Home Podcasts Ekkert plan
Ekkert plan

Ekkert plan

Ekkert plan 2 episodes Nov 15, 2026

Í þessu hlaðvarpi ræðir áhrifavaldurinn Fanney Dóra um lífið sem fullorðin kona. Hún fer yfir margs konar efni eins og sjálfsrækt, atvinnu, sambönd, móðurhlutverkið og félagslíf. Hún ætlar að fá góða gesti og takast á við umræðuefni með hlustendum. Þátturinn heitir Ekkert plan en er engu að síður skipulagður.

Episodes

Eru bara allir á pennanum? ft. Erla Gerður
Eru bara allir á pennanum? ft. Erla Gerður Nov 15, 2026 52:22 Í þessari viku af Ekkert plan kemur Erla Gerður læknir sem hefur starfað við offitumeðferðir í 20 ár. Við ræðum um hið alræmda Reta, hverjir þurfa á þyngdarstjórnunarlyfjum að halda og fordómana sem eru gagnvart ofþyngd.
Að vera kúl eða vera ekki kúl, það er spurningin ft. Perla í Wagtail
Að vera kúl eða vera ekki kúl, það er spurningin ft. Perla í Wagtail Nov 8, 2026 58:15 Perla kom ekki tómhent í Ekkert plan heldur kveikti hún svo sannarlega í jólastemningunni! Perla stofnaði Wagtail fyrir átta árum og við ræddum aðeins um það og ótrúlega margt annað eins og okkur einum er lagið. Ekkert plan er í boði Landbankans og Happy Hydrate
Það má vera gaman að fjárfesta ft. Anna Lilja
Það má vera gaman að fjárfesta ft. Anna Lilja Nov 1, 2026 01:07:14 Tilgangurinn með Ekkert plan er að fullorðnast saman. Í dag ætlum við heldur betur að fullorðnast, því hvað er fullorðinslegra en að fjárfesta? Anna Lilja ætlar að fara yfir þetta allt saman með okkur og sýna okkur að þetta má vera skemmtilegt.
Þú ert mjög sæt með hár ft Tania Lind
Þú ert mjög sæt með hár ft Tania Lind Oct 25, 2026 01:10:18 Í þætti vikunnar kom Tania Lind, hún hefur verið að kljást við Alopecia seinustu ár en það sem dró mig að henni er þetta magnaða hugarfar. Ég býð ykkur að fræðast með okkur en mikilvægast af öllu hlægja með okkur!
Það er heitt að vera hallærisleg
Það er heitt að vera hallærisleg Oct 18, 2026 49:25 Í þætti vikunnar förum við yfir markmiðaspjald ársins 2026, tvö vandamál í lausnahringnum og förum yfir markmiðasetningu og væntingar. Það var líka öfugsnúin vika því ég gleymdi náttfötunum í þetta skiptið.
Þú mátt segja þetta en ekki ég ft. Jakob Jóhann
Þú mátt segja þetta en ekki ég ft. Jakob Jóhann Oct 11, 2026 01:06:15 Það hlaut að koma að því að litli bróðir minn Jakob Jóhann kæmi hlaðvarpið. Við slúðruðum svolítið, fórum í lausnahringinn og fundum reyndar ekki lausn á öllu en áfram gakk. Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate
Losaðu þig við óvelkomna orku ft. Ellý Ármanns
Losaðu þig við óvelkomna orku ft. Ellý Ármanns Oct 4, 2026 56:50 Ellý Ármanns kom í Ekkert plan og gerði mig heldur betur orðlausa! Ég mæli innilega með því að hlusta á þáttinn í hvert einasta skipti sem þig vantar að komast á hærri tíðni.
Fórstu í bótox svikari?
Fórstu í bótox svikari? Sep 27, 2026 49:52 Í þætti sex af Ekkert plan fór ég inná ansi mörg sprengjusvæði. Ég legg til að þið hlustið með opnum hug og eins og alltaf þá verði þið að senda á mig ef þið tengið eða jú tengið alls ekki neitt. Þátturinn er í boði Happy Hydrate.
Mamma, það segir þetta engin ft. Mamma
Mamma, það segir þetta engin ft. Mamma Sep 20, 2026 57:32 Það er enginn önnur en Mamma sem er mætt í hlaðvarpið að þessu sinni. Hún er minn eigin lífsþjálfi og flestir ættu að vilja hafa hana í sínu horni. Við förum yfir vandamál úr lausnahorninu gagnvart stjúpfjölskyldum. Þaðan förum við yfir víðan völl, hvorug með plan eins og við viljum hafa það.
Því sem þú ert ekki að breyta ertu að velja ft Fanney Skúla
Því sem þú ert ekki að breyta ertu að velja ft Fanney Skúla Sep 12, 2026 01:13:49 Fanney Skúla kemur í fjórða þátt af Ekkert plan og fer yfir lífið sitt seinustu árin með okkur. Hvernig er að vinna sem markaðsmanneskja, vera einstæð móðir og að hafa verið ung móðir - til að stikla á stóru.
Það eru bara lausnir guys
Það eru bara lausnir guys Sep 6, 2026 49:48 Í þætti þrjú er nýr liður! Lausnahorn Fanneyjar byrjaði af fullum krafti með vandamál sem eflaust margir tengja við. Það er að sjálfsögðu ekki eina sem ég fer yfir í þættinum enda er ekkert plan.
Ég þarf að ögra þér aðeins ft. Kara Hólm
Ég þarf að ögra þér aðeins ft. Kara Hólm Aug 30, 2026 01:01:38 Kara Hólm kom upp í rúm til mín og við ræddum um deitmenningu, body positivity og ýmislegt fleira, enda er ekkert plan og engin dagskrá.

Recommended