Home Podcasts Mennska
Mennska

Mennska

Bjarni Snæbjörnsson 45 Episodes Nov 23, 2025

Mennska fjallar um fegurð fjölbreytileikans og það sem sameinar okkur. Ég fæ magnað fólk til mín sem er að gera heiminn að betri stað og við ræðum breyskleika manneskjunnar, mismunandi leiðir til sjálfsþroska og rannsökum mennskuna með berskjöldun að leiðarljósi. Flestir þættir eru á íslensku en sumir á ensku.

Episodes

"Berum virðingu fyrir öllum og tölum saman þaðan" - Kitty Anderson
"Berum virðingu fyrir öllum og tölum saman þaðan" - Kitty Anderson Nov 23, 2025 4645 Kitty er magnaður aktivisti sem hefur sannarlega sett sitt mark á baráttu hinsegin fólks á Íslandi og víða um heim. Hún sat í stjórn Samtakanna '78 frá 2014 til 2018 og í kjölfarið einbeitti hún sér að uppbyggingu evrópsku intersex hreyfingarinnar Organisation Intersex International – Europe (OII-Europe). Nú í haust fagnaði hún tímamótum á vegum OII-Europe sem hún segir okkur frá. Kitty er lí
“Þá var ég á stað sem ég vissi ekki að væri til” - Kolbeinn Arnbjörnsson
“Þá var ég á stað sem ég vissi ekki að væri til” - Kolbeinn Arnbjörnsson Nov 9, 2025 4248 Kolbeinn Arnbjörnsson er einstakur listamaður: leikari, myndlistarmaður og þúsundþjalasmiður, fyrir utan að vera faðir, kærasti og hið mesta gæðablóð. Í þessum þætti förum við í djúp samtöl um kulnun, sem Kolbein hefur reynt á eigin taugakerfi, við tölum um glansmyndirnar á samfélagsmiðlum, mataræði, sjálfsmildi og auðvitað listina. Kolbeinn er einstakur maður sem er óhræddur við að berskjalda sig
"Við þurfum meiri nánd" - Embla Guðrúnar Ágústsdóttir
"Við þurfum meiri nánd" - Embla Guðrúnar Ágústsdóttir Oct 20, 2025 4216 Embla Guðrúnar Ágústsdóttir er m.a. akvívisti, dansari og móðir. Hún hefur verið virk í aktívisma frá unga aldri og er ein af stofnendum tabu (tabu.is). Embla er einnig með mastergráðu í félagsfræði og hlaut grímutilnefningu sem dansari ársins fyrir verkið Góða ferð inn í gömul sár sem sýnt var í Borgarleikhúsinu. Hún er líka ein af fyndnustu manneskjum sem ég þekki og ég fæ þann heiður að leika o
“Ég trúi því að leikhúsið geti bjargað heiminum” - Gréta Kristín Ómarsdóttir
“Ég trúi því að leikhúsið geti bjargað heiminum” - Gréta Kristín Ómarsdóttir Aug 13, 2025 4378 Gréta Kristín er leikstjóri sem hefur sett sitt mark á íslenskar sviðslistir á aðeins níu ára ferli sínum. Hún hefur leikstýrt fjölda atvinnusýninga og verið tilnefnd þrisvar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, sem leikstjóri ársins. Auk þess að vera einstakur listamaður starfar hún einnig sem fagstjóri sviðshöfundabrautar Listaháskóla Íslands.Í þættinum ræðum við að sjálfsögðu listina
"Fólk er ofboðslega fljótt að dæma" - Særún Lísa Birgisdóttir
"Fólk er ofboðslega fljótt að dæma" - Særún Lísa Birgisdóttir Jul 10, 2025 3603 Særún Lísa er þjóðfræðingur, kennari og móðir sem hefur unnið síðustu ár við að kenna unglingum íslensku. Þegar hún var í þjóðfræðinámi eyddi hún töluverðum tíma í að rannsaka birtingarmyndir homma allt frá landnámi og fram yfir síðari heimsstyrjöld. Þessar rannsóknir leiddu til útgáfu á bók hennar "Hættið þessu fikti strákar" þar sem hún skrifar um uppgötvanir sínar. Í þættinum förum vi
“Maður var kannski vanari svipuhöggunum þá.” - Ragnhildur Sverrisdóttir
“Maður var kannski vanari svipuhöggunum þá.” - Ragnhildur Sverrisdóttir Jun 22, 2025 2924 Ragnhildur Sverrisdóttir er fyrrum blaðamaður hjá Morgunblaðinu og er einnig lögfræðingur, móðir, eiginkona og fjölmargt fleira. Í þessum þætti forvitnast ég m.a. um hvernig Ragnhildur upplifði alnæmisfaraldurinn og hvernig hún sér fyrir sér stöðu heimsmálanna í dag þegar kemur að málefnum hinsegin fólks. Svo ræðum við auðvitað ógleymanlega grein sem hún skrifaði í Tímarit Hinsegindaga árið 2022 þ
