Taboo er hlaðvarp þar sem Árni og Guðrún kafa djúpt í málefni sem oft eru talin óviðeigandi, eins og kynlíf, nekt, kynhneigð, swing, opin sambönd og OnlyFans. Þau deila eigin reynslu og ögra ríkjandi hugmyndum með einlægum samræðum. Hjónin hafa verið saman í 15 ár og leggja áherslu á andleg málefni og heilsu. Markmið þeirra er að tala um ögrandi málefni með húmor og án þess að taka sig of alvarlega.
Episodes

Þáttaröð 2 - Þáttur 10. - Bjargey Ingólfsdóttir
Hæ og velkomin í þátt númer 10 í annarri seríu af Taboo.
Bjargey Ingólfsdóttir er sennilega mörgum kunn enda hefur hún verið áberandi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum undanfarin ár. Hún er félagsráðgjafi að mennt, jógakennari, fyrirlesari og fararstjóri en umfram allt bara ótrúlega opin og skemmtileg manneskja sem er óhrædd við að tala um lífið eins og það er.
Við fengum Bjargeyju til okkar í vir

Þáttaröð 2 - Þáttur 9. - Helgi Jean Claessen
Hæ elskurnar
Þessi þáttur var algjör negla! Við fengum til okkar Helga Jean aka KakóHelgi aka Graðasti maður íslands. Við áttum ótrúlega skemmtilegt spjall og fengum að heyra söguna hans Helga og hvar hann er staddur í dag í sínu ferðalagi. Ræddum um fjölástir, kynlíf, hugvíkkandi ferðalög, Kakóserimóníur, Kakókastalann ofl. ofl.
Njóttu vel!

Þáttaröð 2 - Þáttur 8. - Gott kynlíf?
Velkomin í nýjan þátt af Taboo.
Við förum svolítið um víðan völl en ræðum aðallega hugtakið "gott kynlíf". Hvað er það og hvað þarf til? Er til eitthvað eitt rétt "gott kynlíf" eða er þetta afstætt. Er hægt að vita með vissu að maður sé góður í kynlífi?
Skemmtilegar pælingar. Njótið vel!

Þáttaröð 2 - Þáttur7. - Matilda Gregersdotter
Í þessum þætti fengum við frábæran gest eða hana Matildu Gregersdotter. Matilda er MCC markþjálfari með yfir 20 ára reynslu sem markþjálfi. Hún er líka mikil áhugamanneskja um Tantra, kynlíf og hinn andlega heim. Hún kom að stofnun Wild Love hátíðarinnar sem hefur verið haldin árlega undanfarin á hér á Íslandi og hún skrifaði líka bókina "Daily Sex" sem er hálfgerð dagbók þar sem hún talar um þá á

Þáttaröð 2 - Þáttur 6. - Kynorka = Lífsorka
Hæ öll
Í þessum þætti tölum við um kynorkuna og hvernig það er hægt að nýta hana sem lífsorku og drifkraft í lífinu.
Njótið vel!

Þáttaröð 2 - Þáttur 5. - Kara og Viktor aka Lovetwisted
Velkomin aftur!
Í þessum þætti fáum við í fyrsta skipti gesti til okkar! Mikil tímamót fyrir Taboo :)
Við spjöllum við parið Köru og Viktor sem ganga undir nafninu Lovetwisted bæði á SDC, onlyfans og fleiri vettvöngum á netinu. Þau eru virk í lífsstílnum, eru í opnu sambandi og hafa haldið stærstu swing party á Íslandi. Ótrúlega gaman að fá þau í spjall til okkar.
Njótið vel.

Þáttaröð 2 - Þáttur 4. - Að taka skrefið
Hæ og velkomin aftur!
Í þessum þætti ræðum við aðeins um hvernig það er að taka skrefið og byrja að explore-a hluti saman sem par, hvort sem það er swing, opin sambönd etc.
Þetta getur verið erfitt og tricky og við förum aðeins yfir okkar sögu og okkar lærdóm af þessu.
Njótið vel

Þáttaröð 2 - Þáttur 3. - Snapchat og samfélagsmiðlar
Hæ þið!
Í þessum þætti ræðum við um taboo hliðina af Snapchat og öðrum samfélagsmiðlum. Snapchat er ákveðið fyrirbæri útaf fyrir sig sem okkur fannst mjög gaman að ræða um. Ef þið viljið fylgja okkur á snapchat þá finnið þið okkur undir @taboo.parid
Njótið vel

Þáttaröð 2 - Þáttur 2. - Viðurkenning
Hæ hó og velkomin aftur
Í þættinum í dag spjöllum við um viðurkenningar og þá aðallega þörfin á að fá viðurkenningu frá öðrum. Hvaðan það kemur og hvernig það snertir við okkur.
Njótið vel.

Þáttaröð 2 - Þáttur 1. - $ex Workers
Hæ elsku bestu!
Við erum mætt eftir smá frí og verðum vikulega næstu vikurnar. Mikið af spenanndi þáttum framundan í þáttaröð 2. Við ætlum að kafa dýpra í ákveðin málefni eins og opin sambönd og swing sem dæmi en í þættinum í dag ræðum við um $ex Workers. Ótrúlega áhugavert viðfangsefni að okkar mati.
Njótið vel.

Þáttur 24. - Að hössla
Fyndinn þáttur þar sem við spjöllum um hvað það getur verið skrýtið og steikt að reyna hössla annað fólk þegar maður er í opnu sambandi. Stutt og laggott en skemmtilegt. Erum ennþá að prufa okkur áfram með nýjar græjur, vonandi eru hljóðgæðin í lagi :)

Þáttur 23. - Power play / Dom og Sub / Valdaleikur
Hæ og verið velkomin aftur :)
Í þessum þætti ræðum við um það sem kallast "power play" eða "power exchange" sem er eitt form af "kink" og er oft sett undir eitt af þeim kinkum sem eru undir BDSM. Förum aðeins yfir okkar reynslu og hvernig við erum að fikra okkur áfram. Okkur finnst þetta ótrúlega spennandi og hlökkum til að heyra hvað ykkur finnst!











