
Japp
Katrín Aagestad og Hildur Scheving spjalla á léttu nótunum um allt sem er merkilegt og ómerkilegt.
Episodes

#14 Afmæli eða sköpunardagar?
Í þessum þætti jöppum við um allt sem tengist afmælum 🎂 Afmælishefðir, afmælisstress, bestu og verstu afmælin, gjafir, veislur og allt sem fylgir því að eiga fæðingardag🎈

#13 Skvísu stærðfræði (e. girl math)
Hvenær verða peningar ókeypis og hver er raunverulegur máttur ókeypis heimsendingar? Sokkinn skvísukostnaður og skvísa rað. Allt þetta og meira til í nýjasta Jappinu!

#12 Topp3 listar
Í þessum þætti er allt sett í topp 3. Allt frá því augljósa yfir í það sem enginn bað um að væri sett á lista.

#11 Haustið og kósý maxxxing
Endalaust japp um allt sem einkennir haustið, rútínu álag, súpur og pumpkin spice.

#10 Já eða nei (EKKI UM ESB)
Ef þú vilt pásu frá Jágúst og Neigúst þá er þetta þáttur fyrir þig. Kjósum já eða nei um allt nema ESB.

#9 Týpur
Japp um allar þær týpur sem umkringja okkur. Skinkan, baby goons, týpan okkar og hvað kemur eftir millenial green?

#8 Atvinna og fyrri störf
Hér jöppum við um undarleg störf, draumastörfin, önnur störf sem eru ekki endilega mjög spennandi og allt þar á milli.

#7 Skammarkrókurinn
Hlutir, fólk og fyrirbæri sem við viljum senda í skammarkrókinn.

#6 Ein stór samsæriskenning!
Jappað um hinar ýmsu kenningar og samsæri. Hvernig voru píramídarnir eiginlega byggðir, hvað varð um Avril Lavigne og er Monopoly karlinn með einglyrni eða ekki?

#5 Gamla internetið, ADSL & GG
Japp um gamla internetið og yfir í það nýja, söknuður betra.net tímanna og hvar er word bréfaklemman í dag?!?

#4 Sólviskubit og íslenska sumarkonan
Hvað gera íslendingar þegar sumarið kemur? Allt undir miðnætursólinni er rætt í þessum þætti.

#3 Frægir íslendingar
Frægir og ekki frægir og smá frægir. Við jöppum um frægð á íslandi og góða íslandsvini.

#2 Gellusjónarhornið: Fótbolti og go sports!
Okkar persónulega og gellulega sjónarhorn á fótbolta og aðra eins íþróttaiðkun.

#1 Myndirnar sem mótuðu okkur
Hið fyrsta japp, meðal annars um kvikmyndir með toxísk skilaboð til ungra kvenna sem við marineruðumst í sem unglingar.











