Uppgjörið er íslenskur podcast þáttur sem fjallar um viðskiptafréttir og verðbréfamarkað. Þættirnir eru samstarfsverkefni AKKUR og Hluthafans, og farið er yfir nýjustu þróun á mörkuðum, fyrirtækjafréttir og greiningar. Þátturinn er ætlaður þeim sem vilja fylgjast með íslenskum og erlendum fjármálamörkuðum.
Episodes

#5 - Útboð Bláa Lónsins / Travelshift
Í Uppgjörinu er nýafstaðið útboð Bláa Lónsiins gert upp auk þess sem rætt er um nýlegar fréttir af Travelshift.Uppgjörið, hlaðvarp um viðskiptafréttir og verðbréfamarkaði, er samstarfsverkefni AKKUR og Hluthafans.

#4 - Uppgjör þriðja ársfjórðungs / Fjárfesting í gagnaverum
Í Uppgjörinu er farið yfir uppgjör nokkurra fyrirtækja á þriðja ársfjórðungi auk þess farið yfir skuldbindingar stærstu viðskiptavina gagnaveranna.Uppgjörið, hlaðvarp um viðskiptafréttir og verðbréfamarkaði, er samstarfsverkefni AKKUR og Hluthafans.

#3 - Arðbærustu fyrirtæki landsins / Bankaskattur / Verkfall / NOVA / Hlutabréfamarkaðurinn
Í Uppgjörinu er rætt við Ellert Hlöðversson, fjármálastjóra Íslandsbanka, um fyrirhugaða hækkun á bankaskatti, samkeppnishæfni bankanna og af hverju vaxtamunur á Íslandi er hærri en á Norðurlöndunum.Einnig er fjallað um:– Er fjármálaráðherra að gleyma því að hækkun bankaskatts rýrir arðgreiðslugetu Landsbankans?– Verkfall flugvirkja hjá Icelandair– Arðbærustu fyrirtæki landsins– Uppfært verðmat á

#2 - Fjárlögin / Meðbyr fyrir Icelandair / Vanmetinn Skagi / Replit og 1939 Games
Í Uppgjörinu er rætt við Agnar Tómas Möller, sagnfræðing og skuldabréfafjárfesti, um fjárlögin og skuldabréfamarkaði. Einnig er fjallað um: – Kaup tæknirisans Replit á íslenska sprotanum Test 13 – Jákvæða þróun í tekjumyndun Icelandair – Vaxtarsprotann 1939 Games, sem gæti margfaldað umsvifin á næstu 12-18 mánuðum – Breytingar á hluthafalistum sem sýna m.a. nýja erlenda stöðu í Högum – Verðmat AK

#1 - Uppgjörið
Þáttur 1 af Uppgjörinu, hlaðvarpi um viðskiptafréttir og verðbréfamarkaði












