
Þvottahúsið og Geimsýran
Þvottahúsið og Geimsýran er íslensk podcastþáttaröð þar sem fjallað er um UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins. Þátturinn snertir einnig andleg og heimspekileg málefni. Geimsýran er í boði Þvottahússins og flæðir stjórnlaust um allt sem viðkemur dulúðinni.
Episodes

Mannlega hornið, COVID og fjöldageðrofið
Send us Fan MailÍ mannlega horninu mætti ég kröfum hlustanda Geimsýrunar og talaði örlítið um viðbrögð mín að aðgerðir hvað varðar COVID, fyrir öllum þessum árum síðan. Super merkilegt að fara til baka og skoða hvernig maður brást við, hvernig maður hegðaði sér og þá kannski í samræmi við hvernig maður hefði mögulega í dag hegðað sér eða brugðist við á anna hátt. patreon.com/geimsyran

Mannlega hornið er kallinn stendur á brúninni
Send us Fan MailÞetta er svo týpískt og þið tengið kannski við það. Þetta eirðarleysi sem fær mann til að hlaupa um eins og apaköttur. Þegar lífið er svo skemmtilegt að maður tímir varla að sofa. Í kvöld fór ég í gusu eins og ég geri vikulega og enn og aftur fékk ég hugljómun um að slaka á. Skilaboð sem ég er að fá til mín reglulega þessa dagana og hvað getur maður gert? Hvernig getur maður tamið

Mannlega hornið var tekið í morgun
Send us Fan MailGeimsýran er komin á Patreon. patreon.com/geimsyran Í morgun henti ég í mannlega hornið. Ég fór á per´sonulegar nótur. Í þessum þætti var gerð tilraun. Ég óð í míkróphóninn áður en ég talaði við sálu og enn í hálfgerðu draumaástandi. Ég fór á svið sem ég hef aldrei farið áður. Persónuleg mál sem ég finn tilbúin til að ræða um loksins. Hvað ætlum við lengi að burðast með allt þetta

Project Blue Beam. Sýndar-áras úr geimnum
Send us Fan MailÍ þessum þætti af Geimsýrunni förum við inn í eina af furðulegustu og umdeildustu hugmyndum UFO-sögunnar — Project Blue Beam.Við byrjum hjá Serge Monast árið 1994 og förum í gegnum kenninguna um falskar fornleifauppgötvanir, hologram á himninum, skilaboð inn í huga fólks og að lokum sviðsetta „geimveruárás“ sem gæti sameinað mannkynið gegn sameiginlegum óvini.En svo förum við lengr

Patreon þættirnir eru byrjaði að rúlla inn
Send us Fan MailEinn brjálaður þáttur komin á Patreon og tveir á leiðinni inn á næstu dögum. Jake Barber og Skywatchers, DMT og Ayahuascha og síðasti þáttur sem kemur út næstu helgi, Grænu geislarnir yfir Michigan... Full Blown langir topic þættir sem þið viljið ekki missa af. 1.500,- á mánuði fyrir 4-8 langa topic þætti um UFO, allskonar andlegt og heimspekilegt og svo má ekki gleyma mannlega hor

Það er rosaleg stemning á kallinum og Geimsýran að hluta á leið í áskrift
Send us Fan MailÞað er rosaleg stemmning á kallinum. Já sem meinti nei tapaði fyrir þeim sem sögðu nei en meintu já. Geimsýran á leið í Patreon áskrift sem þýðir 4-8 topicþættir á mánuði á meðan probono verða stuttir teaserþættir og fleirra skemmtilegt. Lock in á http://patreon.com/geimsyran

ALIEN fundur í Mosvku!!
Send us Fan MailTalið er öruggt að John Ratcliffe, forstjóri leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), hafi verið um borð í bandarísku herflutningavélinni sem óvænt lenti á Vnukovo-flugvelli í Moskvu í morgun.Heimildir CBS herma að hann sé í borginni til að eiga fundi við ráðamenn.Hvað er í gangi? Eru geimverurnar að taka stjórnina og er ætlunarverk þeirra að sameina mannkyn í frið og ást á kostnað ofbel

Edrúkallinn á leið annað hugvíkkandi ferðalag
Send us Fan MailÉg held áfram á persónulegum nótum. Hvernig hefur edrúmennska mín samræmst aðferðum sem þykja jaðarkenndar? Hvernig hef ég náð að brjóta mér leið úr ánauð alkóhólisma og stjórnleysi? Stórar spurningar sem hafa fengið að marinerast í mér í langan tíma. Hér er þessu deilt með ykkur, vonandi geta einhverjir tekið þetta til sín.

