Home Podcasts Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu
Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu

Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu

Margrét Gunnarsdóttir 7 Episodes Oct 22, 2026

Ítalía heillar er hlaðvarp fyrir þá sem elska Ítalíu eða hyggjast ferðast þangað. Þáttastjórnandinn Magga deilir fróðleik um ítalska menningu, borgir, eyjar, héruð og sérkenni landsins, auk lítilla augnablika sem sjaldan er fjallað um. Hún byggir á eigin reynslu af búsetu og ferðalögum um Ítalíu, auk sagna annarra og leiðbeininga virtra ferðafrömuða. Hlaðvarpið er hugsað sem innblástur og leiðarvísir fyrir íslenska ferðalanga.

Episodes

13. Napólí - Góð ráð fyrir ferðalanginn
13. Napólí - Góð ráð fyrir ferðalanginn Oct 22, 2026 1939 Í þriðja og síðasta þættinum um Napólí er komið að hagnýtu hliðinni. Hvernig er best að komast til borgarinnar, hvar er gott að gista, hvernig ferðast maður um – og er Napólí í raun eins hættuleg og orðsporið gefur stundum til kynna?Við skoðum samgöngur, leigubíla, neðanjarðarlestir og Circumvesuviana-lestina og ræðum hvað ferðamenn þurfa helst að varast. Vespurnar koma þar óhjákvæmilega við sögu.
12. Napólí II - Hjátrúin, tónlistin, fótboltinn og pizza
12. Napólí II - Hjátrúin, tónlistin, fótboltinn og pizza Oct 14, 2026 2779 Í öðrum þætti um Napólí kynnumst við litríkri menningu borgarinnar þar sem trú og hjátrú, tónlist, fótbolti og matur fléttast saman á einstakan hátt.Við kynnumst scaramanzia, napólískri hjátrú, rauða verndargripnum cornicello, Pulcinella og San Gennaro, verndardýrlingi borgarinnar. Við heyrum líka af þeirri óvenjulegu hefð að „ættleiða“ höfuðkúpur látinna og biðja þær um vernd.Síðan tekur tónlisti
11. Napólí I – Meira en bara pizza og Vesúvíus
11. Napólí I – Meira en bara pizza og Vesúvíus Oct 7, 2026 2265 Napólí er borg sem erfitt er að lýsa í fáum orðum. Hún er hávær, litrík, óreiðukennd, söguleg – og umfram allt full af lífi.Í þessum fyrsta þætti um Napólí förum við í ferðalag um meira en 2.500 ára sögu borgarinnar. Við byrjum hjá Grikkjum og sírenunni Parthenope, kynnumst Rómverjum, Normönnum, Spánverjum og Bourbon-konungum og komum við sögu hjá byltingarmanninum Masaniello og þjóðhetjunni Giuse
10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!
10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio! Sep 9, 2026 3187 Í þessum þætti af Ítalía heillar er haldið “á teinana” og farið yfir allt það helsta sem gott er að vita áður en ferðast er með lest á Ítalíu. Lestir eru ein þægilegasta leiðin til að komast á milli stórborga eins og Rómar, Flórens, Bologna, Mílanó og Napólí, en ítalska lestarkerfið getur virst dálítið ruglingslegt í fyrstu.Fjallað er um helstu gerðir lesta, allt frá hraðskreiðum og þægilegum Frec
9. Á fjórum hjólum um Ítalíu – allt sem þú þarft að vita um bílaleigu
9. Á fjórum hjólum um Ítalíu – allt sem þú þarft að vita um bílaleigu Sep 2, 2026 1901 Að leigja bíl á Ítalíu getur verið bæði spennandi og svolítið stressandi. Í stórborgum eins og Róm, Flórens, Mílanó og Napólí er oft mun skynsamlegra að treysta á lestir og almenningssamgöngur. En þegar ferðinni er heitið út í sveitirnar, til lítilla þorpa, vínekranna í Piemonte, fjallanna, strandbæjanna eða svæða þar sem lestir og rútur eru af skornum skammti, getur bílaleigubíllinn orðið lykilli
8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir?
