
Allt í lagi með Birni Skúlasyni
Hlaðvarpið er hluti af árverkniátaki Hugarafls, Allt í lagi, sem hefur það að markmiði að opna umræðu um andlega heilsu og hvetja fólk til að nýta sér úrræði þegar á reynir. Björn Skúlason stýrir hlaðvarpinu. Verkefnið er unnið með stuðning frá Orkusölunni og Sýn.
Episodes

Elín Hall - Manneskjan hefur meiri seiglu en við höldum
Björn Skúlason sest niður með Elínu Hall í þessum sjöunda þætti. Elín talar á einlægan hátt um leiklistina, tónlistina og lífið í heild sinni. Hún ræðir meðal annars um erfitt tímabil sem spannaði marga mánuði þar sem þar sem taugakerfið festist í spennu í kjölfar þess að hún lék gríðarlega þungt hlutverk í kvikmyndinni Ljósbrot. Hún talar sömuleiðis um lífið með ADHD, hvernig það breyttist algjör

Jón Jónsson - Hamingjan og gleðin er ákvörðun - og svo þarf að sinna því.
Björn Skúlason og Jón Jónsson taka spjallið þar sem gleðin er allsráðandi. Jón segir frá því hvernig lífið hefur tilhneigingu til að fara vel og hvernig hann nálgast tilveruna með jákvæðni að vopni. Hann talar um stóra og smáa drauma, um fótboltann, ferilinn, fjölskylduna og hvernig hann velur að nýta sér platformið sem hann hefur til að vera jákvæð fyrirmynd.

Emilíana Torrini - Ber virðingu fyrir fóli sem lifir - þrátt fyrir.
Björn Skúlason sest niður með Emiliönu Torrini í þessum fimmta þætti þáttaraðarinnar. Hún ræðir á sinn einlæga hátt m.a. um lífið sem fylgir því að verða landsfræg aðeins 16 ára og hvernig menningarmunurinn birtist henni í uppvextinum verandi hálf ítölsk. Hún ræðir sömuleiðis stöðuna í samfélaginu okkar og furðar sig á hvernig jafn ríkt samfélag og okkar geti brugðist fólkinu sem virkilega þarf á

Páll Óskar - Sjúkdómurinn með stóra S-inu.
Páll Óskar sest í stólinn hjá Birni Skúlasyni og ræðir við hann um allt milli himins og jarðar. Um gerendur og þolendur, um Dr.Love tímann og hinsegin baráttuna. Hann fer inn á stjórnsemina, höfunina, leitina í hið ljóta og eilífðarverkefnið- jafnvægið.

Alaska 1867 - Ef lífið væri alltaf gott væri það leiðinlegt.
Tónlistarkonan Kolfreyja Sól Bogadóttir eða Alaska1867, sest í stólinn hjá Birni Skúlasyni og ræðir um uppvöxtinn, erfiðleikana við að tilheyra og þykjustuleikina. Hún ræðir alkóhólismann, bataferlið, eftirsjánna og hvað þarf að gerast svo hún haldi sér á réttri braut.

Una Torfa - Skömm, sorg og einmannaleiki
Una Torfadóttir tónlistarkona sest í stólinn hjá Birni Skúlasyni. Hún fer yfir víðan völl og ræðir á hispurslausan hátt um þunglyndi, sjálfsmyndina, feimnina, fullkomnunaráráttuna, listina og lífið.„Hugurinn er gjarn á að sannfæra okkur um að við séum alein um að líða einhvern veginn.” www.hugarafl.is

Mugison - Taugaveiklun, oföndun og álag
Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, segir að hann hafi leitað til sálfræðings um aldamótin eftir að hafa glímt við taugaveiklun og oföndun undir álagi. Hann hafi í fyrstu haldið að hann væri að verða geðveikur. Þetta kemur fram í fyrsta þætti af nýju hlaðvarpi í umsjón Björn Skúlasonar, forsetamaka.