Mannlegi þátturinn, þar sem segl eru dregin niður
Send us Fan MailÍ Geimsýrunni í kvöld fer ég í mannlega þáttinn og dreg niður segl. Ég fer ekki frá borði en ákveðið hefur verið að setja vissa hluti í samhengi. Þykir vænt um ykkur og er þakklátur fyrir þau ykkar sem hafið hlustað og horft á Geimsýruna

Er Cern búið að f%$#/a tímalínunni okkar upp??
Send us Fan MailHvað gerist þegar við tökum örsmáar agnir, hraðum þeim upp í næstum ljóshraða og látum þær skella saman? Í þessum þætti förum við inn í hinn risastóra Stóra hraðalinn í CERN, 27 kílómetra langan hring djúpt undir jörðu á landamærum Sviss og Frakklands.Við skoðum hvernig vísindamenn nota þessa mögnuðu vél til að rannsaka grundvallarefni alheimsins – allt frá Higgs-bósóninu og andefn

Hvar liggja gildin þín??
Send us Fan MailÍ þessum þætti fer ég troðnar slóðir og jaðra við að verða pólitískur. Ég er að tala um gildin okkar. Hver eru þau og hvernig erum við að taka ákvarðanir í lífi okkar? Erum við mögulega búin að missa marks og erum fyrir vikið týnd í ánauð sektarkenndar og skömm? Það er leið til baka úr þessu skítafeni en það er iðrun og eftirgjöf. Það er aldrei of seint að vakna til vitundar og lag

Geimsýran hefur yfirtekið Þvottahúsið
Send us Fan MailÍ þessum þætti fer ég yfir nýjustu vendingar í UFO málum og fer yfir hvernig meginstraumurinn er farin að bjóða álhöttunum velkomin í góð partý.

Frjálshyggjumaðurinn Þórarinn Hjartarson
Send us Fan MailNýjasti gestur alkasts Þvottahússins er Þórarinn Hjartarson stjórnsýslufræðingur, pistlahöfundur, boxþjálfari og þáttarstjórnandi hlaðvarpsins Ein Pæling. Þórarinn hefur í mörg ár þrátt fyrir ungan aldur verið álitin áberandi rödd frjálshyggju í íslenskri samfélagsumræðu. Hann hefur tjáð sig á opinskáan hátt í málum sem snúa að feminisima, útlendingamálum, transmálum og síðustu vik

Einar Mikael er töframaður
Send us Fan MailNýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er engin annar en töframaður Íslands, húsasmiðurinn og þrívíddarprentunar meistarinn Einar Mikael. Einar sem landsþekktur er fyrir töfrabrögð hefur síðustu misseri hefur Einar verið önnum kafin við að þrívíddarprenta hefðbundinn hús, kirkjur og alla vita landsins. Þrívíddar ævintýrið hófst þegar hann var beðin um að prenta kirkju Patreksfjarðar

Flosi Þorgeirs og tómið
Send us Fan MailNýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er engin annar en sagnfræðingurinn og refsari strengjanna Flosi Þorgeirsson. Flosi hefur í áratugi verið gítarleikari einnar vinsælustu rokkhljómsveitar Íslands, HAM. Þar að auki er hann annar tveggja þáttastjórnenda í einu af vinsælustu hlaðvörðum landsins, Draugum fortíðar.

Jósa Goodlife; Femina og masculus stinga saman nefjum
Send us Fan MailNýjasti gestur Þvottahússins er Jósa Goodlife sem er íslenskur orkuheilari búsett í Kaliforníu BNA. Jósa sem Gunnar kynntist fyrir um 20 árum síðan þegar þau bæði voru búsett í Kaupmannahöfn hefur fengið að ganga í gegnum eld og brennistein og mætt öllu því mótvægi sem lífið hefur boðið henni upp á með opnu hjarta. Þessi eiginleiki hennar hvað varðar opið hjarta og skýra úrvinnslu

Sálnaflakk og UFO með Gísla Guðmunds
Send us Fan MailNýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er tölvunarfræðingurinn Gísli Guðmundsson. Gísli sem einnig situr í stjórn Sálarrannsóknarfélagsins hefur áhugaverða sögu að segja hvað varðar andleg ferðalög og sýnir tengt UFO. Frá því að hann var drengur hefur hann haft aðgengi að veru eða innri rödd sem gefur honum leiðbeiningar um hvernig hann skuli haga lífi sínu. Svolítið svipað og skrifa

Galactic Federation og gúrúrar með fjarstýrða USB buttplugs
Send us Fan MailÍ þessum þætti fóru strákarnir yfir kenningar um Galactic Federation og Schumann Resonans. Enn ein af áhugaverðustu kenningunum sem tengjast UFO og geimverum eru hugmyndir um Galactic Federation, eða bandalag vetrarbrautarinnar, sem samanstendur af verum frá mörgum mismunandi plánetum og vetrarbrautum. Kenningin um þessi bandalög hefur verið viðurkennd af ákveðnum hópum innan andle

Birkir Fjalar rokkar á vinstrinu
Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins er engin annar en metalhausinn, veganinn, feministinn, samgönguhjólarinn og faðirinn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhugamaður um rokktónlist og segir hann í viðtalinu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörðinni í gegnum hina ýmsu öldudali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og hlaðva

Íslenskt UFO og nýjasti uppljóstrarinn andsetin feminískri orku
Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir félagarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í áframhaldandi umræðu um fljúgandi furðuhluti. Í þættinum fóru strákarnir yfir nokkrar nýjar frásagnir íslendinga sem þeim hefur borist. Flestir kusu að segja sína sögu í nafnleynd og talsvert myndefni fylgdu frásögnunum. það sem vakti mestu athyglina voru myndbönd sem tekin voru í Njar

