Home Podcasts Tveir kallar
Tveir kallar

Tveir kallar

Tveir kallar 50 Episodes Jun 22, 2026

Tveir kallar er podcast með tveimur köllum. Þeir ræða ýmis málefni og skemmta sér. Hægt er að finna þá á tveirkallar.is og Instagram.

Episodes

50: Éttu skít
50: Éttu skít Jun 22, 2026 5969 Tveir kallar fagna tímamótum í sérstökum hátíðisþætti. Á boðstólum er bakkelsi úr bakaríinu (ekkert vegan) og gestirnir eru hinir íslensku meðalkarlmenn. Athyglissjúki introvertinn sér um skemmtiatriði og í sérstökum lið þarf Þorsteinn að þegja allan tímann (spoiler: það mistekst). Annar kallinn er síðan tekinn fyrir á sviðinu og að lokum velta kallarnir fyrir sér framtíð þáttarins. Svo vill annar
49: Helvítis lúpínan
49: Helvítis lúpínan Jun 8, 2026 4715 Tveir kallar ganga um í grænni náttúrunni þar til hún hættir að vera græn og verður fjólublá, setja fyrrverandi kærustur (ekki) í minningakassann, ræða skólakerfið út frá kynjum og furða sig á blaðamanni. Svo reyna þeir að hlúa að þeirri litlu geðheilsu sem þeir eiga eftir.
48: Aftur til fortíðar
48: Aftur til fortíðar May 25, 2026 3997 Tveir kallar hverfa aftur til ársins 1995 (það er tveimur árum áður en prumpulagið kom út en samt býr ennþá skrítinn kall í Vesturbænum) og… æi, það skiptir engu máli því hinn kallinn er alltaf að rembast við að skrifa hérna þrælhnyttnar og gáskafullar lýsingar á þáttunum en svo kom í ljós að þið eruð bara ekkert að lesa þær. ;(
47: Kosið í borginni
47: Kosið í borginni May 11, 2026 5410 Tveir kallar detta í að tala um kosningabaráttuna í þætti sem átti að koma út eftir kosningar en ákveða á síðustu stundu að breyta til og flýta útgáfu, segja frá tengslum við samsærisnöttara og Sjálfstæðisflokkinn, hafa engan tíma fyrir hlustendur og finna á endanum gleðina í heimi hörmunga. E.S. Vegna framkvæmda í stúdíóinu er ekkert vidjó með þessum þætti og því engin mynd af tveimur köllum.
46: Skammarþríhyrningurinn
46: Skammarþríhyrningurinn May 4, 2026 4829 Tveir kallar fara í leikhús, hringja í kerlingu og læra ekki nafnið á neinum sem þeir hitta. Þeir bjóða í matarboð en muna ekki alveg hvernig bróðir þeirra lítur út.
45: Þetta verður allt í lagi
45: Þetta verður allt í lagi Apr 20, 2026 4854 Skilaboð berast frá Hollandi og trufla tvo kalla við að rifja upp menntaskólaárin þegar annar þeirra var fótboltasjomli og hinn dauðarokkari. Þeir snúa bökum saman og reyna að róa fíl í postulínsbúð, fá hataða hópa til að hata minna og svara að lokum spurningu áður en hún berst.
44: Ótrúlega óheppnir karlar
44: Ótrúlega óheppnir karlar Apr 6, 2026 4909 Nokkrir alveg ótrúlega óheppnir karlar fara saman í ferðalag, halda þriðja í páskum heilagan, gefa gjafir, fara í golf og hafa gaman en brjóta engin lög (svo sannað sé). Síðan fá þeir ofnæmi fyrir heiminum, stíga til hliðar og hefja störf við umönnun.
43: Núna má allt
43: Núna má allt Mar 23, 2026 5668 Tveir kallar eiga við ýmis heilsufarsvandamál að etja svo þeir fara í rannsóknir og tala um rannsóknir og láta stinga sig til blóðs. Í sjúkrarúmunum horfa þeir á heimildarmyndina Inside the manosphere og ræða hana. Sverrir Bergmann kemur ekki í heimsókn á sjúkrahúsið. Þeir hrósa hver öðrum enn einu sinni (er ekki komið nóg af þessari vitleysu?), drulla á sig og sýna af sér hvatvísi í hvívetna en h
42: Margar pælingar
42: Margar pælingar Mar 9, 2026 4420 Tveir kallar ropa án þess að segja afsakið, eru eitthvað pirraðir og reka hlaðvörp í umvörpum. Tveir kallar kalla kallakalla kallakalla en vita ekki alveg hvað þeir eiga að kalla kallakallapælingar dagsins svo þeir ákveða að njóta lista, lesa skáldskap og hringja í gamla vini sem þeir gleymdu.
41: Bein pæling
41: Bein pæling Feb 23, 2026 5179 Tveir kallar taka hlaðvarp í beinni útsendingu, hlustendum dagsins rignir inn í símtölum og báðir fara á trúnó. Ekkert eitthvað. Ging gang gúllí gúllí.
40: Ekki er allt sem sýnist
40: Ekki er allt sem sýnist Feb 9, 2026 4602 Tveir kallar tala um þumalputtablöðrur (ekki spyrja) og ógleymanlegar tölur, horfa á fræga kvikmynd sem fjallar ekki um það sem við héldum og ákveða síðan að gerast eltihrellar konu sem er ekki til. Síðan finna þeir sér sálfræðing. Ekki veitir af.
39: Dauðinn
39: Dauðinn Jan 26, 2026 4509 Tveir kallar deyja ungir og hefja eftirlífið þar sem þeir ræða óhjákvæmilega um trú og tilfinningar. Þeir verða vegan en eru svo umkringdir af konum yfir fimmtugt. Þá teleporta þeir sig í burtu. Minnum á umræðuhópinn okkar á Facebook, Instagrammið okkar og upptökur af þáttunum á tveirkallar.is 

Recommended