"Orðið 'kynvilla' er svo jaðarsett - þegar þú ert villtur ertu ekki heima" - Hafdís Erla Hafsteinsdóttir
"Orðið 'kynvilla' er svo jaðarsett - þegar þú ert villtur ertu ekki heima" - Hafdís Erla Hafsteinsdóttir Jun 9, 2025 3846 Hafdís Erla Hafsteinsdóttir er fyrrum afrekskona í sundi og sagnfræðingur. Hún  hefur eytt töluverðum tíma í sagnfræðirannsóknir á jaðarsettum hópum. M.a. gerði hún MA rannsókn um ungar konur sem voru dæmdar fyrir lauslæti á ástandsárunum en þessi misserin einbeitir hún sér að því að klára doktorsritgerð um HIV faraldurinn á Íslandi. Í þættinum kynnumst við Hafdísi og fáum að heyra sögu hennar, hú
"Ég hafna alltaf yfirgangi" - Hörður Torfason
"Ég hafna alltaf yfirgangi" - Hörður Torfason Jun 1, 2025 5831 Þann 1. ágúst næstkomandi eru liðin 50 ár frá því að Hörður Torfason birtist í Samúel og opinberaði samkynhneigð sína fyrir alþjóð. Í þættinum fáum við að vita um aðdraganda þessa merka viðtals sem er einn af hornsteinum íslenskrar hinsegin sögu og við heyrum líka hvaða toll það tók af Herði og frama hans sem þjóðfrægur leikari og söngvaskáld. Auðvitað forvitnast ég aðeins um æsku hans í miðbænum,
“Samkennd er fallegasta afl sem við eigum” - Lára Rúnarsdóttir
“Samkennd er fallegasta afl sem við eigum” - Lára Rúnarsdóttir May 25, 2025 5028 Lára Rúnarsdóttir er einstök kona með ótalmarga hatta. Þessi misserin er hún eigandi Móa jógastúdíós sem leggur ríka áherslu á andlega iðkun, eflir sjálfsvitundina, virðingu fyrir líkamanum, innri hlustun & samkennd. Tilgangur Móa er að skapa rými þar sem einstaklingar geta öðlast frið frá ytri kröfum samfélagsins og tengst sjálfum sér betur.Þetta er einstakt samtal og við vorum fljót að fara
"Ég ákvað þá að leyfa listinni að eiga mig" - Aldís Amah Hamilton
"Ég ákvað þá að leyfa listinni að eiga mig" - Aldís Amah Hamilton May 18, 2025 4193 Aldís Amah er mögnuð leikkona, höfundur og aktívisti. Hún hefur komið víða við á síðustu árum í listinni bæði á sviði og á skjánum. Svo er hún líka formaður Samtaka grænkera á Íslandi. Í þættinum spjöllum við auðvitað um listina, mýmargar tilraunir Aldísar til að eyðileggja fyrir sjálfri sér og svo komum við auðvitað inn á sameiginlega ástríðu sem er grænkeralífsstíllinn.Svo skemmtilegt og gefandi
"Alein - saman" Bragi Páll
"Alein - saman" Bragi Páll Apr 10, 2025 1240 Bragi Páll er einn af okkar mögnuðu rithöfundum sem hefur gefið út fjölmargar bækur. Þátturinn er að þessu sinni óvenjulegur því ég fékk Braga til að lesa inn pistil sem hann skrifaði á facebook vegginn sinn í vikunni sem fjallar einfaldlega um mennskuna.---Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu MennskuHægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.www.
„Þessi aðför að trans konum bitnar beint á sís konum“ - Arna Magnea Danks
„Þessi aðför að trans konum bitnar beint á sís konum“ - Arna Magnea Danks Mar 31, 2025 5283 Arna Magnea er einstök listakona og aktívisti. Hún er leikkona og nýlega var frumsýnd bíómyndin Ljósvíkingar þar sem hún brilleraði í stóru hlutverki. Hún er einnig með sérhæfingu í sviðsbardögum, kennari, móðir og ljóðskáld.Í þættinum förum við mjög víða og Arna segir okkur frá æsku sinni sem var undirlögð af togstreitu og ofbeldi. Við ræðum raunveruleika trans fólks á Íslandi í dag og að sjálfsö

Recommended