UFO’ið heldur áfram
Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir niður álhattarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í framhaldi af hinum stóra UFO þætti sem kom út í síðustu viku. Í kjölfar síðasta þáttar sem 2% þjóðarinnar hlustuðu og horfðu á höfðu margir samband við þáttastjórnendur Alkasts Þvottahússins með frásagnir og teikningar sem lýsa allskonar undarlegu. Engin þessara einstaklinga sag

Stóri UFO þátturinn. Mögulegt upphaf af endalokunum
Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir niður kumpánarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson og ræddu í þaula málin sem snúa að gríðarlegri aukningu meintra tilfella fljúgandi furðuhluta. Síðan í lok nóvember á síðasta ári hefur tilfellum fjölgað alveg gríðarlega þar sem venjulegt fólk segist verða vitni af fljúgandi furðuhlutum eða UFO. Ferlið sem virtist hefjast með du

Sölvi Tryggva og heiðarleikinn
Send us Fan MailSölvi Tryggvason er nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkasti Þvottahússins. Í viðtalinu við Sölva fóru drengirnir um víðan völl og má segja að samtalið hafi að miklu leiti snúist um heiðarleika og það hugrekki sem til þess þarf. Sölvi er búin að vera lengi viðriðinn fjölmiðlun og þegar hann hóf feril sinn í hlaðvarpi hafði hann langan og farsælan feril að baki sem einn af vinsælu

Ívar Örn, aka, Dr Mister hefur fundið Jesús
Send us Fan MailNýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er Ívar Örn Katrínarson sem gekk einnig undir listamannsnafninu Dr. Mister í dúetnum Dr. Mister & Mr. Handsome hér um árið. Ívar hefur vakið talsverða eftirtekt síðustu mánuði fyrir útgáfu bókar, Ég ætla að djamma þar til ég drepst, þar sem hann fer yfir söguna sína í heljargreipum fíkniefna, glæpa og ofbeldis. Eftir að hafa framið rán í 10

Sigmar og Sandra eru núdistar
Send us Fan MailNýjustu gestir Alkasts Þvottahússins eru bændurnir og núdistarnir Sigmar Örn Aðalsteinsson og Sandra Dís Sigurðardóttir. Fyrir um tíu árum síðan fóru þau nakin í heita pottin í sumarbústaðarferð með vinum og upp frá því var ekki aftur snúið. Smátt og smátt þróaðist það hjá þeim hjónum í að í dag skilgreina þau sig sem núdista og tilheyra sífellt stækkandi hóp manna og kvenna sem hi

Alrún Ösp, aka, VARGYNJA
Send us Fan MailNýjasti gestur Alkasts Þvottahúsins er engin önnur en BDSM drottningin og bindarinn Alrún Ösp. Alrún Ösp, sem gengur undir nafninu Vargynja, fór yfir í viðtalinu hvernig hún fór að finna fyrir hvötum sem snúa að sársauka og valdbeitingu þegar hún var unglingur. Til fróðleiks má nefna að BDSM er skammstöfun sem stendur fyrir bindingar, drottnun og undirgefni; síðan er sadó masókismi

Ívar á gröfunni er ekki vóg þrátt fyrir mikla árvekni
Send us Fan MailNýjasti gesturinn í Alkast Þvottahússins er engin annar en Ívar Pétur Hannesson, aka Dj Ívar eða Ívar á gröfunni.Ívar hefur komið víða við og rak meðal annars hin vinsæla og umdeilda næturklúbb Diablo hér í kringum aldarmótin. Ívar var virkur plötusnúður hér á árum áður og spilaði að eigin sögn frekar svona comercial danstónlist og í því samhengi segir hann á þeim tíma fundið fyrir

Ingibergur Þorkelsson kennir hugræna endurforritun
Send us Fan MailNýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er engin annar en Ingibergur Þorkelsson dáleiðandi og skólastjóri dáleiðsluskóla Íslands.Ingibergur flutti til Edinburgh um síðustu aldamót með konu sinni og fljótlega eftir hóf hann nám í dáleiðslu. Mörgum árum seinna flutti Ingibergur svo aftur til Íslands og þá staðráðin í að halda menntun sinni áfram sem og að kenna öðrum dáleiðslu. Í kjölfa

Arnór Sveinsson er algjör heilsugúrú
Send us Fan MailNýjasti gestur Gunnar og Arnórs í Alkasti Þvottahússins er engin annar en meistarinn Arnór Sveinsson heilsu kennari. Arnór er búin að nema hin og þessi fræði tengd kulda, öndun, kakóathöfnum og hljóð eða óm heilun. Í viðtalinu var farið um víðan völl en þar sem Arnór hefur komið í þáttinn áður þar sem hann fór yfir sögu sína var stefnan frekar tekin á tæknilegu hlið þessara iðkan

Hafsteinn Ægir elskar að hjóla
Send us Fan MailNýjast gestur þeirra Arnórs og Gunnars í Alkastinu er Hafsteinn Ægir Geirsson. Hafsteinn hefur um margra árabil verið einn af fremstu hjólreiðaköppum Íslands þar sem ferilsskrá hans samanstendur af fjölmörgum íslandmeistaratitlum í ólíkum greinum hjólreiða; götuhjólreiðum, fjallahjólum og malarhjólum (gravel) svo eitthvað sé nefnt.

