn 1 on 1 þátt þar sem farið var yfir hin venjulegu mál, Bingó Hangsnefndar MK tekið fyrir og upptökur á tækinu settar í gang.

#11 - Beint í bílinn!
Strákarnir neyddust til að taka upp þátt í bílnum vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Þeir kíktu í IKEA en hljóðnemarnir voru með vesen, það verður lagað í framtíðatþáttum!

#10 - Faglegur þáttur, símaöt og fleira ft. Einar
Einar með Hríma sorbert kíkti við og útkoman var einn faglegasti þáttur í sögu Steinsteypunnar. Juan mætti óvænt í lokin.

#9 - Ógeðisdrykkur, klipping, og ABS-kerfi.
Strákarnir tóku vetrarfrí special og hentu sér í mynd. Það gekk á ýmsu og þeir svöruðu meðal annars áskorun og tóku ógeðisdrykk.

#8 - Óþægilegar hraðaspurningar og spjall ft. Bjarni busi
Bjarni busabjáni fékk að koma í þáttinn eftir að grátbiðja í 3 vikur. Hann fór hins vegar á kostum en var mjög óþægilegur þegar hann var þvingaður í að svara alls kyns óþægilegum spurningum. Juan Diego kíkti við í lok þáttar og við fórum yfir nokkur eftirminnileg augnablik úr grunnskólanum.

#7 - Dr. Gunni, stíflaður rass & bónusliður
Dr. Gunni kom í spjall sem heppnaðist skikkanlega, strákarnir gerðu símaat og komu með glænýjan bónuslið.

#6 - Stútfullur þáttur ft. Jóhann & Alex Máni
Pakkaður þáttur af alls kyns dagskráarliðum. Jóhann Björgvin og Alex Máni kíktu við, báðir afreksíþróttarmenn sem hafa búið og spilað erlendis. Þeir mættu með liði sjálfir og mikið stuð út allan þáttinn.

#5 - Fyrsti þáttur í mynd! Algjört rugl og N1
Strákarnir lentu í algjöru basli og þurftu að grípa til rótækra aðgerða og skelltu sér beint í bílinn! Þeir keyra um bæinn og spinna upp besta þátt Steinsteypunnar til þessa. Vonandi njótið þið! (Hljóðið og myndin eru aðeins bjöguð, þið verðið að afsaka það í bili, erum að læra á þetta)

AUKAÞÁTTUR - Sálin hans Jóns míns
Strákarnir ræða um ástsælustu hljómsveit Íslands, Sálina hans Jóns míns, fara yfir uppáhalds plötur, lög, söguna og skjóta inn skemmtilegum staðreyndum inn á milli.

#4 - Mjög margir liðir og allt fer í rugl & Svínki mætir
Strákarnir voru bara tveir í dag en þátturinn var stútfullur af alls kyns rugli og fíflagangi. Margir nýir liðir prufaðir og Svínki mætir á svæðið í lok þáttar.

#3 - Vafasamt "Hvort myndirðu frekar" og nýr trailer ft. Mikko cutz
Gabriel Mikko er meðstjórnandi og er beðinn um að koma með dagskráarlið en ekkert gat undirbúið strákana undir það sem kom. Spjallað um dagleg mál og nýr þáttur og liður frumsýndur.