8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir? Aug 26, 2026 2572 Í þessum þriðja og síðasta þætti um Róm, beinum við sjónum að borginni sjálfri – frægustu stöðunum, torgunum, götunum, mörkuðunum og matarmenningunni. Við heimsækjum meðal annars Colosseum, Forum Romanum, Pantheon, Vatíkanið, Péturskirkjuna og Trevi-gosbrunninn og fáum hagnýt ráð um miðakaup, biðraðir og hvernig best er að skipuleggja heimsóknir á vinsælustu staðina. En Róm er miklu meira en frægu
7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð
7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð Aug 19, 2026 2271 Í þessum öðrum þætti um Róm færðu hagnýt ráð sem geta gert Rómarferðina einfaldari, öruggari og ánægjulegri. Þú færð að heyra um leiðir til að komast frá Fiumicino-flugvelli inn í borgina, meðal annars með Leonardo Express, FL1-lestinni, rútu eða leigubíl, og hvaða kostur hentar eftir staðsetningu gististaðar og fjölda ferðafélaga. Þú þarft sérstaklega að passa þig á reglum um lestarmiða sem geta
6. Róm I - Marglaga, mótsagnakennd og lifandi borg
6. Róm I - Marglaga, mótsagnakennd og lifandi borg Aug 12, 2026 1035 Í þessum fyrsta þætti af þremur um Róm er farið í svolítið óhefðbundið ferðalag um sögu borgarinnar, allt frá goðsögninni um Rómúlus og Remus til Rómar nútímans. Frá því að vera upphaflega einungis fáeinir kofar stækkaði Róm og varð miðja eins voldugasta heimsveldis sögunna. Borgin hnignaði eftir fall þess en reis aftur til vegs og virðingar á endurreisnartímanum. Í dag búa nærri þrjár milljónir m
5. Hvað er til ráða ef þú veikist á Ítalíu?
5. Hvað er til ráða ef þú veikist á Ítalíu? Aug 5, 2026 1212 Í þessum þætti er farið yfir hvernig þú getur fengið aðstoð á Ítalíu, hvort sem um er að ræða væga kvilla eða neyðrartilvik.Fyrir brottför ættir þú að sækja um Evrópska sjúkratryggingakortið (EHIC) hjá Sjúkratryggingum Íslands, skoða þær tryggingar sem fylgja kreditkortinu þínu og mögulega fá þér góða ferðatryggingu.Fyrsti viðkomustaður fyrir minni háttar veikindi ætti oftast að vera apótek (Farma
4. Lago di Garda – Gardavatnið og töfrar þess sem heilla ferðalanga
4. Lago di Garda – Gardavatnið og töfrar þess sem heilla ferðalanga Jul 29, 2026 2930 Lago di Garda – Lake Garda – GardavatniðGardavatn (Lago di Garda), stærsta vatn Ítalíu. Lýst er einstakri fegurð vatnsins, þar sem snævi þaktir Alpatoppar mæta pálmatrjám, ólífutrjálundum og Miðjarðarhafsgróðri og skapa landslag sem á sér engan líka annars staðar í Evrópu. Komið er víða við og m.a. fjallað um bæina Sirmione, Malcesine, Limone sul Garda og Riva del Garda. Gardavatn er miklu meira e
3. Ítalía III – Þekkirðu götubrellur vasaþjófanna?
3. Ítalía III – Þekkirðu götubrellur vasaþjófanna? Jul 22, 2026 1715 Hér færðu að kynnast helstu mistökum sem ferðamenn gera á Ítalíu og hvernig þú getur forðast þau til að njóta ferðarinnar betur.Nokkrar óvæntar reglur geta komið þér á óvart. Til dæmis  geturðu fengið háa sekt ef þú borðar hjá frægum minnismerkjum, dýfir fótum í gosbrunna eða gengur í óviðeigandi skóm á gönguleiðum Cinque Terre. Einnig er mikilvægt að bera alltaf vegabréf eða önnur gild skilríki á
TRAILER - Ítalía heillar
TRAILER - Ítalía heillar Jul 15, 2026 108 Kynning á hlaðvarpinu Ítalía heillar.Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingurVefsíða: www.italiaheillar.is

Recommended