Sævar Kolandavelu, aka Poetrix er liðast í sundur
Send us Fan MailALKASTIÐ FÓR Í HEIMAVITJUN Í ÞETTA SKIPTIÐ OG ÞVÍ ERU HLJÓMGÆÐI EKKI EINS OG Á AÐ VENJAST.Nýjasti gestur Alkastsins sem er í boði Þvottahús-samsteypunar er engin annar en Sævar Kolanduvelu sem einnig gengur undir listamannsnafninu Poetrix. Þetta viðtal krafðist heimavitjunar í fyrsta skiptið í sögu Þvottahússins því Sævar er stórslasaður og á því erfitt með samgöngur. Því fór viðta

Valgerður Guðsteins er pro-fighter með byssur
Send us Fan MailNýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu sem er í boði Þvottahússamsteypunar er engin önnur en Valgerður Guðsteinsdóttir; eina atvinnukonan í hnefaleikum á Íslandi í dag. Valgerður, sem hefur keppt sem atvinnumanneskja í hnefaleikum í nokkur ár, er að horfa fram að á sinn stærsta bardaga fram að þessu við hina 32 ára gömlu Jordan Dobie. Dobie sem er í 19 sæti á heimslistanum yf

Sprengju Kata brýtur heilann
Send us Fan MailNýjasti gestur Gunnars og Arnórs í Alkastinu sem er í boði Þvottahússins er engin annar en meistarinn Katrín Lilja Sigurðardóttir. Katrín sem er betur þekkt undir nafninu Sprengju Kata starfar dags daglega sem aðjúnkt í efnafræðikennari við Háskóla Íslands. Auk þess er hún mjög virk í allskonar íþróttum eins og hlaupi, hjólreiðum og sundi. Katrín eignaðist sitt fyrsta barn aðeins s

Jón Arnar Magnússon tugþrautarkappi er rosalegur
Send us Fan MailNýjasti gestur Gunnars og Arnórs í Alkastsinu er enginn annar er Jón Arnar Magnússon. Jón Arnar er flestum landsmönnum kunnugur fyrir frækna frammistöðu á frjálsíþróttavellinum þar sem hann átti farsælan íþróttaferil sem spannaði yfir hartnær 20 ár. Á afrekaskránni hjá honum eru verðlaun á Íslands-, Norðurlanda-, Evrópu- og Heimsmeistaramótum, auk þess að hafa verið kosinn íþrótta

Kolbrún Karlsdóttir ferðalangur er nýkomin úr Amazon
Send us Fan MailNýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu er ferðfrumuðurinn Kolbrún Karlsdóttir. Kolla eins og hún er kölluð er þó ekki bara ferðafrumuður í hefðbundnum skilning heldur er einnig um hugvíkkandi ferðalög að ræða. Kolla sem kynntist Ayahuasca fyrir mörgum árum síðan hefur tekið algjöra stefnubreytingu í lífi sínu síðan að hún fór í sína fyrstu athöfn. Síðan þá hefur hún farið í y

Snorri Óttarson er fimmtándi forsetaframbjóðandinn
Send us Fan MailNýjasti gestur Alkastsins er forsetaframbjóðandi númer 15 af 18 að svo stöddu; Snorri Óttarsson. Snorri er fæddur og uppalinn á Akureyri en hefur verið búsettur í Horsens í Danmörku síðan 2007. Rétt fyrir kreppu fluttu þau hjónin og voru mjög heppin því þau borguðu aðeins 300 þúsund fyrir leigu á 20 feta flutningagám sem hálfu ári seinna hefði kostað nálægt milljón vegna hruni á ís

Óskar Grétuson AKA Boris, sterkasti nuddarinn
Send us Fan MailNýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu er engin annar en Óskar Grétuson, einnig þekktur sem Boris. Óskar Vann fjíögur ár í röð frá 2005 - 2008 sterkasti maður Íslands og keppti einnig í sterkasti maður heims með góðum árangri. Óskar ólst upp á Grundarfyrði áður en hann flutti í Fellahverfið í Raykjavík. Þasr upplifði hann að vera talsvert á skjön og átti erfitt með að eignast

Ástþór Magnússon okkar ástkæri fossetaframbjóðandi
Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með hinum ástsæla og friðelskandi forsetaframbjóðanda Ástþóri Magnússyni. Ástþór sem efnaðist fyrir um 30 árum síðan á rekstri tölvusyrirtækja fékk vitrun eða sýn þar sem hann áttaði sig á skertri samkennd viðskiptaheimsins og útfrá þeirri sýn tók ákvörðun um að helga líf sitt baráttu fyrir friði á jörðu. H

Töframaðurinn og dávaldurinn Jón Víðis
Send us Fan MailTöframaðurinn og dávaldurinn Jón Víðis kom í Alkastið og lék listir sýnar.

