Home Podcasts Grjótkastið
Grjótkastið

Grjótkastið

Björn Ingi Hrafnsson 67 Episodes Sep 10, 2026

Grjótkastið er íslensk hlaðvarpsþáttaröð sem fjallar um málefni líðandi stundar. Þættirnir innihalda fréttaskýringar, pistla og viðtöl við ýmsa aðila. Dagbókarbrotum er einnig varpað fram í hverjum þætti.

Episodes

Kreppa í kortunum
Kreppa í kortunum Sep 10, 2026 00:52:54 Kannski ekki skemmtiefni, en samt skylduhlustun. Agnar Tómas Möller og Þorbjörn Atli Sveinsson rýna í fjárlagafrumvarpið og möguleg áhrif þess, en líka í ískyggilega þróun á ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa sem margir telja vísbendingu um yfirvofandi alvarlega kreppu á Vesturlöndum og víðar.
Á núna að troða okkur bakdyramegin í ESB?
Á núna að troða okkur bakdyramegin í ESB? Sep 5, 2026 00:38:26 Frosti Logason og Hjörtur J. Guðmundsson ræða viðbrögðin við NEI-inu, ummæli stækkunarstjóra ESB, stöðu ríkisstjórnarinnar og utanríkisráðherrans sérstaklega, alla þá sem sáu feitt djobb í útlöndum í hillingum og margt fleira.
Allt undir fyrir Þorgerði Katrínu og Viðreisn
Allt undir fyrir Þorgerði Katrínu og Viðreisn Aug 27, 2026 00:19:00 Andrea Sigurðardóttir þingfréttamaður Morgunblaðsins spáir í spilin fyrir komandi þjóðaratkvæði; Þorgerður Katrín leggur allt undir að já-ið verði niðurstaðan, Flokkur fólksins er í felum, Katrín Jakobsdóttir tekur á sig gusur fyrir að fylgja sannfæringu sinni og er ríkisstjórnin öðrum þræði að fá á sig mælingu á laugardaginn?
Landsbyggðin skeptískari á ESB-aðild
Landsbyggðin skeptískari á ESB-aðild Aug 25, 2026 00:20:05 Dr. Birgir Guðmundsson prófessor emeritus um mismunandi viðhorf íbúa landsbyggðarinnar gagnvart aðild að ESB og íbúa höfuðborgarsvæðisins, stöðu málsins innan stjórnmálaflokkanna, þátt fjölmiðla í aðdraganda þjóðaratkvæðis og margt fleira.
ESB vill Ísland inn til að þrýsta á Noreg
ESB vill Ísland inn til að þrýsta á Noreg Aug 24, 2026 00:34:59 Fáir þekkja innviði Evrópusambandsins betur en Dr. Gunnar Pálsson sem starfaði í utanríkisþjónustu Íslands í fjörtíu ár og var meðal annars sendiherra hjá NATO, Sameinuðu þjóðunum og Evrópusambandinu sjálfu. Hann veitir okkur einstaka innsýn í það valdatafl sem er að baki áhuga ESB á aðild Íslands og hvernig farið er með umsóknir ríkja og aðildarviðræður. Skylduhlustun.
Viðreisn hefur hina stjórnarflokkana að fíflum
Viðreisn hefur hina stjórnarflokkana að fíflum Aug 22, 2026 00:15:46 Símtal dagsins er við Guðmund Fetram Sigurjónsson athafnamann á Ísafirði um komandi þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB.
Hefur ESB-atkvæðagreiðslan áhrif á Peningastefnunefnd?
Hefur ESB-atkvæðagreiðslan áhrif á Peningastefnunefnd? Aug 17, 2026 00:49:45 Skuggabankastjórnin kemur saman til að ræða stöðu og horfur, enda vaxtaákvörðun framundan í vikunni. Hefur þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB áhrif á þá sem sitja í peningastefnunefnd? Verða viðfangsefnin hin sömu í haust hvort sem þjóðin segir nei eða já? Ummæli forsætisráðherra um atvinnulífið og verðbólguna koma við sögu, sem og fjárlög næsta árs sem eiga að verða hallalaus. Þýðir það alvöru hagræði
Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga
Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga May 18, 2026 00:48:42 Skuggabankastjórn kemur saman að loknum sveitarstjórnarkosningum og rýnir í úrslitin og ræðir ákvörðun peningastefnunefndar sem kynnt verður seinna í vikunni. Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson liggja ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn.
Ríkisstjórnin sem vill ekki hlusta
Ríkisstjórnin sem vill ekki hlusta Apr 15, 2026 00:42:43 Bergþór Ólason og Ingibjörg Ísaksen um ríkisstjórnina sem hlustar bara alls ekki á nein varnaðarorð, hvaðan sem þau koma, óvænt brotthvarf varaformannsins úr Flokki fólksins, skoðanakannanir og komandi sveitarstjórnarkosningar og magnaðan blaðamannafund forsætisráðherra fyrir utan Jysk í Kópavogi.
Baráttan um Ísland
Baráttan um Ísland Apr 9, 2026 01:16:11 Björgvins Halldórssonar minnst. Baráttan um Ísland framundan, komandi sveitarstjórnarkosningar, veröld sem var í alþjóðamálum, staða efnahagsmála og margt, margt fleira.
Hvar ertu litla saklausa Ísland?
Hvar ertu litla saklausa Ísland? Mar 31, 2026 01:14:34 Í þessum þætti:Staða mála í borgarpólitíkinni, er hægt að bjarga borginni?Ná borgaralegu öflin saman um breytingar, eða vilja sumir sjálfstæðismenn vinna með Samfylkingunni þrátt fyrir allt?Borgarlínan og skipulagsmál og óhófleg yfirbygging borgarkerfisins með fjölda atvinnustjórnmálamanna.Hvaða áhrif hafa Evrópumálin á kosningabaráttuna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar?Munu kjósendur vilja
Féllust seðlabankastjóra hendur?
Féllust seðlabankastjóra hendur? Mar 24, 2026 00:52:32 Í fyrri hluta Grjótkastsins greinir Agnar Tómas Möller stöðu efnahagsmála eftir vaxtahækkun í síðustu viku. Féllust Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra hendur í Silfrinu í gær, þegar hann reyndi að útskýra horfur framundan? Hversu slæm er staðan í reynd? Af hverju er húsnæðisverð og leiguverð að fara að lækka á næstunni og hvað þýðir þessi staða fyrir umræðuna um aðild Íslands að Evrópusambandinu?Í

Recommended