Sara Páls er ekkert að grínast með þessa dáleiðslu!
Send us Fan MailAlkastið heldur innreið sína á hljóðvarpsmakraðinn áfram. Að þessu sinni settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Dan Wiium niður með dáleiðaranum og orkuheilaranum Söru Pálsdóttur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sara kemur í viðtal hjá Gunnari því að á tímum Þvottahússins mætti hún tvisvar í viðtal og dáleiddi þá Gunnar í fyrra skiptið og Davíð bróður hans í seinna skiptið. Að þess

Davíð Karl, hann gæti fokkað þér upp
Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Davíð Karl Wiium. Davíð er aðdáendum Þvottahússins kunnugur sem meðstjórnandi þeirra rúmlega hundrað þátta sem hlaðvarpið Þvottahúsið gaf út á tveggja ára tímabili. Davíð er sannur þúsund þjalasmiður, með eindæmum atorkusamur enda með marga bolta á lofti. Gunnar og Davíð fóru yfir sögu Þvottahússins og

Guðrún Bergman og eðlufólkið - Alkastið í boði Þvottahússins
Send us Fan MailÍ nýjasta Alkastinu settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Guðrúnu Bergmann og ræddu við hana um heima og geima. Guðrún hefur um árabil verið áberandi í íslensku samfélagi sem frumkvöðull, lífsstílsráðgjafi, uppreisnarseggur og almenn heilsuvera. Spjallið hófst á umræðu úr öðrum heimi, nánar tiltekið á heimsókn vera úr öðrum heimi til Íslands árið 1993, en þá höfðu v

Alkastið Jana Napoli - Með lífið í lúkunum
Send us Fan MailAlkastið er nýjasta afsprengi hlaðvarpssamsteypunar Þvottahúsið. Alkastið sem samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium og Arnóri Jónssyni ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi. Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland. Nýjasti gestur Alkastins er Jana Napoli. Janna, 77 ára kona frá New

Þvottahúsið#101 Vísindamaðurinn Egill S. færir okkur ZIM
Send us Fan MailEftir fjögura mánaða þunglyndi, kulnum, covid, þráhyggju og myrkur er Þvottahúsið snúið aftur. Það má með sönnu segja að bræðurnir Gunnar og Davíð Wiium hafi lagst undir feld af gefnum forsendum og snúið tvíefldir til baka en með nýjar stefnur og áherslur sem verða stöðugt kynntar aftur og aftur eftir því sem þær breytast. Nýjasti gestur bræðrana er engin annar en vísindamaðurinn E

Þvottahúsið Adios, Good bye, Au revoir, Bless, Tschüss, arrivederci ....
Send us Fan MailÞvottahúsið kveður að sinni. Megi mátturinn vera með ykkur.

Þvottahúsið#100 Matilda Gregersdotter gerir dodo á hverjum degi
Send us Fan MailNýjasti gestur Þvottahússins sem er einnig 100ðasti gestur Þvottahússins er engin önnur en markþjálfinn, nándarinn, snertarin Matilda Gregersdotter. Matilda og maðurinn hennar sem eiga fjögur börn saman tóku þá djörfu ákvörðun fyrir um 14 árum síðan að stunda kynlíf saman á hverjum degi. Þau hafa haldið það út æ síðan með fáum undantekningum ef einhver er veikur eða erlendis. Þess

Þvottahúsið#99 Eldur Deville gengur berserk
Send us Fan MailNýjasti gestur Þvottahússins er engin annar en sjálfskilgreindi foréttindarhomminn og fulltrúi svokallaðs feðraveldis, sjálfstæði greina og pistlahöfundurinn og aktivistinn, Eldur Deville. Eldur er búin að vera gríðarlega áberandi í umræðunni um hinsegin heiminn sem hann vill meina að sé að mestu leiti á ranghugmyndum byggður. Hann er harður gagnrýnandi úrræða sem snúa að kynjalei

Þvottahúsið#98 Vilmundur Möller Sigurðsson er whistleblower og dýnuhvíslari
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er Vilmundur Möller Sigurðsson, rafeindarvirkjameistari, whistleblower og dýnuhvíslari.Vilmundur uppgvötvaði fyrir að um 5 árum að heilsudýnan sem hann hafði keypt dýrum dómum árið 2006 væri í raun alvarlega heilsuspillandi. Hann var farin að glíma við alvarlega heilsukvilla á við krónískir verkir um al

Þvottahúsið#97 Ágúst Kristján hefur sigrast af geðveiki og fengið stómu
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Daíviðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er hann Ágúst Kristján Steinarsson stjórnunarráðgjafi, tónlistarmaður, fyrirlesari og rithöfundur. Ágúst er með langa sögu af geðkvillum sem og baráttu við krabbamein sem leiddi til þess að ristillinn var fjarlægður og er hann með stómu í dag. Í viðtalinu fer hann yfir sögu sína af geðrofum sem hann he

Þvottahúsið#96 Gústi Chef víkkar vitund sína með efnum
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunars og Davíðs í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsinu er engin annar en kokkurinn, lífskúnstnerinn, alkinn og fyrrum áhrifavaldstvíterinn Gústi Chef Eyrúnarson.Gústi er óvirkur alki og því ansi kontraversialt þegar hann svo fer að færa sig yfir notkun á hugvíkkandi efnum. Það fór að bera á umræðu í umhverfi Gústa tengt hugvíkkandi efnum. LSD, Mescalin, DMT, Psil

Þvottahúsið#95 Egill S. er ekki 100% áræðanlegur
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í þvottahúsinu er engin annar en listamaðurinn Egill Sæbjörnsson. Egill kom til bræðrana fyrir rúmu ári síðan í þátt nr 34. Þar fóru þeir í söguna hans Egils sem leiddi hann að hinni kjöthráu raf rokks plötu Tonk of the lawn sem kom út um síðustu aldarmót. Platan Tonk of the lawn er án efa einn af mestu kult plötum Íslands. Hljómurinn

Þvottahúsið#94 Guðmundur Fylkisson leitar af týndri æsku
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvotahúsið er engin annar en Guðmundur Fylkisson lögreglumaður til margra ára og aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eitt af merginverkefnum Guðmundar er að sinna leit að einstaklingum, einna helst ungmennum. Í gegnum árin hefur þú einnig sinnt samningaviðræðum fyrir hönd sérsveitarinnar, til dæmis

Þvottahúsið#93 Mummi í Götusmiðjunni gerir upp atlöguna og mannorðsmorðið
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Týr Þórarinsson sem kannski betur er þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni. Mummi er rokkari, mótórhaus, bindindismaður og Kvikmyndagerðarmaður í grunninn og listaspíra inn við hjartað. Mummi var villingur, tossi að eigin sögn. Gékk ílla í ferköntuðu skólaumhverfi og fljótt var hann farin að misnota fíkniefni. Honum var

Þvottahúsið#92 Sara Páls, dáleiðari og orkuheilari snýr aftur og dustar burt kuskið.
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er lögmaðurinn, dáleiðarinn og orkuheilarinn Sara Pálsdóttir. Sara sem hefur stundað dáleiðslu og orkuheilun samhliða lögmennsku í nokkur á núna segir að þessi andlega vinna sé farin að taka meira og meira yfir og að hún sé um þessar mundir hægt og rólega að draga sig úr lögmennsku og ætlar að eingöngu að ein

Þvottahúsið#91 Villimey og Margrét sjá um neyslurýmið Ylja
Send us Fan MailNýjustu gestir bræðranna Gunnars og Davíðs Wííum eru þær Villimey Líf Friðriksdóttir og Margrét Dís Yeoman. Villimey Líf sem er þroskaþjálfi og Margrét Dís sem er hjúkrunarfræðingur starfa að tilraunaverkefni á vegum Rauða krossins í málaflokk skaðaminnkunar í formi neyslurýmis sem ber heitið Ylja. Neyslurýmið Ylja er úrræði þar sem þau sem nota vímuefni geti komið og notað efnin í

Þvottahúsið#90 Kristín frá Frú Ragnheiði og Svavar Georgs fara yfir skaðaminnkun
Send us Fan MailNýjustu gestir bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium eru Kristín Davíðsdóttir og Svavar Georgsson. Kristín er hjúkrunarfræðingur og teymisstjóri skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum og Svavar fyrrum skjólstæðingur frú Ragnheiðar og að eigin sögn fíkill og alkahólisti í bata með að verða 3 ára edrúmennsku?Þau Svavar og Kristín höfðu aldrei hist áður en þemi viðtalsins var skaðaminnkun og í

Þvottahúsið#89 Þorsteinn Úlfar um ÍLLGRESI ANDSKOTANS
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en rithöfundurinn, afglæpasinninn og hampaktivistinn Þorsteinn Úlfar Björnsson. Þorsteinn sem hefur gefið út ógrinni af bókum tengt gróðri og ræktun allskonar og ber að nefna bækurnar Villigarðurinn og Funga sem er bók um sveppi. Þátturinn í Þvottahúsinu fjallaði hinsvegar um hampinn eða

Þvottahúsið#88 Haraldur Erlendsson lítur á sannleikan brögðum ofar
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðarana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en geðlæknirinn og nýkosin deildarforseti Guðspekifélagsins á Íslandi Haraldur Erlendsson.Haraldur útskrifaðist úr læknadeild Háskóls Íslands og starfaði á Borgarspítalnum á endurhæfingar og taugadeild og svo á lyfjadeild. Hann tók nám í taugalækningum í London (DCN). Haraldur starfaði í nær fimm ár við heilsugæslu á l

Þvottahúsið#87 Guðmundur Arngríms klagar sveitta kúreka
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en Guðmundur Hrafn Arngrímsson landslagsarkitekt og skipulagsfræðingur, helluhvíslari, möndluristari og formaður Samtaka leigjenda.Guðmundur sem sjálfur er á leigumarkaði hefur sett sig á bólakaf í þessi mál með aukinni eftir eftirspurn á einskonar regluverki utan um rétt leigutaka og rým

Þvottahúsið#86 Alda Karen er svo nóg að það hálfa væri nóg
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er engin önnur en fjöltalentinn Alda Karen Hjaltalín.Alda Karen hefur búið um árabil í New York þar sem hún starfar við persónulega ráðgjöf og við að þjónusta fyrirtæki við sölu og markaðssetningu.Alda sem hér áður fyrr var hún sölu- og markaðsstjóri hjá Saga Film og seinna hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu Ghost

Þvottahúsið#85 Hjólahvíslarinn kveður
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en reiðhjólahvíslarinn Bjartmar Leósson. Bjartmar sem nýlega hætti störfum sem leikskólastarfsmaður eftir 17 ár er einna helst þekktur í samfélagi fýkla og utangarðsmanna fyrir brenheita réttlætiskennd og endurheimt stolina hjóla sem mikið er af í miðbæ Reykjavíkur sérstaklega. “Það kom t

Þvottahúsið#84 Ingeborg Andersen krukkar í jurtum og plöntum því hún er grasalæknir
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin önnur en grasalæknirinn Ingeborg Andersen. Ingeborg lærði vestrænar grasalækningar við University of Westminster í London. Ingeborg kemur úr fjölskyldu af læknum, afi hennar og pabbi eru læknar og mamma hennar hjúkrunarfræðingur. Það hafi alltaf legið fyrir að hún skuli einnig verða læknir en þegar að nær dróg fann hún

Þvottahúsið#83 Mannkynsfrelsarinn deyr og visnar í fallegasta fangelsi sem til er
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar er Ingólfur Níelsson. Þessi þáttur bræðrana með Ingólfi er síðasti þátturinn í trílógiunni Sitting bull sem svo varð mannkynsfrelsarinn. Í fyrsta þættinum lýsti hann því hvernig hann fór í gegnum mikið ferðalag þjáninga sem svo leiddi hann inn í dauðareynslu sem hann varð fyrir í fangakl

Þvottahúsið#82 Steini í Quarashi STICKS´EM UP!
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en skeitarinn, tónlistarmógúllinn Steinar Fjelsted eða Steini í Quarashi eins og hann er gjarnan kallaður. “Þetta byrjaði samt bara mest með Public Enemy og NWA”“Ég man enþá eftir þessu í dag, þegar að Check your head með Beasty Boys kom út, það breytti bara öllu, tónlistarlega séð, tískulega séð, hugsunarhætti, bara tó

Þvottahúsið#81 Ásdís Olsen fer sjálf undir yfirborðið
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin önnur en lífskúnstnerinn Ásdís Olsen.Ásdís er marfaldur Íslandsmeistari á skíðum, sjónvarpskona, fyrrum flugfreyja, fræðimaður, kennari og fyrirlesari á sviði jákvæðrar sálfræði og núvitundar og hefur sérhæft sig í hagnýtum aðferðum til að auka vellíðan og hamingju fólks, sem sagt kona sem hefu

Þvottahúsið#80 Friðrik Agni, mögulega fyrsti litaði hommaforsetinn!
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en dansarinn, pistlahöfundurinn og múltikunsterinn Friðrik Agni Árnason. “Ef ég ætti að segja að eitt af þessu sé svona innsti kjarninn þá er það dansinn, alveg innst, og svo út frá því kemur allskonar annað, skapandi, eins og að skrifa, svona tjáskipti”“Ég sá strák, varð hrifin af honum,

Þvottahúsið#79 Snorri Ásmunds er hinn mikli Hilarion
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en fjöllistamaðurinn Snorri Ásmundsson. Snorri sem hefur fengist við gjörningslist síðan hann man eftir sér lifir einnig og þrífst í málaralistinni. Hann segist í raun lifa á málaralistinni en að gjörningslistformið sé það sem stendur honum næst í einhverjum kjarna. Snorri hefur eins og sagt hefur verið í einskonar list

Þvottahúsið#78 Krummi MMA gæti lamið þig í klessu og er STUNTMAN
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar er bardagahundurinn og áhættuleikarinn Hrafn Þráinsson einnig þekktur sem Krummi.Krummi er einn eigendum RVK MMA og umsjónarmaður barna og unglingastarfs hjá RVK MMA ásamt því að vera yfirþjálfari yngri aldursflokka. Krummi byrjaði snemma að æfa Karate með Karatedeild Þórshamars um 5 ára gamall. Honum féll vel við agan

Þvottahúsið#77 Olga Björt og stóri metoo þátturinn
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin önnur en blaðakonan, ritstýran, kennarinn og feministinn Olga Björt Þórðardóttir.Þemi viðtalsins var án efa meetoo byltingin og almennt samskipti kynjana frá vinkli geranda og þolanda. Gunnar rak augun í grein sem Olga skrifaði í lok Janúar, grein þar sem Olga fór yfir atburði sem hún varð fyri

Þvottahúsið#76 Þór Guðna fer með okkar á sveppaferðalag
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Þór Guðnason. Þór sem er sonur Guðna í Rope yoga, hefur verið lengi lengi í bransanum eins og maður segir. Hann hefur fengist við allskonar einkaþjálfun og ráðgjöf. Hann var sá fyrsti sem náði sér í réttindi hjá kuldameistaranum Wim Hof sjálfum. Hann var einn af stofnendum Primal Iceland og svona væri lengi hægt að t

Þvottahúsið#75 Boff Konkerz er ekkert að fokking grínast
Send us Fan MailTRIGGER WARNING. Lýsingar tengt BDSM, kinki, satanisma og buttpluggum í þættinum gætu farið fyrir brjóstið á viðkvæmum.Viðtalið fór fram á ensku.Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Boff Konkerz. Boff er húðflúrmeistari frá London sem býr yfir mörgum sérkennum og einstæðum hæfileikum. Boff er mikill Íslandsvinur enda búin að venja komu sína til Íslands

Þvottahúsið#74 Lilja Sif. Sálinn sem undirbýr ferðalanga
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er sálfræðingurinn Lilja Sif Þorsteinssdóttir. Lilja sem stendur á bakvið sálfræðiþjónustuna Heilshugar hefur fengist við ýmislegt innan hefðbundinar sálfræði. Heilshugar virðist vera samt sem áður bjóða upp á nýjungagjarnar aðferðir hvað varðar andlega heilsu og heilun. “Heilshugar er svona batamiðað r

Þvottahúsið#71 Geiri X fer djúpt
Send us Fan MailTRIGGER WARNING. LÝSINGAR AF NAUÐGUNUM, PYNTINGUM OG OFBELDI Í ÞESSUM ÞÆTTI ERU GRAFÍSKAR.Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum þvottahúsið er Ásgeir Ásgeirsson eða Geiri X eins og hann er gjarna kallaður. Geiri starfaði sem ljósmyndari til fjölda ára, myndirnar hans birtust meðal annars hjá Reuters. Ásgeir er öryrki eftir að hafa verið greindur með s

Þvottahúsið#73 Ragga Nagli kallar ekki allt ömmu sína
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum þvottahúsið er engin annar en sálfræðingurinn, pistlahöfundurinn einkaþjálfarinn og hlaðvarparinn Ragnhildur Þórðardóttir betur þekkt sem Ragga Nagli. Ragga Nagli er kona sem hefur alltaf haft nóg fyrir stafni, mörg járn í eldinum að hverju sinni. Hún talar um sig sem manneskju fulla að krafti en með athyglisbrest

Þvottahúsið#72 Kjartan Ragnars STÓRI BITCOIN ÞÁTTURINN
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars Dan og Davíðs Karls í Þvottahús var engin annar en Kjartan Ragnarsson Cryptosérfræðingur og lögmaður.Hann er einn af stofnendum og eigendum rafmynta viðskiptahallarinnar Myntkaup en Myntkaup sem fór í loftið í maí 2020 er eini Íslenski vettvangurinn þar sem hægt er að eiga viðskipti með rafmyntir.Kjartan leiddi okkur á hinar framandi og að mörgum fin

Þvottahúsið#70 Sara Páls er dáleiðarinn
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvotahúsið er lögmaðurinn, dáleiðarinn og orkuheilarinn Sara Pálsdóttir. Sara sem hefur stundað dáleiðslu og orkuheilun samhliða lögmennsku í nokkur á núna segir að þessi andlega vinna sé farin að taka meira og meira yfir. Hún hóf þessa vegferð innan dáleiðslu og hugleiðslu í kjölfar mikillar þjáninga sem voru nálægt því

Þvottahúsið#69 ÚLFURINN
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er formaður Geðhjálpar og stefnumótunarfræðingur forsetaráðuneytisins Héðinn Unnsteinsson. Héðinn hefur verið mikið í sviðsljósinu síðustu 20 ár í tengslum við geðheilbrigðismál og þó einkun síðustu tvö fyrir tilstilli bókarinnar Vertu úlfur sem svo var sett upp á stóra sviða Þjóðleikhússins. Sýningin er einleikur með Björn Thors í l

Þvottahúsið#68 Inga Halldórsdóttir er samsærisbloggari
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíð Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er ofurbloggarinn og covid samsæris drottningin Inga Guðrún Halldórsdóttir.Inga sem er einnig tækniteiknari og félagsliði hefur skrifað á annað hundrað bloggfærslur um covid19, bóluefnin og kenningar um alræðishyggju og hina miklu endurræsingu.Bræðurnir Gunnar og Davíð ræddu við hana með opnu hjarta en

Þvottahúsið#67 Rauði baróninn með parkinson
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er umdeildasti knattspyrnudómari Íslands fyrr og síðar hann Garðar Örn Hinriksson einnig þekktur sem Rauði Baróninn. Garðar fór alltaf sínar eigin leiðir sem ekki alltaf ollu vinsældum hjá knattspyrnusambandinu. Mál málana var þó taugasjúkdómurinn Parkinson sem Garðar greindist með árið 2016. Hann fór að taka

Þvottahúsið#66 Soffía Villingur fer djúpt
Send us Fan MailNýjasti gestur bræðrana í Þvottahúsinu er elskuleg Soffía H. Halldórudóttir einnig þekkt sem Soffía villingur. Soffía sem er þriggja barna móðir úr Breiðholtinu fór yfir sögu sína og áföll en hún ólst upp með föður sínum til tíu ára aldurs sem beitti hana og móður hennar ólýsanlegu ofbeldi, andlegu, líkamlegu og kynferðislegu. Viðtalið var birt 17 Janúar sem markar ársafmæli Þvott











